08.12.2005
Fimmtudaginn 1. des. bauð Landsbanki Íslands Skagaströnd bæjarbúum í aðventukaffi. Það var boðið uppá heitt kakó og nýbakaðar smákökur auk þess var heitt á kaffikönnunni eins og vanalega.
Krakkarnir úr leikskólanum Barnabóli komu og sungu jólalög af hjartans lyst og um páfagauk sem vildi bara kóka kóla og ís.
Frá kl. 14.00 lék svo Elías Björn Árnason jólalög á hljómborð á meðan kakóið og smákökurnar runnu ljúflega niður við þýða óma tónlistarinnar.
Almenn ánægja var með daginn, jafnt hjá gestum og starfsfólki.
02.12.2005
Nú eru hafin próf í Námsstofunni á Skagaströnd. 17 einstaklingar taka 43 próf við 4 skóla. Fyrstu prófin voru 22. nóvember og þau síðustu 16. desember. Hér á eftir er stutt yfirlit yfir starfsemi í Námsstofunni á Skagaströnd árið 2005.
Fjarnámsnemendur
Nú eru 24 nemendur í fjarnámi sem hafa notað Námsstofuna á árinu 2005. Auk þess eru 6 með samning án þess að nota Námsstofuna ennþá. Í mars tók einn fjarnámsnemandi próf í Námsstofunni, 14 tóku 27 próf frá 4 skólum í maí og einn tók próf í ágúst.
Fjarfundabúnaður
Samtals 10 einstaklingar hafa nýtt sér búnaðinn til að sitja kennslustundir. Nú á haustönn voru 4 einstaklingar að nota búnaðinn 4 daga aðra vikuna og 2 daga hina vikuna.
Fjarfundabúnaðurinn hefur einnig verið notaður til kynningar á námi frá Háskólanum á Akureyri og Háskólanum í Reykjavík. Enginn mætti á þessar kynningar.
Kjölur var með kynningu í maí þar sem 5 mættu og sjúkraliðar voru með kynningu á kjarasamningi í júlí þar sem 10 mættu.
Fyrsta desember var sviðsstjóri hjúkrunar á Landspítala Háskólasjúkrahúss með vikulegan fræðslufund frá 6. hæð á Landakotsspítala um hjúkrun aldraðra. Einn mætti á þann fund hér á Skagaströnd.
Annan desember var fundur fyrir náms- og starfsráðgjafa vegna Europass í námsstofunni. Einn sat þann fund.
Háskólanemar í verkefnavinnu
Fjórir háskólanemar unnu í námsstofunni á árinu í lokaverkefnum sínum. Þar af tveir við erlenda háskóla.
Annað í Námsstofunni
Í viðverubók Námsstofunnar höfa 59 einstaklingar kvittað fyrir notkun í lok október. Þetta eru þeir sem getið er hér að ofan auk nemenda frá Blönduósi, Húsavík og Reykjavík sem koma hingað og vinna verkefni með nemendum héðan. Auk þess eru nokkrir sem ekki hafa kvittað fyrir sig.
Í febrúar var gerð tilraun með Trésmiðju Helga Gunnarssonar. Helgi kom með 1-2 með sér eftir morgunkaffi og fengu þeir leiðsögn um internetið, póstforrit og Exel. Jón í Toppnet kom einnig nokkrum sinnum.
Einn nemandi notaði Námsstofuna í nokkra daga til að lesa undir próf sem hann þurfti að endurtaka í júní. Auk þess kemur fyrir að framhalds-og háskólanemar nota heimsóknir á “Hótel Mömmu” um helgar til að læra í Námsstofunni.
Í viku símenntunar var eitt kvöldið námskeið á vegum Farskólans sem tveir tóku þátt í auk kennarans Ólafs Bernódussonar. Annað tveggja kvölda námskeið sem auglýst var féll niður vegna þess að enginn skráði sig.
Námsstofan hefur nokkrum sinnum verið notuð til að halda fundi með stjórn Umf. Fram og stjórn Félagsmiðstöðvarinnar Undirheima.
Nú fer bráðlega nýtt ár í hönd með nýjum tækifærum fyrir þá sem vilja nota sér þessa aðstöðu hér á Skagaströnd. Þeir sem hyggja á nám á vorönn geta haft samband við umsjónarmann og fengið þá aðstoð sem hann getur veitt.
Desember 2005
Umsjónarmaður Námsstofunnar á Skagaströnd
Hjálmur Sigurðsson S: 8440985
25.11.2005
Sala hjá fiskmarkaði Örva ehf. á Skagaströnd fór yfir 4000 tonn í gær. Fiskmarkaðurinn hefur vaxið verulega á síðustu árum en á árinu 2004 fóru um 3000 tonn í gegnum markaðinn en sala ársins 2003 var um 1900 tonn. Hefur því salan rúmlega tvöfaldast á 2 árum. Hluti þessa afla er landað í Sauðárkrókshöfn. Fiskmarkaður Örva þjónustar fjölmarga báta, skip og togara sem koma inn til löndunar í Skagastrandarhöfn þar sem eigendur bátanna taka fiskinn til sín til eigin vinnslu eða sölu. Flestir bátar eru á línuveiðum um þessar mundir og eru aflabrögð mjög góð og oftast 200-300 kg. á bala. Í tilefni þessara tímamóta var viðskiptavinum boðið í kaffi og meðlæti en á meðfylgjandi mynd má sjá bræðurna Lárus Ægi og Ingiberg Guðmundssyni forssvarsmenn Örva ehf.
24.11.2005
Þann 15.nóvember voru dregnir út þrír þátttakendur í Fjölskyldan á fjallið sem er landsverkefni UMFÍ og er liður í verkefninu Göngum um Ísland. Góð þátttaka var í verkefninu í sumar vítt og breitt um landið sem nýtur æ meiri vinsælda með hverju árinu.
Hinir heppnu þátttakendur sem voru dregnir út eru eftirtaldir:
Jóhannes T. Torfason, Ásbrún , 311 Borgarnes en hann gekk á Varmalækjarmúla.
Guðjón Páll Hafsteinsson, Suðurvegi 16, 545 Skagaströnd en hann gekk á Spákonufell.
Þorbjörn Jensson, Bólstaðarhlíð 28, Reykjavík en hann skráði nafn sitt eftir göngu á Hjörleifshöfða.
Þeim verða afhent verðlaun á næstu dögum, Edda útgáfa gefur bókina Íslensk fjöll eftir Ara Trausta Guðmundsson.
18.11.2005
Um miðjan nóvember kom Dagný Sigmarsdóttir umboðsmaður Sjóvá færandi hendi á leikskólann Barnaból og gaf okkur 15 endurskinsvesti. Þann 18. nóvember fengum við góða heimsókn en þá kom Erna B. Jónmundsdóttir lögreglumaður og yngstu leikskólabörnin fóru í nýju vestin og sýndu henni stolt hvað þau væru fín og örugg í umferðinni í nýju vestunum.
Endurskinsvesti hafa verið notuð á leikskólanum Barnabóli frá árinu 1998 og eru mikið þarfaþing og öryggistæki þegar farið er með börnin út fyrir skólalóðina.
Öryggið felst í því að börnin eru sýnilegri í umferðinni og bílstjórar og aðrir vegfarendur koma betur auga á þessa lágvöxnu samborgara sína, einnig er mun auðveldara fyrir kennara leikskólans að halda utan um og fylgjast með hópnum sínum þegar þau eru í vestum.
Þegar elstu börn leikskólans fara í grunnskólaheimsókn í Höfðaskóla tökum við börn úr 1. bekk með okkur í leikskólann og skilum þeim svo aftur þegar við sækjum leikskólabörnin og þá eiga allir að fara í vesti.
Þetta finnst 1.bekkingum stundum skrítið „já , en við erum hætt í leikskólanum“ en eins og Þórunn segir við þau „það fara allir sem eru að koma og fara á leikskólann í vesti “ og með það skundum við á milli skólana og allir eru sáttir við þessa tilhögun.
Kær kveðja frá Barnabóli með óskum til allra um góðan tíma
í skammdeginu með kertaljósum og seríum.
Þórunn Bernódusdóttir
Leikskólastjóri
17.11.2005
Dýpkunarskip Hagtaks, Svavar, hefur lokið vinnu við dýpkun hafnarinnar. Samtals voru útgrafnir um 27 þús. m3 á tveimur dýpkunarsvæðum. Annars vegar var dýpkað vegna snúningsrýmis í höfninni þar sem gert er ráð fyrir að 100 m skip geti snúið innan hafnar. Hins vegar var dýpkað vegna fyrirhugaðrar lengingar Miðgarðs þar sem áætlað er að skapa aukið rými fyrir löndun smábáta.
Dýpkunarskipið var dregið áleiðis til Vopnafjarðar og mun björgunarskipið Húnabjörg draga það út á móts við Siglufjörð. Þar mun björgunarskipið Sigurvin taka við og draga austur á Öxarfjörð þar sem enn verður skipt um dráttarskip því björgunarskipið Gunnbjörg á Raufarhöfn mun draga austur á móts við Skoruvíkurbjarg þar sem björgunarskip Vopnfirðinga, Sveinbjörn Sveinsson mun draga það síðasta spölinn. Heildarvegalengdin er um 220 mílur og því mun hvert björgunarskip taka um 50 mílur af drættinum.
Hér er um áhugavert samstarfsverkefni björgunarskipanna að ræða þar sem hver fyrir sig tekur að sér ákveðin hluta verkefnis en fer þó ekki það langt frá heimaslóð að öryggishlutverki skipsins sé stefnt í hættu.
16.11.2005
Á leikskólanum Barnabóli er hefð fyrir því að halda upp á skammdegið með skammdegishátíð í nóvember og gera þannig þessum skemmtilega árstíma hátt undir höfði. Í ár var hátíðin föstudaginn 11. nóvember, settar voru upp ljósaseríur um allan leikskólann, börnin máluð í framan, spiluð tónlist, dansað mikið líf og fjör þennan dag.
Um hádegið fóru foreldrar barnanna að streyma í hús í heita kjúklingasúpu og brauð og hér borðuðu um 108 manns í hádeginu og er ekki annað að sjá en almenna ánægju með þennan árlega sið.
Einn guttinn, sem einmitt varð tveggja ára þennan dag, vildi láta mála sig í framan eins og hin börnin en þegar honum var sýndur árangurinn í spegli fór hann að hágráta svo þvo varða alla málninguna af aftur. Þá tók hann gleði sína á ný enda hafði hann einfaldlega orðið dauðhræddur við þennan ókunnuga ljónastrák!
Mánudaginn 14. nóvember bar heldur betur í „veiði“ hjá okkur en þá komu skipverjar á Arnari með branduglu í heimsókn. Uglan hafði leitað hælis hjá þeim lengst út á miðum, alveg aðframkomin greyið, en þeim tókst að hressa hana við og koma með hana í land nokkrum dögum seinna. Trésmiðja Helga Gunnarssonar hafði tilbúið gott búr fyrir ugluna þegar að landi kom og síðan varð hún nokkurs konar farandugla, byrjað var á að fara með hana á dvalarheimilið Sæborg, síðan á leikskólann og þaðan í grunnskólann.
Þetta var mikil upplifun fyrir leikskólabörnin, starfsfólk og þá foreldra sem sáu ugluna og við drógum fram allar bækur og myndir sem við áttum af uglum og síðan var lagst í uglufræðslu og m.a. reynt að finna út hvort um eyruglu eða branduglu væri að ræða sem Óli Benna „náttúrufræðingur“ í Höfðaskóla skar síðan úr um að hér væri um branduglu að ræða.
Framundan er gleðilegur tími m.a. með piparkökubakstri og kertaljósum, gönguferðum, heimsókn í kirkjuna og aðventunni.
Með kveðju
Þórunn Bernódusdóttir
Leikskólastjóri
15.11.2005
Ég vil minna á vinnufund í verkefninu Vetrarauður á morgun 16. nóv kl. 17.00 á Gistiheimilinu Dagsbrún á Skagaströnd.
Við viljum ræða spurninguna:
“Getum við eflt og auglýst betur vetrarferðaþjónustu á Norðurlandi vestra?” Svarið er já – en spurningin er hvernig?
Markmið fundarins eru:
• að skilgreina hugmyndir og skipuleggja vinnu við tilboð fyrir innanlandsmarkað jan.-apríl og okt-des. árið 2006 og
• að koma á fót samstarfi um vöruþróun og markaðssetningu þessara tilboða.
Ferðamálasamtök Norðurlands vestra, Hólaskóli og Upplýsingamiðstöð ferðamála á Norðurlandi vestra hafa aflað stuðnings við vöruþróunarverkefni fyrir vetrarferðaþjónustu á svæðinu. Verkefnið er tækifæri fyrir þá ferðaþjónustuaðila, sem vilja vekja aukna athygli á og/eða efla starfssemi sína að vetrarlagi.
Nánari upplýsingar og skráning:
Pétur Jónsson Ferðamálasamtökum Norðurlands peturjo@simnet.is. s 451 0040 eða 860-5970
Jakob Frímann Þorsteinsson Upplýsingamiðstöð ferðamála á Norðurlandi vestra s. 455 6161
Guðrún Helgadóttir hjá Hólaskóla s. 455 6300.
Gudrun Kloes atvinnuráðgjafi SSNV Hvammstanga s. 455 2515
Haukur Suska Garðarsson atvinnuráðgjafi SSNV Blönduósi s. 455 4304
Myrkur – Skíða – Norðurljós – Tilhleypingar – Réttir – Jólakortahelgi – Matur – Gönguferðir – Dekur – Hestar - Sund – Rómantíbk – Sæluvika – Skíðapáskar – Tekið til kostanna - Kyrrð
Jakob Frímann Þorsteinsson
15.11.2005
Á laugardaginn var haldinn sameiginleg árshátíð starfsmanna landvinnslu-
og skrifstofufólks Fisk seafood í Fellsborg.
Starfsmenn félagsins á Grundarfirði, Sauðárkrók og Skagaströnd komu þar saman til árshátíðar.
Meðal skemmtiatriða var að kántrýdansahópurinn Hófarnir kom fram, Helga Braga fór með gamanmál og sýndi magadansspor, hljómsveit skipuð starfsmönnum landvinnslanna á Skagaströnd og Grundarfirði tróð upp og flutti nokkur lög.
Eftir borðhald og skemmtiatriði lék hljómsveitin Upplyfting fyrir dansi.
15.11.2005
Rauði kross Íslands hefur hafið átak undir yfirskriftinni “Heimsóknarvinir”. Verkefnið felur í sér að aldraðir einstaklingar og aðrir sem þurfa á þeirri þjónustu að halda fá heimsókn og félagsskap einu sinni í viku. Nú þegar hefur komið í ljós að þörf er fyrir þjónustu þessa. Mjög vel hefur gengið að fá sjálfboðaliða (heimsóknarvini) að þessu verkefni. RKÍ deildin á Skagaströnd er ein fyrsta deildin utan höfuðborgarsvæðins sem býður upp á þessa þjómustu. Umsjónarmaður verkefnins er Hrönn Árnadóttir.
Unglingastarf RKÍ er mjög líflegt um þessar mundir Guðjón Ebbi Guðjónsson hefur umsjón með því starfi. Hafa unglingarnir m.a. kynnt sér skyndihjálp, sjúkraflutninga auk starfsemi fleiri unglingadeilda.
Formaður RKÍ deildarinnar á Skagaströnd er Pétur Eggertsson.