31.10.2017
Fimmtudaginn 2.nóv. kl. 17:15 ætla hagsmunaðilar í ferðaþjónustu á Skagaströnd að hittast í Kaffi Bjarmanesi. Þar ætlum við að ræða stöðu ferðaþjónustunnar á svæðinu og fara yfir hvað vel er gert og hvað má bæta.
Fundurinn er öllum opinn.
Áhugafólk.
30.10.2017
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar fimmtudaginn 2. nóvember 2017 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 8.00.
Dagskrá:
Forsendur fjárhagsáætlunar 2018
Álagngingareglur útsvars og fasteignagjalda
Umsókn um námsvist utan lögheimilissveitarfélags
Lífeyrisskuldbinding hjúkrunarheimilia
Tónlistarskóli A-Hún
Fundur stjórnar 10. október 2017
Ársreikningur 2016
Málefni fatlaðra
Fundur þjónustuhóps 19. september 2107
Ársyfirlit Málefna fatlaðs fólks á Nl. vestra 2016
Bréf
Skógræktarfélags Skagastrandar, 27.10.2017
Skógræktarfélags Skagastrandar, dags. 5. október 2017
Foreldrafélags Barnabóls, dags. 25. október 2017
Flugklasans Air 66N, dags. 25. október 2017
Stígamóta, dags. 15. október 2017
Farskóla Norðurlands vestra, dags. 19. október 2017
Verkefnahópsins; Fullveldi Íslands 1918, dags. 16. október 2017
Fundargerðir:
Stjórnar Félags og skólaþjónustu A-Hún, 19.10.2017
Skólanefndar FNV, 13.10.2017
Stjórnar Norðurár bs., 21.08.2017
Stjórnar Norðurár bs., 5.09.2017
Stjórnar SSNV, 19.10.2017
Önnur mál
Sveitarstjóri
27.10.2017
Börn á leikjanámskeiði
Myndin var tekin af börnum á leikjanámskeiði ungmennafélagsins
Fram einhverntíma kringum 1982.
Börnin eru frá vinstri: Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir, Helga Kristmundsdóttir?,
Jóney Gylfadóttir, Svanur Árnason, Jóna Sigurðardóttir (aftar),
óþekkt stúlka (framar), Þröstur Árnason, Óli Hjörvar Kristmundsson (aftast),
óþekktur (í miðið), Ragna Fanney Gunnarsdóttir (fremst), óþekktur (aftast),
Kristján Gunnar Guðmundsson (í miðið), Jónas Fanndal Þorvaldsson (fremst),
óþekkt, Baldur Magnússon? (aftast), Elísabet Eik Guðmundsdóttir (fremst),
Óskar Ingi Þórsson, Kolbeinn Vopni Sigurðsson, Árný Helgadóttir,
Halldór Gunnar Ólafsson, Hugrún Sigurðardóttir, Baldur Eðvarðsson,
Theódór Karlsson, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna), Atli Þórsson,
Anna Dröfn Guðjónsdóttir og Gunnar Halldór Hallbjörnsson.
Ef þú þekkir einhver af óþekktu börnunm á myndinni vinsamlega sendu
okkur þá athugasemd.
26.10.2017
Nes Artist Residency
Skagaströnd
Opið hús @ Nes Listamiðstöð
október Opið hús!
sunnudagur 29
kl. 15.00 - 17.00
On a lazy Sunday afternoon....sway our way and catch some artists sharing : projects about Skagaströnd, music and performance ideas, novel extracts, and more!
Sjáumst þarna þá !
Copyright © 2017 Nes Listamiðstöð Ehf. All rights reserved.
You are receiving this email because you have subscribed to our newsletter or given us your email so we can keep in touch :) How nice!
Our mailing address is:
Nes Artist Residency
Fjörubraut 8
545 Skagaströnd
http:\\neslist.is
You can update your preferences or unsubscribe from this list.
Close
25.10.2017
Kjörfundur í Sveitarfélaginu Skagaströnd, vegna kosninga til Alþingis, fer fram 28. október 2017 í Fellsborg og hefst kl. 10.00 og lýkur kl. 22.00
Kjörstjórn
20.10.2017
Jóhanna Jónasdóttir 100 ára
"Ég finn svo sem engan mun á mér frá í gær", svarar Jóhanna
spurningunni um hvernig það sé að vera orðin 100 ára.
Jóhanna, sem býr á dvalarheimilinu Sæborg, er heilsuhraust og hefur
alltaf verið. Sem dæmi um það má segja sögu af því þegar hún fór í
augnaðgerð á níræðisaldri. Hjúkrunarkonan sem var að undirbúa Jóhönnu
fyrir aðgerðina spurði hana hvaða lyf hún tæki. Jóhanna sagðist ekki vera
að taka nein lyf og hefði aldrei gert það. Hjúkkan þráspurði Jóhönnu um
þetta og nefndi hinar ýmsu lyfjategundir sem Jóhanna þvertók fyrir að nota.
Þá gafst hjúkkan upp og kallaði Gísla, son Jóhönnu, á eintal og bað hann
að segja sér hvaða lyf mamma hans tæki;"... því hún mamma þín vill ekki
segja mér það".
Gísli sagði konunni að þetta væri bara rétt hjá mömmu sinni hún tæki
engin lyf og hefði aldrei gert.
Jóhanna fæddist á Fjalli í þáverandi Vindhælishreppi 15. október 1917 og
ólst þar upp. Hún giftist Angantý Jónssyni (og Guðrúnar frá Lundi - syni)
og fóru þau að búa á Mallandi á Skaga þar sem foreldrar hans bjuggu.
Þaðan fluttu þau svo að Fjalli og bjuggu þar. Þegar bærinn brann ofan
af þeim fluttu þau til Skagastrandar. Þau eignuðust þrjár dætur, tvíburana
Guðrúnu og Sigurbjörgu (d.10.9.1997) og Bylgju áður en þau skildu.
Jóhanna flutti síðan suður á land, bjó þar í nokkur ár og eignaðist eina
dóttur í viðbót, Dagný Hannesdóttur.
Heim kom hún svo aftur til Skagastrandar þar sem hún hefur átt heima
alla tíð síðan. Hér eignaðist hún sitt yngsta barn, drenginn Gísla Snorrason.
Jóhanna vann verkakvennavinnu alla tíð eftir heimkomuna, lengst af í
frystihúsinu. Þar stóð hún við að snyrta og pakka fiski þar til frystihúsinu
var lokað. Þá var Jóhanna farin að nálgast áttrætt. Jóhanna minnist vinnunnar
í frystihúsinu með gleði . "Ég væri þarna enn ef þeir hefðu ekki lokað",
sagði þessi kankvísa og hressa samferðakona okkar á 100 ára
afmælisdegi sínum.
19.10.2017
Potluck Dinner @ Nes
Potluck með
október Nes listamenn!
fimmtudagur 19 október
kl. 18.30 – 20.30
Fjörubraut 8
Komið og deilið máltíð með listamönnunum okkar.
Allir velkomnir!
18.10.2017
Erlingur Hugi Kristvinsson háls,- nef og eyrnalæknir
verður með móttöku á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi fimmtudaginn 26.október 2017.
Tímapantanir í síma 455-4100 milli kl 08:00 og 16:00.
17.10.2017
Kjörskrá
vegna Alþingiskosninga þann 28. október 2017
liggur frami á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar frá 18. október til kjördags.
Kjörskrárstofninn miðast við þá sem áttu
lögheimili í sveitarfélaginu samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár 23. september 2017.
Athygli er vakin á því að kjósendur geta einnig kannað á vefnum kosning.is hvar þeir eru á kjörskrá.
Sveitarstjóri
13.10.2017
Tónleikar í Tunnunni
Unglingahljómsveit leikur á skemmtun í Tunnunnni.
Líklega er þetta hljómsveit sem kallaðist Tíglar.
Frá vinstri: Steindór Haraldsson á bassa, Reynir Sigurðsson á trommur,
Bergur Þórðarson á gítar, Hjörtur Guðbjartsson á gítar.
Myndin er tekin einhverntíma á árunum 1963 - 1968.
Til gamans má geta þess að þessar fallegu peysur voru prjónaðar af
Jóhönnu hans Adda (Jóhanna Sigurjónsdóttir d. 15.12.1990) eins og
hún var alltaf kölluð. Allar hljómsveitir á þessum tíma voru í hljómsveitar
búning og þetta var okkar.
Þetta voru gífurlega þétt prjónaðar flíkur og lítil loftræsting í gömlu
tunnunni þess vegna átti ég í vandræðum með að komast úr peysunni
er heim kom. Litirnir höfðu fært sig úr peysunni yfir á búkinn og leit
skinnið út líkt og að ég væri með nýtt tattú á skrokknum.
En þetta fór af með góðum skammti af grænsápu.
(Sent inn af Reyni Sigurðssyni frá Þórsmörk)