15.11.2006
Unglingar úr Húnaþingi náðu góðum árangri á frjálsíþróttamóti sem haldið var í Boganum á Akureyri um síðustu helgi. Alls tóku 25 unglingar þátt í mótinu og er óhætt að segja að þeir hafi staðið sig með miklum sóma enda stigu þeir alls 20 sinnum á verðlaunapall og þar af sjö sinnum sem sigurvegarar. Má þar nefna að þeir Stefán Velemer, Sæþór Bragi og Magnús Örn fögnuðu þreföldum sigri í kúluvarpi 11-12 ára. Torfi Friðriksson fagnaði sigri í 60 metra hlaupi á glæsilegum tíma í sinnu fyrstu keppni í hlaupi á ævinni. Hilmar Þór Kárason sigraði bæði í 60 metra og 800 metra hlaupi. Sigmar Guðni Valberg sigraði bæði hástökk og kúluvarp. Fyrir utan þennan góða árangur voru margir að bæta sinn persónulega árangur.
Húnvetnsku unglingarnir komu svo sannarlega á óvart á mótinu og var umtalað hversu öflugan hóp þjálfari liðsins, Guðmundur Þór Elíasson væri með og hversu gott starf væri unnið í Húnaþingi á sviði frjálsíþrótta. Það vekur þó athygli að aðeins eru tvær frjálsíþróttaæfingar í sýslunni á viku en flestir þeir sem tóku þátt í mótinu á Akureyri æfa frjálsar íþróttir 4-5 sinnum í viku.
Óhætt að segja að Húnvetningar eigi mikið af mjög efnilegu frjálsíþrótta fólki sem gaman verður að fylgjast með í framtíðinni ef rétt verður haldið á málum. Frekari úrslit úr mótinu má finna á www.fri.is.
Heimild og myndir frá Húnahorninu.
09.11.2006
Þann 8. nóv. s.l. var haldið á vegum Fræðsluskrifstofunnar námskeið um áherslur Hjallastefnunnar í skóla og uppeldisstarfi. Námskeiðið byggði á fyrirlestri Margrétar Pálu Ólafsdóttur, skólastjóra og frumkvöðli, um mögulegt tap stúlkna og drengja í kynjablönduðum hópum í leik og starfi. Einnig fjallaði hún um hvernig byggja megi upp mismunandi áherslur og leiðir í kennslu stúlkna og drengja til hagsbóta fyrir alla. Margrét Pála kynnti kynjanámskrá Hjallastefnunnar sem leið að jafnréttiskennslu.
Sjötíu starfsmenn skólanna í Húnavatnssýslum mættu til að læra af Margréti Pálu. Allir virtust mjög ánægðir með námskeiðið, sem sagt var bæði lærdósmríkt og skemmtilegt.
Fundað var í félagsheimilinu Ásbyrgi, Laugarbakka.
Mynd: Allir þátttakendur, Leiðbeinandi fyrir miðju fremst.
03.11.2006
Þann 2. nóv. s.l. var haldin á vegum Fræðsluskrifstofunnar málstofa um Kennslu í stærðfræði. Tuttugu og einn kennari grunnskólanna í Húnavatnssýslum mættu til að bera saman bækur sínar. Farið var yfir nýjustu áherslur, aðferðir, námsefni, námsmat og verkefni tengt kennslu greinarinnar. Málstofan byggðist á verkefnaskiptum og umræðum um mismunandi leiðir í kennslu námsefnisins. Umsjónarmaður málstofunnar var Sigríður Adnegaard, aðstoðarskólastjóri. Málstofan var haldin í Grunnskólanum á Blönduósi. Kennararnir voru mjög ánægðir með fundinn og ákváðu að halda samstarfi áfram, með því að hittast og hafa samskipti á netinu.
Mynd Allir þátttakendur, Leiðbeinandi og fræðslustjóri standandi
02.11.2006
Hreppsnefnd Höfðahrepps hefur ákveðið að auglýsa sérstaklega byggingarlóðir við þegar tilbúnar götur þannig að veittur verði afsláttur allra gatnagerðagjalda vegna bygginga á lóðunum.
Hreppsnefnd samþykkir jafnframt að eftirfarandi ákvæði gildi um úthlutun allt að fjögurra íbúðarhúsalóða sem afslátturinn muni ná til:
· Lóðirnar sem um ræðir verða skilgreindar á lista sem hreppsnefnd samþykkir.
· Umsóknir um lóðirnar skulu berast eigi síðar en 31. desember 2006 en umsóknir sem berast á umsóknarfresti verða afgreiddar af skipulags- og byggingarnefnd eftir því sem efni standa til og gildir röð umsókna um nýtingu fyrrgreinds afsláttar.
· Við úthlutun lóðanna skulu gilda ákvæði um að byggingarframkvæmdir skuli vera hafnar innan árs frá úthlutun og að byggingar skuli hafa hlotið fokheldisvottorð innan tveggja ára, að öðrum kosti fellur niður ákvæði um afslátt gatnagerðagjalda
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Höfðahrepps.
Skagaströnd, 2. nóvember 2006.
Sveitarstjóri
28.10.2006
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í hreppsnefnd Höfðahrepps mánudaginn 30. október 2006 á skrifstofu hreppsins kl 1100.
Dagskrá:
1. Daggæslumál.
2. Tillaga um afslátt af gatnagerðagjöldum.
3. Bréf:
a) Eignarhaldsfélags BÍ, dags. 26. okt. 2006.
b) Stígamóta, dags. 19. okt 2006.
c) Foreldra grunnskólabarna, dags. í okt 2006.
d) Styrktarsjóðs EBÍ, dags. 18. okt. 2006.
e) Samráðshóps um nýtt álagningakerfi fasteignagjalda, dags. 13. okt. 2006.
4. Fundargerðir:
a) Fræðslunefndar, 23. okt. 2006.
b) Atvinnu- og ferðamálanefndar, dags. 25. okt. 2006.
c) Skipulags- og byggingarnefndar, dags. 16. okt. 2006.
d) Stjórnar SSNV, dags. 24. ágúst 2006.
e) Stjórnar SSNV, dags. 10. ágúst 2006.
f) 14. ársþings SSNV, dags. 25.-26. ágúst 2006.
5. Önnur mál
Sveitarstjóri
18.10.2006
Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi
Verður að þessu sinni haldin í Austur Húnavatnssýlsu. Síðasta ár var uppskeruhátíðin við Mývatn og nú er komið að Húnvetningum að bjóða til sín ferðaþjónustuaðilum af öllu Norðurlandi. Hátíðin verður haldin fimmtudaginn 9. nóvember. Gestir mæta við Upplýsingamiðstöð ferðamála í Brautarhvammi á Blönduósi kl. 11:00. Þar verða rútur sem fara með hópinn í sýnisferð um héraðið. Fróðir heimamenn kynna áhugaverða ferðamannastaði fyrir þátttakendum. Austur Húnavatnssýsla hefur margt að bjóða gestum sínum, bæði í náttúru og menningu. Vonast er til að ferðaþjónustuaðilar af öllu Norðurlandi mæti til leiks og ekki síst að heimamenn taki þátt. Það er mjög gagnlegt og skemmtilegt fyrir fólk í greininni að bera saman bækur sínar og eyða deginum saman. Hádegisverður verður snæddur í nýju hóteli á landnámsbænum Hofi í Vatnsdal. Þór Hjaltalín minjavörður mun kynna verkefnið “Á slóð vatnsdælasögu”. Komið verður við í Blöndustöð, Þingeyrakirkju og á Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi þar sem Jóna Fanney Friðriksdóttir bæjarstýra á Blönduósi og Elín Sigurðardóttir safnstýra taka á móti gestum. Eftir skemmtilega skoðunarferð verða gestir boðnir velkomnir til Skagastrandar í hinu glæsilega kaffihúsi, Kaffi Viðvík. Matarveisla og skemmtun verður í Kántrýbæ, þar sem Magnús B. Jónsson sveitastjóri sér um veislustjórn í Villta vestrinu. Skoðunarferð og veitingar eru gestum að kostnaðarlausu, en gistingu verður hver að sjá um fyrir sig. Gist verður á Blönduósi . Gistimöguleikar eru á Hóteli, Gistihúsi og í sumarhúsum. Bókanir í gistingu: Glaðheimar s. 898 1832 og Gistiheimilið Blönduból s. 892 3455. Sértilboð verður á gistingu í tilefni uppskeruhátíðarinnar.
Markaðsskrifstofa ferðamála á Norðurlandi tekur við skráningum og veitir upplýsingar á heimasíðunni www.nordurland.is eða í netfangingu nordurland@nordurland.is , einnig Haukur Suska-Garðarsson starfsmaður SSNV Atvinnuþróunar í síma 455 4300 eða haukur@ssnv.is . Helst þarf að skrá þátttöku fyrir 2. nóvember.
Hátíðin í fyrra heppnaðist mjög vel og verður þessi ekki síðri. Ferðaþjónustuaðilar eru hvattir til að taka þátt. Mætum hress í Húnvatnssýsluna og njótum skemmtunar og fróðleiks með öðrum ferðaþjónustuaðilum á Norðurlandi.
10.10.2006
Þann 9. okt. s.l. var haldin á vegum Fræðsluskrifstofunnar málstofa um íslenskukennslu fyrir kennara grunnskólanna í Húnavatnssýslum. Farið var yfir nýjustu áherslur, aðferðir, námsefni og verkefni tengt kennslu greinarinnar. Málstofan byggðist á fyrirlestrum, verkefnaskiptum og umræðum um mismunandi leiðir í kennslu námsefnisins. Umsjónarmaður málstofunnar var Gunnþóra Önundardóttir, kennari. Málstofan var haldin í Húnavallaskóla.
02.10.2006
Ný eldhúsálma og fleira
Í vor kom Magnús sveitarstjóri ásamt Braga tæknimanni frá Stoð ehf í heimsókn á leikskólann Barnaból. Erindið var að mæla upp eldhús leikskólans í því augnarmiði að stækka það út undir þakið sem fyrir var yfir pallinum. Magnús og Bragi fóru strax á fullt að mæla og finna hornrétta fleti á meðan Þórunn leikskólastjóri reyndi að sjá fyrir sér hvaða skápa og skúffur best væri að velja inn í nýtt eldhús.
Eftir mælingar og umræður var ákveðið að fara í framkvæmdir og stækka eldhúsið sem verið hefur óbreytt frá 1977 og orðið of lítið og óhentugt fyrir starfsemi í dag. Á s.l. ári var eldað fyrir um 44 börn og 7 starfsmenn í eldhúsinu sem í upphafi var eingöngu ætlað til að framreiða nesti úr og ekki gert ráð fyrir rekstri stórs mötuneytis.
Framkvæmdir hófust í júní og fyrir sumarfrí leikskólans var búið að steypa nýja gólfplötu, smíða glugga og veggeiningar og panta innréttingu frá Ikea. Í ágúst var hafist handa við að byggja nýju „álmuna“ við þá gömlu og fram í september einkenndist miðjuálma leikskólans af umgangi iðnaðarmanna, miklu ryki, límlykt, hamarshöggum og vélsagarhljóði.
Föstudaginn 22. september var verkinu lokið og nýja eldhúsið var síðan opnað með formlegum hætti 25. september. Elsta og og yngsta barn leikskólans, drengur og telpa, þau Auðunn Árni Þrastarson 5,8 ára og Halldóra Eiríksdóttir 2,1 árs klipptu á borða og þar með var eldhúsið tekið í notkun við fagnaðarlæti viðstaddra. Leikskólabörnum (en þau hafa fylgst með framkvæmdum frá upphafi af miklum áhuga), starfsmönnum leikskólans og hreppsnefnd Höfðahrepps var boðið að þiggja léttar veitingar að athöfn lokinni.
Almenn ánægja er með hvernig til hefur tekist með fyrirkomulag, nýtingu og útlit á nýja eldhúsinu og þó stækkunin sé kannski ekki mikil í fermetrum talið (um 12-13 fermetrar) er þetta góð stækkun og mikil breyting, mun rýmra og innréttinging stærri og hentugri.
Trésmiðja Helga Gunnarssonar á Skagaströnd sá um verkið og aðalsmiðir á staðnum voru Einar Gunnarsson og Sigurður F. Björnsson. Stoð ehf á Sauðárkrók sá um að teikna nýbygginguna og Björn Hallbjörnsson frá Neistanum ehf sá um raflagnir. Og þökkum við öllum sem komu að verkinu kærlega fyrir gott starf.
Vetrarstarf Barnabóls 2006-2007 er fjölbreytt að vanda og ýmsar nýjungar í gangi. T.d. verða sérstakir listgreinadagar einu sinni í mánuði sem viðbót við annað listrænt starf. Á þessum dögum verður glímt við listræna sköpun af ýmsu tagi t.d. flutt leikrit, söngleikir, málaralist og hönnun svo eitthvað sé nefnt. Í vetur verður ekki leikfimikennari með okkur í íþróttahúsinu á þriðjudögum en starfsmenn sjá um skipulag tímanna. Börnum á leikskólaaldri úr Skagabyggð, sem ekki eru á leikskólanum, er boðin þátttaka í leikfiminni eins og undanfarin ár. Þar sem aðeins 3 börn koma í leikskólanum kl. 13-17 og ekki er skynsamlegt að vera með leikfimi fyrir þetta fá börn koma þau líka á milli kl. 11-12 í þriðjudagsleikfimina.
Með kveðju frá Barnabóli
Þórunn Bernódusdóttir
Leikskólastjóri
21.09.2006
Frystitogarinn Arnar HU 1 hélt til veiða í gær eftir að hafa verið í slipp á Akureyri síðan um mánaðarmót. Arnar er því að hefja veiðar á nýju kvótaári en á síðasta kvótaári sem lauk 31. ágúst sl. veiddi skipið fyrir um 1.000 milljónir króna. Í slippnum var fyrst og fremst verið að sinna almennu viðhaldi og m.a. var skipið málað og fékk nýjan lit þar sem það var málað í einkennislitum skipa Fisk seafood.
(ljósm: ÁGI)
21.09.2006
Samvil ehf - símenntun býður upp á áhugaverð námskeið í fjarnámi. Sjá nánar www.simnet.is/samvil eða www.fjarkennsla.com. Skráning á námskeið er á vefnum www.simnet.is/samvil, í tölvupósti samvil@simnet.is eða í síma 5537768 eða 8987824.
Námskeið sem boðið er upp á í október og nóvember eru:
9.okt.- 6.nóv. Vefsíðugerð í FrontPage. Námskeið í gerð heimasíðu skóla/bekkja. 4 vikur. Staðbundin lota haldin 14.okt., kl. 10.00-15.00. Verð 30.000,-kr. Umsjón: Kristín Helga Guðmundsdóttir, M.Ed. í kennslufræði og upplýsingatækni.
11.okt.-6.des. Heildstætt bókhalds- og tölvubókhaldsnámskeið, 8 vikur. Verð 48.000,-kr. Umsjón: Viðskiptafræðingur
16.okt.-13.nóv. Bókhald II (Framhaldsnámskeið í hefðbundnu bókhaldi), 4 vikur. Verð 25.000,-kr. Umsjón: Viðskiptafræðingur
6.nóv.-4.des. Skattskil fyrirtækja, 4 vikur. Verð 25.000,-kr. 4 vikur. Verð 25.000,-kr. Umsjón: Viðskiptafræðingur
20.nóv.-18.des.Tölvubókhald. Breytt/endurhannað, 4 vikur. Verð 25.000,-kr. Umsjón: Viðskiptafræðingur
-------------------------------------
F.h. SamVil ehf.
Kristín Helga Guðmundsdóttir,
http://www.simnet.is/samvil
http://www.fjarkennsla.com
http://www.konur.is
samvil@simnet.is
konur@konur.is
gsm 898 7824 s. 553 7768
-------------------------------------