Fréttir

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar fimmtudaginn 25. ágúst 2011 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 800. Dagskrá: 1. Framkvæmdir ársins 2. Staðgreiðsla janúar – júlí 2011 3. Grunnskólinn a) Starfsmannahald /skóladagatal b) Samningur um skólamáltíðir 4. Lokun urðunarstaðar við Neðri Harrastaði 5. Bréf a) Ungmennafélags Íslands, dags. 27. júní 2011. b) Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands, dags. 4. júlí 2011. c) Húnaþings vestra, dags. 30. júní 2011. d) Umhverfisráðuneytis, dags. 30. júní 2011. e) Umhverfisstofnunar, dags. 19. maí 2011. f) Heilbrigðiseftirlits Nl.vestra, dags. 7. júní 2011. g) Orkusölunnar, dags. 1. júní 2011. h) SSNV, dags. 14. júní 2011. 6. Fundargerðir a) Fræðslunefndar, 27.06.2011. b) Fræðslunefndar, 18.08.2011. c) Skipulags- og byggingarnefndar, 25.07.2011 d) Tómstunda- og menningarmálanefndar, 15.06.2011 e) Tómstunda- og menningarmálanefndar, 28.06.2011 f) Tómstunda- og menningarmálanefndar, 06.07.2011 g) Tómstunda- og menningarmálanefndar, 14.07.2011 h) Tómstunda- og menningarmálanefndar, 20.07.2011 i) Tómstunda- og menningarmálanefndar, 27.07.2011 j) Stjórnar Félags- og skólaþjónustu A-Hún, 27.05.2011 k) Stjórnar Byggðasamlags um menningu og atvinnumál í A-Hún, 27.06.2011 l) Stjórnar SSNV, 08.06.2011 m) Stjórnar SSNV, 07.07.2011 n) Stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga, 27.05.2011 o) Stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga, 24.06.2011 p) Heilbrigðisnefndar Nl. vestra, 06.06.2011 7. Önnur mál. Sveitarstjóri

Djásn og dúllerí fer í frí

Djásn & dúllerí…er að fara í frí…. Sunnudagurinn 28. ágúst er síðasti opnunardagur fyrir vetrarfrí hjá handverks og hönnunargalleríinu á Skagaströnd sem staðsett er í kjallaranum á gamla kaupfélagshúsinu við höfnina. Opið er frá kl.14 -18 eins og alltaf. Bæjarbúar og nærsveitamenn eru hvattir til að koma og gera góð kaup á íslensku handverki og hönnun úr heimabyggð,…. eða bara kíkja í kaffi. J Djásn & dúllerí

Gangnaseðill í Spákonufellsborg.

Fyrri haustgöngur fara fram sunnudaginn 11. september 2011. Seinni haustgöngur fara fram sunnudaginn 18.september 2011. Eftirleitir verða 24.september 2011. Gangnaforingi er Rögnvaldur Ottóson Réttarstjóri í fjárrétt Sigrún Guðmundsdóttir Réttarstjóri í hrossarétt er Rögnvaldur Ottósson Farið fram Hrafndal og fram í Ármót, vestur Brandaskarð með hreppagirðingu að norðan. Spákonufellsborg að sunnanverðu að Hrafná að Fellsrétt. Undanskilin er skógræktargirðing. Í borgina leggi eftirtaldir til menn: Fyrri göngur Seinni göngur Rögnvaldur Ottósson 1 1 Hallgrímur Hjaltason 3 3 Magnús Guðmannsson 1 1 Guðjón Ingimarsson 2 2 Rúnar Jósefsson 1 1 Vignir Sveinsson 1 1 Sævar Hjaltason 1 Í eftirleit fara fjórir menn. Þær annast Rögnvaldur Ottósson. Með vísan til 20. greinar fjallskilareglugerðar „Hafi búfjáreigandi engan hæfan mann til fjallskila og getur eigi útvegað hann, skal hann tilkynna hreppsnefnd eða fjallskilastjóra það skriflega fjórum dögum áður en fjallskilin eiga að vinnast, en þessir aðilar útvega mann eða annað sem vantar, svo sem hesta eða fæði, og borgar þá búfjáreigandi allan kostnað, sem af fjallskilum leiðir, án tillits til mats á þeim“ Að öðru leyti en hér greinir fer um skyldur og réttindi manna eftir fjallskilasamþykkt fyrir Austur-Húnavatnss Fjallskilanefnd Skagabyggðar, Skagabúð 21.ágúst 2011

Vatnslaust í Mýrinni og á Hólanesinu

Lokað verður fyrir vatnið í Mýrinni og á Hólanesinu fimmtudaginn 25. ágúst 2011 frá kl. 8:00 og fram eftir degi. Sveitarstjóri.

„Heilsueflandi skóli/Sjálfbærni-menntun“

Mjög áhugaverð námskeið í upphafi skólastarfs fyrir alla starfsmenn skóla Húnavatnssýslna og grunnskóla Borðeyrar. Námskeiðið var tvískipt. Fyrir hádegi kynnti Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir, ráðgjafi, hvað vinnst við að gerast þátttakandi í verkefninu:“ Heilsueflandi skóli. „ Heilsueflandi skóli : · Stuðlar að góðri heilsu og líðan nemenda og starfsfólks skólans. · Bætir námsárangur · Heldur á lofti félagslegu réttlæti og jafnréttissjónarmiðum · Stuðlar að öruggu skólaumhverfi · Tengir saman heilsu- og menntamál · Tekur á heilsu og vellíðan alls starfsfólks skólans · Fléttar heilsumálin saman við daglegt skólalíf, námskrá og árangursmat · Setur sér raunhæf markmið sem byggja á nákvæmum upplýsingum og traustum vísindalegum gögnum Eftir hádegi fræddi Auður Pálsdóttir, Menntavísindasviði Háskóla Íslands okkur um sjálfbærni og menntum · Kynnt voru hugtökin sjálfbær þróun og sjálfbærnimenntun · Sagt var frá hvaðan þau koma inn í íslenska aðalnámskrá · Fjallað um hvaða áhrif þau hafa á skipulag skólastarfsins, bæði inntak og aðferðir. · Í hópvinnu var rætt og gerðar tillögur um hvernig megi vinna að sjálfbærnimenntun Námskeiðið var skipulagt af skólastjórum grunnskólanna og Fræðsluskrifstofu A-Hún. og haldið í félagsheimilinu á Blönduósi. Þátttakendur voru 100 og lýstu þeir mikilli ánægju með daginn. Mynd: Þátttakendur og leiðbeinendur.

Breyttur opnunartími sundlaugar á Skagaströnd

Frá og með mánudeginum 15. ágúst er sundlaugin á Skagaströnd opin kl 9 - 12 og 13 – 18 mánudaga til föstudaga og kl 13 – 17 laugardaga og sunnudaga. Miðvikudaginn 24. ágúst nk. hefst skólasund og þá verður lokað fyrir almenna notkun sundlaugar. Sveitarstjóri

Djásn og dúlleri opið um Kántrýdaga

Um 1600 manns hafa komið í Djásn og dúllerí það sem af er sumri og vænta má þess að talan eigi eftir að hækka nokkuð um kántýdagana.  Í galleríinu er gott og vandað vöruúrval handverks, hönnunar og myndlistar eftir fólk af væðinu og það er alltaf heitt á könnunni.  Á kántrýdögum verður opnunartíminn legndur aðeins, það verður opið frá 11-18. 

Skagaströnd skreyttur fyrir Kántrýdaga

Þetta er dagurinn. Já, dagurinn sem þetta allt byrjar á. Á Skagagströnd er sól og rjómalogn og sextán stiga hiti og undirbúningur fyrir Kántrýdaga sem hefjast á morgun er á fullu. Út um allan bæ er fólk að störfum. Við liggur stríði á milli gatna. Allir vilja skreyta sína götu sem best og helst miklu meir og betur en nágrannarnir. Og í gærkvöldi var línan lögð. Íbúar á Suðurvegi byrjuðu að skreyta. Sunnuvegurinn vildi ekki láta sitt eftir liggja og marglitar veifur skreyta Fellsbrautina. Í miðbænum er verið að reisa hátíðartjaldið. Þar ganga vörpulegir kallar um völl, betir að ofan og hnykla vöðvana. Fjöldi kvenna hefur lagt leið sína um svæðið og segist vera að fylgjast með framkvæmdum. En framkvæmdirnar þurfa ekki alltaf að vera stórkostlegar þó árangurinn af hinu smáa sé frábær. Borðar prýða allar hurðir á Suðurveginu, á Hólabrautinni er stór borði og þangað eru allir boðnir velkomnir.  Og mannlífið hefur tekið breytingum. Spenna er í loftinu og hamarhögg og hlátrasköll bergmála um bæinn. Börnin hlaupa til og frá og segjast vera að aðstoða, gægjast yfir í næstu götur og njósna um það sem þar er að gerast. Hallbjörn kúreki Hjartarson gengur heimspekilegur um götur og spáir í Kántrýdaga og honum hugast áreiðanlega vel það sem hann sér.

Margrét Eir í Bjarmanesi á föstudagskvöldið

Söngkonan Margrét Eir syngur lög úr söngleikjum á Kaffi Bjarmanes. Hún kemur víða við og syngur meðal annars lög úr söngleikjunum Cabaret, Les Misarable og Hárinu.   Margrét hefur tekið þátt í mörgum uppfærslum á söngleikum á Íslandi þar á meðal var hún í Hárinu 1994, Rent íÞjóðleikhúsinu, Óliver í uppfærslu Leikfélags Akureyrar og í janúar 2012 hefjast hjá Margréti æfingar á Vesalingunum hjá Þjóðleikhúsinu.  Með Margéti á píanó er Vignir Þór Stefánsson en hann hefur líkað starfað mikið í leikhúsunum hér á landi og erlendis. Vignir kennir við Tónlistarskóla FÍH.

Veðrið í júlí á Skagaströnd

Veður var almennt gott í júlí á Skagaströnd rétt eins og hina ellefu mánuði ársins. Meðalhitinn var 10,5 gráður, vindgangur var einungis 4 metrar á sekúndu (m/s) og af uppruna vindsins má það segja að hann var frekar vestlægur en annars sitt lítið af hverju. Þeir sem flust hafa á Skagaströnd frá höfuðborgarsvæðinu finna mikinn mun á veðurfari á þessum tveimur stöðum. Á þeim síðarnefnda rignir talsvert, stundum mikið, og fylgir úrkomunni iðulega talsverður vindgangur. Slík slagveðursrigning er afar sjaldgæf á Skagaströnd. Gera því heimamenn minna af því að svekkja sig út af veðrinu en ræða þess í stað þjóðþrifamál. Á móti kemur sú staðreynd að norðaustanáttin er leiðinleg á Skagaströnd. Hún er iðulega köld sérstaklega ef hreyfiþörf vindsins er mikil. Fer þá oftast allt fjör úr heimamönnum og þeir loka sig inni og spjalla lítt. Hitatölurnar Fyrstu tíu daga júlímánaðar voru lítið eitt svalari en seinni hlutinn. Raunar byrjaði mánuðurinn svo vel að þann 1. júlí var meðalhiti dagsins 10,5 gráður og þar með var línan gefin, meðalhiti hans var nebbnilega 10,5 gráður eins og áður sagði. Lægst fór meðalhitinn þann miðvikudaginn 6. júlí í 7,1 gráðu, en hæst fór hann í 13,9 gráður miðvikudaginn 27. júlí. Meðalhitinn segir nú aðeins einfalda sögu. Sú flóknari fjallar um hitann án meðaltalsins. Það er hins vegar löng saga en hér verður aðeins tíundaður lægsti og hæsti hiti.  Þó furðulegt megi teljast fór hitinn lægst í 3,5 gráðu sunnudaginn 10. júlí kl. 05:10. Ansi kalt var alla þessa nótt og hjakkaði hitinn þarna í kringum fjórar gráðurnar. Merkilegt er þó að þetta er sú dagsetning sem áður var nefnd og upp frá því tók að hlýna á Skagaströnd. Að vísu féll hitinn allhressilega viku síðar, þann 17. júli, og mældist þá 3,6 gráður um 01:40 en tók þó umsvifalaust að stíga á ný. Sannarlega var oft napurt fyrstu tíu daga mánaðarins eins og áður sagði, en hins vegar voru þar margir fínir dagar í júlí. Hæst fór meðalhitinn í 18,2 gráður laugardaginn 23. júlí kl. 17:50. Sá dagur var ansans ári hlýr og sérstaklega var kvöldið gott, var lengi í 16 gráðum og þar fyrir ofan. Vindgangurinn Fátt er að segja um vindinn á Skagaströnd. Meðalvindhraðinn var 4,0 m/s og það þýðir næstum því logn. Best náði hann sér upp fimmtudaginn 28. júlí, 7,8 m/s. Ótal sinnum mældist engin hreyfing á vindi og oft aðeins einn m/s. Hvassast mældist síðla dags föstudaginn 15. og sunnudaginn 31, 14 m/s. Þetta var nú bara smávægilegur viðrekstur því hann lægði aftur. Vindátt Upprunin vindisins í júlí er fjölbreyttari en fyrri mánuði. Hin ömurlega norðaustanátt lét lítt á sér kræla, mældist aðeins í 5,5% tilvika. Ráðandi áttir voru norðlægar og suðlægar. Skagstrendingar hefðu getað þegið meira af austanátt eða suðaustan. Þær eru ansi auðugar og vítamínríkar af sól og hita. Vænta má þess að veður verði áfram á Skagaströnd um ókomin ár þó hér verði ekki frekar um það fjallað.