Fréttir

Fundur um atvinnutækifæri í ferðaþjónustu

Margir velta því fyrir sér hvort það sé mikill vandi að stofna og reka fyrirtæki í ferðaþjónustu. Þessari spurningu og öðrum er ætlunin að svara á fundi sem haldinn verður í Fellsborg á Skagaströnd fimmtudaginn 5. nóvember næstkomandi  og hefst hann klukkan 18. Fundurinn er ætlaður þeim sem áhuga hafa á ferðaþjónustu eða eru að velta fyrir sér góðri hugmynd. Á fundinn koma nokkrir reynsluboltar sem eitt sinn áttu sér góða hugmynd og ákváðu að framkvæma hana. Þeir segja frá reynslu sinni, hindrunum og lausnum. Af þeim má margt læra enda var gott fyrirtækja einu sinni aðeins hugmynd. Fundarboðendur eru Sveitarfélagið Skagströnd, SSNV, Markaðsstofa ferðamála á Norðurlandi og Ferðamálasamtök Norðurlands vestra. tilgangurinn er að hvetja fólk til að kanna möguleika á aukinni ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra enda getur hún verið grundvöllur góðra atvinnutækifæra rétt eins og í Þingeyjarsýslum sem hugsanlega má taka til fyrirmyndar. Fundurinn er öllum opinn. Boðið verður upp á lítilsháttar hressingu, súpu, brauð og kaffi og er allt án endurgjalds. Fundarstjóri verður Jón Óskar Péursson, framkvæmdastjóri SSNV. Dagskrá fundarinns er sem hér segir: Setning, Adolf Berndsen oddviti Sveitarfélagsins Skagastrandar Getur skipulag ferðaþjónustunnar í Þingeyjarsýslum verið módel fyrir Norðurland vestra? Edward H. Huijbens forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála við Háskólann á Akureyri Afþreying, Sigurður Sigurðarson, markaðsráðgjafi á Skagaströnd Hvalaskoðunarferðir, Ásbjörn Björgvinsson Sjóstangveiði, Árni Halldórsson, Hauganesi, Árskógsströnd Gisting; hótel, gistihús og heimagisting, Stefán Haraldsson, atvinnuráðgjafi SSNV og formaður Farfugla Akstur, gönguferðir, skoðunarferðir, Kristján Eldjárn, Svarfaðardal Menningartengd ferðaþjónusta, Örlygur Kristfinnsson, Síldarminjasafninu á Siglufirði Umræður, fyrirspurnir og vangaveltur, Jón Óskar Pétursson stjórnar Fólk er hvatt til þess að láta ekki fundinn framhjá sér fara. Gera má ráð fyrir að hann standi til klukkan 21.

Náttúrufræði

Náttúrufræðikennarar Húnavatnssýslna voru boðaðir á fund þriðjudaginn 27. október í Húnavallaskóla. Markmið fundarins var að ræða saman, skiptast á verkefnum, hugmyndum og kennsluaðferðum í náttúrufræði. Kennurunum var gert að koma með kennsluáætlanir, verkefni, bækur og önnur gögn sem tengjast greininni og reynst hafa vel í kennslunni. Allir höfðu eitthvað fram að færa og jókst því hugmyndabanki kennaranna mikið. Þátttakendur ákváðu að hefja reglubundið samstarf með aðstoð netsins. Leiðbeinandi á námskeiðinu var Jóhanna Stella Jóhannsdóttir, kennari Húnavöllum. Námskeiðið var haldið á vegum Fræðsluskrifstofu A- Hún. Mynd: Þátttakendur og Leiðbeinandi.

Kirkjan í bleiku

Allan október hefur Hólaneskirkja verið lýst með bleikum ljósum. Þetta er gert til að sýna á táknrænan hátt stuðning við baráttuna við brjóstakrabbamein. Fjöldi bygginga á landinu er á sama hátt orðinn bleikur þegar skyggja tekjur. Óhætt er að segja að kirkjan líti ákaflega vel út svona upplýst. Signý Ó. Richter tók meðfylgjandi myndir sem sýna ákaflega vel hversu falleg kirkjan er.  

Listin: Hinn kaldi klaki, íslandið, sjósettur

Í köldu Norður-Atlantshafinu marar hvítur klakinn. Ísland er réttnefni, bundið í viðjar frosts, ekki vottar fyrir funa. Báran blá er hins vegar ekki svo ýkja köld er hún gælir blíðlega við bláan ísinn. Atlotin eru banvæn og auðvitað missir hann smám saman tök sín á sjálfum sér og umhverfinu. Landið lætur strax á sjá og allir vita sem vilja að innan skamms muni hafið umbreyta því og allt verður sem fyrr. Kalt Norður-Atlantshafið heldur áfram iðju sinni, hin óútreiknanlega bláa bára líður áfram sem örlagavaldur lands og íss. Klakinn hverfur. Sunnan úr höfum kom brasilíska listakonan Renata Pavdovan að strönd Skagans. Hún fékk starfsmenn tveggja fyrirtækja, Vélaverkstæðis Skagastrandar og Rafamagnsverkstæðisins Neistans til að útbúa mót með útlínum Íslands. Hún frysti vatnið og í síðla dags í gær var hvítur klakinn, íslandið, flutt niður í Vík og sjósett. Fjöldi manns var vitni að því er báran bláa, sem þó var frekar grá, tók á móti ísnum, slípaði hann til, lagfærði hann, gerði straumlínulagaðra, ef svo má að orði komast. Og svo hvarf hann, varð ósýnileg viðbót fyrir Atlantshafið. Og hver er svo hin dulda merking í uppákomunni, innsetningunni svo gripið sé til orðfæris listamanna? Birting listarinnar á að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn. Um leið skiptir tilgangur listamannsins minna máli.   Var þarna verið að lýsa stöðu þjóðarinnar um þessar mundir? Ísland bundið í klafa skulda og efnahagurinn harðfrosinn. Framtíðin er líklega sú að skuldirnar greiðast upp og þíða kemst í efnahaginn en um leið verður landið að engu. Eða er harðfrosið landið í miskunarlausum sjó Evrópusambandsins þar sem sérkennin verða að engu og með tímanum hverfur þjóðin í haf mannfjöldans. Nöturlegar framtíðarhorfur en hver veit nema brasilíska listakonan á Skagaströnd hafi aðra, bjartsýnni og háleitari sýn með listaverkinu Ísland. Það er nú það ... 

Menningarráðið úthlutar styrkjum í Kántrýbæ

Fjórir aðilar á Skagaströnd fengu styrki hjá Menningarráði Norðurlands vestra en ráðið stóð fyrir úthlutun í Kántrýbæ miðvikudaginn 21. október.  Lárus Ægir Guðmundsson fékk styrk til að skrifa bók um skip og báta á Skagaströnd 1908-2008, Sveitarfélagið Skagaströnd fékk styrk til stofnunar ljósmyndasafns og söfnunar eldri og yngri ljósmynda, Nes listamiðstöð fékk dvalar- og verkfnastyrki fyrir listamenn og loks fékk Guðmundur Ólafsson styrk til heimildarmyndagerðar. Síðari umsóknarfrestur ársins 2009 um verkefnastyrki Menningarráðs Norðurlands vestra rann út 15. september sl. Alls bárust 65 umsóknir þar sem óskað var eftir tæpum 47 milljónum króna.  Á fundi sínum, 7. október sl., ákvað menningarráðið að úthluta verkefnastyrkjum til 52 aðila alls að upphæð 18.300.000 kr. Af þessum átján milljónum er um fjórðungi upphæðarinnar varið til tónlistarverkefna og rúm 20% renna til varðveislu menningararfsins og safnamála. Eftirtaldir aðilar hlutu styrki:    1.750.000 kr. Skotta ehf. kvikmyndafjelag - Tvö verkefni: Bjarni Har. og Dansað á fáksspori 1.500.000 kr. Söngskóli Alexöndru, Tónlistarskóli A-Hún.  Tónlistarskóli V-Hún. – Draumaraddir norðursins 1.000.000 kr. Byggðasaga Skagafjarðar - Byggðasaga Skagafjarðar Sögusetur íslenska hestsins - Tvö verkefni: Íslenski hesturinn, yfirlitssýning til 1950 og Söfnun, skráning og skönnun heimilda um íslenska hestinn. 850.000 kr. Helga Rós Indriðadóttir - Tvö verkefni: Klassík 2010 – Óperutónleikar í Skagafirði og Sönglög Jórunnar Viðar - útgáfutónleikar. 750.000 kr. Nes listamiðstöð - Dvalar- og verkefnisstyrkir fyrir listamenn í Nes listamiðstöð 2010 500.000 kr. Héraðsskjalasafn Skagfirðinga - Stafrænn ljósmyndagrunnur Sigríður Tryggvadóttir - Sumardagurinn fyrsti, heimildarmynd. 400.000 kr. Landnám Ingimundar gamla - Hljóðleiðsögn um slóðir Vatnsdælasögu Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna og Jenný Karlsdóttir - Altarisdúkar í íslenskum kirkjum. Jón Þorsteinn Reynisson - Tvö verkefni: Útgáfa geisladisks og Gömlu slagararnir Karlakórinn Heimir - Upp skaltu á kjöl klífa. Fluga hf. - Hrossaræktandinn Sveinn Guðmundsson. Ævi og störf. Reiðhallarleiksýning Nemendafélag FNV - Söngleikurinn Sódóma Kvæðamannafélagið Vatnsnesingur - Minnisvarði um Guðmund Bergþórsson Vesturfarasetrið - Minningarstofa um vestur-íslenska rithöfundinn Bill Holm. 350.000 kr. Karlakórinn Lóuþrælar - Tvö verkefni: Í vesturveg og Haust- og jólatónleikar 300.000 kr. Elinborg Sigurgeirsdóttir - Lauf, útgáfa geisladisks Bróðir Svartúlfs - Útgáfa geisladisks 250.000 kr. Sögufélagið Húnvetningur og Ingi Heiðmar Jónsson - Húnvetnskir ættstuðlar Héraðsskjalasafn V-Hún. - Ljóð húnvetnskra skáldkvenna dregin fram í dagsljósið Lárus Ægir Guðmundsson - Skip og bátar á Skagaströnd 1908-2008 Lafleur ehf. - Hinn svali blær / Glíman við Glám Háskólinn á Hólum – Hólarannsóknin - Björgunarrannsókn við Kolkuós í Skagafirði Sveitarfélagið Skagaströnd - Stofnun ljósmyndasafns og söfnun eldri og yngri ljósmynda Guðmundur Ólafsson - Heimildarmyndagerð Fornleifadeild Byggðasafns Skagfirðinga - Skagfirska kirkjurannsóknin Guðný Káradóttir, Valgeir Kárason o.fl. - Raddir fólksins Skagabyggð - Örnefnaskráning í Skagabyggð Fornverkaskólinn - Uppbygging á aðbúnaði og aðstöðu Fornverkaskólans Rósmundur Ingvarsson - Fornleifaskráning í Skagafirði Jón Hilmarsson - Skín við sólu Skagafjörður – ljósmyndabók Róbert Óttarsson - Æskudraumar – útgáfa geisladisks Verslunarminjasafn Bardúsa, Grettistak og Ferðamálafélag V-Hún. - Forn handbrögð – handverksnámskeið Hólmfríður Bjarnadóttir - Hvalrekinn á  Ánastöðum – einleikur Leikfélag Sauðárkróks - Barnaleikritið Rúi og Stúi Guðrún Brynleifsdóttir - Skotta – einleikur    200.000 kr. Kirkjukór Glaumbæjarprestakalls - Þýsk messa eftir Franz Schubert Skagfirski kammerkórinn - Á vetrarbraut 150.000 kr. Heimilisiðnaðarsafnið Blönduósi - Kynningar og markaðssetning Vefnaðarbókar Halldóru Bjarnad. Minningarsjóður Aðalheiðar E. Gunnarsdóttur – Styrktartónleikar 100.000 kr. Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík og Sauðárkróksbíó - Kvikmyndalestin RIFF um land allt Háskólinn á Hólum - Fornleifar í landi Keldudals – heimasíða Héraðsskjalasafn A-Hún. - Horfnir tímar – hver er maðurinn/staðurinn? Málmblásarakvintett Norðurlands og Karlakórinn Heimir - Kórbrass á aðventu Rökkurkórinn - Jólatónleikar Sönghópur Félags eldri borgara í Skagafirði - Skagfirskir tónar Kammerkór Norðurlands - Tónleikahald – íslensk kórtónlist Kirkjukór Sauðárkrókskirkju - Kirkjukvöld í Sæluviku Samkórinn Björk - Lúsíuhátíð Hestamannafélagið Neisti - Börn og unglingar á hestasýningum Matarkistan Skagafjörður - Málþing um íslenskan mat á MATUR-INN 2009 

September lofar góðu

Landaður afli í Skagastrandarhöfn var 37,5% meiri á síðasta aflaári en árið áður. Engu að síður er aflinn enn um 11,5% lakari en aflaárið 2006-7. Alls komu 8.227.828 tonn á land frá september 2007 til loka ágúst 2008. Þar áður var landað 5.984.077 tonnum og enn áður 9.273.396 tonnum. Nýbyrjað aflaár lofar góðu en í september var landað 883.425 tonnum sem er miklu meira en undanfarin þrjú ár.

Arnar kom með minni afla en síðast

Frystitogarinn Arnar kom til heimahafnar á Skagaströnd síðasta sunnudag og fór aftur úr í gærkvöldi. Aflaverðmæti hans var um 150 milljónir króna sem miklu minna en í síðasta túr en þá var verðmætið um 240 milljónir. Kemur margt til, t.d. var aflinn minni en síðast og samsetning hans önnur, „bölvað skrap“ eins og sagt er.

Fjölþjóðleg tónlistarveisla í Miðgarði

Þann 24.október, á fyrsta vetrardag og kvennafrídaginn, verða haldnir tónleikar í Menningarhúsinu Miðgarði í Skagafirði kl. 20.30. Þar mun 10 manna hljómsveit stíga á svið og fara með áhorfendur í einskonar heimsreisu. Þannig verða flutt 12 lög frá jafnmörgum löndum, lög sem eru samin af konum eða hafa verið sungin af konum.  Löndin sem um ræðir eru Spánn, Ísrael, Rúmenía, Grænhöfðaeyjar, Kúba, Mexíkó, Chile, Argentína, Brasilía, Indland, Suður-Afríka og Kenía.

Multi Musica eru: 
Ásdís Guðmundsdóttir, söngur og ásláttur
Sorin Lazar, gítar og flauta
Jóhann Friðriksson, trommur
Rögnvaldur Valbergsson, hljómborð,gítar og harmonikka
Sigurður Björnsson, bassi
Sveinn Sigurbjörnsson, bongó og trompet
Íris Baldvinsdóttir, bakraddir og ásláttur
Jóhanna Marín Óskarsdóttir, bakraddir, strengir og ásláttur
Ólöf Ólafsdóttir, bakraddir og ásláttur
Þórunn Rögnvaldsdóttir, bakraddir og ásláttur Tónlistarstjóri er Sorin Lazar en hópurinn hefur útsett lögin í sameiningu.  Kynnir á tónleikunum er Bryndís Ásmundsdóttir, leikkona.  Á milli laga verður ýmiskonar fróðleikur um viðkomandi lönd. Samstarfsaðilar í verkefninu eru Skagafjarðardeild RKÍ en í hléinu verða gestum boðnar veitingar sem eru útbúnar og framreiddar af fólki sem er af erlendu bergi brotið og býr í Skagafirði. Sviðið verður skreytt munum frá Afríku og S- Ameríku og því sannkölluð alþjóðastemning í salnum. Borð verða dekkuð í sal þannig að fólk getur fengið sér kaffi eða drykki á meðan á tónleikunum stendur en vínveitingar verða á tónleikunum. UNIFEM og Félag kvenna af erlendum uppruna munu kynna samtök sín í hléinu.

Tónlistarskóli Skagafjarðar styrkir einnig verkefnið en hljómsveitin hefur haft þar æfingaaðstöðu. 
Menningarráð Norðurlands vestra, Sparisjóður Skagafjarðar og Ólafshús hafa styrkt verkefnið myndarlega. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og er miðaverð kr. 2.000. Ef pantaðir eru 10 miðar eða fleiri þá kostar miðinn 1.800 kr og því tilvalið fyrir hópa og vinnustaði að drífa sig.  Miðapantanir og nánari upplýsingar eru í síma 899-9845

Við lofum ykkur hlýlegri og skemmtilegri tónlistarveislu í lok sumars og byrjun vetrar!!

Opið hús hjá Nes listamiðstöð

Listamenn hjá Nes listamiðstöð opna vinnustofur sínarí lok hvers mánaðar þar sem þeir sýna þau verk sem þeir hafa verið að vinna að frá komu sinni. Á morgun, fimmtudaginn 22. október, klukkan 20-22 viljum við öllum sem áhuga hafa að koma í heimsókn, skoða listaverk í vinnslu og spjalla við listamennina um verkin og dvölina á Skagatrönd.

Fyrirlestur og opið hús hjá Textílsetrinu á Blönduósi

Í tilefni af haustnámskeiðum Textílseturs verður boðið upp á fyrirlestur sem opinn er áhugasömum ásamt því að opið hús verður í lok námskeiðs. Laugardaginn 24.október kl. 17.oo í matsal Kvennaskólans: Flækjur og fínerí – prjónamenning á vefnum. Ragnheiður Eiríksdóttir kennari í prjóni á haustnámskeiðunum, mun leiða gesti um prjónamenningu á veraldarvefnum, en þar er að finna ótæmandi hugmynda- og upplýsingabrunn fyrir prjónara. Opið hús þriðjudaginn 27.október kl. 16.oo – 17.00 í Kvennaskólanum: Haustnámskeiðum Textílseturs lýkur með opnu húsi þar sem áhugasömum gefst tækifæri til að skoða afrakstur námskeiðanna og spjalla við nemendur og kennara. Prjón, hekl, gimb og spuni er meðal viðfangsefna.