26.06.2015
Opinn íbúafundur í Austur Húnavatnssýslu
Haldinn í Félagsheimilinu á Blönduósi
Boðað er til opins fundar fyrir íbúa í Austur-Húnavatnssýslu í Félagsheimilinu á Blönduósi til að ræða atvinnumál í sýslunni og kynna Greinargerð um atvinnuuppbyggingu í Austur - Húnavatnssýslu. Fundurinn verður haldinn mánudaginn 29. júní kl. 17:30.
Dagskrá:
„Atvinnuuppbygging í Austur – Húnavatnssýslu.“ Greinargerð verkefnisstjórnar A –Hún. – Arnar Þór Sævarsson, sveitarstjóri Blönduósbæjar
Staða byggðaþróunar í Austur-Húnavatnssýslu – Snorri Björn Sigurðsson, forstöðumaður Þróunarsviðs Byggðastofnunar
Álver á Hafursstöðum – Ingvar Skúlason frá Klöppum
Umræður og tillögur
Skýrslan er aðgengileg á heimasíðum sveitarfélaganna. (hér)
25.06.2015
Elizabeth Layton og Sidney Blevins voru gefin saman af séra Bryndísi Valbjarnardóttur úti á Spákonufellshöfða hér á Skagaströnd föstudaginn 19. júní sl.
Þau komu í nokkurra daga heimsókn frá Bandaríkjunum með 2ja ára soninn Strummer til að kynna honum land og þjóð og til að gifta sig.
Liz og Sid eins og þau eru kölluð eru fyrrum Nes listamenn og voru bæði hér í febrúar 2012 en Liz kom síðan aftur í maí sama ár.
Þeim er staðurinn hjartfólginn og segja að hann sé þeirra uppáhalds.
Stundin var ljúf, veðurguðirnir sáttir og Höfðinn og Spákonufellið voru fallegur bakgrunnur athafnarinnar.
Svo er spurning hvort það fari nokkuð að vaxa hrísgrjón á Höfðanum!”
24.06.2015
Hreinni Skagaströnd
Í samvinnu við Sveitarfélagið Skagaströnd mun Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra standa fyrir hreinsunarátaki í júlí, þar sem markmiðið verður að fjarlægja af lóðum járnarusl, bílhræ og annað drasl sem getur talist lýti á umhverfinu.
Óskað er eftir að íbúar og fyrirtæki taki þátt í átakinu með því að hirða um það sem kann að vera nýtilegt og raði því snyrtilega upp, en komi öðru til förgunar. Hægt er að óska eftir aðstoð áhaldahúss við hreinsunarstarfið.
Í byrjun júlí mun Heilbrigðiseftirlitið ef þurfa þykir, líma viðvörunarorð á þá lausamuni og númerslausu bifreiðar sem enn eru til lýta og þeir fjarlægðir í framhaldinu.
Sigurjón Þórðarson
heilbrigðisfulltrúi
24.06.2015
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar fimmtudaginn 25. júní 2015
kl 0800 á skrifstofu sveitarfélagsins.
Dagskrá:
Rekstur fyrstu 4 mánuði
Jafnréttisáætlun
Framkvæmdir 2015
Samningur um slátt á opnum svæðum
Bréf:
Tónlistarskólans á Akureyri, 11. júní 2015
Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga, 9. júní 2015
Eignarhaldsfélags BÍ, 4. júní 2015
Varasjóðs húsnæðismála, 21. maí 2015
Sjónvarpsfélags Skagastrandar 15. júní 2015
Fundargerðir:
Fræðslunefndar, 11.06.2015
Héraðsfundar, 3.06.2015
Skólanefndar FNV, 9.06.2015
Stjórnar Róta bs, 28.05.2015
Stjórnar Róta bs, 8.06.2015
Stjórnar Norðurár bs, 15.04.2015
Stjórnar Norðurár bs. 22.04.2015
Stjórnar Norðurár bs. 27.04.2015.
Stjórnar Norðurár bs. 29.04.2015
Stjórnar Norðurár bs. 7.05.2015
Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, 17.04.2015
Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, 27.04.2015
Stjórnar SSNV, 13.05.2015
Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 29.05.2015
Önnur mál
Sveitarstjóri
23.06.2015
Sjöunda Barokkhátíðin á Hólum að hefjast
Halla Steinunn Stefánsdóttir barokkfiðluleikari leiðir Barokksveit Hólastiftis
Á Barokkhátíðinni á Hólum dagana 25.-28. júní leiðir Halla Steinunn Stefánsdóttir barokkfiðluleikari Barokksveit Hólastiftis. Jón Þorsteinsson kennir söng og Ingibjörg Björnsdóttir barokkdans. Fjallað verður um viola d‘Amore, tónskáldið Dieterich Buxtehude og lækningar á miðöldum, haldnir tvennir hádegistónleikar, kvartett ungra gítarleikara kemur fram og hápunkturinn er hátíðartónleikar Barokksveitar Hólastiftis í Hóladómkirkju kl. 14 á sunnudag. Aðgangur að öllum viðburðum hátíðarinnar er ókeypis en tekið er við frjálsum framlögum til stuðnings hátíðinni.
Dans- og hljómsveitaræfingar hefjast eftir hádegi fimmtudaginn 25. júní ásamt söngnámskeiði en upphafsatriði Barokkhátíðarinnar á Hólum 2015 verður kl. 17 þegar hinn norsk-íslenski Björgvin gítarkvartett heldur tónleika í Hóladómkirkju. Kvartettinn skipa þeir Öystein Magnús Gjerde, Thomas Schoofs Melheim, Morten Andre Larsen og Dag Håheim. Þeir eru allir á þrítugsaldri og hafa stundað nám við Grieg-akademíuna í Ósló. Þeir leika einleiksverk og kvartetta eftir Telemann, Bach, Soler, Haussmann og Vivaldi. Klukkan átta um kvöldið flytja þeir Eyþór Ingi Jónsson og Pétur Halldórsson erindi um líf og verk dansk-þýska barokktónskáldsins Dieterichs Buxtehude í Auðunarstofu. Á eftir verður kvöldganga í Gvendarskál ef veður leyfir.
Föstudaginn 26. júní kl. 12.15 leikur Ólöf Sigursveinsdóttir sellóleikari ásamt Judy Þorbergsson Tobin orgelleikara á hádegistónleikum í Hóladómkirkju. Þær flytja barokkverk fyrir selló eftir Duport og Magito en einnig gullfallega óþekkt sellósónötu eftir Antonio Vivaldi. Klukkan sautján verður mjög forvitnilegur fyrirlestur í Auðunarstofu þar sem Þórarinn Arnar Ólafsson læknir fjallar um heilsufar og lækningar á miðöldum. Um kvöldið koma þátttakendur saman á veitingastaðnum Undir Byrðunni þar sem barinn verður opinn og tækifæri fyrir fólk að troða upp með tónlistaratriði eða aðra skemmtun.
Hádegistónleikar laugardagsins hefjast einnig klukkan 12.15 og þar er á ferðinni Duo Borealis, skipað víóluleikurunum Önnu Hugadóttur og Annegret Mayer-Lindenberg. Þær flytja sjaldheyrða dúetta fyrir tvær víólur eftir Michel Corrette, Pietro Nardini og Jean-Marie LeClair. Annegret er jafnframt fiðlusmiður og klukkan sautján á laugardag fjallar hún um hið merka hljóðfæri viola d‘Amore sem er af fjölskyldu strengjahljóðfæra eins og fiðlan og víólan og var mikið notað á barokktímanum. Um kvöldið er hátíðarkvöldverður í sal Hólaskóla þar sem verður stiginn barokkdans , leikið á hljóðfæri og jafnvel sungið.
Sunnudaginn 28. júní lýkur Barokkhátíðinni á Hólum með hátíðarmessu í Hóladómkirkju kl. 11 og hátíðartónleikum Barokksveitar Hólastiftis kl. 14. Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup á Hólum, prédikar og Sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson vígslubiskup þjónar fyrir altari. Þátttakendur á Barokkhátíðinni á Hólum sjá um tónlistarflutning og organisti verður Eyþór Ingi Jónsson. Á hátíðartónleikunum leiðir Halla Steinunn Stefánsdóttir hljómsveitina sem flytur vel valdar barokkperlur sem sveitin hefur æft meðan á hátíðinni stóð.
Barokkhátíðin á Hólum er nú haldin í sjöunda sinn.
Nánari upplýsingar veitir Pétur Halldórsson
í síma 663-1842
eða á netfangið barokksmidjan@holar.is
23.06.2015
Opna Fiskmarkaðsmótið í golfi, sem jafnframt er minningarmót um Karl Berndsen, var haldið á Háagerðisvelli á Skagaströnd, laugardaginn 20. júní sl. Mótið er einnig fyrsti hluti svokallaðar Norðvesturþrennu golfklúbbanna á Skagaströnd, Blönduósi og Sauðárkróki. Alls tóku 26 keppendur þátt í mótinu. Leiknar voru 18 holur. Úrslit urðu sem hér segir:
Kvennaflokkur – höggleikur án forgjafar
Sigríður Elín Þórðardóttir GSS 90 högg
Guðrún Ásgerður Jónsdóttir GÓS 94 högg
Ragnheiður Matthíasdóttir GSS 95 högg
Karlaflokkur – höggleikur án forgjafar
Arnar Geir Hjartarson GSS 76 högg
Elvar Ingi Hjartarson GSS 83 högg
Halldór Halldórsson GSS 83 högg
Blandaður flokkur - Punktakeppni með forgjöf
Hafþór Smári Gylfason GSK 36 punktar
Halldór Halldórsson GSS 33 punktar
Arnar Geir Hjartarson GSS 33 punktar
22.06.2015
Vegna bilunar í vatnsveitu verður lokað fyrir kalt vatn á svæðinu sunnan Fellsbrauta og þeim hluta af Hólanesi sem er sunnan Hólanesvegar. Bilun er í Túnbraut og verður gatan lokuð eða seinfarin á meðan á viðgerð stendur. Vonast er til að viðgerð verði lokið um hádegisbil.
Sveitarstjóri
16.06.2015
Vinnumálastofnun
Atvinnuráðgjafi
á Norðurlandi vestra
Vinnumálastofnun óskar eftir að ráða atvinnuráðgjafa fyrir þjónustuskrifstofu sína á Norðurlandi vestra sem staðsett er á Skagaströnd
Atvinnuráðgjafi veitir ráðgjöf, aðstoðar einstaklinga í atvinnuleit og
atvinnurekendur í leit að starfsfólki. Atvinnuráðgjafi annast ýmis samskipti við hagsmunaaðila á svæðinu.
Helsta markmið starfsins er að vinna gegn atvinnuleysi á Norðurlandi vestra
Viðkomandi starfsmaður þarf að vera tilbúinn að takast á við krefjandi verkefni og búa yfir ríkri samskipta og skipulagshæfni.
Honum ber að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunnar sem eru: Fyrirmyndarþjónusta;Virðing; Áreiðanleiki.
Næsti yfirmaður er forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Norðurlandi vestra.
Helstu verkefni:
• Vinnumiðlun og almenn ráðgjöf
• Móttaka umsókna og gagna
• Skráningar og upplýsingamiðlun
• Kynningar, starfsleitarfundir og námskeið
• Koma á og viðhalda tengslum við fyrirtæki
• Koma á og viðhalda tengslum við ólíka
samstarfs og hagsmunaaðila
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Háskólapróf sem nýtist í starfi
• Reynsla af ráðgjöf og vinnumiðlun
• Samskipta- og skipulagshæfni
• Þekking af atvinnulífi svæðisins er æskileg
Umsóknarfrestur er til og með 30. júní 2015.
Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6
mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Sækja skal um starfið á Starfatorgi:
www.starfatorg.is/serfraedistorf/nr/19606.
Umsókn um starfið skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf
þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar
og rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra
og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veitir:
Jensína Lýðsdóttir, forstöðumaður Vinnumálastofnunar
á Norðurlandi vestra í síma 515 4800 eða með
fyrirspurn netfangið jensina.lydsdottir@vmst.is
.
12.06.2015
Útgefin hefur verið greinargerð nefndar um atvinnumál í A-Hún.
Greinargerð þessi um atvinnuuppbyggingu í Austur-Húnavatnssýslu byggist á þingsályktun Alþingis frá 15. janúar 2014 um átak stjórnvalda og sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu til atvinnuuppbyggingar. Þingsályktunin hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að koma á samstilltu átaki stjórnvalda og sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu um eflingu atvinnulífs og sköpun nýrra starfa á Norðurlandi vestra með nýtingu raforku sem framleidd er í Blönduvirkjun. Markmiðið með átakinu er að efla samkeppnishæfni svæðisins og undirbúa það fyrir þá uppbyggingu sem fylgir orkunýtingu Blönduvirkjunar og jafnframt vinna að markaðssetningu svæðisins sem iðnaðarkosts, svo sem fyrir gagnaver.“
Á grundvelli ályktunarinnar var skipuð verkefnisstjórn með fulltrúum sveitarfélaganna fjögurra í Austur-Húnavatnsýslu og atvinnuvega- og nýsköpunar-ráðuneytis. Verkefnisstjórnin er þannig skipuð:
Arnar Þór Sævarsson, sveitarstjóri Blönduósbæjar, formaður verkefnisstjórnar,
Adolf H. Berndsen, oddviti Sveitarfélagsins Skagastrandar,
Dagný Rósa Úlfarsdóttir, varaoddviti Skagabyggðar,
Sigrún Hauksdóttir, varaoddviti Húnavatnshrepps,
Sveinn Þorgrímsson, yfirverkfræðingur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.
Greinargerðin er unnin af verkefnisstjórninni í samvinnu við Snorra Björn Sigurðsson, starfsmann Byggðastofnunar og Ingiberg Guðmundsson, starfsmann Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Tilgangur greinargerðarinnar er að gefa yfirlit um stöðu atvinnumála og mannlífs í Austur-Húnavatnssýslu, tengsl þess við raforkuframleiðslu í héraðinu og draga ályktanir sem nýst geta til að efla atvinnu og styrkja byggðina. Greinargerðin gegnir einnig því hlutverki að hafa tiltækar grunnupplýsingar sem nýst geta við gerð kynningarefnis fyrir fjárfesta og aðra þá sem stofna vilja til atvinnureksturs í héraðinu.
Meginniðurstaða greinargerðarinnar er að fyrirhuguð stækkun Blönduvirkjunar skapar góðar forsendur fyrir nýtingu orku frá virkjuninni í þágu atvinnuuppbyggingar í Austur-Húnavatnssýslu. Hagnýting orku í heimahéraði hefur verið viðurkennd meginregla í samskiptum heimamanna og virkjunaraðila seinasta aldarfjórðung. Því verður að telja eðlilegt að öll orka Blönduvirkjunar nýtist í þágu heimamanna.
Austur-Húnavatnssýsla er vel í sveit sett og getur boðið fjárfestum kjöraðstæður fyrir atvinnustarfsemi í góðu umhverfi utan virka eldfjallasvæðisins í hæfilegri fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Greinargerðina má finna hér
05.06.2015
Guðmundur Jóhannesson kafar.
Guðmundur Jóhannesson við köfunarstörf 1961.
Á bátnum Ægi eru hjálparmenn hans þeir Kristófer Árnason
slöngumaður og Þórbjörn Jónsson í talstöðinni.
Guðmundur vann lengi sem kafari, aðallega við hafnargerð,
víða um land.
Ef grannt er skoðað sést í stórt hjól lengst til vinstri á myndinni.
Þessu hjóli var snúið stanslaust meðan Guðmundur var í kafi
og með því dælt lofti niður til hans eftir loftslöngunni sem
Kristófer var ábyrgur fyrir að ekki flæktist eða á hana kæmi gat.
Mikið ábyrgðarstarf var líka að vera á talstöðinni og þurfti að ríkja
mikið traust milli kafarans og talstöðvarmannsins.
Bátinn Ægi áttu þeir Guðmundur og Þórbjörn saman um tíma.