12.05.2008
Spákonuhof og Nes-listamiðstöð boða til sameiginlegs kynningarfundar
þriðjudaginn 13. maí kl. 19:30 í Fellsborg.
Allir eru velkomnir.
Nes-listamiðstöð
Listamiðstöðin rekur gestavinnustofur fyrir innlenda og erlenda
listamenn, stuðlar að skapandi andrúmslofti, sýningarhaldi og kennslu
í listum.
Nú þegar eru nær því öll pláss fullbókuð til áramóta og fjölmargar
pantanir komnar langt fram á næsta ár.
Spákonuhof
Verið er að byggja upp Spákonuhof á Skagaströnd.
Í starfseminni verður lögð áhersla á eftirfarandi:
· Sápdómshof
· Þórdísarstofu
· Þórdísargöngur
· Rannsókna- og fræðasetur
· Spáráðstefnu
· Spádómshátíð
Sigurður Sigurðarson
markaðsráðgjafi, Skagastrandar
09.05.2008
Fimmtudaginn 15. maí n.k. verða haldnir styrktartónleikar í Hólaneskirkju á Skagaströnd til styrktar Jóni Gunnari Einarssyni og fjölskyldu. Tónleikarnir hefjast klukkan 20:30 og er aðgangseyrir 1.500 krónur. Fram koma ýmsir tónlistarmenn sem allir gefa vinnu sína og munu allir peningar sem inn koma renna óskiptir til fjölskyldunnar.
Þeir sem ekki komast á tónleikana en vilja styrkja Jón Gunnar og fjölskyldu er bent á söfnunarreikninginn 0160-26-61400, kt: 290483-3799.
Eins og flestum er kunnugt slasaðist Jóns Gunnars Einarssonar mjög alvarlega á mótorhjóli þann 12. apríl sl. Jón Gunnar og eiginkona hans Guðrún eiga tvö ung börn og þriðja barnið er á leiðinni. Vonast fjölskyldan og vinir að sem flestir taki höndum saman og leggi þeim lið til að styrkja og styðja Jón og fjölskyldu hans í þessari baráttu. Jón Gunnar er nú á bata vegi og fer að fara á Grensás í endurhæfingu en verður lengi frá vinnu.
09.05.2008
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar
þriðjudaginn 13. maí 2008 á skrifstofu hreppsins kl 800.
Dagskrá:
1. Samstarf sveitarfélaga í A-Hún
2. Ársreikningur 2007.
3. Bréf:
a) Óbyggðanefndar, dags. 23. apríl 2008.
b) Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis, dags. 16. apríl 2008.
c) Stéttarfélagsins Samstöðu, dags. 28. apríl 2008.
d) Knattspyrnudeild Hvatar, 25. apríl 2008.
e) Iceland Photo Agency –IPA, dags. 11. apríl 2008.
f) Félags- og tryggingamálaráðuneytis, dags. 11. apríl 2008.
g) Félags- og tryggingamálaráðuneytis, dags. 2. maí 2008.
4. Fundargerðir
a) Tómstunda- og menningarmálanefndar, 15. apríl 2008.
b) Stjórnar Sambands ísl. sv.fél. 25. apríl 2008.
5. Önnur mál
Sveitarstjóri
09.05.2008
Skólaslit og afhending prófskírteina fer fram í Hólaneskirkju á Skagaströnd
laugardaginn 24. maí n.k. kl:1400
Fram koma nemendur sem hafa lokið stigsprófum og nemendur 10. bekkja sem kveðja skólann. Allir velkomnir.
Innritun fyrir næsta skólaár fer fram dagana 19.-21. maí n.k. á Blönduósi og Skagaströnd frá kl: 16-18 alla dagana.
Á Húnavöllum verður innritað föstudaginn 30.maí við skólaslit Húnavallaskóla.
Skólastjóri
06.05.2008
Breyttur fundartími íbúafundar
Af óviðráðanlegum ástæðum hefur fundartíma íbúafundar sem auglýstur var sl mánudag um aðalskipulag verið breytt.
ÍBÚAFUNDUR
um aðalskipulag fyrir sveitarfélagið Skagaströnd
verður haldinn í félagsheimilinu Fellsborg
miðvikudaginn 7. maí n.k. kl 17:00
Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri
02.05.2008
Björgunarsveitin Strönd leitar eftir fólki til að taka þátt í undirbúningi og vinnu á sjómannadagsskemmtuninni sem fram fer 31. maí 2008. Áhugasamir aðilar eru hvattir til að gefa sig fram hjá fulltrúum björgunarsveitarinnar. Einnig er hægt að hafa samband við s. 894 4006. Stöndum öll saman um að gera góð hátíðarhöld á sjómannadaginn enn betri.
Reynir og Bjarni.
02.05.2008
Laugardagskvöldið 3. maí verður dúndrandi stuð í Kántrýbæ því þá mun hljómsveitin UMSVIF halda uppi fjörinu og leika fyrir dansi frá kl 23.
Meiri umsvif, meira fjör í Kántrýbæ.
www.umsvif.com
02.05.2008
ÍBÚAFUNDUR
um aðalskipulag fyrir sveitarfélagið Skagaströnd
verður haldinn í félagsheimilinu Fellsborg
miðvikudagskvöldið 7. maí n.k. kl 19:30
Hafin er vinna við gerð aðalskipulags fyrir sveitarfélagið Skagaströnd. Í þeim tilgangi að gefa íbúum og hagsmunaaðilum kost á að koma á framfæri ábendingum í upphafi vinnunar er boðað til almenns íbúafundar.
Samið hefur verið við Landmótun sf. um ráðgjöf um aðalskipulagsgerðina og mun Yngvi Þór Loftson ráðgjafi mæta á fundinn, kynna verkefnið og m.a. greina frá aðgangi almennings að aðalskipulagsgerðinni.
Aðalskipulag nær til alls land innan staðarmarka sveitarfélagsins og er stefna sveitarstjórnar um:
· Atvinnu- og íbúamál
· Landnotkun og þróun byggðar
· Samgöngur og veitur
· Umhverfismál
· Þéttleika byggðar og byggðamynstur
· Takmarkanir á landnotkun
Stefnumörkun aðalskipulagsins skal ná til a.m.k. 12 ára tímabils.
Íbúar og aðrir hagsmunaaðilar eru hvattir til að mæta og hafa þannig áhrif á það samfélag sem þeir búa í.
Magnús B. Jónsson
sveitarstjóri
02.05.2008
Námskeið um þátt upplýsingavers í skólastarfi var haldið á vegum Fræðsluskrifstofunnar þriðjudaginn 29. apríl s.l. í Fellsborg á Skagaströnd. Á námskeiðinu kynntu kennararnir Fríða S. Haraldsdóttir og Margrét Sólmundsdóttir starf sitt í Laugalækjarskóla en þær hafa búið til afar spennandi verkefni með öðrum kennurum skólans. Verkefnin eru byggð upp á fjölbreyttri notkun upplýsingatækni og hafa skilað góðum árangri og nemendur jafnframt verið mjög ánægðir. Eru þessi verkefni meðal annars notuð í 10. bekk eftir að samræmdum prófum lýkur á vorin. Sýndu þær þátttakendum fjölmörg sýnishorn af vinnu nemenda þeirra og vöktu þau verðskuldaða athygli.
Guðjón Ólafsson, fræðslustjóri
30.04.2008
Verið er að undirbúa útgáfu á bæklingi um gönguleiðir á Spákonufellshöfða sem kemur út fyrir lok maí.
Leitað er eftir góðum litmyndum sem teknar eru af Höfðanum eða á honum. Ekki er endilega sóst eftir útsýnismyndum yfir bæinn heldur allt eins af einstökum stöðum, fólki á göngu, í sólbaði eða að leik eða einhverjum sérstökum atburðum sem eru áhugaverðir. Myndirnar mega vera á slides, pappír eða teknar á digital myndavél.
Óskað er eftir viðbrögðum fyrir 5. maí nk. en eftir þann tíma fer myndefni í úrvinnslu.
Vinsamlegast hafið samband við Sigurð
markaðsráðgjafa Skagastrandar í síma 864 9010. Hann hefur skrifstofur í Bjarmanesi og þar má hitta hann á skrifstofutíma.