Fréttir

Styrkir til atvinnumála kvenna

Fréttatilkynning Styrkir til atvinnumála kvenna 2015 Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um styrki til atvinnumála kvenna vegna ársins 2015. Styrkir þessir eru veittir af velferðarráðherra og er markmið þeirra að efla atvinnulíf og auka aðgengi kvenna að fjármagni. Til ráðstöfunar að þessu sinni eru 35 milljónir og er hámarksstyrkur kr. 3.000.000. Ráðgjafanefnd metur umsóknir og er umsóknarfrestur til og með 16.febrúar. Styrkhæf verkefni skulu vera í eigu kvenna (amk 50%) og stjórnað af konum og skulu fela í sér atvinnusköpun til frambúðar. Um nýnæmi skal vera að ræða og kröfur eru gerðar um að verkefni skekki ekki samkeppnisstöðu á markaði. Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar, áætlanagerðar, þróunarkostnaðar og markaðssetningar (innanlands og erlendis). Auk þess geta konur sem hafa nýlega stofnað fyrirtæki eða eru að stofna fyrirtæki, sótt um styrk til að koma fyrirtækinu í framkvæmd (launastyrkur). Með þeirri umsókn þarf að fylgja fullgerð viðskiptaáætlun. Ekki eru veittir styrkir vegna stofnkostnaðar, framkvæmda, stærri fjárfestinga né rekstrarstyrkir. Vakin er athygli á því að styrkir eru skattskyldir og þarf að telja fram kostnað á móti. Ekki eru veittir hærri styrkir en sem nema helming kostnaðar við verkefni en þetta á þó ekki við um gerð viðskiptaáætlunar. Atvinnumál kvenna kynnir einnig nýtt kynningarblað þar sem viðtöl eru við þá styrkhafa sem hæstan styrk hlutu árið 2014 og má finna blaðið hér: http://en.calameo.com/read/003138568ad6fcdf3bb8b Nánari upplýsingar um styrkina má finna á heimasíðu verkefnisins www.atvinnumalkvenna.is Atvinnumál kvenna á Facebook https://www.facebook.com/atvinnumalkvenna Atvinnumál kvenna á linkedin https://www.linkedin.com/groups?home=&gid=3755265&trk=my_groups-tile-grp Atvinnumál kvenna á twitter https://www.linkedin.com/groups?home=&gid=3755265&trk=my_groups-tile-grp

Hrognkelsið er enginn silakeppur

Á fimmtudaginn næstkomandi kl 12:30 mun verða hægt að fylgjast með fyrirlestri um hrognkelsi í Námstofu sveitarfélagsins Skagastrandar í Gamla Kaupfélaginu. Við ætlum að tengjast í gegnum fjarfundabúnað og því geta áhugasamir komið og fylgst með. Verið velkomin Málstofa 29. janúar kl. 12:30 James Kennedy, sérfræðingur á Hafrannsóknastofnun, flytur erindi sem nefnist: Hrognkelsið er enginn silakeppur: göngur, lóðrétt far og veiðistjórnun á hrognkelsi við Ísland. Erindið verður flutt (á ensku) kl. 12.30 í fyrirlestrarsal á fyrstu hæð á Skúlagötu 4. Í erindinu verður fjallað um umfangsmiklar merkingarannsóknir á grásleppu sem Biopol á Skagaströnd og Hafrannsóknastofnun hafa staðið að um árabil. Notuð voru hefðbundin fiskmerki en einnig rafeindamerki sem geta safnað ítarlegum upplýsingum um hitastig og dýpi sem fiskurinn heldur sig á. Meðal annars kemur fram að hrognkelsi eru fær um að synda töluverðar vegalengdir á dag og þá stunda þau einnig lóðréttar dægurferðir. Auk merkingarannsókna verður fjallað um aðferðir sem beitt er við stjórnun veiða á hrognkelsi en hrognkelsaveiðar hafa verið stundaðar við Ísland um árabil aðallega vegna grásleppuhrogna. Ágrip Cyclopterus lumpus is no lazy lump: migration, vertical activity and management of lumpfish in Iceland Female lumpfish are targeted for their roe when they migrate to coastal areas around Iceland in spring to spawn. To better understand their movements and vertical activity at this time, a large tagging program was started in 2008 by Biopol which was extended in collaboration with MRI to include tagging during the Icelandic spring groundfish survey (IGFS) and the use of data storage tags (DSTs). Between 2008 and 2014, 9710 female lumpfish were tagged, including 121 with DSTs. Lumpfish showed extensive movements with fish tagged in coastal areas being recaptured up to 587 km from their tagging location and were capable of swimming up to 49 km day-1. Fish were most frequently caught in the area in which they were tagged; however, movement between areas was common. Very few fish were caught after 1 year at liberty possibly due to tag loss. DSTs revealed that lumpfish were active within the water column, with vertical movements of several hundred meters being common and vertical speeds of 15 cm s-1. Data from both DSTs and IGFS indicate diel vertical migration in lumpfish. Landings have varied over time and reached a peak in the 70s and 80s which was followed by a sharp decline in the biomass index. Biomass index and abundance of large fish (>45 cm) is still at a low level in comparison with the early 80s. Fishing is primarily regulated using input controls, however, the number of boats which will participate is unknown when days at sea is decided, thus keeping catches below the TAC recommendation may be problematic if participation increases.

Mynd vikunnar

Framsóknar-handtak Hér takast þeir í hendur Framsóknarmennirnir Magnús B. Jónsson, fulltrúi framsóknar í hreppsnefnd Höfðahrepps og sveitarstjóri á Skagaströnd, til vinstri og Björn Pálsson (d. 11.4.1996) alþingismaður Framsóknarflokksins frá Löngumýri til hægri. Björn var áður kaupfélagsstjóri á Skagaströnd og vinsæll útgerðarmaður

Mynd vikunnar

Sönghópur í skólanum Þessi mynd var tekin í Höfðaskóla af sönghópi ungra stúlkna á einhverri skemmtun þar. Myndin var tekin 1967 - 1968. Á myndinni eru, frá vinstri: Guðbjörg Þorleifsdóttir, Sigríður Gestsdóttir, Lára Guðmundsdóttir, Sigríður Birna ? , Elsa Lára Blöndal, Lára Bylgja Guðmundsdóttir og Sigrún Lárusdóttir sem leikur undir á gítar. Ef þú manst hvers dóttir Sigríður Birna er, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Landsskipulagsstefna og skipulagsgerð sveitarfélaga

Landsskipulagsstefna og skipulagsgerð sveitarfélaga Skipulagsstofnun kynnir auglýsta tillögu að Landsskipulagsstefnu 2015-2026 á opnum fundi í Eyvindarstofu á Blönduósi þann 22. janúar næstkomandi, klukkan 13-15. Á fundinum verður tillagan kynnt auk þess sem að fjallað verður sérstaklega um framfylgd landsskipulagsstefnu í skipulagsgerð sveitarfélaga svo sem við endurskoðun aðalskipulags. Jafnframt verður bein útsending frá kynningu í Reykjavík þann 29. janúar kl. 15-17 og má sjá hana á vef Skipulagsstofnunar. Á fundinum verður tillagan kynnt auk þess sem að fjallað verður sérstaklega um framfylgd landsskipulagsstefnu í skipulagsgerð sveitarfélaga svo sem við endurskoðun aðalskipulags. Tillöguna, ásamt umhverfismati og fylgiskjali, Skipulagsmál á Íslandi 2014 – lykilmælikvarðar og fyrirliggjandi áætlanir, má nálgast á www.landsskipulag.is og www.skipulagsstofnun.is, en frestur til að skila athugasemdum er til 13. febrúar 2015. Með bestu kveðju, Sólveig Olga Sigurðardóttir Atvinnuráðgjafi Sími 455 6119 / 857 0251

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar miðvikudaginn 14. janúar 2014 kl 0800 á skrifstofu sveitarfélagsins. Dagskrá: Gjaldskrár sveitarfélagsins Sæborg Bjarmanes Almannavarnir Húnavatnssýslna Samkomulag um skipan almannavarnanefndar Fundargerð almannavarnanefndar, 22.05.2014 Snjómokstur á Skagaströnd Bréf: Evu Dísar og Tönju Ránar, dags. 2. janúar 2015 Consello ehf, dags. 2. janúar 2015 Umhverfisstofnunar, dags. 30. desember 2014 Ungmennafélags Íslands, dags. 12. desember 2014 Ungmennafélags Íslands, dags. 10. desember 2014 Fundargerðir: Atvinnu- og ferðamálanefndar, 18.12.2014 Stjórnar Róta bs. 26.11.2014 Stjórnar SSNV, 4.11.2014 Stjórnar SSNV, 4.12.2014 Stjórnar Sambands ísl. sveitarf. 12.12.2014 Önnur mál Sveitarstjóri

Mynd vikunnar

Starfsfólk Höfðaskóla veturinn 1961 - 1962. Aftari röð frá vinstri: Páll Jóhannesson (d. 29.1.1989) hús- og gangavörður, Gestheiður Jónsdóttir (d. 6.11.2010) ræstitæknir, María Magnúsdóttir kennari, Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari og Eiríkur Kristinsson (d. 4.10.1994) kennari. Fremri röð frá vinstri: Jón Pálsson kennari, séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) prófdómari og kennari, Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri og Sveinn Ingólfsson kennari.

Gleðilegt ár Skagstrendingar!

Bæjarmálafélagið boðar til fundar í Fellsborg, miðvikudaginn 7. Janúar kl. 17.00. Fundarefnið er auðvitað málefni samfélagsins okkar og við byrjum á að glugga aðeins í fjárhagsáætlun ársins 2015. Vanti einhver svör við spurningum sem upp kunna að koma í sambandi við áætlunina, mun sveitarstjórinn mæta og útskýra frekar ef þarf. Gaman væri að sjá ykkur sem flest sem áhuga hafið. Bæjarmálafélagið

Mynd vikunnar. Gleðilegt nýtt ár !

Gleðilegt nýtt ár 2015 Ljósmyndasafn Skagastrandar óskar öllum gleðilegs og farsæls nýs árs. Við þökkum öllu því góða fólki sem hefur aðstoðað okkur á árinu með innsendum athugasemdum og leiðréttingum og öllum þeim sem sýnt hafa safninu áhuga og velvilja á annan hátt. Myndina tók Ásdís Birta Árnadóttir og sendi inn í ljósmyndakeppni Skagastrandar árið 2010. Ljósmyndasafn Skagastrandar

Jólatónleika í Blönduóskirkju 4. janúar

Jólatónleikar Kirkjukór Hólaneskirkju heldur jólatónleika í Blönduóskirkju sunnudaginn 4. janúar kl 20:00. Komið og eigið með okkur hugljúfa og notalega kvöldstund og öðlist hinn sanna jólaanda. Aðgangseyrir 1000 kr. sem rennur í ferðasjóð kórsins. Ekki posi á staðnum Tónlistarstjóri: Hugrún Sif Hallgrímsdóttir Hljómsveit: Guðbjartur Vilhjálmsson Guðmundur Egill Erlendsson Jón Ólafur Sigurjónsson Laufey Lind Ingibergsdóttir Skarphéðinn Einarsson Valgerður Guðný Ingvarsdóttir Einsöngvarar: Hugrún Sif Hallgrímsdóttir Hafþór Gylfason Halldór Gunnar Ólafsson Helga Dögg Jónsdóttir Helga Gunnarsdóttir Herdís Þórunn Jakobsdóttir Jenný Lind Sigurjónsdóttir Jón Ólafur Sigurjónsson María Ösp Ómarsdóttir Sigríður Stefánsdóttir Sigrún Rakel Tryggvadóttir Hljóðblöndun: Ævar Baldvinsson Styrktaraðilar: Minningarsjóðurinn um hjónin frá Garði og Vindhæli Sorphreinsun Vilhelms Harðarsonar