Fréttir

Lucas sendir kveðjur frá Brasilíu

Lucas Gervilla heitir brasilískur vinur Skagastrandar. Hann var hérna í vetur hjá Nes listamiðstöðinni og kunni afar vel við sig. Hann er hefur sett lítið myndband á Youtube um Skagaströnd og er slóðin þessi: http://www.youtube.com/watch?v=Wcu5Pww6VNE. Lucas er nú að vinna að uppsetningu á sýningu á verkum sínum frá Íslandi og vonandi lætur hann okkur vita nánar um hana síðar.

Lokatónleikar Tónlistarskólans

Vortónleikar Tónlistarskólans á Skagaströnd voru 28. apríl í Hólaneskirkju. Gestir fylltu kirkjuna og skemmtu sér afar vel enda allir nemendurnir að sjálfsögðu hæfileikamiklir og áhugasamir um tónlist. Meðfylgjandi myndir tók Ingibergur Guðmundsson.

María Magnúsdóttir níræð

María Magnúsdóttir Bogabraut 24 á Skagaströnd  verður 90 ára föstudaginn 1. maí Af því tilefni mun hún taka á móti gestum í félagsheimilinu Fellsborg á Skagaströnd á afmælisdaginn kl 15.00-19.00 Afmælisbarnið hefur ekki áhuga á öðrum gjöfum í tilefni dagsins en glaðlegum brosum og hlýjum handtökum.

Fatamarkaður Rauða krossins

Rauða krossdeild Skagastrandar verður með fatamarkað í húsi deildarinnar að Vallarbraut 4, föstudaginn 1. maí frá kl. 13:00 til 17:00.  Seld verða föt á vægu verði. Á staðnum verður líka vöfflusala og eru allir velkomnir. 

Listamaðurinn Kate Dambach spyrill

Myndlistarkonan Kate Dambach verður spyrill í spurningakeppninni DREKKTU BETUR á föstudagskvöldið þann 17. apríl..  Hún kemur frá Bandaríkjunum en er hér á vegum Nes listamiðstöðvar og kann bara ágætlega við sig á Skagaströnd. Kata lofar að vera með skemmtilegar og fræðandi spurningar. Hún spyr á ensku en Ólafía Lárusdóttir þýðir spurningarnar jafnóðum. Allir sem vettlingi geta valdið eru hvattir til að fjölmenna og njóta flottrar skemmtunar.

Sparnaður í kvöld í Fellsborg

Í kvöld verður kynningarfundur í kvöld kl.20 í Félagsheimilinu Fellsborgá vegum Sparnaðar ehf.  Fyrirtækið er ráðgjafafyrirtæki sem hefur sett sér það markmið að auka samkeppni á fjármálamarkaði  með nýjungum í ráðgjöf, vörum og hugsun.  Hagkerfi Sparnaðar vinnur út frá hugmyndafræðum Ingólfs H. Ingólfssonar sem snýst m.a. um að greiða hratt niður skuldir, hafa gaman af því að nota peningana, spara og byggja upp eignir.  Með Hagkerfi Sparnaðar fá viðskiptavinir aðgang að hugbúnaði til þess að ná stjórn á fjárstreymi heimilisins. Öllum eru velkomnir.

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar miðvikudaginn 15. apríl 2009 í Bjarmanesi kl 800. Dagskrá: 1. Kjörskrá vegna Alþingiskosninga 25. apríl 2009. 2. Verkefni og framkvæmdir 2009. 3. Umsókn til Menningarráðs Nl. vestra. 4. Skýrsla atvinnuráðgjafa um hótel. 5. Bréf: a) Björgunarsveitarinnar Strandar, dags. 26. apríl 2009. b) Þórs Magnússonar, fyrrv. þjóðminjavarðar, dags. 24. mars 2009. 6. Fundargerðir: a) Færðslunefndar, 5.03.2009. b) Stjórnar Félags- og skólaþjónustu A-Hún. 24.03.2009. c) Heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra, 6.03.2009. d) Stjórnar SSNV, 17.03.2009. e) Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 27.02.2009 f) Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 26.03.2009 7. Önnur mál Sveitarstjóri

Tónleika Guðrúnar í Hólaneskirkju

Á skírdagskvöld býður Hólaneskirkja til tónleika með hinni frábæru söngkonu Guðrúnu Gunnarsdóttur. Hún mun syngja sín ljúfu lög við undirleik Valgeirs Skagfjörð.  Enginn aðgangseyrir. Fjölmennum í kirkjuna og eigum saman notalega stund. 

Ívan Árni sigraði í framsagnakeppni grunnskóla í Húnavatnsþingi

Framsagnarkeppni grunnskólanna í Húnavatnsþingi var haldin á Laugabakka 26. mars.  Þau Heba Líf Jónsdóttir, Sigurlaug Máney Hafliðadóttir og Ívan Árni Róbertsson kepptu fyrir hönd Höfðaskóla og stóðu sig öll glæsilega.  Keppendur auk þeirra voru frá grunnskólunum á Blönduósi, Húnavöllum og Laugabakka/Hvammstanga.  Ívan Árni sigraði í keppninni. Í 2. sæti varð Rakel Ósk Ólafsdóttir frá Grunnskóla Húnaþings vestra og í 3. sæti varð Atli Einarsson frá Grunnskólanum Blönduósi.

Draumaröddum norðursins vel tekið

Stúlknakór Norðurlands vestra syngur í dag í Hólaneskirkju og hefjast tónleikarnir klukkan 17. Kórinn hefur þegar komið tvisvar fram , á blönduósi og Hvammstanga, og hefur honum verið ákaflega vel tekið. Aðgangurinn kostar 1.500 krónur og 800 fyrir grunnskólanemendur. Selt er við innganginn. Ástæða er til að hvetja Skagstrendinga til að fjölmenna á tónleikanna. Myndir: Alexandra Chernyshova, listrænn stjórnandi Elínborg Sigurgeirsdóttir, undirleikari Margrét Petra Ragnarsdóttir, einsöngur í Katjusha Sara Rut Fannarsdóttir, Ástrós Kristjánsdóttir og Margrét Petra Ragnarsdóttir, einsöngur í Dont cry for me Argentina Stúlknakórinn á tónleikum í Blönduóskirkju