Fréttir

Laus staða í Höfðaskóla

Við Höfðaskóla er laus staða starfsmanns í Frístund. Vinnutími er frá kl. 12:30 til 16:00. Upplýsingar um starfið veitir skólastjóri í síma 8624950. Skólastjóri

Skólasetning Höfðaskóla

Skólasetning Höfðaskóla verður í Hólaneskirkju miðvikudaginn 24. ágúst n.k. og hefst kl. 10. Eftir formlega skólasetningu fara nemendur með umsjónarkennurum í sínar stofur og fá þar stundatöflur sínar. Kennsla hefst skv. stundaskrá (sund) fimmtudaginn 25. ágúst. Nánari upplýsingar á skólasetningu. Skólastjórnendur.

Nes listamiðstöð í fréttum í Ástralíu

ST NORBERT College visual arts students consider themselves lucky to have artist Amanda Marsh as their teacher. Þannig hefst frétt í Canning Times í Ástralíu sem segir frá því að listakennarinn Amanda Marsh muni dvelja í Nes listamiðstöð á Skagaströnd í janúar 2017. Þar kemur einnig fram að Amanda Marsh sé ekki einungis listkennari í St Norbert heldur margverðlaunaður listamaður. Fréttina í heild má lesa hér: http://www.communitynews.com.au/canning-times/news/st-norbert-art-teacher-to-take-residence-in-iceland/

Opið hús hjá Nes Listamiðstöð

28 júlí 2016 - kl 17.00-20.00 Komdu í kaffi og hitta júlí listamennina okkar! A Summer Evening of Entertainment Meet at the beach (Víkina) at 17.00 for a dance performance by Alexandra Elliott, then make your way to the church for two individual performances by Kleb Kanasevich on Clarinet and Tenor Simon Petersson, piano and vocals. Then off to Nes studios to see the rest of the works. Gleb Kanasevich, Clarinet Gleb Kanasevich will play a solo piece and demonstrate some of the big solo piece he is working on at the Nes Residency in July and August. Simon Petersson, Piano and Vocals. Simon Peterson will perform an instrumental piece on piano called "Relations" . He will shortly introduce a project that he and Lana Stevens did together "Havets Sånger" (The Songs of the Sea), a music and art collaboration. "Havets Sånger" is a song cycle of ten songs inspired by the poem "Annabel Lee" by Edgar Allan Poe. Poetry and Music is written and composed by Simon Peterson. 2 songs from the song cycle will be performend: "Vid havet" ( By the Sea) and "Havet Sover" (The Sea that sleeps).

Ærslabelgur kominn á Skagaströnd

Á Skagaströnd hefur verið settur niður svokallaður „Ærslabelgur“ sem er uppblásið leiktæki um 100 fermetrar að flatarmáli. Ærslabelgurinn var settur niður á Hólanesi rétt við gamla húsið Árnes og í nágrenni við Kaffi Bjarmanes og veitingahúsið Borgina. Ærslabelgurinn er blásin upp kl 10 á morgnanna og loft tekið af kl 22 á kvöldin. Belgurinn verður blásinn upp fram á haust en verður svo hafður í dvala þar til vorar á ný. Hann er öllum opinn og ekki farið fram á annað en að „hopparar“ séu ekki í skóm og gangi snyrtilega um svæðið. Það er Sveitarfélagið Skagaströnd sem lét setja belginn upp og annast rekstur hans. Sveitarstjóri

Mynd vikunnar

Frystihúsið. Á myndinni er frystihús Kaupfélagsins sem seinna varð Hólanes hf. Myndin er tekin áður en miklar breytingar voru gerðar á húsinu og ekki var búið að fylla upp í víkina fyrir neðan sundlaugina, sem er lengst til hægri á myndinni. Í mörg ár rak Kaupfélagið sláturhús á neðri hæð hússins á hverju hausti. Þá voru líka frystigeymslur fyrir almenning uppi í millibyggingunni milli aðal frystihússins til vinstri og vélahússins til hægri. Stigin sem sést liggja upp á þak skúrsins fyrir miðri mynd var notaður til að komast í frystihólfin sem voru innan við dyrnar á risinu á millibyggingunni. Ekki er vitað hvenær Guðmundur Guðnason tók þessa mynd en ef grannt er skoðað má sá hafíshrafl á sjónum.

Truflun á vatni í dag

Truflun verður á vatni á bogabrautinni í dag eftir hádegi.

Mynd vikunnar

Systkin. Systkin, börn Guðmundar Jóhannessonar og Soffíu S. Lárusdóttur. Frá vinstri: Karl Guðmundsson, Lára Guðmundsdóttir og Ingibergur Guðmundsson. Karl og Ingibergur eru tvíburar eins og sjá má. Myndin er tekin um 1960. Þessir krakkar eru yngstu þrjú börn Guðmundar og Soffíu en auk þeirra áttu þau tvo eldri syni og eina eldri dóttur.

Skrifstofa sveitarfélagsins

Opnunartími skrifstofunnar frá 1. júlí 2016 er kl 10.00 – 15.00 virka daga. Skrifstofa sveitarfélagsins verður lokuð vegna sumarleyfa dagana 11. – 23. júlí 2016. Skrifstofan opnar aftur eftir sumarleyfi 25. júlí. Sveitarstjóri

Opið hús í Nes listamiðstöð

Þriðjudaginn 28. júní 2016 Kl.17:00-19:00