30.10.2014
Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi var haldin fimmtudaginn 23. október síðastliðinn.
Að þessu sinni var ferðinni heitið í Austur-Húnavatnssýslu og tóku heimamenn vel á móti gestunum sem voru yfir 100 ferðaþjónustuaðilar frá öllu Norðurlandi.
Meðal staða sem hópurinn sótti heim var Hótel Blönduós, Heimilisiðnaðarsafnið þar sem við kynntumst Halldóru Bjarnadóttur, Textílsafnið sem skartaði refli um Vatnsdælu sem er enn í vinnslu. Spákonuhof tók vel á móti gestum á Skagaströnd, og þar bauð svo nýi veitingastaðurinn Borgin hópnum heim. Laxasetur Íslands og Ísgel fræddi gestina um starfsemina og áður en kvöldið var úti heimsóttu gestir Eyvindarstofu og þáðu þar góðar veitingar og glæsilega sundlaug Blönduósbúa.
Austur Húnavatnssýslur hafa mikið upp á að bjóða og ekki náðist að kanna alla þá fjölbreyttu þjónustu og afþreyingu sem þar er á einum degi.
Að lokum var svo snæddur kvöldverður í félagsheimilinu á Blönduósi og dansað við undirleik Geirmundar Valtýssonar fram á nótt. Eins og venja er á uppskeruhátíð sem þessari, veitti Markaðsstofan viðurkenningar sem voru eftirfarandi:
Viðurkenningu fyrir Sprota ársins fékk Spákonuhof á Skagaströnd og veitti Dagný Marín Sigmarsdóttir viðurkenningunni móttöku. Sproti ársins er veittur eftirtektarverðri nýjung á Norðurlandi.
Viðurkenningu sem fyrirtæki ársins fékk Bílaleiga Akureyrar - Höldur en þessi viðurkenning er veitt til fyrirtækis sem hefur skapað sér stöðu á markaði og hefur unnið að stöðugri uppbyggingu, vöruþróun og nýsköpun. Við viðurkenningunni tók Þórdís Bjarnadóttir bókunarstjóri fyrirtækisins.
Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður Hlíðarfjalls hlýtur viðurkenningu fyrir ötul störf í þágu ferðaþjónustu á Norðurlandi. Guðmundur Karl tók við stöðu forstöðumanns Hlíðarfjalls árið 2000 og hefur unnið að krafti að því að byggja upp Hlíðarfjall sem vinsælasta skíðasvæði landsins.
Frábær dagur í alla staði.
29.10.2014
Atvinnumálanefnd Skagastrandar auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Atvinnuþróunarsjóði Skagastrandar.
Umsóknarfrestur er til kl. 17:00 þann 15. nóvember 2014 og skal skila umsóknum á sérstöku umsóknarformi sem er aðgengilegt á heimasíðunni www.skagastrond.is (hér)
Um Atvinnuþróunarsjóð:
Markmið sjóðsins er að hvetja til jákvæðrar umræðu og verkefna á sviði atvinnuþróunar í Sveitarfélaginu Skagaströnd. Sjóðnum er ætlað að styðja við frumkvæði íbúa og hvetja til samstarfs og nýsköpunar í sveitarfélaginu, sem og að laða að verkefni og athafnafólk.
Styrkir sem veittir eru úr asjóðnum eru fyrst og fremst verkefna- og framkvæmdastyrkir, ekki rekstrarstyrkir, styrkir til að mæta opinberum gjöldum eða til að greiða skuldir.
Umsóknir
Sótt er um á þar til gerðu umsóknarformi sem er aðgengilegt á á vefsíðunni http://www.skagastrond.is
Umsóknir sem berast eftir lok skilafrests eða uppfylla ekki kröfur um umbeðnar upplýsingar koma ekki til greina við úthlutun.
Umsækjendur geta verið einstaklingar, félög og/eða fyrirtæki.
Umsókn skal miðast við að framkvæmd hugmyndar eða meginumsvif vegna verkefnisins verði á Skagaströnd. Við mat umsókna verður gerð lágmarkskrafa um samfélagsleg áhrif verkefnis.
Í umsókn skal gera skýra grein fyrir verkefninu, markmiðum þess og væntum árangri.
Umsækjendur skulu gera skýra grein fyrir tímaáætlun og áætluðum heildarkostnaði við verkefnið.
Úthlutun styrkja
Til úthlutunar í desember 2014 verða allt að 2 milljónir króna.
Veittir eru styrkir til að standa straum af allt að 50% af heildarkostnaði við viðkomandi verkefni.
Upphæð styrkja getur verið frá 100.000 kr. til 1.000.000.
Nánari lýsing á forsendum úthlutunar er í fylgiblaði með umsóknarformi.
Skagaströnd, 29. október 2014
Sveitarstjóri
24.10.2014
Úr Tímanum
Þessi úrklippa úr Tímanum er frá árinu 1973 af
Skagstrendingum sem eru að leggja í langferð til
Japan til að sækja Arnar Hu 1, sem var fyrsti skuttogari
Skagstrendings hf.
Á myndinni, sem sýnir hluta áhafnarinnar sem fór, eru frá vinstri:
Reynir Sigurðsson, Árni Ólafur Sigurðsson, Gylfi Guðjónsson,
Birgir Þórbjarnarson, Gunnlaugur Árnason, Gylfi Sigurðsson og
Óskar Þór Kristinsson.
Textinn með myndinni segir allt sem segja þarf.
21.10.2014
Verður haldið á Heilsugæslustöðinni á Blönduósi dagana 10., 12., 17. og 19. nóvember 2014 kl. 17:00 – 19:00. Námskeiðið kostar kr. 9.300- á einstakling / 11.500- á par. Uppeldisbókin kr. 3.000-. Athugið að mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaðinum.
Leiðbeinendur: Sesselja Kristín Eggertsdóttir og Helga Hreiðarsdóttir hjúkrunarfræðingar.
Skráning hjá Kristínu sími: 892 2584, netfang: sesselja.eggertsdottir@hve.is
eða hjá Helgu sími: 864 8951, netfang: helga.hreidarsdottir@hve.is
Skráning þarf að fara fram fyrir 1. nóvember.
20.10.2014
Hafnar og skipulagsnefnd Skagastandar býður þeim sem áhuga hafa að koma á kynningarfund um flotbryggjur sem haldinn verður í Fellsborg miðvikudaginn 22. október kl 16.00.
Á fundinum mun Kristján Óli Hjaltason kynna flotbryggjur sem KROLI ehf hefur til sölu og miðla reynslu sinni af uppsetningu og rekstri á flotbryggjum.
Sveitarstjóri
20.10.2014
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar
miðvikudaginn 22. október 2014 kl 800 á skrifstofu sveitarfélagsins.
Dagskrá:
Forsendur fjárhagsáætlunar
Samþykkt um starfskjör fulltrúa í nefndum og ráðum
Byggðakvóti 2014/2015
Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna
Þjóðvegur í þéttbýli á Skagaströnd
Tillögur til NV nefndar
Fundur með þingmönnum Norðvesturkjördæmis/fjárlaganefnd
Bréf:
Mennta og menningarmálaráðuneytis, dags. 14. okt. 2014
Bryndísar Valbjarnardóttur, sóknarprests, dags. 13. okt. 2014
Nokkurra ungmenna á Skagaströnd, dags. 20. sept. 2014
Stjórnar USAH, dags. 30. sept. 2014
Verkefnastjóra SEEDS, dags. 22. sept. 2014
Skólastjóra Höfðaskóla, dags. 22. sept. 2014
Fundargerðir:
Stjórnar Félags- og skólaþjónustu A-Hún, 6.10.2014
Stjórnar Bs. um menningu og atvinnum. í A-Hún, 22.09.2014
Stjórnar SSNV, 05.09.2014
Stjórnar SSNV, 24.09.2014
Stjórnar SSNV, 28.09.2014
Stjórnar SSNV, 29.09.2014
Stjórnar SSNV, 01.10.2014
Stjórnar Samb. ísl. sv.félaga, 12.09.2014
Stjórnar Samb. ísl. sv.félaga, 24.09.2014
Stjórnar Samb. ísl. sv.félaga, 8.10.2014
Önnur mál
Sveitarstjóri
17.10.2014
Leikskólabörn á Barnabóli
Þessi mynd var tekin 1977 eða 1978 af krökkunum
og starfsfólkinu á leikskólanum Barnaból á Skagaströnd.
Starfskonurnar eru Guðrún Hrólfsdóttir til vinstri,
Bára Þorvaldsdóttir í miðjunni og Lára Bylgja Guðmundsdóttir
til hægri en hún var leikskólastjóri á þessum tíma.
Í fangi Láru Bylgju er Soffía Lárusdóttir.
Krakkarnir eru talið frá vinstri: aftasta röð:
Hugrún Pálsdóttir, Þorsteinn Jónsson, Kolbeinn Sigurðsson,
Jóhanna Sveinsdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Stefán Sveinsson,
Viggó Magnússon, Dagbjört Jóhannsdóttir og Friðrik Birgisson.
Miðröð frá vinstri:
Guðmundur Rúnar ?, Margrét Jóhannsdóttir,
Gunnar Halldór Hallbjörnsson, Inga Rós Sævarsdóttir,
Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir, Elísabet Eik Guðmundsdóttir
og Brynjar Pétursson.
Fremsta röð frá vinstri: Bryndís Ingimarsdóttir, Svava Magnúsdóttir,
Atli Þórsson, Guðmundur Henry Stefánsson, Baldur Magnússon,
Jóhannes Hinriksson, Aðalheiður Árnadóttir, Björn Sigurðsson
og Friðrik Gunnlaugsson.
15.10.2014
Íslenskt gæðagospel – Tónleikar á Skagaströnd
Kór Lindakirkju í Kópavogi, undir stjórn Óskars Einarssonar, heldur tónleika föstudaginn 17. október kl. 20:30 í Hólaneskirkju Skagaströnd. Í fréttatilkynningu frá kórnum kemur fram að kórinn hafi staðið í stórræðum í sumar og tekið upp nýja plötu sem ber heitið Með fögnuði.
Um er að ræða gospeltónlist sem nær öll er samin af starfsfólki Lindakirkju, Áslaugu Helgu Hálfdánardóttur, Óskari Einarssyni, tónlistarstjóra og sóknarprestinum sr. Guðmundi Karli Brynjarssyni.
Kór Lindakirkju syngur öll lögin á plötunni ásamt einsöngvurum úr röðum kórsins. Hljóðfæraleikur á plötunni er í höndum Óskars Einarssonar, Sigfúsar Óttarssonar, Friðriks Karlssonar og Jóhanns Ásmundssonar.
Aðgangseyrir á tónleikana er enginn en platan Með fögnuði verður seld að tónleikum loknum.
14.10.2014
Aðalfundur Sjávarlíftæknisetursins BioPol ehf var haldinn um miðjan september síðastliðinn. Á fundinum voru almenn aðalfundarstörf viðhöfð og félaginu meðal annars kosin ný stjórn. Að þessu sinni voru gerðar breytingar á stjórn þar sem Dr. Rögnvaldur Ólafsson tók sæti Magnúsar B. Jónssonar. Í núverandi aðalstjórn eru því eftirtaldir: Adolf H. Berndsen form, prófessor Hjörleifur Einarsson, Sigríður Gestdóttir, Steindór R. Haraldsson og Dr. Rögnvaldur Ólafsson.
Um leið og Magnúsi eru þökkuð störf í þágu félagsins er Dr. Rögnvaldur boðinn velkominn til starfa.
Dr. Rögnvaldur var lengst af starfandi við H.Í. og gengdi þar m.a. stöðu forstöðumanns Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands. Dr. Rögnvaldur er einnig þekktur fyrir að vera einn upphafsmanna Marel.
Meðfylgjandi er skýrsla stjórnar BioPol ehf vegna ársins 2013.
Að undanförnu hafa verið framkvæmdar töluverðar breytingar á heimasíðu BioPol ehf. http://biopol.is/ Settar hafa verið upp tengingar á síðunni þar sem finna má flestar skýrslur og vísindagreinar sem félagið hefur komið að á undanförnum árum. Einnig hefur verið sett upp síða þar sem hægt er að fylgjast með magni landaðs afla úr Húnaflóa. Fyrst og fremst eru settar fram upplýsingar um afla sem landað er á Skagaströnd en jafnframt yfirlit yfir magn á öðrum löndunarhöfnum við flóann. Gert er ráð fyrir að tölurnar verði uppfærðar mánaðarlega til þess að byrja með. http://biopol.is/efni/afli_úr_húnaflóa
10.10.2014
Á þessari mynd eru krakkar sem sóttu
kirjuskólann/sunnudagaskólann á árunum kringum
1965 ásamt leiðbeinendum sínum.
Myndin var tekin á tröppunum við Höfðaskóla sennilega
einhverntíma á árunum 1965-1968.Takið eftir að allir eru með
biblíumyndina sína í höndunum en slíkum myndum var úthlutað
í kirkjuskólanum á hverjum sunnudegi.
Fullorðna fólkið til vinstri er: Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012)
með gráa húfu, séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) og
Margrét Konráðsdóttir (d. 17.9.1974). Páll Jónsson (d. 19.7.1979)
stendur aftast með barn í fanginu og til hægri er Guðrún Teitsdóttir
(d. 17.6.1978) einnig með barn í fanginu.
Við hlið Margrétar, aftast, stendur Guðrún Lárusdóttir og framan
við hana er Aðalheiður Másdóttir og hægra megin við hana er
Elsa Lára Blöndal með rauða húfu.
Framan við Aðalheiði er Ingibergur Guðmundsson og bróðir hans
Karl Guðmundsson er rauðhærður á miðri mynd. Hjá Karli, aftar
og vinstra megin í brúnni peysu, er Sigurður Þorbjörnsson en
Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001) er aftan við Karl til hægri
í hvítir og brúnni peysu.
Aftan og vinstra megin við Guðrúnu Teitsdóttur í svartri úlpu
með bleikt um hálsinn er Ólína Bjarnadóttir og beint framan við
hana er svo Kjartan Bjarnason. Guðmundur Viðar Guðmundsson
er framarlega með rautt hár og heldur utan um minni börn
í fremstu röð.
Framan við séra Pétur með brúna húfu er Heiðar Elvan Friðriksson
og til hægri við hann er Guðbjörg Kristinsdóttir en aftan við hana
Árni Geir Ingvarsson. Framan við Heiðar og Guðbjörgu eru
Guðbjörg Viggósdóttir í ljósri kápu og Líney Jósefsdóttir í svartri
vattúlpu.
Í fremstu röð til hægri í rauðri kápu með svarta húfu er
Unnur Gunnarsdóttir og aftan við hana er Málfríður Jóhannsdóttir
en hægra megin við Unni er Lára Bylgja Guðmundsdóttir.
Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú getur bætt við nöfnum
vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.