Fréttir

Sumarstörf hjá Sveitarfélaginu Skagaströnd

 Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir eftir starfsmanni til sumarafleysinga fyrir verkstjóra áhaldahúss en einnig eftir flokksstjórum til starfa í Vinnuskóla sveitarfélagsins í sumar. Skilyrði er að umsækjendur séu 20 ára eða eldri og reynsla af sambærilegum störfum kostur.   Umsóknareyðublöð má fá á skrifstofu sveitarfélagsins.   Skráning í vinnuskóla fer fram á skrifstofu sveitarfélagsins. Gert er ráð fyrir að vinnuskólinn hefji störf í byrjun júní.   Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofunni í síma 455 2700.   Sveitarstjóri

Lausar kennarastöður við Höfðaskóla

Við Höfðaskóla eru lausar kennarastöður fyrir næsta skólaár. Um getur verið að ræða almenna kennslu sem og kennslu verk-og listgreina. Nánari upplýsingar um störfin veitir skólastjóri, Vera Ósk Valgarðsdóttir, í síma 452 2800. Skólastjóri

Næsti fundur sveitarstjórnar

  FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar mánudaginn 22. maí 2017 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 8.00.   Dagskrá:   1.   Ársreikningur 2016 (seinni umræða) a.    Álit skoðunarmanna b.    Samantekt um ársreikning milli umræðna c.    Ársreikningur 2016 til samþykktar 2.   Félagslegar íbúðir 3.   Skipun eins fulltrúa í tómstunda og menningarmálanefnd 4.   Vegvísir, drög að aðgerðaráætlun fyrir Höfðaskóla 5.   Bréf a.    Lyfju hf, Sigurbj. Gunnarssonar, dags. 19. maí 2017 b.    Sýslumanns Nl.vestra, dags. 9. maí 2017 c.    Samtaka sjárvarútvegssveitarfélaga, dags. 2. maí 2017                                          i.    Ársreikningur 2016   6.   Fundargerðir: a.    Aðalfundur Ferðamálafélags A-Hún, 25.04.2017 b.    Stjórnar SSNV, 9.05.2017 c.    Aðalfundar Farskólans, 10.05.2017 d.    Stjórnar Hafnasambands Íslands, 28.04.2017                                          i.    Ársreikningur Hafnasambands Íslands 2016   7.   Önnur mál                                          Sveitarstjóri  

Mynd vikunnar

Diskasala Á þessari mynd er verið að selja postulínsdiska til styrktar kirkjubyggingar á Skagaströnd. Á diskunum er mynd og áletrun. Eins og oft vill verða þá eru þessir diskar að öðlast meira og meira söfnunargildi eftir því sem lengra líður frá framleiðslu þeirra. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Guðberg Stefánsson (d. 15.9.1991), Aðalbjörg Hafsteinsdóttir og Jón Ingi Ingvarsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1990. Senda upplýsingar um myndinaSkráning

Mynd vikunnar

Skólamynd . Þessi skólamynd var tekin af stúlkum úr Höfðaskóla á tröppum "Gamla skólans" eða Bjarmaness eins og húsið heitir. Í fremri röð eru frá vinstri: Sigurbjörg Kristjánsdóttir frá Háagerði, Helga Ólafsdóttir í Suður-Skála, Pálfríður Benjamínsdóttir í Skálholti, Sigríður ?, Þórunn Bernódusdóttir í Stórholti og Kristín Lúðvíksdóttir í Steinholti. Aftari röð frá vinstri: Sigrún Jósteinsdóttir frá Sólvangi, Halla Björg Bernódusdóttir í Stórholti, Ástríður Bertelsdóttir í Drangey, Dagný ?, Anna Skaftadóttir í Dagsbrún, Harpa Friðjónsdóttir í Lækjarhvammi og Aðalheiður Jónsdóttir í Hólanesi. Tröppurnar sem stúlkurnar sitja í voru austan á húsinu með forstofu sem sér í. Tröppurnar og forstofan hafa nú verið brotin niður og húsið sjálft verið sett í sitt upprunalega horf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið einhverntíma rétt fyrir 1958 þegar Höfðaskóli var færður í nýtt hús. Senda upplýsingar um myndinaSkráning

Tónleikar í Hólaneskirkju

Kirkjukórar Hólanes- og Sauðárkrókskirkju  ætla að sameina krafta sína í Hólaneskirkju á morgun  fimmtudag 11. maí kl 20:30. Kórarnir munu flytja létt og skemmtileg lög og Hugrún Sif Hallgrímsdóttir mun syngja einsöng. Stjórnendur eru Rögnvaldur Valbergsson og Hugrún Sif Hallgrímsdóttir. Komið og eigið með okkur notalega kvöldstund. Enginn aðgangseyrir.

Mynd vikunnar

Síldarverksmiðjan í byggingu Síldaverksmiðjan í byggingu árin 1945 - 1947. Myndin hefur líklega verið tekin af efstu hæð vinnupalls sem var utan á stóra verksmiðjuskorsteininum. Þrærnar sem eru lengst frá á myndinni hafa verið brotnar niður og fjarlægðar og sama má segja um rörið sem á myndinni liggur frá verksmiðjunni að mjölskemmunni sem er utan myndar. Eftir þessu röri var mjölinu blásið heim í skemmuna þar sem það var sekkjað og geymt þar til það var selt og sent í burtu. Eins og sjá má á myndinni var hafnargarðurinn - Útgarður- ekki kominn nema að litlu leiti.

Tónleikar í Hólaneskirkju á Skagaströnd

 Kirkjukór Sauðárkrókskirkju heldur tónleika í Hólaneskirkju fimmtudaginn 11. maí kl 20:30. Stjórnandi kórsins er Rögnvaldur Valbergsson organisti og kynnir er Sigríður Gunnarsdóttir.  Ath. Í auglýsingu í Sjónhorninu eru tónleikarnir sagðir á mánudag. Þeir verða fimmtudaginn 11. maí kl 20:30  

Allt er nú til... á Skagaströnd

 Leiklistardeild Höfðaskóla frumsýnir í dag, föstudaginn 5. maí, söngleikinn "Allt er nú til (Anything goes)" með tónlist eftir Cole Porter. Frumsýning er klukkan 20 í Fellsborg. Leikarar í sýningunni eru nemendur í 8.-10. bekk og er leikstjóri Ástrós Elísdóttir. Söngleikurinn gerist um borð í skemmtiferðaskipi á fjórða áratug síðustu aldar og fjallar um ástina og örlög farþeganna. Söngleikurinn er settur upp í fyrsta sinn á Íslandi í glænýrri þýðingu Ástrósar Elísdóttur, en hann hefur lengi þekkst erlendis undir nafninu Anything goes. Framleiðsla uppsetningarinnar er samkvæmt samkomulagi við rétthafa söngleiksins, TAMS-WITMARK MUSIC LIBRARY, INC. í New York. Höfundar texta eru Wodehouse & Bolton og Lindsay & Crouse (upphaflega), Crouse & Weidman (seinni útgáfa). Í sýningunni er fjallað um kabarettstjörnuna Nínu Sveins sem gerir hosur sínar grænar fyrir hinum unga Bjössa Kristjáns, en hann hugsar ekki um aðra en Höllu Hjaltalín. Hann laumast um borð í farþegaskipið S.S. American til að reyna að koma í veg fyrir að Halla giftist lávarðinum Blængi Blandon. Þar sem Bjössi er með falsað vegabréf og þar að auki að skrópa í vinnunni mega hvorki yfirmaður hans né kafteinninn komast að því að hann sé á skipinu. Þar hittir hann fyrir ýmsa kynlega kvisti: aðalsfólk, mafíósa, sjóliða og fjárhættuspilara svo eitthvað sé nefnt. Sýningin er sannkölluð skemmtun fyrir alla fjölskylduna, stútfull af söng og dansi. Ekki missa af þessu! Fyrirhugaðar eru þrjár sýningar: Frumsýning: föstudagur 5. maí 2017 kl. 20:00 Önnur sýning: laugardagur 6. maí 2017 kl. 14:00 Þriðja sýning: laugardagur 6. maí 2017 kl. 17:00 Sýnt í Félagsheimilinu Fellsborg á Skagaströnd, miðasala við innganginn. Miðaverð: Grunnskólanemar: 1.000 kr. Fullorðnir: 2.000 kr. Leikarar eru: Anita Ósk Ragnarsdóttir Arna Rún Arnarsdóttir Auðunn Árni Þrastarson Ástríður Helga Magnúsdóttir Benóný Bergmann Hafliðason Birgitta Rut Bjarnadóttir Bylgja Hrund Ágústsdóttir Dagur Freyr Róbertsson Freydís Ósk Kristjánsdóttir Freyja Dís Jóhannsdóttir Guðný Eva Björnsdóttir Guðrún Helga Hallbjörg Jónsdóttir Haraldur Bjarki Guðjónsson Hekla Guðrún Þrastardóttir Ingólfur Eðvald Björnsson Jóhann Almar Reynisson Kristmundur Elías Baldvinsson Laufey Lind Ingibergsdóttir Leifur Örn Ragnarsson Magnús Sólberg Baldursson Ólafur Halldórsson Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir Sveinn Halldór Hallgrímsson söngleikinn hefur undanfarið unnið að uppsetningu á söngleiknum

Mynd vikunnar

Jónmundur Ólafsson Jónmundur Ólafsson lést 19. apríl síðast liðinn og verður jarðsunginn frá Hólaneskirkju á 83.afmælisdegi sínum 3. maí næstkomandi klukkan 14:00. Jónmundur gekk ávallt galvaskur til allra verka, kátur og hress. Hann lét áföll lífsins ekki beygja sig andlega þó líkaminn bognaði og gæfi eftir. Nú gengur hann glaður inn í eilífa vorið, eins og hann gerði öll vor lífsins, óhræddur og iðandi af starfsorku. Í þetta sinn gengur hann beinn í baki og verkjalaus til að kanna nýjar lendur og tilbúinn að taka til hendinni ef þarf. Jónmundar er minnst fyrir atorkusemi og góðmennsku en hann rétti mörgum hjálparhönd án þess að aðrir vissu. Við sem þekktum Jónmund þökkum honum farsæla samfylgd gegnum lífið