27.02.2012
Vinnumálastofnun á Norðurlandi vestra býður atvinnurekendum og fulltrúum sveitarfélaganna til kynningarfunda um átakið „Vinnandi vegur“, sem er átak til að skapa störf fyrir atvinnuleitendur.
Kynningarfundir verða haldnir á eftirfarandi stöðum.
1.mars á Sauðárkróki á Kaffi Krók kl. 15:00.
2.mars á Hvammstanga í Hlöðunni kl. 11:00.
2.mars á Blönduósi í Eyvindarstofu kl. 14:00.
5.mars á Skagaströnd hjá Vinnumálastofnun kl. 11:00.
Við vonumst til að sem flestir atvinnurekendur sjái sér fært að mæta.
Starfsfólk þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Norðurlandi vestra
23.02.2012
Drekktu betur í Kántrýbæ
föstudaginn 24. febrúar 2012 kl. 21:30
Alþjóðlegar spurningar og þrír í liði
Nú breytum við aldeilis til því á föstudagskvöldið eru það fulltrúar Ness listamiðstöðvar sem sjá um spurningarnar en það eru Norðmaðurinn Sigbjörn Bratlie og Barbara Gamper frá Ítalíu sem semja spurningarnar og verða dómarar og alvaldar. Sigbjörn spyr á íslensku en Barbara þýðir yfir á ensku.
Líklega verða spurningarnar ekki alveg eins „lokal“ og stundum. Kannski verða ein eða tvær spurningar um listina, t.d. hver málaði Monu Lísu eða Ópið, nú eða hvað heitir konungur Noregs? Er Berlusconi enn forsætisráðherra Ítalíu?
Allaveganna verða spurningarnar, eins og venjulega, óvæntar og spennandi.
Svo ætlum við líka að prófa að hafa þrjá í liði og sjá hvernig það kemur út. Þá getið þið valið með ykkur fólk með sérsvið, kvikmyndir, tónlist, náttúrufræði o.s.frv.
Mætum öll á skemmtilegan leik.
22.02.2012
Rauði Kross Íslands
Skagastrandardeild
Aðalfundur Skagastrandardeildar RKÍ verður haldinn
þriðjudaginn 28. febrúar n.k. kl. 20:00
í húsnæði deildarinnar að Vallarbraut 3.
Venjuleg aðalfundastörf
Skagastrandardeild RKÍ
22.02.2012
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar
föstudaginn 24. febrúar 2012 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 800.
Dagskrá:
1. Þriggja ára áætlun sveitarsjóðs og stofnana
2. Dreifnám
3. Fellsborg framkvæmdir
4. Samningur MN og SSNV
5. Bréf:
a. Félags- og skólaþjónustu A-Hún, dags. 13. febrúar 2012
b. Þingmanna Hreyfingarinnar, dags. 7. febrúar 2012
c. Hollvinasamtaka HSB, dags. 17. febrúar 2012
d. Óbyggðanefndar, dags. 18. janúar 2012
6. Fundargerðir
a. Fræðslunefndar, 19.01.2012
b. Stjórnar Félags- og skólaþjónustu A-Hún, 2.02.2012
c. Menningarráðs Norðurlands vestra, 2.02.2012
d. Heilbrigðisnefndar Nl. vestra, 31.01.2012
e. Héraðsfundar sveitarstjórna í A-Hún, 7.02.2012
f. Stjórnar SSNV, 14.02.2012
g. Stjórnar Sambands ísl. sveitarfél. 27.01.2012
7. Önnur mál
Sveitarstjóri
22.02.2012
Þann 17.mars næstkomandi mun vera haldið námskeið í kransakökugerð á Skagaströnd.
Námskeiðið er haldið undir leiðsögn Halldórs Kr. Sigurðssonar bakar og konditor.
Fyrirkomulag námskeiðisins
Hver og einn þáttakandi mun útbúa 40 manna kransaköku sem hann/ hún getur síðan fryst og boðið upp á í fermingarveislunni sinni eða öðrum viðburði.
Kennt verður hvernig á meðhöndlar massann, hvernig kakan er sett saman og hugmyndir af skreytingu.
Einnig verða þátttakendum kennt hvernig er hægt að að útbúa súkkulaðiskraut á einfaldan máta.
Námskeiðið mun taka um það bil tvær og hálfa klukkustund og þátttölugjald mun vera 6.990 kr.
Allt hráefni og bakstur er innifalið í verðinu.
Einnig er hægt að kaupa auka massa ef fólk vill stækka kökuna eða búa til kransakökubita, ekki er nauðsynlegt að sækja námskeiðið til þess.
Þessi námskeið hafa verið haldin á höfuðborgarsvæðinu í mörg ár á vegum Blómavals og hafa þau verið mjög vinsæl,fyrir þá sem eru að fara að ferma þá er fermingarbarnið oft tekið með og hjálpar það við að gera köku fyrir sýna eigin fermingarveislu.
Námskeiðið verður haldið í Félagsheimilinu á Skagastönd þann 17.mars næstkomandi frá kl 12:00 til 14 :30.
Nauðsynlegt er að taka með sér ílát til að geyma kökuna í, farið verður með hana heim ósamansetta.
.
Áhugasamir vinsamlegast sendið tölvupóst á solnoi@hotmail.com eða hringið í síma 690 9078.
Skráning þarf að vera með fullu nafni, síma og hvert námskeiðið verður sótt.
12.mars er allra síðasti dagur til að skrá sig.
Frekari upplýsingar um námskeiðið getur þú fengið í skráningarsíma eða sent tölvupóst.
Vonandi sjá sem flestir sér fært á að mæta á þetta skemmtilega námskeið :)
Halldór Kr. Og Margrét Sól.
22.02.2012
Kvenfélagið Eining mun standa fyrir þriggjakvölda félagsvist á næstunni. Spilað verður í félagsheimilinu Fellsborg.
Spilað verður mánudaginn 27. febrúar, mánudaginn 5. mars og
mánudaginn 12. mars
Húsið opnar kl. 20:00. Byrjað verður að spila kl.20:30.
Miðaverð er 1000 kr. fyrir kvöldið. 1800 kr ef greitt er fyrir 2 kvöld, og 2400 kr ef greitt er fyrir 3 kvöld.
Vinningar eru í boði fyrir hvert kvöld fyrir sig, hæsti karl og hæsta kona og svo skammarverðlaunin að sjálfsögðu. Svo er tekin heildarsumma allra kvölda og sá stigahæsti fær veglegan vinning síðasta kvöldið.
Kaffiveitingar í hléi eru innifaldar í miðaverði.
Kvenfélagið Eining.
21.02.2012
Breytt viðvera lækna á Skagaströnd:
Framvegis verður læknir annan hvern þriðjudag og alla fimmtudaga frá kl. 9-12 á Heilsugæslunni á Skagaströnd.
Nánari upplýsingar og tímapantanir í síma: 455 4100
HSB
17.02.2012
Þeir listamenn sem dvelja nú í Nes listamiðstöð sýna afrakstur vinnu sinnar þriðjudaginn 21. febrúar, kl. 17:00 – 19:00. Með því að nota margvíslega miðlunartækni, eins og málverk, myndbönd, innsetningar, vefnað og ljósmyndun, þá munu listamennirnir breyta Nes listamiðstöð í sýningarsal og sýna jafnt fullunnin verk og verk í vinnslu.
Sumir listamannanna hafa í verkum sínum tekið mið af umhverfi Skagastrandar og nágrenni, sagnaarfinum og samfélagi. Hollenska listakonan AnneMarie van Splunter er að ljúka við heimildarmynd um leikskólann á Skagaströnd, bandaríski listamaðurinn Liz Hope Layton hefur unnið málverk og myndband út frá sögunni um Þórdísi spákonu og ítalska listakonan Barbara Gamper skoðar staðarímynd og sjálfsmynd á Íslandi. Fransk-spænski listamaðurinn Luis Miguel Dominguez málar landslag með bleki á 10 metra langan pappír, mexíkóski listamaðurinn Christian Castañeda Vázquez vinnur að teikningum sem byggja á íslenskum goðsögnum og þýska listakonan Christin Lutze nýtir sér litróf íslenska vetrarins í málverkum sínum. Sid Blevens stundar tónsmíðar á meðan Elsa di Venosa og Hugo Deverchère frá Frakklandi búa til myndband, þar sem þau skoða úr lofti hið tunglkennda landslag Íslands.
„Með sífelldan vindinn utandyra hefur Nes listamiðstöð verið vinnustaður okkar nánast allan sólarhringinn þessar vikur. Það hefur verið dýrmæt reynsla fyrir okkur að vinna klukkustundum saman í björtu og rúmgóðu vinnuhúsnæðinu og ganga síðan út um dyrnar í éljaganginn og snjóinn sem ekki var hér í morgun. Á hverjum degi eru landslagið, fjöllin, hafið og láglendið, síbreytileg í litum og ásýnd.
Maður verður að vera ansi dofinn til að verða ekki fyrir áhrifum af þróttmikilli náttúrunni - myrkrinu og litum norðurljósanna. Ef vindurinn verður of mikill þá grípum við í næsta ljósastaur og ef skyggnið er aðeins einn metri, þegar við leggjum af stað heim, þá snúum við bara aftur til listamiðstöðvarinnar. Það er nægur matur í ísskápnum, nóg af teppum og nokkrir sófar. Við gætum dvalið í eina eða tvær vikur í listamiðstöðinni ef við þyrftum. Við þurfum ekki að hafa neinar áhyggjur.“
AnneMarie van Splunter, HollandBarbara Gamper, Ítalía/Bretland
Christian Castañeda Vázquez, MexíkóChristin Lutze, Þýskaland
Claire Pendrigh, ÁstralíaConnie Dekker, Holland
Elsa di Venosa, FrakklandHugo Deverchère, Frakkland
Liz Hope Layton, USASid Blevins, USA
Luis Miguel Dominguez, FrakklandSigbjørn Bratlie, Noregur
16.02.2012
Út er kominn bæklingur um veiðivötnin í Skagaheiði. Bæklingurinn er unnin af Sigurði Sigurðarsyni og Róbert F. Gunnarssyni en útgáfan er styrkt af Ferðamálastofu. Bæklingurinn verður til afhendingar á helstu viðkomustöðum ferðamanna á Norðurlandi vestra.
Í ritinu er að finna upplýsingar um nærri fjörtíu vötn. Gott kort fylgir og öll vötn sem fjallað er um eru merkt .
Í texta er getið um fimm grundvallaratriði um hvert vatn: Veiðileyfi, vegalend frá Skagaströnd, aðkomu, veiði og stærð vatns. Einnig hefur verið reynt að birta myndir af sem flestum vötnum. Í honum er einnig að finna hverjir selja veiðileyfi, hversu langt er að vatni frá Skagaströnd, aðkoma að vatninu, stærð þess og ekki síst hvers konar veiði er von. Í bæklingnum er kort af Skaga og þar má finna helstu leiðir, örnefni, jarðamörk og mörk almenninga. Bæklingurinn er birtur á heimasíðunni og finnst hér: http://www.skagastrond.is/veidi_skaga.pdf
16.02.2012
Undanfarnar vikur hefur verið unnið að gerð myndbands um Leikskólann Barnaból í tilefni 35 ára afmælis leikskólans. Verkefnið er unnið í samstarfi leikskólans og Nes listamiðstöðvar en Minningarsjóður hjónanna frá Garði og Vindhæli styrkir verkefnið.
Nes listamiðstöð auglýsti eftir listamanni til að koma til Skagastrandar og búa til heimildamyndina og valdi AnneMarie van Splunter frá Hollandi, úr hópi 30 umsækjenda frá 18 löndum. Nemendur í myndbandagerð í grunnskólanum og tónlistarmenn á staðnum taka einnig þátt í verkefninu. Connie Dekker, sem er hollenskur listamaður, mun sjá um ljósmyndaáttinn í verkefninu.
Þegar myndin er tilbúin verður forsýning hér á Skagaströnd en einnig mun myndin verða á heimasíðu Nes listamiðstöðvar og listamannanna sjálfra.
AnneMarie vill gjarnan að allir núverandi og fyrrverandi nemendur og starfsfólk Barnabóls séu þátttakendur í þessu verkefni.
Ef þú, lesandi góður, eða börnin þín hafa einhvern tímann verið á leikskólanum þætti okkur vænt um að þú hefðir samband við AnneMarie; á netfanginu: annemarievansplunter@orange.nl, í farsímann hennar: 0031613018821 eða bara líta við í Nes listamiðstöð. Hún mun verða mjög glöð að sjá þig/ykkur.
Myndatakan mun aðeins taka 1-2 mínútur, bara myndataka - engin viðtöl. Ef þú vilt láta taka mynd af þér á einhverjum sérstökum stað eða t.d. með uppáhaldshattinn þinn þá er það bara skemmtilegra.
Nánari upplýsingar um listamennina:
AnneMarie van Splunter (1962) stundaði nám við Willem de Kooning listaháskólann í Rotterdam en á heima og starfar í Amsterdam. Listaverk hennar eru mjög fjölbreytt og úr margvíslegum efnum. Sjá nánar: www.annemarievansplunter.nl og www.conniedekker.nl
Þú getur fylgst með framvindu verkefnisins á vefsíðunni: www.conniedekker.nl/iceland