Við þurkhjallinn. |
Vorinu fylgir veiði á grásleppu. Mörgum þykir sigin grásleppa vera hnossgæti. Öðrum þykir hún versti matur sem til er eða jafnvel að hún sé alls ekki matur yfirleitt. Á myndinni er Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) að búa sig undir að hengja upp nýskornar grásleppur í hjallinn. Eins og sést í í hjallinum í baksýn eru grásleppur þar að síga á mörgum hæðum. Þær þurfa að hanga 10 - 20 daga eftir verðurfari áður en þær eru tilbúnar í pottinn. Myndin var tekin einhverntíma seint á níunda áratugnum. |
Senda upplýsingar um myndina |