10.10.2017
SÍBS Líf og heilsa á Norðurlandi Vestra
09. 10. 2017
SÍBS Líf og heilsa er forvarnaverkefni um heilbrigði og lífsstíl þar sem SÍBS ásamt Hjartaheill, Samtökum lungnasjúklinga og Samtökum sykursjúkra bjóða almenningi ókeypis heilsufarsmælingu í samstarfi við heilbrigðisstofnanir og sveitarfélög. Mældur er blóðþrýstingur, blóðfita, blóðsykur, súrefnismettun og fleira, auk þess sem þátttakendum er boðið að taka þátt í könnun um lífsstíl og heilsufar sem snertir á flestum áhrifaþáttum heilbrigðs lífs.
Boðið verður upp á heilsufarsmælingar á Norðurlandi Vestra 16.-18. október:
Mánudagur 16. október 2017
kl. 09–12 Hvammstangi, heilsugæslan, Nestún 1
kl. 14–17 Blönduós, heilsugæslan, Flúðabakka 2
Þriðjudagur 17. október 2017
kl. 10–11 Hofsós, heilsugæslan, Suðurbraut 15
kl. 14–16 Skagaströnd, heilsugæslan, Ægisgrund 16
Miðvikudagur 18. október 2017
kl. 08–15 Sauðárkrókur, heilsugæslan, Sauðárhæðum
Heilsa er líkamleg, andleg og félagsleg vellíðan, en ekki einungis að vera laus við sjúkdóma og örorku. Fyrir einstaklinginn skiptir heilsan öllu. Langvinnir sjúkdómar valda næstum 9 af hverjum 10 dauðsföllum í okkar heimshluta, og tengjast þeir flestir lífsstíl. Forvarnir eru eina skilvirka leiðin til að stemma stigu við þessu. Að forða einum einstaklingi frá tíu ára sjúkdómsferli eða ótímabærum dauða skilar samfélaginu yfir 70 milljón króna sparnaði mælt í vergri landsframleiðslu á mann. Heilbrigði er því gríðarlegt hagsmunamál fyrir samfélagið
Til þess að kortleggja hvar aðgerða er þörf í forvarnamálum er samhliða mælingum á blóðgildum lögð fyrir könnun um heilsufar og lífsstíl sem tekur á helstu áhrifaþáttum langvinnra, lífsstílstengdra sjúkdóma. SÍBS Líf og heilsa má þannig nota til að meta stöðuna í hverju sveitarfélagi, stofnun eða vinnustað fyrir sig. Um leið hlýtur hver einstaklingur innsýn í hvað betur megi fara í eigin heilsu og lífsstíl.
09.10.2017
Heyflutningar með H 34
H 34 með stóran heyfarm. H 34 var í eigu Gunnars Helgasonar
(d. 19.10.2007) vörubílstjóra sem átti marga bíla með þessu númeri.
Áður en núverandi tækni við heyverkun var þekkt þurfti að þurrka heyið
á túni og flytja það síðan heim í hlöðu áður en haustaði of mikið að með
öllum sínum rigningum og lægðagangi.
Þá var heyið gjarnan flutt á vörubíl að hlöðunni og því svo mokað inn með
hvíslum. Þá var nóg að gera fyrir börn og unglinga að troða niður heyið,
þjappa því saman í hlöðunni, til að koma sem mestu fyrir þar.
Það af heyinu sem ekki komst inn í hlöðu var síðan sett í fúlgu við
hlöðuna og það þótti mikil kúnst að hlaða fúlguna rétt svo hún verði sig
sem best í rigningu. Í þeim tilgangi var oft breiddur strigi eða segl ofan á
hana þannig að vatnið rann út af fúlgunni en ekki inn í heyið.
02.10.2017
Umsjónarmaður bókasafns:
Laust er til umsóknar 25% framtíðarstarf umsjónarmanns Bókasafns Skagastrandar.
Leitað er eftir skipulögðum einstaklingi með ríka þjónustulund og jákvæða framkomu til að sinna afgreiðslu og umsjón með bókasafninu frá og með 1. nóvember 2017. Góð tölvukunnátta er æskileg.
Opunartími safnsins er:
mánudaga kl 16-19
miðvikudaga kl 15-17
fimmtudaga kl 15-17
Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 15. október 2017.
Nánari upplýsingar gefur sveitarstjóri. Sími: 455 2700 á skrifstofutíma. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar og hægt að sækja þau á vef sveitarfélagsins www.skagastrond.is . Umsóknir má senda í tölvupósti á netfangið: skagastrond@skagastrond.is
Sveitarstjóri
29.09.2017
Rækjuvinnsla
Rækjuvinnslan var byggð á árunum 1971- 1974 og var þá
hafin rækjuvinnsla í húsinu. Vinnsla lagðist svo af þar árið 2004 eftir
samruna Skagstrendings Hf við FISK Seafood á Sauðárkróki.
Meðan vinnsla var í gangi í húsinu var Rækjuvinnslan einn af
burðarásunum í atvinnulífinu á Skagaströnd með tugi fólks í vinnu.
Á þessari mynd eru tvær drottningar, Inga Lára Sigurðardóttir til vinstri
og Árný Helgadóttir til hægri.
Myndin var tekin sumarið 1993.
27.09.2017
Bólusett verður á Heilsugæslustöðinni á Skagaströnd
Fimmtudaginn 28/9 kl: 9:00-11:00
Sérstaklega er mælt með að einstaklingar 60 ára og eldri, einstaklingar með langvinna sjúkdóma, heilbrigðisstarfsfólk og þungaðar konur láti bólusetja sig. Þessir hópar fá bóluefnið frítt en þurfa að greiða komugjald.
Bólusett verður á Heilsugæslustöðinni á Blönduósi
Þriðjudaginn 26/9 kl: 11:00-13:00
Fimmtudaginn 28/9 kl: 13:00-15:00
Föstudaginn 29/9 kl: 10:00-12:00
22.09.2017
Þórbjörn og Kristján
Glaðhlakkalegir á góðviðrisdegi.
Þórbjörn Jónsson (d. 22.1.1996) frá Flankastöðum til vinstri og
Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) frá Grund (Vík) til hægri.
Báðir voru þessir menn fjölskyldumenn sem settu sterkan svip
á samfélagið á Skagaströnd á sinni tíð, skemmtilegir og þekktir
fyrir gamansemi og frumlegheit.
21.09.2017
Opið hús @ Nes Listamiðstöð
September Opið hús!
föstudagur 22
KL. 16.00 - 18.00.
Start off your weekend with some artistic inspiration !
If the weather is good to us...there is going to be a home-made ceramic oven/kiln, that will fire sculptures outside !
Sjáumst þarna þá !
19.09.2017
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar miðvikudaginn 20. september 2017 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 8.00.
Dagskrá:
Fjárhagsyfirlit jan – júní 2017
Umsókn um byggðakvóta 2017/2018
Reglur um stuðning við dreifnám 2017-2018
Samþykkt um kjör stjórna og nefnda sveitarfélagsins
Tilnefning í samráðsvettvang sóknaráætlunar
Málefni fatlaðra
Fundur samráðshóps 8. september 2107
Fundur samráðshóps 30. ágúst 2017
Samningur um sameiginlegt þjónustusvæði á Norðurlandi vestra
Bréf
Lárusar Ægis Guðmundssonar, dags. 22. ágúst 2017
Bréf mennta og menningarmálaráðuneytis 16. ágúst 2017
Svarbréf sv.stj. vegna bréfs ráðuneytis, 29. ágúst 2017
Svarbréf ráðuneytis, 8. september 2017
Fundargerðir:
Héraðsfundar og ályktun fundarins 24. ágúst 2017
Stjórnar SSNV, 22.08.2017
Stjórnar SSNV, 12.09.2019
Stjórnar Hafnarsambands Íslands, 25.08.2017
Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 1.09.2017
Önnur mál
Sveitarstjóri
19.09.2017
Árleg inflúensubólusetning haustið 2017
Bólusett verður á Heilsugæslustöðinni á Blönduósi
Þriðjudaginn 26/9 kl: 11:00-13:00
Fimmtudaginn 28/9 kl: 13:00-15:00
Föstudaginn 29/9 kl: 10:00-12:00
Bólusett verður á Heilsugæslustöðinni á Skagaströnd
Fimmtudaginn 28/9 kl: 9:00-11:00
Sérstaklega er mælt með að einstaklingar 60 ára og eldri, einstaklingar með langvinna sjúkdóma, heilbrigðisstarfsfólk og þungaðar konur láti bólusetja sig. Þessir hópar fá bóluefnið frítt en þurfa að greiða komugjald.
Einnig er mælt með því að sömu einstaklingar séu bólusettir á 10 ára fresti gegn lungnabólgu.
18.09.2017
Ægissíða
Ægissíða, heimili ljósmyndarans
Guðmundar Guðnasonar (d. 21.11.1988) og
foreldra hans Guðna Sveinssonar
(d. 15.11.1971) og Klemensínu Klemensdóttur
(d.12.6.1966).
Húsið er nú löngu horfið en mun að stofni
til hafa verið flutt utan úr Kálfshamarsvík.
Þar bjuggu í því Sigurður Júlíusson og
Guðbjörg Guðjónsdóttir kona hans, líklega
til 1943.
Þá keyptu Björn Jóhannesson og Ragnheiður Jónsdóttir
húsið og bjuggu í því til 1948, er þau fóru
að Bergstöðum.
Guðni Sveinsson og Klemensína Klemensdóttir
bjuggu í húsinu eftir það,
en líklega keypti Pálmi sonur þeirra húsið
af Birni.