Fimmtán hressir krakkar kepptu fyrir hönd USAH á Silfurleikum ÍR í frjálsíþróttum í Laugardalshöllinni um síðustu helgi (19 nóvember). Allir stóðu sig frábærlega og það sem mestu máli skiptir er að allir skemmtu sér konunglega. Góð þáttaka var á mótinu og voru 559 keppendur skráðir til keppni frá 22 samböndum.
Frábær árangur hjá Húnvetningunum. Stefán Velemir setti Íslandsmet í flokki 16 -17 ára pilta þegar hann varpaði kúlunni 15,99 m. Hann æfir og keppir með ÍR. Til hamingju með þennan frábæra árangur Stefán J |