13.01.2010
Tónleikar Mannakorns í Kántrýbæ þann 11. október í haust eru eflaust mörgum minnisstæðir. Þar léku hinir landsþekktu og frábæru tónlistarmenn Magnús Eiríksson, Pálmi Gunnarsson, Ellen Kristjánsdóttir, Gunnlaugur Briem og Eyþór Gunnarsson af þvílíkri innlifun að unun var á að hlýða.
Fyrir nokkru rataði upptaka af laginu „Elska þig“ sem Ellen Kristjánsdóttir syngur inn á Youtobe, sem út af fyrir sig er ekkert merkilegt nema fyrir þá sök að upptakan var gerð í Kántrýbæ á áðurnefndum tónleikum. Lagið er eitt vinsælasta lag ársins 2009 og óhætt að fullyrða að flutningur þess tókst afar vel í Kántrýbæ og það fæst staðfest á upptökunni.
Lagið er að finna á þessari slóð:
http://www.youtube.com/watch?v=XirNxRKU9Nk
13.01.2010
Ólafía Lárusdóttir er spyrill, dómari og alvaldur í spurningakeppninni Drekktu betur sem haldin verður í Kántrýbæ föstudagskvöldið 15. janúar kl. 21:30
Hún starfar í Nes listamiðstöðinni, sér um að listamönnunum líði vel og reksturinn gangi snurðulaust fyrir sig.
Ólafía hefur áður verið spyrill, dómari og alvaldur í Drekktu betur og einnig verið svo heppin að vinna.
Hún lofar skemmtilegum spurningum; fimm spurningum um Venezuela, öðrum fimm um Skagaströnd, aftur fimm um kvikmyndir og sjónvarpsþætti og síðasta fimman verður um jólabækurnar. Loks verða 10 spurningar um allt milli himins og jarðar.
11.01.2010
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar
miðvikudaginn 13. janúar 2010 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 800.
Dagskrá:
1. Fjárhagsáætlun 2010
2. Bréf:
a) Nils Posse bæjarstjóra Växjö, dags. 4. des. 2009
b) Siglingastofnunar, dags. 15. des. 2009
c) Alta, ráðgjafastofu, dags. 26. nóv. 2009
d) Ámundakinnar ehf. dags. á aðventu 2009
3. Fundargerðir:
a) Stjórnar SSNV, 8.12.2009
b) Sambands ísl. sveitarfélaga, 11.12.2009
4. Önnur mál
Sveitarstjóri
08.01.2010
Rútuferð verður frá íþróttahúsinu á Skagaströnd kl 10 laugardaginn 9. janúar á skíðasvæðið í Tindastól.
Nægur snjór er í fjallinu og kominn tími til að taka fram skíði og bretti.
Rútufarið er án endurgjalds og allir velkomnir.
Umf. Fram
05.01.2010
Björgunarsveitin Strönd og Umf. Fram vilja koma á framfæri þökkum til fólks og fyrirtækja vegna flugeldaviðskipta á liðnu ári.
Jafnframt vilja félögin koma sérstökum þökkum til eftirtalinna aðila sem styrktu flugeldasýningu 2009.
Menningarsj. hjónanna frá Garði
Sveitarfélagið Skagaströnd
Fiskmarkaður Íslands
Djúpavík ehf
Laura ehf
Fisk Seafood
Kántrýbær
Hefill ehf
Vélaverkstæði Skagastrandar
Landsbankinn
Samkaup
Olís
Sjóvá – Almennar
Sorphreinsun VH
Vík ehf
Trésmiðja Helga Gunnars
Rafmagnsv. Neistinn
Vélaleiga Guðm. Björns.
H- 59 ehf
Toppnet ehf
Snorraberg
Marska ehf
Elva bókhaldsstofa
Vörumiðlun
Sjávarlíftæknisetrið BioPol ehf
S.J. útgerð ehf
Víva hár og snyrtistofa
04.01.2010
Á nýju ári er ekki úr vegi að óska lesendum sem og landsmönnum öllum gleði og farsældar á nýju ári. Meðfylgjandi mynd var tekin við sólarlag í byrjun síðasta desember við golfvöllinn á Skagaströnd.
17.12.2009
Sorphreinsun VH losaði endurvinnslutunnurnar á Skagaströnd í fyrsta skipti í gær, miðvikudaginn 16. des. Þar sem um breytingu á meðferðs sorps var að ræða hefur verið nokkur eftirvænting að vita hvernig fólk hefði tekið þeim nýju siðum að flokka og greina ruslið. Endurvinnslutunnurnar eru búnar að vera í notkun í 4 vikur og á þeim tíma hafði safnast 1.200 kg í þær 200 tunnur sem fóru út. Þetta telst mjög góður árangur og greinilegt að fólk hefur tekið þeirri nýbreytni vel að taka þátt í flokkun og er meðvitað um mikilvægi þess að beina sorpinu í betri farveg en að setja það allt til urðunar. Áætla má að sorpmagnið sem fer til urðunar hafi minnkað um allt að 10% strax á fyrsta mánuði. Ef þessi árangur helst verður sorp sem fer til endurvinnslu frá íbúum á Skagaströnd tæp 15 tonn á ári og góðar líkur á að enn betir árangur náist í framtíðinni miðað við þær jákvæðu viðtökur sem Endurvinnslutunnan hefur fengið.
14.12.2009
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar
þriðjudaginn 15. desember 2009 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 800.
Dagskrá:
1. Fjárhagsáætlun 2010
a) Forsendur fjárhagsáætlunar 2010
b) Útsvarsálagning
c) Álagning fasteignagjalda
2. Minnisblað um hitaveitu
3. Fjallskilamál
4. Viljayfirlýsing ríkis og sveitarfélaga um þjónustu við fatlaða
5. Ársreikningur Tónlistarskóla Austur Húnvetninga 2008
6. Bréf:
a) Textílseturs Íslands, dags. í nóv. 2009
b) Umhverfisstofnunar, dags. 5. nóv. 2009
c) Farskóla Nl. vestra, dags. 6. nóv. 2009
d) Völundarverk – Reykjavík, dags. 10. nóv. 2009
e) Heilbrigðiseftirlits Nl. vestra, dags. 16. nóv. 2009
f)UMFÍ, dags. 10. nóv. 2009
g) Stígamóta, dags. í nóv. 2009
h) Heimilisiðnaðarsafnsins, dags. 17. nóv. 2009
7. Fundargerðir:
a) Hafnarnefndarfundur, 16.11.2009
b) Stjórnar Norðurár bs. 6.09.2009
c) Félags- og skólaþjónustu A-Hún, 20.10.2009
d) Stjórnar SSNV, 10.11.2009
e) Stjórnar Sambands ísl. sveitafélaga, 27.11.2009
8. Önnur mál
Sveitarstjóri
14.12.2009
Á hverjum degi kl. 17:00, til 23. des. býður Menningarfélagið Spákonuarfur upp á sögustund og jólastemmingu í Árnesi. Lagt er upp úr að hafa jólastemmingu eins og í gamla daga. Kvæði og sögur um jólasveinana og er einn jólasveinn tekinn fyrir á hverjum dagi. Börn á öllum aldri velkomin(líka pabbar,mömmur,afar og ömmur. Engin aðgangseyrir,bara að koma með jólaskapið og gleðina.
Menningarf.Spákonuarfur
14.12.2009
Höfðaskóli efnir til samkeppni um skólasöng (lag og texti) og merki skólans.
Lagið þarf að vera í þægilegri söngtóntegund og textinn þarf að einhverjum hluta að passa einkennisorðum skólans.
Merki skólans verður notað sem táknmynd hans á opinberum vettvangi.
Einkennisorð skólans eru styrkur, vinsemd, virðing.
Þátttakendur skila hugmyndum sínum til skólastjóra fyrir 1. febrúar 2010.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans www.hofdaskoli.skagastrond.is .