24.06.2009
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar
fimmtudaginn 25. júní 2009 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 800.
Dagskrá:
1. Framkvæmdir
a) Tilboð í vatnsveitu
b) Túnbraut 9 - endurbætur
2. Erindi Norðurár bs.
3. Samningur um sorphirðu og rekstur gámastæðis
4. Bréf:
a) Spákonuarfs v/ Árness, dags. 28. maí 2009
b) Menntamálaráðuneytis, dags. 15. júní 2009
c) Sambands ísl. sveitarfélaga, dags. 11. júní 2009
d) Sambands ísl. sveitarfélaga, dags. 27. maí 2009
e) Samgönguráðuneytis, dags. 28. maí 2009
f)Styrktarsjóðs EBÍ, dags. 28. maí 2009
5. Fundargerðir:
a) Fræðslunefndar 22.06.09
b) Tómstunda- og menningarmálanefndar, 9.06.09
c) Tómstunda- og menningarmálanefndar, 11.06.09
d) Samvinnunefndar um svæðisskipulag, 3.06.09
e) Stjórnar Norðurár bs. 4.06.09.
f) Skipulags og byggingarnefndar (7. dagskrárliður, 13.05.09)
g) Stjórnar Tónlistarskóla A-Hún, 22.06.09
6. Önnur mál
Sveitarstjóri
24.06.2009
Laugardaginn 20. júní var Opna Fiskmarkaðsmótið haldið á golfvellinum á Skagaströnd en mótið var jafnframt minningarmót um Karl Berndsen.
Keppendur voru um 40 frá 9 golfklúbbum víðsvegar af landinu. Leiknar voru 18 holur í blíðskaparveðri.
Úrslit í kvennaflokki án forgjafar:
1. Árný Lilja Árnadóttir GSS 83 högg
2. Guðrún Ásgerður Jónsdóttir GÓS 91 högg
3. Sigríður Elín Þórðardóttir GSS 92 högg.
Úrslit í karlaflokki án forgjafar:
1. Brynjar Bjarkason GSS 78 högg
2. Pétur Már Pétursson GG 84 högg
3. Guðmundur Þór Árnason GSS 85 högg.
Úrslit í punktakeppni:
1. Steini Kristjánsson GA 40 punktar
2. Sigríður Elín Þórðardóttir GSS 36 punktar
3. Jóhanna Guðrún Jónasdóttir GÓS 35 punktar.
Aðalstyrktaraðili mótsins var Fiskmarkaður Íslands hf.
23.06.2009
„Tónleikar verða í Skagastrandarkirkju fimmtudaginn 25. júní, kl. 20:30
Úr vestursýslunni koma Mundi og Hrabbý með gítar og trillandi söngrödd að vopni. Þau ætla að flytja fáein fislétt lög, úr öllum áttum, flest í rólegri kantinum.
Notaleg kvöldstund (ekkert rafmagn), nálægð við tónleikagesti, gagnvirk skemmtun.
1500 kall inn, frítt fyrir 12 ára og yngri. Enginn posi.
Tónleikarnir eru styrktir af Menningarráði Norðurlands vestra.“
Tilkynning frá tónlistarmönnunum.
18.06.2009
Föstudaginn 19. júní verður vatn tekið af Skeifunni og efri hluta Bogabrautar í um það bil eina klukkustund, milli klukkan 10 og 12, vegna viðgerða.
16.06.2009
Hið árlega opna minningarmót um Karl Berndsen verður á Háagerðisvelli, Skagaströnd á laugardaginn.
Keppt verður í karla og kvennaflokki án forgjafar og í einum flokki með forgjöf-púnktakeppni.
Aðalstyrktaraðili mótsins í ár er Fiskmarkaður Íslands hf. Nánari upplýsingar og skráning er á golf.is.
Golfklúbbur Skagastrandar
16.06.2009
Opnun á nýjum sýningarsal með myndlistarsýningunni "Finding Waters" þriðjudag 16. júní kl. 17:00.
Nes listamiðstöð á Skagaströnd hefur nú tekið í notkun nýjan sýningarsal sem ber heitið Gamla Kaupfélagið, sem eins og nafnið bendir til er til húsa í nýuppgerðu húsi Kaupfélagsins á Skagaströnd. Efri hæð hússins hefur nú verið gerð að sýningarsal og fyrstir til að sýna þar er alþjóðlegi listamannahópurinn Distill sem stendur fyrir sýningunni „Finding Water."
Hópurinn sem hefur sýnt saman á alþjóðlegum vettvangi frá árinu 1999 og er því tíu ára um þessar mundir hefur áður sýnt hér á landi í Listasafni Hafnarfjarðar Hafnarborg árið 2002 og Listasafni Reykjanesbæjar 2006.
Meðlimir Distill hópsins eur s Ann Chuchvara, Julie Poitras Santos og Tsehai Johnson frá Bandaríkjunum, Jaeha Yoo frá Kóreu, Patricia Tinajero frá Ekvador og Hrafnhildi Sigurðardóttur.
Sýningin "Finding Water" verður opnuð eins og fyrr segir þriðjudaginn 16. júní kl. 17:00 til 19:00 með gjörningi á Höfðanum kl. 18:00 og eru allir velkomnir.
Sýningin stendur til sunnudagsins 5. júlí og er opin virka daga frá kl. 9:00 til 16:00 og eftir samkomulagi um helgar, sími 864 0053.
Sýning Distill hópsins er styrkt af Menningarráði Norðurlands vestra.
10.06.2009
Árið 2006 sameinuðust sex stofnanir á sviði íslenskra fræða: Íslensk málstöð, Orðabók Háskólans, Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, Stofnun Sigurðar Nordals og Örnefnastofnun í eina stofnun. Nýja stofnunin heitir Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
Heimasíða stofnunarinnar er: www.arnastofnun.is. Við hönnun síðunnar var lögð áhersla á að aðgengi að fjölmörgum gagnasöfnum stofnunarinnar yrði sem best. Allt þetta efni er í eigu þjóðarinnar og mikilvægt að það nýtist sem flestum. Hægra megin á forsíðu heimasíðunnar er listi yfir öll gagnasöfnin. Sérstaklega má benda á nokkur söfn sem ættu að nýtast mörgum:
Beyging orða - nærri því 300 þúsund íslensk orð beygð.
Málfarsbankinn - leiðbeiningar um málfar, rétta beygingu, orðnotkun, merkingu orða o.s.frv.
Orðabanki - upplýsingar um mörg þúsund íslensk íðorð úr tugum safna í ýmsum greinum, t.d. bílorð, raftækniorð, stærðfræði, náttúrufræði, viðskiptafræði o.s.frv.
Ritmálssafn Orðabókar Háskólans - safnið hefur að geyma dæmi um notkun orða í íslenskum ritheimildum á nærri fimm alda tímabili, frá miðri 16. öld til loka 20. aldar. Við efnissöfnunina hefur nær allt prentað mál frá upphafi fram á 19. öld verið lesið og orðtekið svo og mikið frá 20. öld.
Ýmiss konar fróðleikur er á heimasíðunni mönnum til gagns og gamans. Örfá dæmi:
Icelandic online
Ísland og Íslendingar
Orð
Stafsetning og ritreglur
Sögur úr Vesturheimi
Æviágrip; Árni Magnússon – Sigurður Nordal
Örnefni
Það er von þeirra sem að vefnum standa að gögnin á heimasíðunni nýtist sem flestum. Á síðunni má auðvitað einnig finna upplýsingar um stofnunina, rannsóknir, fræðslu og útgáfu sem og viðburði á vegum hennar.
09.06.2009
Út er komin bók um sögu sjómannadagsins á Skagaströnd í 70 ár eða allt frá því að hann var fyrst haldinn hátíðlegur um 1940.
Höfund bókarinnar og útgefandi er Lárus Ægir Guðmundsson. Bókin er 70 bls. að stærð og prýdd 180 gömlum og nýjum ljósmyndum frá margvíslegum atburðum sem tengjast þessum mikla hátíðisdegi Skagstrendinga og raunar Íslendinga allra.
Í bókinni er saga hátíðahaldanna rakin allt frá árinu 1939 og fram til dagsins í dag. Þar er að finna frásagnir af hinum ýmsu þáttum í sjómannadagshátíðahöldunum þennan tíma og deginum lýst í máli og myndum.
Í bókinni skrá með myndum yfir alla þá sem fengið hafa heiðurspening sjómannadagsins allt frá árinu 1965 þegar fyrstu sjómennirnir voru heiðraðir.
Í lok bókarinnar sem heitir Sjómannadagurinn á Skagaströnd í 70 ár eru minningar 3ja Skagstrendinga um það hvernig þeir muna þennan dag frá æsku sinni og uppvexti.
Útgáfa bókarinnar er styrkt af Menningarráði Norðurlands vestra.
Bókin er til sölu í versluninni Samkaup á Skagaströnd og í Reykjavík má nálgast hana hjá Soffíu í síma 660 0062 og Stefáni í síma 820 6888
05.06.2009
Sjómannadagurinn á Skagaströnd verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 6. júní. Margt verður í boði en dagskráin hefst kl. 10:30 með skrúðgöngu og endar með stórdansleik í Fellsborg um kvöldið.
Kl. 10:30 Skrúðganga frá höfninni til kirkju. Fjölmennum í skrúðgönguna til þess að halda þessari skemmtilegu hefð við, og gefa þessum degi hátíðlegan blæ.
Kl. 11:00 Sjómannamessa í Hólaneskirkju. Söngur í þessari athöfn er í höndum kórs sjómanna. Að messu lokinni verður lagður blómakrans við minnismerkidrukknaðra sjómanna til að heiðra minningu þeirra.
Kl. 13:15 Skemmtisigling. Foreldrar eru hvattir til að fjölmenna með börn sín.
Kl. 14:00 Skemmtun á Hafnarhússplani. Kappróður – leikir.
Kl. 15:30 Kaffisala Kaffisala í Fellsborg og Ásta Eggertsdóttir verður með sölusýningu á olíumálverkum frá kl. 15:30-18:30.
Kl. 23:00 Stórdansleikur í Fellsborg. Hljómsveitin Ingó og veðurguðirnir leika fyrir dansi.
05.06.2009
Sumarið er skollið á með öllum sínum fjölbreytileika og fjölgar nú nokkuð í Nes listamiðstöðinni. Átján manns eru nú við listsköpun á Skagaströnd og hafa þeir sjaldan verið fleiri.
Að þessu sinni eru ellefu manns frá Bandaríkjunum, tveir Þjóðverjar, einn frá Austurríki, einn Finni og einn Frakki og loks einn innlendur.
Particia Tinajero frá Bandaríkjunum, fæst meðal annars við myndlist.
Ann Chucvara frá Bandaríkjunum, fæst meðal annars við myndlist.
Julia Hectman frá Bandaríkjunum, fæst meðal annars við myndlist.
Matthew Rich frá Bandaríkjunum, fæst meðal annars við myndlist.
Nadege Druzkowski, hún er frönsk en býr í Englandi og er málari.
Bernadette Reiter, ljósmyndari frá Austuríki
Tsehai Johnson frá Bandaríkjunum fæst meðal annars við myndlist.
Julie Poitras Santos frá Bandaríkjunum, fæst meðal annars við myndlist.
Katalin Meixner, málari frá Þýskalandi
Adriane Wachholz, málari frá Þýskalandi
Kreh Mellick, málari frá Bandaríkjunum
Ashley Lamb, málari frá Bandaríkjunum
Hanneriina Moisseinen, finnskur myndlistarmaður
Jung-a Yang, ljósmyndari frá Suður-Kóreu
Beth Yarnelle Edwards, ljósmyndari frá Bandaríkjunum
Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur frá Fróni
Skagstrendingar bjóða að sjálfsögðu öllu þessu ágæta fólk velkomna og vonast eftir að dvöl þeirra verði þeim að öllu leyti ánægjuleg og þeim vinnist vel.