Fréttir

Mynd vikunnar

Ef þú, lesandi góður, þekkir einhver deili á þessari mynd langar mig að biðja þig að senda mér póst eða hafa samband við mig. Netfangið er olibenna@hi.is en símanúmerið mitt er 8993172. Fyrirfram þakkir. Ólafur B. hjá Ljósmyndasafni Skagastrandar. Pétur og tvær óþekktar konur Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin en á henni er séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) með tveimur óþekktum konum með nýskírð börn. Ef þú veist hverjar konurnar eru og e.t.v. börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Rafmagnslaust aðfaranótt föstudags

Rafmagnsnotendur Austur Húnavatnssýslu Rafmagnslaust verður á Blönduósi, Skagaströnd og dreifbýli aðfaranótt föstudagsins 11.júlí n.k. frá miðnætti og fram eftir nóttu vegna vinnu við raforkukerfið. RARIK Norðurlandi.

Mynd vikunnar

Kristján í heyskap Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni er Kristján Guðmundsson (d.16.4.1979) frá Háagerði í heyskap á túninu við Háagerði. Á myndinni er Kristján að ýta saman heyi með tveimur hestum eftir að hafa rakað heyinu saman í garða. Spýta var bundin aftan í hestana og síðan var staðið á spýtunni til að halda henni niðri. Hestarnir drógu svo spýtuna þar til næg hrúga af heyi var komin framan við hana. Þá var spýtunni lyft yfir hrúguna og haldið áfram framan við hana. Síðan var heyinu úr hrúgunum hlaðið upp í sæti/sátur eins og sést fyrir aftan Kristján. Seinna var svo heyinu ekið heim í hlöðu eða sett í fúlgu heim við fjárhús eða fjós. Hlutverk hesta í sveitum landsins hefur breytst mikið frá þessum tíma úr því að vera þarfasti þjónninn og helsta vinnutæki bænda yfir í það að vera fyrst og fremst skemmtigripur og skrautfjöður eiganda síns.

Leikskólastjóri óskast

Leikskólinn Barnaból á Skagaströnd auglýsir eftir leikskólastjóra frá og með næsta skólaári. Leikskólinn er 30 – 40 barna, tveggja deilda skóli sem ætlar að innleiða starfshætti í samstarfi við Hjallastefnuna ehf. Nánari upplýsingar um leikskólann er m.a. að finna á http://skagastrond.is/leikskoli.asp Við leitum að jákvæðum einstaklingi sem er tilbúinn að taka þátt í innleiðingu á Hjallastefnunni þar sem metnaður, gleði og kærleikur er hafður að leiðarljósi. Viðkomandi þarf að vera leikskólakennari eða hafa aðra uppeldismenntun, sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og hafa brennandi áhuga á jafnrétti og lýðræði í leikskólastarfi. Skólar Hjallastefnunnar starfa að sameiginlegum markmiðum eftir sömu hugmyndafræði en sjálfstæði hvers skóla er mikið. Jafnréttisuppeldi, skapandi hugsun, félagsþjálfun og einstaklingsstyrking eru innviðir hugmyndafræðinnar sem við teljum að geti skipt sköpum í þroska komandi kynslóða. Áhugasamir hafi samband við Áslaugu Huldu Jónsdóttur, aslaug@hjalli.is eða Magnús B. Jónsson í síma 455 2700, magnus@skagastrond.is Sveitarfélagið Skagaströnd, Hjallastefnan ehf

Samstarfssamningur Hjallastefnunnar og Skagastrandar samþykktur

Á fundi sveitarstjórnar Skagastrandar 2. júlí 2014 var samþykktur samningur við Hjallastefnuna ehf. Í honum kemur fram að Hjallastefnan og sveitarfélagið Skagaströnd geri með sér samkomulag þar sem Hjallastefnan veiti leikskólanum Barnaból faglega ráðgjöf, kemur að breytingum og aðstoðar við innleiðingu á starfsháttum, umhverfi og aðferðum Hjallastefnunnar. Hjallastefnan ehf og sveitarfélagið Skagaströnd munu auglýsa sameignlega eftir skólastjóra leikskólans Barnabóls og starfsmenn Hjallastefnunnar munu sömuleiðis aðstoða við ráðningu skólastjóra og endurskipulagningu á starfsmannahaldi. Við innleiðingu Hjallastefnunnar mun Hjallastefnan leggja til ráðgjafa og aðra sérfræðinga eftir þörfum, standa fyrir námskeiðum og fræðslu til starfsmanna og sinna upplýsingagjöf til forráðamanna. Rekstur skólans og ábyrgð verður áfram hjá sveitarfélaginu en markmið samkomulagsins er að rekstur leikskólans færist yfir til Hjallastefnunnar um áramótin 2014-2015 en eigi síðar en 1. ágúst 2015. 2. júlí 2014 Sveitarstjóri

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar miðvikudaginn 2. júlí 2014 kl 800 á skrifstofu sveitarfélagsins. Dagskrá: Grunnskóli: Starfsmannahald skólaárið 2014-2015 Erindi um stuðningsfulltrúa Hjallastefna Önnur mál Sveitarstjóri

Flokksstjóri óskast

Sveitarfélagið Skagaströnd óskar eftir flokksstjóra tímabundið í júlí og fyrstu viku ágúst við vinnuskólann og afleysingu í áhaldahúsi. Nánari upplýsingar veitir Árni Geir í síma 8614267 Sveitarstjóri

Framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) auglýsa eftir framkvæmdastjóra. SSNV er þjónustu- og samstarfsvettvangur sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra og sér um mikilvæga sameiginlega málaflokka og hagsmunamál sveitarfélaga á starfssvæðinu. Verkefni SSNV eru fjölbreytt og snúa að hagsmunum svæðisins, atvinnuþróun og rekstri sameiginlegra verkefna sveitarfélaganna sem að því standa. Leitað er eftir einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt, sýnir frumkvæði og hefur góða hæfileika í mannlegum samskiptum. Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði og æskilegt er að umsækjandi hafi þekkingu á sveitarstjórnarmálum og rekstri. Höfuðstöðvar SSNV eru á Hvammstanga. Áhugasamir umsækjendur skulu senda inn umsókn fyrir 7. júlí til: Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra Höfðabraut 6 530 Hvammstangi Merkt: „Framkvæmdastjóri“ Nánari upplýsingar um starfið veitir Bjarni Jónsson formaður SSNV í síma 8947479

Mynd vikunnar

Gísl Leikárið 1979 - 1980 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Gísl í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6.2009). Þetta var fjölmenn sýning og vel heppnuð, sem var sýnd í Fellsborg og nágrannabyggðunum ásamt því að farið var með verkið suður á land og það sýnt í félagsheimili Seltjarnarness. Á myndinni eru leikarar og starfsfólk sýningarinnar eftir æfingu í Fellsborg. Fremsta röð frá vinstri: Viggó Brynjólfsson, Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Magnús B. Jónsson, Ragnhildur Steingrímsdóttir leikstjóri, Guðmundur Haukur Sigurðsson og Gunnar Benónýsson (d. 29. 7.2003). Næsta röð frá vinstri: Árni Geir Ingvarsson, Elín Njálsdóttir og Bjarnhildur Sigurðardóttir. Þriðja röð frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Einar Helgason, Rúnar Loftsson, Hjörtur Guðbjartsson, Ólafur Bernódusson, Ingibergur Guðmundsson og Bernódus Ólafsson. Fjórða röð frá vinstri: Hallveig Ingimarsdóttir og Guðbjörg Viggósdóttir. Þar fyrir ofan frá vinstri: Birna Blöndal, Hjörtur Guðmundsson og Hallbjörn Hjartarson.

Mynd vikunnar

Lionsfélagar með mökum sínum Þessi mynd sýnir hátíðafund Lionsklúbbs Skagastrandar (eldri) í Skátaskálanum. Hér hafa félagarnir boðið mökum sínum eða vinkonum með sér á fund. Við háborðið sitja frá vinstri: Ole Aamundsen (d.?), Margrét Jóhannesdóttir, Guðmundur Kr. Guðnason (d. 21.11.1988), Helga Berndsen, Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Þórarinn Björnsson (d. 24.5.1985), Guðríður Bergsdóttir (d. 10.6.1996), Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966) og Þórður Jónsson (d. 25.12.2010). Standandi frá vinstri eru: Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), Jón Pálsson, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003), Hörður Ragnarsson, Sveinn Ingólfsson, Helga Jóhannesdóttir, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Þorgerður Guðmundsdóttir (d. 24.4.2008), Björgvin Jónsson (d. 21.12.1998), Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005), Hulda Pálsdóttir, Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012), Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Jóna Guðjónsdóttir, Páll Þorfinnsson (d. 1.9.1993), Edda Pálsdóttir, Páll Jónsson (d. 19.7.1979), Ástmar Ingvarsson (d. 10.10.1977) og Jóhanna Sigurjónsdóttir (d. 15.12.1990). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur sennilega verið einhverntíma á árunum 1960 - 1965.