Vitinn |
Þessi viti stóð áratugum saman á enda hafskipabryggjunnar (Útgarði) í Skagastrandarhöfn og vísaði sjómönnum rétta leið til hafnar. Á myndinni, sem Ingibergur Guðmundsson tók í apríl 1987, er hann þakinn ís eftir mikla ágöf. Vitinn var gasknúinn og því var inni í honum hólf fyrir gaskút. Vitinn var rifinn þegar hann var farinn að láta verulega á sjá eftir endalausan ágang sjávar ekki síst vegna þess að bryggjan sem hann stóð á seig og hallaðist þannig að meira mæddi á honum en áður. Í dag er rör með ljósi á sama stað og vitinn stóð en hinum megin við innsiglinguna í höfnina, við skerið Brúnkollu, er ljósbauja með blikkandi ljósi. |
Senda upplýsingar um myndina |