Ardís Ólöf Arelíusdóttir
Ardís Ólöf Arelíusdóttir verður jarðsungin frá Hólaneskirkju föstudaginn 5. október klukkan 14:00 Ardís Ólöf var stolt átta barna móðir sem tekið var eftir hvar sem hún kom. Hún var smekkvís og hafði unun af að hafa fallegt í kringum sig eins og blómagarðar hennar báru glöggt vitni um. Óla var ávallt hrein og bein í samskiptum við aðra og fór sínar eigin leiðir ef henni sýndist svo. Um árabil starfaði hún baksviðs með Leikklúbbi Skagastrandar á blómaskeiði klúbbsins sem hvíslari og sminka. Eftir margra ára baráttu við illvígan sjúkdóm hefur þessi sómakona nú kvatt og haldið inn í ljósið þar sem veikindi og verkir þekkjast ekki. Stórri fjölskyldu Ardísar Ólafar er vottuð samúð nú þegar þau ganga gegnum erfiðan tíma. |