27.06.2011
Aðalfundur
Skógræktarfélags Skagastrandar
verður haldinn miðvikudaginn 29.06.2011, kl.20:00 í Skíðaskálanum
Jón Ásgeir skógræktarfræðingur mætir á fundinn
Venjuleg aðalfundarstörf
nýir félagar velkomnir,
Stjórnin.
24.06.2011
Breski sendiherrann á Íslandi Ian Witting kom í heimsókn til Skagastrandar fimmtudaginn 23. júní sl. í boði sveitarstjórnar.
Í heimsókninni fór sendiherrann á nokkra staði og skoðaði atvinnulíf og menningu á Skagaströnd. Eftir ágætan morgunverð með fulltrúum sveitarstjórnar í Kaffi Bjarmanes var litið inn í þekkingarsetrið þar sem starfsemi BioPol var kynnt, heilsað upp á menningarfulltrúann og skoðað tilvonandi fræðibókasafn undir leiðsögn forstöðumanns Fræðaseturs Háskóla Íslands.
Sendiherrann leit einnig við á höfninni og fékk útlistun á starfsemi Fiskmarkaðar Íslands.
Í Spákonuhofi tóku á móti honum hinar forvitru spákonur og sýndu honum hvernig hof Þórdísar spákonu mun taka á móti gestum.
Í Árnesi fékk hann svo örlitla innsýn í húsakynni og búshöld liðinna kynslóða. Hádegisverður í Kántrýbæ var einstakur og setti nýtt viðmið um gæði íslensks lambakjöts. Ekki spillti að skoða uppstillingu á sýningu um æfi og starf kántrýkóngsins sjálfs á eftir.
Í Nes listamiðstöð sýndu 11 listamenn verk sín þar sem sköpunarkrafturinn hefur greinilega verið góður í kulda júnímánaðar því sýning þeirra á opnu húsi er með þeim betri sem boðið hefur verið upp á.
Sendiherrann heimsótti svo kirkjuna þar sem hann fékk að njóta tónlistar fram borinni af Hugrúnu Sif og Jóni Ólafi sem fluttu íslensk vöggulög.
Þrátt fyrir mikið annríki á greiðslustofu Vinnumálastofnunar, svona rétt fyrir mánaðarmót, voru viðtökur þar góðar og vakti sendiherranum nokkra undrun hve öflugur hópur þar var greinilega að störfum.
Í lok dags var sest yfir kaffihlaðborð í Kaffi Bjarmanes þar sem þeir komu saman sem áttu mestan þátt í dagskránni og fóru yfir stöðuna á Skagaströnd jafnt og heimsmálin yfirleitt.
Sendiherrann sem hafði verið hrókur alls fagnaðar allan daginn var síðan kvaddur með dúndrandi fallbyssuskoti.
21.06.2011
Búast má við straumleysi aðfaranótt fimmtudagsins 23.júní n.k. frá miðnætti og fram eftir nóttu vegna vinnu í aðveitustöð.
RARIK Norðurlandi.
21.06.2011
Lokað verður fyrir vatnið á Hólabraut, Bogabraut og á Hólanesinu miðvikudaginn
22. júní 2011 frá hádegi og fram eftir degi.
Sveitarstjóri.
20.06.2011
Opna Fiskmarkaðsmótið í golfi var haldið á Háagerðisvelli, Skagaströnd, föstudaginn 17. júní sl. Mótið er fyrsti hluti svokallaðar Norðvesturþrennu golfklúbbanna á Skagaströnd, Blönduósi og Sauðárkróki.
Alls tóku 36 keppendur þátt í mótinu. Sterkur austlægur vindur var meðan á keppninni stóð og setti hann sitt mark á árangur keppenda. Úrslit urðu sem hér segir:
Kvennaflokkur án forgjafar
1. Árný Árnadóttir GSS 93 högg
2. Sigríður Elín Þórðardóttir GSS 93 högg
3. Guðrún Ásgerður Jónsdóttir GÓS 95 högg
Karlaflokkur án forgjafar
1. Brynjar Bjarkason GÓS 83 högg
2. Einar Einarsson GSS 85 högg
3. Jón Jóhannsson GÓS 87 högg
Punktakeppni með forgjöf
1. Kristján Blöndal Jónsson GÓS 33 punktar
2. Einar Einarsson GSS 32 punktar
3. Sigríður Elín Þórðardóttir GSS 30 punktar
16.06.2011
Fimmtudaginn 16. júní voru opnuð tilboð í verkið "Útgarður, endurbygging grjótvarnar".
Eftirfarandi tilboð bárust:
Tilboðsgjafi: Upphæð:
1.Norðurtak ehf Kr. 4.626.500
2.Víðimelsbræður Kr. 9.155.000
3.Tígur ehf. Kr. 7.512.975
Kostnaðaráætlun verkkaupa: Kr. 11.434.000
Spurt var um athugasemdir fyrir og eftir opnun, en engar gerðar.
Upplýsingar af: www.sigling.is
15.06.2011
Vegna tenginga í vatnsveitu má gera ráð fyrir að vatnslaust verði í Bogabraut eftir hádegi fimmtudaginn 16. júní, í skamman tíma.
Sveitarstjóri
15.06.2011
Fjölmenni var við opnun Kántrýseturs í Kántrýbæ síðasta laugardag og mikið um dýrðir. Á Kántrýsetrinu er sýning þar sem hægt er að finna mikinn fróðleik um lífshlaup og feril Hallbjörns Hjartarsonar og kántrýtónlist á Íslandi.
Leikmynda- og sýningahönnuðurinn Björn Björnsson setti upp sýninguna í samstarfi við rekstraraðila Kántrýbæjar, þau Svenný Hallbjörnsdóttur og Gunnar Halldórsson.
Björn sagði að söfnun efnis, hönnun og uppsetning sýningarinnar hefði tekið um eitt ár og er hann ánægður með útkomuna.
Framkvæmdastýra verksins var útvarpskonan Margrét Blöndal og sá hún um að safna saman efni og upplýsingum og koma á sýningarhæft form í samvinnu við Björn.
Á opnunarhátíðinni, þar sem fram komu landsþekktir listamenn eins og Magnús Kjartansson og Björgvin Halldórsson ásamt fleirum, voru setrinu færðar gjafir og styrkir.
Í þakkarávarpi sínu sagði Hallbjörn, sem nýlega átti 76 ára afmæli, að sig hefði ekki órað fyrir að hann ætti eftir að upplifa þann draum sinn að sjá safn eða sýningu sem þessa verða að veruleika. Hann sagðist vera snortinn og hræður yfir þeim heiðri sem sem sér væri sýndur með sýningunni og þakkaði öllu því góða fólki sem gert hefði þetta mögulegt. Jafnframt sagðist hann vona að sýningin á setrinu yrði fólki til ánægju og gleði og ungum sem öldnum hvatning til átaka á listasviðinu – ekki síst í kántrýtónlistinni.
Að loknum ávörpum og stuttum tónleikum, þar sem þau Björgvin Halldórsson, Selma Björnsdóttir og Heiða Ólafsdóttir fluttu uppáhaldslögin sín eftir Hallbjörn við undirleik hljómsveitar undir stjórn Magnúsar Kjartanssonar, klippti síðan Hallbjörn á borða og opnaði þar með Kántrýsetrið formlega.
Um kvöldið þegar gestir höfðu haft tækifæri til að skoða sýninguna, sem er mjög umfangsmikil og er á öllum veggjum Kántrýbæjar á báðum hæðum, voru síðan tónleikar með fyrrgreindum listmönnum.
Dagurinn endaði síðan með dúndrandi kántrýballi í boði Kántrýbæjar eins og aðrir viðburðir dagsins.
Ólafur Bernódusson, frétt úr Morgunblaðinu 15. júní 2011.
10.06.2011
Sundlauginn verður opin alla hvítasunnuhelgina milli 13:00 og 17:00.
Við minnum á að frítt er í laugina fyrir íbúa á Skagaströnd. Börn yngri en 10 ára verða að vera í fylgd með fullorðnum.
Lokað verður þriðjudaginn 14. júní vegna hæfnisnámskeiðs starfsfólks.
Sundlaugarverðir.
09.06.2011
Á laugardaginn verður opnað Kántrýsetur í Kántrýbæ. Mikið verður um að vera í bænum af því tilefni. Kastljós fjölmiðla beinist að Skagaströnd. Rás 2 verður með beinar útsendingar úr bænum á föstudag og laugardag.
Í Kántrýsetrinu verður ævintýraleg og óvenjuleg saga Hallbjörns Hjartarsonar til sýnis, allt frá fæðingu fram á þennan dag. Saga sem hófst í líkhúsinu á Blönduósi því Hallbjörn var talinn andvana við fæðingu. Hann hafði hins vegar einsett sér að lifa og eins og þeir vita sem þekkja hann heldur hann alltaf sínu striki, hvað sem hver segir. Ótal margir hafa hrist höfuðið yfir uppátækjum hans, allt frá því hann var barn. Sjálfur segist hann alltaf hafa haft sína vitleysu á þurru, ólíkt mörgum og draumur hans um að gera Skagaströnd að eftirsóknarverðum ferðamannastað hefur sannarlega ræst.
Formleg opnun setursins verður laugardaginn 11. júní og af því tilefni hefur Magnús Kjartansson búið til heiðurshljómsveit Hallbjörns Hjartarssonar með söngvarana Björgvin Halldórsson, Selmu Björnsdóttur og Heiðu Ólafsdóttur í fararbroddi. Hljómsveitin mun halda tónleika í Kántrýbæ og slá svo upp sannkölluðu kántrýballi að hætti kúreka norðursins.
Hugmyndin um Kántrýsetur er ekki ný af nálinni en er nú loks að verða að veruleika. Það eru núverandi rekstraraðilar Kántrýbæjar, þau Gunnar Sveinn Halldórsson og Svenny H. Hallbjörnsdóttir (Hjartarsonar) sem standa að setrinu með stuðningi Menningarráðs Norðurlands vestra, Minningarsjóðsins um hjónin frá Garði og Vindhæli, Sveitarfélagsins Skagastrandar og Iðnaðarráðneytis.
Umsjón með verkefninu hafði Margrét Blöndal, útvarpskona með meiru og um hönnun og uppsetningu sá Björn G. Björnsson, leikmyndahönnuður.
Kántrýsetrið verður opnað með viðhöfn kl. 15.00 Þá býður
Margrét Blöndal, útvarpskona gesti velkomna. Dagskráin er eftirfarandi:
Ávörp
Heiðurshljómsveit Hallbjörns Hjartarssonar spilar en hana skipa Magnús Kjartansson og félagar
Björgvin, Selma og Heiða flytja þrjú lög eftir kántrýkónginn
Kántrýsetrið opnað, klippt á borðann
Tónleikar í Kántrýbæ kl. 20.00 – 21.30
til heiðurs Hallbirni Hjartarsyni, Björgvin, Selma og Heiða.
Kántrýball verður frá kl. 23:00, heiðurshljómsveitin leikur fyrir dansi
Að sjálfsögðu eru allir velkomnir. Dagskráin er frábær … gleði, fjör og mikil skemmtun fyrir fólk á öllum aldri. Og ekki má gleyma sjálfu Kántrýsetrinu. Það er er fróðleg sýning um kántrýkónginn Hallbjörn og kántrýtónlistina á Íslandi.
Á föstudaginn verður síðdegisútvarp Rásar 2 á Skagaströnd og sendir út beint frá kl. 16-18.
Á laugardagsmorguninn verður þátturinn Bergson & Blöndal verður sendur úr frá Skagaströnd.