Fréttir

Aðalfundur kvenfélagsins Einingar

Aðalfundur kvenfélagsins Einingar verður haldinn í Fellsborg þriðjudaginn 21. febrúar n.k.  kl. 20:00 Venjuleg aðalfundastörf. Nýjar félagskonur velkomnar :) Sjáumst. Kvenfélagið Eining

Mynd vikunnar

Systkini úr Hólaneshúsinu. Frá vinstri: Sigríður Sigurðardóttir, Jósep Sigurðsson, Hjörtur Sigurðsson (d. 9.5.2015) og Magnús Sigurðsson. Þau voru fædd á árunum 1961 - 1965.

Mynd vikunnar

Snjóavetur Óvenju snjólétt hefur verið á Skagaströnd það sem af er vetri 2016 - 2017. Þessi mynd er sett hér inn til að minna fólk á að svo hefur ekki alltaf verið. Til dæmis var gríðarlegur snjór á Skagaströnd í janúar - maí 1995 með sífelldum illviðrum. Snjómokstur gekk erfiðlega því erfitt var að koma snjónum fyrir nema aka honum í sjóinn. Fljótlega var því gripið til þess ráðs að þjappa snjóinn með jarðýtu og síðan var ekið ofan á snjósköflunum kannski tveggja metra þykkum. Þessi mynd var tekin í Mýrinni og sýnir fannfergið þar.

Álagning fasteignagjalda á Skagaströnd 2017

Ágætu fasteignaeigendur á Skagaströnd. Álagning fasteignagjalda hefur nú farið fram. Álagningarreglur fasteignagjalda 2017 eru meðfylgjandi bréfi þessu og jafnframt aðgengilegar á heimasíðunni www.skagastrond.is – undir „gjaldskrár“.   Greiðslur fasteignagjalda: Eins og undanfarin ár verða ekki sendir greiðsluseðlar vegna fasteignagjalda nema til þeirra sem þess hafa óskað sérstaklega og gildir skráning þeirra sem þess óskuðu á síðasta ári nema nýjar upplýsingar komi fram. Gjalddagar fasteignagjalda eru frá 1. febrúar til 1. júlí, en á smærri upphæðum eru gjalddagar 1 eða 2. (Gjalddagar á 0-5.000 kr. er 1.apríl og 5.001-10.000 skiptist í tvo gjalddaga 1. apríl og 1. maí). Álagningaseðlar: Eins og undanfarin tvö ár munum við ekki senda út álagningarseðla nema þess sé sérstaklega óskað. Hver og einn getur nálgast sína álagningarseðla á vefsíðunni www.island.is  undir reitnum „mínar síður“ Innskráning er með kennitölu viðkomandi og veflykli ríkisskattstjóra. Skrifstofa sveitarfélagsins veitir fúslega upplýsingar og aðstoð til þeirra sem þess óska.   Álagningareglur fasteignagjalda fyrir árið 2017 Samþykkt á fundi sveitarstjórnar 16.11.2016   Fasteignaskattur:          Álagning á íbúðarhúsnæði (A-flokkur) verði 0,50% af álagningarstofni. Álagning á opinberar stofnanir (B-flokkur) verði 1,32% af álagningastofni. Álagning á verslunar- og atvinnuhúsnæði verði (C-flokkur) 1,65% af álagningarstofni. Lóðarleiga: Lóðarleiga verði 1,65% af fasteignamatsverði lóða. Vatnsskattur: Vatnsskattur verði 0,3% af fasteignamati að lágmark 7.000  kr. og á íbúðarhúsnæði að hámarki  30.000 kr. Holræsagjald: Holræsagjald verði 0,24% af fasteignamati lóða og mannvirkja Sorphirðugjald /sorpeyðingargjald: Sorphirðugjald verði  39.350 kr./íbúð fyrir reglubundna sorphirðu og eyðingu. . Sorpeyðingargjald verði  12.400 kr./sumarhús og íbúðir þar sem ekki er regluleg sorphirða. Sorpeyðingargjald á hesthús og fjárhús verði 4.400 kr./hús í notkun. Sorpeyðingargjöld á fyrirtæki verða samkvæmt gjaldskrá. Leiga ræktunarlóða: Fyrir hvern ha ræktunarlóða er greitt fast leigugjald. Auk þess greiða lóðarhafar fasteignagjöld af lóðunum skv. fasteignamati. Lóðaleiga verði  6.000 kr./ha.   Eftirfarandi reglur gilda um lækkun fasteignagjalda elli- og örorkulífeyrisþega: Fasteignagjöld verða eingöngu lækkuð af íbúðum elli- og örorkulífeyrisþega, sem þeir búa í sjálfir. Til viðmiðunar eru allar tekjur viðkomandi, þar með taldar fjármagnstekjur.   Fasteignagjöld lækki um allt að kr. 36.000,- hjá: Einstaklingum með tekjur allt að                                 3.160.000 kr/ári Hjónum eða fólki í sambúð með tekjur allt að              5.164.000 kr/ári   Fasteignagjöld lækki um allt að kr. 18.000,- hjá: Einstaklingum með tekjur allt að                                 3.950.000 kr/ári Hjónum eða fólki í sambúð með tekjur allt að              6.455.000 kr/ári   Skagaströnd 1. febrúar 2017 Sveitarstjóri  

Opið hús í Nes listamiðstöð

Opið hús í Nes listamiðstöð laugardaginn 28.jan frá kl. 15:00-17:00 Allir velkomnir!

Gatnagerðagjald fellt niður á ákveðnum lóðum.

Á fundi sveitarstjórnar Skagastrandar 26. janúar 2017 var svohljóðandi samþykkt gerð:   Sveitarstjórn Skagastrandar samþykkir að auglýsa sérstaklega byggingarlóðir við þegar tilbúnar götur þannig að veittur verði afsláttur allra gatnagerðagjalda vegna bygginga á lóðunum.   Sveitarstjórn samþykkir jafnframt að eftirfarandi ákvæði gildi um úthlutun allt að fjögurra íbúðarhúsalóða sem afslátturinn muni ná til: ·        Lóðirnar sem um ræðir eru skilgreindar á meðfylgjandi lista. ·        Umsóknir um lóðirnar skulu berast eigi síðar en 1. maí 2018 en umsóknir sem berast á umsóknarfresti verða afgreiddar af hafnar – og skipulagsnefnd eftir því sem efni standa til og gildir röð umsókna um nýtingu fyrrgreinds afsláttar. ·        Við úthlutun lóðanna skulu gilda ákvæði um að byggingarframkvæmdir skuli vera hafnar innan árs frá úthlutun og að byggingar skuli hafa hlotið fokheldisvottorð innan tveggja ára, að öðrum kosti fellur niður ákvæði um afslátt gatnagerðagjalda.   Lóðir sem falla undir framangreint ákvæði um afslátt eru: ·        Bogabraut – ein lóð norðan götu nr: 25. ·        Suðurvegur – þrjár lóðir austan götu nr: 5,7 og 11 ·        Sunnuvegur – tvær lóðir vestan götu nr: 10 og 12 ·        Ránarbraut – ein lóð norðan götu nr: 3 og fimm lóðir sunnan götu nr: 2, 4, 6, 8 og 10. ·        Oddagata – ein lóð austan götu nr: 3. ·        Hólanesvegur – ein lóð vestan götu nr: 6. ·        Skagavegur – tvær lóðir austan götu, nr: 4 og parhúsalóð nr: 6-8. ·        Bankastræti – ein lóð sunnan götu nr. 5. Samtals eru í boði 17 lausar lóðir við þegar tilbúnar götur.   Sveitarstjóri

Húsnæðisstuðningur vegna 15-17 ára námsmanna .

Foreldrar eða forsjáraðilar námsmanna yngri en 18 ára, sem leigja húsnæði vegna náms fjarri lögheimili, eiga rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi vegna barna sinna samkvæmt reglum um sérstakar húsnæðisbætur sem sveitarstjórn hefur samþykkt. Þar segir m.a. um húsnæðisstuðning til 15-17 ára barna: Foreldrar/forsjáraðilar geta sótt um stuðninginn á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastandar. Veita skal sérstakan húsnæðisstuðning til foreldra eða forsjáraðila 15–17 ára barna sem leigja húsnæði hér á landi vegna náms fjarri lögheimili. Með húsnæði er átt við herbergi á heimavist eða námsgörðum eða sambærilega aðstöðu á almennum markaði. Þegar fleiri en einn nemandi leigja saman íbúð getur húsnæðisstuðningur náð til þeirrar leigu enda sé gerður leigusamningur við hvern og einn. Um leigu á almennum markaði er gerð krafa um að hvorki umræddur nemandi né aðrir sem leigja húsnæðið séu náskyldir eða mikið tengdir leigusala. Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna nemenda skal vera óháður tekjum og eignum foreldra eða forsjáraðila og nemur 50% af leigufjárhæð. Húsnæðisstuðningur vegna nemenda getur þó aldrei numið hærri fjárhæð en 45.000 kr./mánuði. Með umsókn um slíkan stuðning skal leggja fram húsaleigusamning og staðfestingu á námi barns. Reglurnar í heild má finna á heimasíðunni undir "Samþykktir" Sveitarstjóri

Mynd vikunnar

Kvenfélagskonur Þessar prúðbúnu kvenfélagskonur gengu um beina á þorrablóti Einingar í gömlu Tunnunni. Myndin var tekin af þeim á sviðinu og myndin á bakvið þær er hluti leiktjalda sem Sveinbjörn Blöndal (d. 7.4.2010) hafði málað. Ekki er vitað hvenæar myndin var tekin en það hefur sennilega verið einhverntíma á sjöunda áratugnum. Á myndinni eru frá vinstri: Elísabet Árnadóttir (Bebbý), Jóhanna Gunnlaugsdóttir (d. 18.4.2012), Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006), Gestheiður Jónsdóttir (d. 6.11.2010), Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), Helga Berndsen og Karla Helgadóttir (d. 25.9.1986). Á þessum tíma útbjuggu kvenfélagskonurnar sjálfar allan matinn sem í boði var á blótinu nema harðfiskinn og hákarlinn. Þær sáu samt um að það góðgæti væri í boði með því að fá valinkunna menn til að herða fisk fyrir sig og annan til að verka hákarlinn.

Næsti fundur sveitarstjórnar

  FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar fimmtudaginn 26. janúar 2017 kl 0800 á skrifstofu sveitarfélagsins.   Dagskrá:   1.   Ísland ljóstengt 2017 2.   Reglur sveitarfélagsins um sérstakan húsnæðisstuðning 3.   Umsóknir um rekstrarleyfi v/sölu gistingar 4.   Samningur við Golfklúbb Skagastrandar 5.   Tillaga að aðgerðaáætlun um dekkjakurl 6.   Lífeyrisskuldbinding hjúkrunarheimila 7.   Tillaga um gatnagerðagjald 8.   Álagning fasteignagjalda 9.   Bréf a.    Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 1. desember 2016 b.    Hólaneskirkju dags. 12. desember 2016   10.               Fundargerðir: a.    Hafnar- og skipulagsnefndar, 14.12.2016 b.    Stjórnar SSNV, 6.12.2016 c.    Þjónusturáðs um málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra, 7.12.2017 d.    Aðalfundar Byggðasafns Húnvetninga og Strandamanna, 9.12.2016 e.    Skólanefndar FNV, 15.12.2016 f.     Stjórnar Róta bs, 19.12.2016 g.    Stjórnar Sambands ísl sveitarfélaga, 16.12.2016   11.               Önnur mál                                          Sveitarstjóri  

Mynd vikunnar

Báturinn Skíði HU-8 fórst 22. nóvember 1961. Mynd vikunnar er af bræðrunum Hirti Hjartarsyni og Sveini Hjartarsyni frá Vík á Skagaströnd sem fórust með bát sínum Skíða HU-8. Í dagblaðinu Vísi birtist eftirfarandi frétt 23.nóvember 1961: "Óttast að tveir bræður hafi farizt. Norður á Skagaströnd óttast menn mjög að tveir bræður hafi farizt í róðri í gærdag. — Bræðurnir sem eru Hjörtur og Sveinn Hjartarsynir eiga heima á Skagaströnd og eru menn einhleypir. í gærdag hófst leitin, og hefur henni verið haldið látlaust áfram þrátt fyrir stórsjó og hríð á Húnaflóa. Laust fyrir hádegið átti blaðið tal við Skagaströnd. Var þá tíðindalaust af leitinni, sem varðskipið Óðinn hefur haldið uppi í alla nótt. Var flokkur manns farinn á fjörur. Lítilsháttar frost var, hvasst og hríð. Bræðurnir Hjörtur og Sveinn eru synir Hjartar Klemenzsonar sem er maður við aldur og sjálfur stundaði sjómennsku. Um klukkan 1,30 í gærdag voru bræðurnir undan Skallarifi. Þeir voru þá að draga línuna, en höfðu slitið hana og voru að leita. Var þá orðið hvasst. Var ákveðið að þeir skyldu láta til sín heyra um klukkan 3. Er um 2 og 1/2—3 tíma sigling frá Skagaströnd á þessi mið. Vélskipið Húni var í róðri. Kl. 3 er ekkert heyrðist frá bræðrunum hélt Húni þegar á vettvang og leitaði hann á allri leiðinni frá Skallarifi og inn, en árangurslaust. Í gærkvöldi voru 10 vindstig á Skagaströnd og mikill sjór og hríð. Varðskipið Óðinn kom á vettvang og hóf að leita, og leitaði enn í morgun en hafði einskis orðið var. Óttast sjómenn á Skagaströnd, að brot hafi komið á bátinn, en sjólag er mjög slæmt undan Skallarifi. Bræðurnir Hjörtur og Sveinn eru menn á fertugsaldri og hafa stundað sjóinn í sameiningu á bát sínum, en hann var 8 tonn dekkbyggður". Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd.