Fréttir

Mynd vikunnar

Grjótnám í Höfðanum. Á þessari mynd eru verkamenn við grjótnám í Höfðanum vegna hafnargerðar á Skagaströnd 1934. Milli 40 og 60 verkamenn unnu við hafnargerðina þetta sumar. Grjótið var sprengt úr Höfðanum og komið upp á vörubíl, oftast með handafli, og síðan flutt í uppfyllingu frá landi og út í Spákonufellsey, sem einnig var brotin niður að hluta og notuð í uppfyllinguna. Strax sumarið 1935 var svo söltuð síld á tréplani í höfninni, sem gjörbreytti allri aðstöðu fyrir báta og fiskmóttöku. Húsin í baksýn voru Melstaður (nær) og Laufás lengst til vinstri.

Mynd vikunnar

Kántrýhátíð 2001. Margt var um manninn á Kántrýhátíðinni um verslunarmannahelgina 2001 og margt í boði fyrir hátíðagesti. Meðal annars var hægt að leigja þennan glæsilega tveggja hestafla hestvagn til að koma sér á milli staða í góða veðrinu. Myndina tók Árni Geir Ingvarsson.

Framhaldsaðalfundur Foreldrafélags Höfðaskóla

Framhaldsaðalfundur Foreldrafélags Höfðaskóla verður haldinn í íþróttahúsinu miðvikudaginn 18. nóv. og hefst kl. 18. Fundarefni: - Kosning stjórnar. Ath. að tillaga að stjórn er komin - Önnur mál s.s. o starfið í vetur  Spjaldtölvuvæðing  Lestrarátak/lestrarömmur/afar  Viðhorf til skólastarfs  Jólaföndur – af eða á?  Grímuball á öskudegi  Annað sem kemur upp í hugann og fólk vill ræða. Endilega mætið sem flest því þannig getið þið haft áhrif. Foreldrafélag Höfðaskóla

Fatamarkaður RKÍ 19. nóv. 2015

Fatamarkaður Fatamarkaður Rauða krossins á Skagaströnd verður haldinn fimmtudaginn 19. nóvember frá kl. 17:00-19:00 í húsnæði deildarinnar að Vallarbraut. Fullur poki af fötum á 2000 kr. Rauði krossinn á Skagaströnd

Elínborgardagurinn á mánudaginn 16. nóv

Elínborgardagurinn menningar- og hátíðardagskrá í Fellsborg mánudaginn 16. nóvember 2015 kl. 18:00 Skv. hefð er Dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember. Í Höfðaskóla er dagurinn einnig helgaður minningu Elínborgar Jónsdóttur fyrrverandi kennara við skólann. Höfðaskóli mun því standa fyrir menningar- og hátíðardagskrá í Fellsborg mánudagskvöldið 16. nóvember n.k. Eins og undanfarin ár mun nemendafélagið Rán, með dyggri aðstoð foreldra, bjóða upp á kökuhlaðborð að lokinni dagskrá. Aðgangseyrir á dagskrána er:  1000 kr. fyrir eldri en grunnskólanemendur  500 kr. fyrir grunnskólanemendur  frítt fyrir þriðja barn frá heimili  frítt fyrir leikskólanemendur Innifalið er aðgangur að kökuhlaðborðinu. Vonumst við til þess að sjá sem flesta í hátíðarskapi. Nemendur og starfsfólk Höfðaskóla. Vonumst við til þess að sjá sem flesta í hátíðarskapi. Nemendur og starfsfólk Höfðaskóla

Spennandi fundur

Nes Listamiðstöð boðar til opins fundar fimmtudaginn 12. nóvember á veitingastaðnum Borginni. Fundurinn hefst kl 18:00 og er áætlað að standi til 21:00 með hléi þar sem boðið verður upp á súpu, brauð og kaffi. Markmið fundarins er að gefa fólki úr nærsamfélagi listamiðstöðvarinnar tækifæri á að taka þátt í að marka félaginu stefnu til næstu 5-10 ára. Hvað er vel gert, hvað má betur fara? Hvar liggja tækifærin og hverjar eru ógnanirnar? Fundinum stjórnar Njörður Sigurjónsson dósent frá Háskólanum í Bifröst. Bæjarbúar og nærsveitamenn eru hvattir til að mæta og taka þátt í skemmtilegu verkefni. Stjórn Nes Listamiðstöðvar

Mynd vikunnar

Síldarsöltun. Síldarsöltun á Skagaströnd 1935 - 1940. Söltunarplanið var fullgert fyrir síldarvertíð 1935 og hófst þá þegar söltun þar. Hafnarhúsið sem sér í til vinstri á myndinni var byggt sumarið 1935 en seinna (1943 - 1945) flutt á núverandi stað til að rýma fyrir verksmiðjubyggingunni. Bryggjan skemmdist um veturinn 1936 þannig að hún gekk upp um miðbikið (allt að 1 metra) og var hún því rifin niður og endurbyggð vorið 1937. Húsin í baksýn eru frá hægri: Lækjarbakki (gamli bærinn), Jaðar (Efri Jaðar), Lækur og Karlsskáli. Á bak við staur sem er á planinu má sjá Brúarland og lengst til vinstri er Gamla búðin. Önnur hús eru óþekkt.

Málþing um byggð og samfélag í Húnavatnssýslu á 18. öld

Laugardaginn 7. nóvember næstkomandi efna Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra og sagnfræðideild Háskóla Íslands til málstofu um byggð og samfélag í Húnavatnssýslu á 18. öld. Málstofan er hluti af námskeiði í sagnfræði og gera sjö sagnfræðinemar grein fyrir rannsóknum sínum um efnið. Kennari námskeiðsins er Hrefna Róbertsdóttir sagnfræðingur. Fundarstjóri er Harpa Ásmundsdóttir sagnfræðinemi. Málstofan fer fram í Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra að Einbúastíg 2 á Skagaströnd. Hún hefst kl. 14 og eru allir velkomnir og frítt inn. Átjándu aldar kökur í kaffihléinu. DAGSSKRÁ í Rannsóknasetri Háskólans, Skagaströnd 7. nóvember kl. 14. Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra og sagnfræðideild Háskóla Íslands efna til málstofu um byggð og samfélag í Húnavatnssýslu á 18. öld. Málstofan er hluti af námskeiði í sagn-fræði og gera sjö sagnfræðinemar frá rannsóknum sínum um efnið. Kennari námskeiðsins er Hrefna Róbertsdóttir sagnfræðingur. Fundarstjóri er Harpa Ásmundsdóttir sagnfræðinemi. Málstofan hefst kl. 14 og eru allir velkomnir og frítt inn. Átjándu aldar kökur í kaffihléinu. 14:00: Setning 14:10-14:30 Baldur Þór Finnsson: Ríkidæmi Þingeyraklausturs. Óánægður almúgi og innheimta yfirvalda 14:30-14:50 Þórður Vilberg Guðmundsson: Hungurdauði og hallæri í Húnavatnssýslu 1755 -1756 14:50-15:10 Brynhildur L. Ragnarsdóttir: Dauðamein Húnvetninga í Tjarnarsókn 1785 til 1815 Kaffihlé 15:10-15:40 15:40-16:00 Bjarni Þ. Hallfreðsson: Fólk á Vatnsnesi. Hvernig þróaðist byggð og félagsgerð byggðarinnar á norðanverðu Vatnsnesi á 18.öld? 16:00-16:20 Hafdís Líndal: Byggð og búfé í Vatnsdal 16:20-16:40 Linda Ösp Grétarsdóttir: Sakamál í Húnavatnssýslu á árunum 1756-1760. Framkvæmd refsinga 16:40-17:00 Þórdís Lilja Þórsdóttir: Blóðskömm í Húnavatnssýslu 1720 – 1806. Dómar og refsingar fyrir blóðskömm í Húnavatnsýslu Vinsamlegast, Vilhelm Vilhelmsson

Áhugaverðir fyrirlestrar um sagnfræði

Málstofa um byggð og samfélag í Húnavatnssýslu á 18. öld í Rannsóknasetri Háskólans, Skagaströnd 7. nóvember kl. 14. Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra og sagnfræðideild Háskóla Íslands efna til málstofu um byggð og samfélag í Húnavatnssýslu á 18. öld. Málstofan er hluti af nám­skeiði í sagn­fræði og gera sjö sagnfræðinemar frá rannsóknum sínum um efnið. Kenn­ari námskeiðsins er Hrefna Róbertsdóttir sagnfræðingur. Fundarstjóri er Harpa Ásmunds­dóttir sagn­fræðinemi. Málstofan hefst kl. 14 og eru allir velkomnir og frítt inn. Átjándu aldar kökur í kaffihléinu. 14:00: Setning 14:10-14:30 Baldur Þór Finnsson: Ríkidæmi Þingeyraklausturs. Óánægður almúgi og innheimta yfirvalda 14:30-14:50 Þórður Vilberg Guðmundsson: Hungurdauði og hallæri í Húnavatnssýslu 1755 -1756 14:50-15:10 Brynhildur L. Ragnarsdóttir: Dauðamein Húnvetninga í Tjarnarsókn 1785 til 1815 Kaffihlé 15:10-15:40 15:40-16:00 Bjarni Þ. Hallfreðsson: Fólk á Vatnsnesi. Hvernig þróaðist byggð og félagsgerð byggðarinnar á norðanverðu Vatnsnesi á 18.öld? 16:00-16:20 Hafdís Líndal: Byggð og búfé í Vatnsdal 16:20-16:40 Linda Ösp Grétarsdóttir: Sakamál í Húnavatnssýslu á árunum 1756-1760. Framkvæmd refsinga 16:40-17:00 Þórdís Lilja Þórsdóttir: Blóðskömm í Húnavatnssýslu 1720 – 1806. Dómar og refsingar fyrir blóðskömm í Húnavatnsýslu

Fréttatilkynning frá Nes Listamiðstöð

Nes Listamiðstöð hefur verið starfrækt frá árinu 2008 og hefur gengið í gegnum ýmislegt í rekstri sínum frá stofnun. Það er vissulega eðlilegt að ný starfsemi geti átt erfitt uppdráttar fyrstu árin og ákveðið gleðiefni að á síðustu tveimur árum hefur verið meiri stöðugleiki í rekstri listamiðstöðvarinnar og ánægjulegt að segja frá því að undanfarin þrjú ár hefur hún skilað jákvæðri rekstrarniðurstöðu. Horfur eru einnig nokkuð góðar því allt komandi ár er að mestu fullbókað. Fasteignakaup Í sumar var tekin nokkuð stór stefnumarkandi ákvörðun þegar stjórn félagsins samþykkti að kaupa efri hæð Fellsbrautar 2. Kaupin voru gerð til að hýsa þá listamenn sem eru gestir Nes Listamiðstöðvar á hverjum tíma. Kaupin voru fjármögnuð með eigin fé og lántöku í Landbankanum. Stjórn telur að þessi ráðstöfun muni létta rekstur félagsins m.a. í ljósi þess að sagt hefur verið upp leigu á þremur íbúðum sem áður voru notaðar í þessum tilgangi. Stefnumótunarvinna/fundarboð Stjórn Nes Listamiðstöðvar hefur einnig ákveðið að ráðast í stefnumótun fyrir listamiðstöðina. Njörður Sigurjónsson sérfræðingur frá Háskólanum í Bifröst hefur verið ráðinn til þess að stjórna þeirri vinnu. Markmið stefnumótunarinnar er í raun að greina núverandi hlutverk félagsins og marka því stefnu til komandi ára. Haldinn hefur verið einn undirbúningsfundur með stjórn félagsins en fimmtudaginn 12. nóvember nk. er fyrirhugað að halda opinn fund um málið. Þar býðst öllum að koma sem hafa áhuga á að taka þátt í verkefninu eða lýsa skoðun sinni á starfsemi félagsins. Fundurinn verður auglýstur nánar þegar nær dregur en stjórn bindur miklar vonir við að fólk hafi áhuga á að taka þátt í þessari vinnu. Stjórn Nes listamiðstöðvar þakkar þeim mörgu sem hafa beint og óbeint stutt við þetta óvenjulega verkefni og þannig hjálpað til að gera það að frumkvöðlaverkefni sem litið er til víða um land. Fh Nes Listamiðstöðvar Halldór Gunnar Ólafsson Stjórnarformaður