05.05.2010
Kór eldri borgara í Húnaþingi bauð upp á skemmtilega samkomu í Hólaneskirkju á Skagaströnd síðastliðinn mánudag.
Auk söngs var boðið upp á upplestur í bundnu og óbundnu máli.
Stjórnandi kórsins var Kristófer Kristjánsson en hann lék jafnframt á hljómborð. Einar Þorláksson lék einnig undir á harmoniku.
Tónleikarnir voru styrktir af Menningarráði Norðurlands vestra.
03.05.2010
Þriðjudaginn 27. apríl hittust kennarar úr Húnavatnssýslunum á Skagaströnd til að fræðast um ritun.
Baldur Sigurðsson, lektor í Háskóla Íslands var þar mættur á vegum Fræðsluskrifstofu A-Hún. með seinni hluta námskeiðs sem hófst á Degi íslenskrar tungu 16. nóvember sl. Kennararnir hittu þar kollega sína og ræddu þeir m.a. saman í hópum um málefni dagsins auk þess að hlýða á fyrirlestur Baldurs.
Að venju voru allir alsælir þegar þeir héldu heim á leið, enda fátt skemmtilegra en að fræðast um áhugaverða hluti í góðum félagsskap.
03.05.2010
Golfvöllurinn hefur verið opnaður. Um það er vitnað. Hrossagaukurinn hlakkar ofan brauta, lóan stendur móð og másandi á þriðju braut, gæsir hægja sér við grínið á annarri braut, rjúpur spóka sig og korra í jólafötunum og hettumáfar deila.
Kliður er í lofti enda farfuglarnir nýkomnir. Líklega fer betur á því að kalla þá komfugla á vorin og farfugla á haustin, en það er annað mál.
Utan girðingar á þriðju braut stendur brúnt hross og horfir á þegar maður nokkur mundar sig líklegan við teiginn. Það færir sig nær þegar hann tíar, reisir makka er hann sveiflar drævernum fagmannlega en hristir svo höfuðið er hann slær í jörð og kúlan skoppar fáeina metra. Lágvær hnegg, greinilega með neikvæðum tón, heyrist um leið og það skokkar að nærstöddum hryssum sem rökræða um vorið, folöld og fugla og grasneyslu.
Já, grasið er óðum að lifna við. Víða er enn frostlyfting á brautum, en smám saman losnar um og vatnið sitrar hægt út í skurði. Sami maður og hrossið hló að fann samt örlítið fyrir sjóveiki er hann gekk yfir öldótta áttundu braut og kerran valt og úr henni allt …
Vorið er kraftaverk á Háagerðisvelli. Þá verða breytingar sem gera golfvöllinn að perlu.
Og allir eru sammála manninum sem sagði: „Golfvöllurinn á Skagaströnd er líklega best geymda leyndarmálið á meðal kylfinga á Íslandi.“ Samt var hann ekki sá er hesturinn hló að.
03.05.2010
Sveitarfélagið Skagaströnd leitar eftir starfsfólki í eftirfarandi sumarstörf:
· Flokksstjórum til starfa í Vinnuskóla Skagastrandar frá 17. maí eða fyrr. Gerð er krafa um að umsækjendur séu 20 ára eða eldri.
· Almennum starfsmönnum til ýmissa sumarstarfa, 16 ára og eldri.
· Starfsmanni til að hafa m.a. umsjón með „Kofavöllum“ fyrir börnin í samstarfi við Umf Fram. Starfið felst í umsjón með kofasmíði skólagörðum og leikjanámskeiði.
· Umsjón með gæsluvelli á meðan sumarlokun leikskólans stendur yfir.
· Sundlaugarvarsla í sumarafleysingum.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu sveitarfélagsins eða á www.skagastrond.is. Umsóknum skal skilað á skrifstofu sveitarfélagsins og er frestur til að sækja um starf flokksstjóra til 10. maí 2010
Nánari upplýsingar veitir Árni Geir Ingvarsson í síma 861 4267 eða á ahaldahus@skagastrond.is
Skagaströnd, 3. maí 2010
Sveitarstjóri
28.04.2010
Skagastrandarlistinn samþykkti á fundi í Kántrýbæ 26. apríl sl. svohljóðandi framboðslista til sveitarstjórnakosninga 2010:
1. Adolf H. Berndsen
2. Halldór G. Ólafsson
3. Péturína L. Jakobsdóttir
4. Jón Ó. Sigurjónsson
5. Jensína Lýðsdóttir
6. Baldur Magnússon
7. Valdimar J. Björnsson
8. Svenný H. Hallbjörnsdóttir
9. Björn Hallbjörnsson
10. Birna Sveinsdóttir
Skagastrandarlistinn hefur boðið fram undir bókstafnum S frá árinu 1994 en nú hefur verið ákveðið að þar sem Samfylkingin hafi fengið þann bókstaf úthlutaðan á landsvísu verði Skagastrandarlistinn að velja annan listabókstaf.
Ákveðið hefur verið að Skagastrandarlistinn bjóði fram undir bókstafnum H.
Listinn heitir því H-listi, Skagastrandarlisti.
27.04.2010
„Við teljum nauðsynlegt að afla meiri upplýsinga um auðlindir sjávar og jafnframt að standa að nýsköpun sem gæti leitt af sér ný sóknarfæri hvað varðar atvinnusköpun. Þetta tvennt er einmitt meðal þeirra stefnumiða sem fyrirtækinu er ætlað að starfa eftir.“
Þetta sagði Halldór G. Ólafsson, framkvæmdastjóri BioPol ehf. á Skagaströnd í ræðu sinni föstudaginn 23. apríl er fyrirtækið tók formlega í notkun nýja og fullkomna rannsóknarstofu.
Fjölmenni var við vígsluna enda mikið um að vera á Skagaströnd þennan dag. Haldin var ráðstefna á vegum Fræðaseturs Háskóla Íslands og kynnt var starfsemi Nes listamiðstöðvar og Spákonuarfs.
Svar við breyttum aðstæðum
„Sjósókn og fiskvinnsla eru þær atvinnugreinar sem íbúar Skagastrandar hafa að mestu reitt sig á til lífsviðurværis í gegnum aldirnar. En síldin hvarf, rækjan, skelfiskurinn og kvótar í flestum fisktegundum hafa degist saman. Allt hefur þetta haft áhrif á Skagaströnd með beinum eða óbeinum hætti.
Stofnun Sjávarlíftæknisetursins BioPol ehf. er að hluta til svar við breyttum aðstæðum. Við teljum nauðsynlegt að afla meiri upplýsinga um auðlindir sjávar og jafnframt að standa að nýsköpun sem gæti leitt af sér ný sóknarfæri hvað varðar atvinnusköpun. Þetta tvennt er einmitt meðal þeirra stefnumiða sem fyrirtækinu er ætlað að starfa eftir.“
Ör vöxtur
Starfsemi BioPol ehf. hefur verið nokkuð fjölbreytt. Hér má nefna nokkur dæmi:
Rannsóknir á hrognkelsum sem lúta bæði að atferli og líffræði tegunarinnar sem og nýjum nýtingarmöguleikum.
Rannsókn sem miðaði að útbreiðslu og líffræði beitukóngs í Húnaflóa.
Rannsókn á fæðunámi sela er og vinna við vöktunarverkefni sem tengjast áhuga manna við Húnaflóa á kræklingarækt.
Einnig hefur félagið fengið styrk til að gera athugun á sýkingarástandi hörpudisks í Húnaflóa.
Ræktun og einangrun á smáþörungum úr sjó með framleiðslu á hágæða fiskiolíum og öðrum verðmætum efnum að markmiði.
Góður stuðningur stórnvalda
„Við segjum hér að Einar Oddur heitinn Kristjánsson hafi fyrstur skotið þessari hugmynd að okkur á vordögum 2007,“ sagði Adolf Berndsen, stjórnarformaður BioPol ehf. í ræðu sinni.
„Jón Bjarnason var einnig mikill talsmaður þess að við horfðum til rannsóknarstarfsemi. Öflugur stuðningur Háskólans á Akureyri hefur skipt sköpum við uppbyggingu BioPol frá upphafi. Rannsóknir og verkefni hafa frá byrjun miðast við öflugt samstarf við aðila innanlands sem erlendis.
Á engan er hallað að nefna sérstaklega Hjörleif Einarsson prófessor við Háskólann á Akureyri sem hefur frá upphafi verið lykilmaður í þessu verkefni með okkur. Þorsteinn Gunnarsson þáverandi rektor sýndi einnig þessari uppbyggingu góðan stuðning.
Þingmenn kjördæmisins með Einar Kristinn Guðfinnsson þáverandi sjávarútvegsráðherra í broddi fylkingar studdu á afgerandi hátt við hugmyndina, auk fleiri ráðherra.“
27.04.2010
Um 40% nemenda í Höfðaskóla, grunnskólanum á Skagaströnd, stunda líka nám í Tónlistarskólanum. Þetta er nokkuð hátt hlutfall og án efa með því hæsta sem gerist á landinu.
Það verður því áreiðanlega mikið líf og fjör þegar Tónlistarskólinn heldur vortónleika sína, en það verður á miðvikudaginn 28. apríl kl. 17.
Nemendur skólans leika á hljóðfæri sín í lúðrasveit, hljómsveitum, leika einleik eða spila með öðrum.
Þetta er viðburður sem enginn má láta fram hjá sér fara enda eru allir velkomnir.
27.04.2010
Þórdís spákona hefur verið fjarri Skagaströnd um hríð, í um það bil eitt þúsund ár, en er nú loksins komin heim. Hún hefur tekið sér bólfestu í Gamla Kaupfélagshúsinu, að minnsta kosti í bili.
Það er Spákonuarfur sem hefur látið búa til líkneskið af Þórdísi. Fyrirmynd Þórdísar er Jensína Lýðsdóttir sem lék hana í leikriti sem sýnt var í Fellsborg fyrir rúmu ári.
Líkneskið gerði Ernst Backman sem var frumkvöðull að stofnun Sögusafnsins í Perlunni í Reykjavík.
26.04.2010
Fræðasetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra tók formlega til starfa á föstudaginn með opinni athöfn á loftinu í Kaupfélagshúsinu.
Fjöldi manns kom á opnunina, sem Lárus Ægir Guðmundsson stjórnaði af röggsemi.
Á samkomuna voru mættir ýmsir aðilar sem Fræðasetrið hefur hug á samstarfi við og má þar nefna fólk frá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Tónlistarsafni Íslands, Miðstöð munnlegrar sögu og Forsvari ehf. á Hvammstanga. Sömuleiðis mættu til leiks stjórnarmenn Fræðasetursins ásamt fólki frá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og ýmsum öðrum. Það er mikill stuðningur við starf og framtíðarsýn hins nýja Fræðaseturs að allt þetta fólk skuli hafa komið til að fagna þessum merka degi.
Ræðumenn sem tóku til máls í tilefni opnunar Fræðasetursins voru Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, Kristín Ingólfsdóttir rektor Háskóla Íslands og Lára Magnúsardóttir forstöðumaður setursins.
Fram kom í máli Láru að Elín Hannesdóttir hefur boðið Fræðasetrinu að þiggja að gjöf bókasafn eiginmanns hennar, Halldórs Bjarnasonar sagnfræðings sem lést í haust. Safnið telur um 3000 titla og vonar Lára að hægt verði að gera safninu sóma á Skagaströnd, enda myndi það bæta stöðu Fræðasetursins stórkostlega, þar sem vinnutæki sagnfræðinga eru bækur.
Hún kynnti að lokum Soffíu Guðnýju Guðmundsdóttur íslenskufræðing til leiks, en hún hefur verið ráðin verkefnisstjóri hjá Fræðasetrinu næstu þrjá mánuðina til að sinna sérstökum málum.
Síðan færðu Anna Agnarsdóttir, prófessor og forseti Sögufélags, og Eggert Þór Bernharðsson, deildarforseti sagnfræði- og heimspekideildar, setrinu bókagjafir frá Sögufélagi og Sagnfræðistofnun HÍ.
Gestum var síðan sýnd Nes listamiðstöðin og Árnes og heimamenn dönsuðu línudans við mikinn fögnuð áhorfenda. Eftir móttöku í Bjarmanesi var gengið til snæðings í Kántrýbæ, þar sem þriggja rétta, vel útilátin og afar bragðgóð máltíð var til sölu á góðu verði.
Á laugardeginum fór fyrsta málþing Fræðasetursins fram en þar var fjallað um samskipti Íslands við erlend ríki og spurt hvernig sagnfræðin getur lagt sitt af mörkum við að taka afstöðu til spurninga eins og þeirrar hvort það sé Íslandi í hag að ganga í Evrópusambandið.
Tilefni þingsins, sem sveitarfélagið Skagaströnd skipulagði ásamt Fræðasetrinu með aðstoð frá SSNV, var meðal annars að í ár eru liðin 150 ár frá því Valtýr Guðmundsson fæddist á Skagaströnd.
Málþingið var opið öllum og það var nánast fullt hús í hinum fallegu húsakynnum í Bjarmanesi. Í lokin stýrði Ármann Jakobsson lektor í íslenskum bókmenntum umræðum.
Loks var ekið í rútu norður eftir Skaganum undir styrkri og skemmtilegri leiðsögn Magnúsar B. Jónssonar sveitarstjóra. Veðrið lék við gesti og heimamenn og þegar lagt var úr hlaði kl. 16:30 virtust gestir jafnánægðir með allan framgang mála og skipuleggjendur.
23.04.2010
Menningarráð Norðurlands vestra úthlutaði í gær, 22. apríl, 15,3 milljónum króna í verkefnastyrki. Umsóknarfrestur rann út þann 15. mars síðast liðinn og bárust 85 umsóknir þar sem óskað var eftir tæpum 50 milljónum króna.
Sex aðilar á Skagaströnd fengu styrki að þessu sinni.
Sveitarfélagið Skagaströnd fékk 150.000 króna styrk til að halda ráðstefnu um sögu pólitískra samskipta Íslands við önnur ríki. Ráðstefnan er haldin í samvinnu við Fræðasetur Háskólans á Skagaströnd sem tekur til starfa í dag og er ráðstefnan haldin á morgun, 24. apríl. Tilefni ráðstefnunnar er að 150 ár eru liðin frá fæðingu Valtýs Guðmundssonar sem var merkur stjórnmálaleiðtogi um þarsíðustu aldamót.
Skagaströnd fékk einnig 150.000 króna styrk til að halda ljósmyndasýningu utanhúss í sumar. Á síðasta ári stóð sveitarfélagið fyrir ljósmyndasýningu þar sem sýndar voru 50 árar gamlar myndir af síldarvinnslu á Skagaströnd. Sú sýning stendur enn og eru risastórar svart-hvítar ljósmyndir sýndar á húsgöflum víða um bæinn.
Kirkjukór Hólaneskirkju á Skagaströnd fékk 200.000 króna styrk til að halda gospel tónleika.
Elías Björn Arnason fékk 150.000 króna styrk til að gefa út geisladisk með undirleik við öll lög í sálmabók barnanna.
Menningarfélagið Spákonuarfur fékk 150.000 króna styrk til að gefa út bók um sögu Þórdísar spákonu. Á meðfylgjandi mynd tekur Dagný M. Sigmarsdóttir við viðurkenningarskjali til staðfestingar á styrknum.
Nes listamiðstöð fékk 100.000 króna styrk til að halda myndlistarsýningu.
Loks fékk Sigurður Sigurðarson, áhugaljósmyndari, 100.000 króna styrk til að halda ljósmyndasýningu sem hann nefnir „Spákonufell, kringinn í hringum“.