Breyttur tími - Fundarboð sveitarstjórnar

Vegna óviðráðanlegra ástæðna þurfti að fresta boðuðum fundi síðasta mánudag.

Fundur verður því haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar kl. 8:30 mánudaginn 16. desember 2024 á skrifstofu sveitarfélagsins að Túnbraut 1-3.

Dagskrá:

1. Skýrsla sveitarstjóra

2. Fjárhagsáætlun 2025-2028 síðari umræða

   a. Forsendur fjárhagsáætlunar

   b. Útsvarsálagning

   c. Álagning fasteignagjalda

3. Gjaldskrár 2025

4. Samþykkt um kjör fulltrúa í stjórnum, ráðum og nefndum Sveitarfélagsins Skagastrandar

5. Rekstaryfirlit jan-okt 2024 og framkvæmdayfirlit jan-nóv 2024

6. Viðauki 2 við fjárhagsáætlun 2024

7. Samningur um refaveiði við Umhverfisstofnun

8. Minnisblað – lífúrgangur á Norðurlandi vestra

9. Sala fasteigna

   a. Suðurvegur 12 – F2139016

   b. Túnbraut 5 – F213904

10. Herring Hotel 

11. Bréf

   a. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið dags. 12. nóvember 2024

   Efni: Náttúrustofur stöðumat og sviðsmyndir

12. Fundargerðir:

   a. Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 4. nóvember 2024

   b. Stjórnar SSNV dags. 5. nóvember 2024

   c. Stjórnar SSNV. dags. 4. desember 2024

   d. Félags- og skólaþjónustu A-Hún dags. 25. nóvember 2024

13. Önnur mál