Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki. Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu. Á þessari mynd eru tvær drottningar, Inga Lára Sigurðardóttir til vinstri og Árný Helgadóttir til hægri. Myndin var tekin sumarið 1993. |