Þessi mynd var tekin í júní 1992 af hópi krakka og leiðbeinenda eftir vel heppnaðan gróðursetningardag í hlíðum Spákonufells. Í fremstu röð frá vinstri: Kolbrún Viggósdóttir, Kristín Þórðardóttir, Arnar Ólafur Viggósson, Jóhannes V. Grétarsson, Jón Örn Stefánsson, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson og óþekkt. Í annarri röð frá vinstri: Gestur Arnarson, óþekktur, Sigurður Berndsen, Árni Max Haraldsson, Ástmar Sigurjónsson, Jón Ólafur Sigurjónsson, Ragna Gunarsdóttir, óþekkt, Ásta Ásgeirsdóttir og Salóme Ýr Rúnarsdóttir. Aftast eru frá vinstri: Guðjón Magnússon leiðbeinandi og Kristján Gunnar Guðmundsson. Það er gaman fyrir þetta fólk að líta yfir svæðið í dag og sjá góðan árangur starfs síns í plöntum sem nú eru um tveggja metra há tré. |