Fréttir

Heiðrún Eiríksdóttir varði meistaraverkefni sitt við Auðlindadeild Háskólanns á Akureyri

Heiðrún Eiríksdóttir fyrrum starfsmaður BioPol ehf á Skagaströnd, og nemandi við Auðlindadeild Háskólans á Akureyri, varði meistaraverkefni sitt þriðjudaginn 11. október. Heiðrún er fyrsti meistaraneminn sem útskrifast í kjölfar samstarfs BioPol ehf og Háskólans á Akureyri. Verkefni Heiðrúnar ber heitið „Cultivation of PUFAs producing Sicyoidochytrium minutum strain using by-products from agriculture“. Markmið verkefnisins var að athuga hvort Sicyoidochytrium minutum gætu nýtt sér aukaafurðir sem falla til í landbúnaði sem fæðu. Sicyoidochytrium minutum er örvera af ætt Thraustochytriaceae sem hafa eiginleika til þess að framleiða fjölómettaðar fitusýrur (PUFAs) t.d. docosahexaenoic (DHA) og eicosapentaenoic (EPA) omega-3 fitusýrur. Sýnt hefur verið fram á að fólki er nauðsynlegt að fá fjölómettaðar fitusýrur úr fæði í ljósi þess að líkami fólks myndar þessar fitusýrur ekki sjálfur. Niðurstöður verkefnisins sýna að S. minutum gat nýtt sér aukaafurðir frá landbúnaði til vaxtar og var vöxturinn borinn saman við viðmiðunaræti. Fitusýrumyndun var 28,17% af þurrvigt og hlutfall DHA 25,24% og 5,7% EPA. Meginhluti vinnu við verkefnið fór fram hjá BioPol ehf á Skagaströnd og var hluti af stóru rannsóknaverkefni undir stjórn Magnúsar Arnar Stefánssonar og styrkt af AVS rannsóknasjóð í sjávarútvegi. Hluti vinnunar fór fram  einnig við Háskólann á Akureyri og Háskóla Íslands. Aðalleiðbeinandi verkefnisins var Dr. Magnús Örn Stefánsson og meðleiðbeinandi var prófessor Hjörleifur Einarsson. Andmælandi var Dr. Jakob K. Kristjánsson.

Kjörskrá vegna Alþingiskosninga

  Kjörskrá   fyrir Skagaströnd vegna Alþingiskosninga þann 29. október 2016 liggur frami á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar frá 13. október til kjördags.   Kjörskrárstofninn miðast við þá sem áttu lögheimili í sveitarfélaginu samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár 24. september 2016.   Athygli er vakin á því að kjósendur geta einnig kannað á vefnum kosning.is hvar þeir eru á kjörskrá.

Næsti fundur sveitarstjórnar

  FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar miðvikudaginn 12. október 2016 kl 0800 á skrifstofu sveitarfélagsins.   Dagskrá: 1.   Kjörskrá vegna Alþingiskosning   2.   Forsendur fjárhagsáætlunar 2017   3.   Félagslegar íbúðir a.    Gjaldskrá leigu b.    Umsóknir c.    Sala íbúða   4.   Umsókn um uppbyggingu innviða fyrir rafbíla   5.   Erind Norðurár bs um ábyrgð   6.   Tilnefning í Gróður- og náttúruverndarnefnd   7.   Bréf: a.    Mennta- og menningarmálaráðuneytis, dags. 6. október 2016 b.    SSNV, dags. 30. september 2016 c.    Dimension of Sound, dags. 22. ágúst 2016 d.    Atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytið, dags. 6. september 2016 e.    Framkvæmdastjóra EBÍ, dags. 27. september 2016 f.     Sambands íslenskra sveitafélaga, dags. 26. ágúst 2016 g.    Félags stjórnenda leikskóla, dags. 24. ágúst 2016 h.   Steins Rögnvaldssonar, dags. 5. október 2016 i.     Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 9. september 2016   8.   Fundargerðir: a.    Samráðshóps um málefni fatlaðra, 23.06.2016 b.    Þjónusturáðs um málefni fatlaðra, 7.09.2016 c.    Þjónusturáðs um málefni fatlaðra, 6.10.2016 d.    Stjórnar Byggðasamlags Tónlistarskóla A-Hún, 27.09.2016 e.    Stjórnar Félags- og skólaþjónustu A-Hún, f.     Stjórnar Norðurár bs., 8.09.2016 g.    Stjórnar SSNV, 6.09.2016 h.   Stjórnar Hafnasambands Íslands, 19.09.2016 i.     Stjórnar Sambands ísl sveitarfélaga, 2.09.2016   9.   Önnur mál                                                Sveitarstjóri  

Mynd vikunnar

Hress hópur Þessar hressu konur sáu um mat og kaffi á Bridgemóti Skagastrandar í Fellsborg einhverntíma á níunda áratugnum. Slík Bridgemót þar sem fólk kom víða að til að keppa í Bridge voru haldin á Skagaströnd í nokkur ár meðan starfsemi Bridgeklúbbs Skagastrandar stóð með hvað mestum blóma. Á myndinni frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir, Helga Guðmundsdóttir, Guðmundur Sigurðssonson sem var keppnisstjóri, Bjarney Valdimarsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir og Elín Njálsdóttir.

Mynd vikunnar

Löndun. Hallbjörn Björnsson (Halli Boss) landar fiski úr Sigurði Hu -18 við "Litlu bryggju". Á bryggjunni er Guðmundur J. Björnsson bróðir Hallbjörns og býr sig undir að tína fiskinn upp á kerruna sem sér í hornið á til vinstri. Faðir Hallbjörns, Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) frá Jaðri, smíðaði Sigurð Hu -18 árið 1966 og reri á honum til fiskjar endrum og sinnum. Aðallega var báturinn þó gerður út á grásleppu af Sigurði Björnssyni bróður Hallbjörns og Guðmundar. Sigurður Hu-18 er enn til og er í öruggri vörslu Sigurðar Björnssonar. Reyndar var skipt um nafn á bátnum því Sigurðar nafnið var í einkaeigu og var hann því nefndur Sigurður Jónsson eftir það. Báturinn aftan við Sigurð hét Ósk Hu og var í eigu Stefáns Stefánssonar (d. 2.1.1988). Aftast sér svo í Víking St-12 sem var í eigu Péturs Ástvaldssonar á Hólmavík. Pétur fórst ásamt öðrum manni með Víkingi í mars 1971. "Litla bryggjan" er nú löngu horfin en hún var um það bil þar sem nú er suð-austur hornið á Miðgarði (Arnarsbryggjunni). "Litla bryggjan" lækkaði fram til endans til að auðveldara væri að landa fiski við hana eftir stærð bátsins sem landað var úr. Maðurinn fremst á bryggjunni er óþekktur.

Starfsmaður óskast

Starfsmaður óskast til að annast heimilsjálp hjá eldri borgurum og öryrkjum á Skagaströnd. Um er að ræða hlutastarf sem getur tekið breytingum eftir fjölda þjónustuþega. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Upplýsingar veittar á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar í síma 455 2700 Sveitarstjóri

Opið hús hjá Nes Listamiðstöð

Komdu í kaffi og hitta september listamennina okkar Miðvikudagur 28th kl 16.00 - 18.30

Mynd vikunnar

Baldvin og Magnús - Bræðurnir Baldvin Hjaltason til vinstri og Magnús Hjaltason (d. 16.6.2014) frá Skeggjastöðum á leið að smala heimahagana haustið 1959. Myndin var tekin á hlaðinu á gamla bænum á Bakka.

Sigraði í myndakeppni UMFÍ

Ástríður Helga Magnúsdóttir á Skagaströnd bar sigur úr býtum í myndakeppni Ungmennafélags Íslands á Unglingalandsmótinu í Borgarnesi um verslunarmannahelgina. Ástríður Helga fékk afhentan glæsilegan iPhone 6S Plus síma frá versluninni Epli í síðustu viku. Hún tók sigurmyndina á síðasta degi mótsins og sýnir hún tvær vinkonur horfa saman á flugeldasýninguna að lokinni síðustu kvöldvökunni. Myndin endurspeglar þá vináttu sem einkennir mótið, að mati dómnefndar. Sagt er frá þessu á vef UMFÍ. Á meðfylgjandi mynd er Ástríður með Ómari Braga Stefánssyni, landsfulltrúa UMFÍ og framkvæmdastjóra landsmóta UMFÍ. Frétt af www.huni.is

Árleg inflúensubólusetning haustið 2016

Heilbrigðisstofnun Norðurlands Blönduósi auglýsir Bólusett verður á Heilsugæslustöðinni á Blönduósi Mánudaginn 19/9 kl: 13:00-15:00 Þriðjudaginn 20/9 kl: 11:00-13:00 Föstudaginn 23/9 kl: 10:00-12:00 Bólusett verður á Heilsugæslustöðinni á Skagaströnd Fimmtudaginn 22/9 kl: 9:00-11:00 Sérstaklega er mælt með að einstaklingar 60 ára og eldri, einstaklingar með langvinna sjúkdóma, heilbrigðisstarfsfólk og þungaðar konur láti bólusetja sig. Þessir hópar fá bóluefnið frítt en þurfa að greiða komugjald. Einnig er mælt með því að sömu einstaklingar séu bólusettir á 10 ára fresti gegn lungnabólgu.