Árni Guðbjartsson. |
Eftir snarpa baráttu við illvígan sjúkdóm hefur Árni nú lagt inn árarnar og er kominn í skjól í þeirri höfn sem bíður okkar allra. Þaðan mun hann væntanlega róa á ný og önnur mið en þau sem hann sótti af svo mikilli elju hér á jörðinni. Hann barst ekki mikið á en vann störf sín af dugnaði og trúmennsku, léttur í skapi og fullviss um þann kúrs sem hann tók hverju sinni. Vinsæll, ráðagóður og hjálpsamur eru fyrstu orðin sem koma upp í hugann þegar Árna er minnst. Hugur okkar og samúð er hjá aðstandendum hans sem nú sjá eftir góðum dreng inn í heim ljóssins. Árni Guðbjartsson lést 20. febrúar síðastliðinn en útför hans verður frá Hólaneskirkju föstudaginn 2. mars klukkan 14:00 |