Hrefna Björnsdóttir verður jarðsungin frá Hólaneskirkju laugardaginn 27. október klukkan 14:00 Hrefna var hæglát og dul sómakona sem hafði yndi af blómum en þeim sinnti hún af natni og yfirvegun. Henni fannst gott að njóta sólarinnar og margir muna hana sitjandi á svölunum að sóla sig á góðum dögum. Hrefna var nægjusöm hvunndagshetja sem helgaði heimilinu krafta sína af væntumþykju og hagsýni meðan hún gat. Nú þegar Hrefna hverfur inn í ljósið er hugur okkar hjá aðstandendum hennar sem kveðja traustan bakhjarl úr lífi sínu. |