Fréttir

Frá Leikskólanum Barnabóli

Við Leikskólann Barnaból er starfandi kröftugt foreldrafélag en þegar börn byrja á leikskólanum verða foreldrar þeirra sjákrafa meðlimir félagsins. Þessi frábæru foreldrarnir hafa verið duglegir við að styðja við bakið á leikskólastarfseminni og má þar nefna vinnuframlag þeirra þegar allt starfsfólkið sótti námskeið, við að keyra okkur út og suður, taka þátt í íþróttadegi og sveitaferð svo eitthvað sé nefnt. Snemma í vor gaf foreldrafélagið leikskólanum þrjú þríhjól, eitt stórt með palli og tvö sparkhjól. Einnig splæsti félagið í stafræna myndavél handa leikskólanum. Bæði börn og starfsfólk leikskólans eru að vonum harla ánægð með þessar fínu gjafir og senda foreldrunum sínar bestu þakkir.

Sjómannadagur á Skagaströnd

Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur á Skagaströnd, sunnudaginn 1. júni sl. Hátíðardagskrá var með hefðbundnum hætti. Dagurinn hófst með skrúðgöngu frá höfn að kirkju þar sem haldin var sjómannamessa. Að messu lokinni var lagður blómsveigur á minnimerki týndra sjómanna. Eftir hádegi var boðið upp á skemmtisiglingu en síðan hófst dagskrá með kappróðri. Eftir það voru hefbundin atriði á Hafnarhúsplani þar sem m.a. Hallgrímur Jónsson var heiðraður fyrir störf við sjómennsku. Eftir dagskrá við höfnina lauk var kaffisala í skólanum. Þar var einnig opin málverkasýning Jóns Ó Ívarssonar og einnig sýning á verkum nemenda grunnskólans. Í Fellsborg var sýnd fjölskyldumyndin Skógarlíf II. Hátíðarhöldum lauk síðan með dansleik í Fellsborg þar sem hljómsveit Geirmundar Valtýssonar lék fyrir dansi. Það er Björgunarsveitin Strönd sem hefur veg og vanda af dagskrá sjómannadagsins.

Fermingar á Skagaströnd

Laugardaginn 31. maí 2003 fermdi sr. Magnús Magnússon fjögur börn í Hólaneskirkju á Skagaströnd. Þau eru: Almar Freyr Fannarsson Arnrún Bára Finnsdóttir Ásþór Óðinn Egilsson Guðmundur Ingi Ólafsson

Endubætur á Bjarmanesi

Höfðahreppur hefur samið við Helga Gunnarsson og Baldur Haraldsson að annast enduruppbyggingu húseignarinnar Bjarmaness sem í daglegu tali er kallað “gamli skólinn”. Húsið sem var byggt 1913 af Verslunarfélagi Vindhælinga er orðið illa farið og hefur verið breytt oftar en einu sinni á 90 ára ferli sínum. Upphaflega var húsið byggt sem verslun og íbúð verslunarstjóra en þjónaði því hlutverki ekki nema í um 10 ár því Verslunarfélagið hafði þá keypt eignir kaupmannsins Evalds Hemmert við Einbúann og flutti starfsemi sína þangað. Bjarmanes var þá tekið undir skólahús en ávallt var þó búið í húsinu jafnframt. Það þjónaði einnig hlutverki samkomuhúss á tímabili og eftir 1958 þegar skólinn flutti í nýtt húsnæði var það notað sem íbúðarhús og síðar sem lögreglustöð. Síðustu 10-15 árin hafa munir Sjóminja- og munasafns Skagastrandar verið varðveittir í húsinu. Framkvæmdir við endurbæturnar eru hafnar og er ætlunin að koma ytra útliti hússins sem næst upprunalegu horfi. Það felur í sér að rífa tröppur og anddyri sem byggt var austan á húsið og breyta gluggsetningu og jafnframt að endurbyggja tröppur bæði sunnan og vestan á húsinu. Einnig verður skipt um þak og endurbyggðir skorsteinar. Steinsteypa í útveggjum hússins er víða illa farin og kallar á miklar múrviðgerðirnar. Eitt af því sem hefur vakið athygli við undirbúning að endurbótunum eru múrstrikanir á neðri hluta útveggja. Þær eru listilega gerðar og bera fagmennsku fyrri tíma gott vitni þar sem í blautan múrin hefur verið strikað hleðslumynstur svo hvergi virðist skeika millimetra. Verður reynt að halda þessu sérkenni við endurbyggingu ásamt mörgu öðru sem einkenndi húsið. Má þar m.a. nefna steypta járnglugga á kjallara. Byggingastjóri við framkvæmdina er Helgi Gunnarsson en múrverk annsta Baldur Haraldsson (Hendill ehf). Eftirlit og verkfræðihönnun er á höndum Línuhönnunar en arkitekt að endurbótum er Jon Nordsteien Áætlað er að kostnaður við endurbætur utanhúss muni kosta um 5 milljónir og heildarkostnaður við að endurgera húsið muni verða um 18 milljónir. Eftir endurbygginguna er gamla skólanum ætlað hlutverk á menningar- og menntunarsviði.

Skólaferðalag til Danmerkur

Miðvikudaginn 14. maí hélt hópur nemenda 9. og 10. bekkjar Höfðaskóla í skólaferðalag til Danmerkur. Í hópnum eru 28 nemendur og 3 leiðbeinendur. Þau munu dvelja í Kaupmannahöfn og nágrenni til 20. maí. Á dagskránni er að heimsækja skemmtigarðana Bakken og Tívolí og líta við í "Belive it or not" safninu ásamt mörgu öðru skemmtilegu og fræðandi.

Framkvæmdir við kirkjuna ganga vel

Ágúst Þór Bragason, umhverfisstjóri lagði fyrstu hellurnar í planið við kirkjuna miðvikudaginn 14. maí. Hellurnar eru svokallaðir óðalssteinar, 8 cm þykkar. Reiknað er með að alls verði lagðar hellur sem nema um 160 tonnum í kirkjutorgið og stefnt að því að ljúka mestum hluta þess fyrir mánaðarmótin. Sjómannadagurinn verður haldin hátíðlegur 1. júní og fermt verður í kirkjunni 31. maí.

Sólarganga!

Hressar konur og karlar alls 30 talsins ákváðu að halda upp á kosningadaginn 10. maí, á fremur óvenjulegan hátt, með því að ganga frá Skagaströnd til Blönduóss. Þetta er í annað sinn sem aðstandendur námskeiðsins "Líkama og sál" standa fyrir þessari göngu og vonandi verður þessi sólarganga að hefð hjá íbúum svæðisins. Gengnir voru 23 kílómetrar og tók gangan u.þ.b. 4 klukkustundir og 40 mínútur. Það var þreyttur en ákfalega stoltur hópur sem þáði veitingar af Framsóknarmönnum á Blönduósi að lokinni göngu.

Dreifibréf um menntamál

Skagaströnd, 13. maí 2003 Menntun í heimabyggð Skagstrendingar! Hreppsnefnd Höfðahrepps vill með bréfi þessu hvetja alla sem hug hafa á framhaldsnámi að kynna sér möguleika fjarnáms. Margir skólar bjóða upp á fjarnám og er möguleikarnir fjölbreyttir bæði á framhalds- og háskólastigi. Sem dæmi um skóla sem bjóða upp á skipulagt fjarnám eru: • Verkmenntaskólinn á Akureyri • Fjölbrautarskólinn í Ármúla • Háskólinn á Akureyri • Háskólinn í Reykjavík • Háskólinn á Bifröst • Kennaraháskólinn Hreppsnefnd Höfðahrepps hefur ákveðið að koma upp aðstöðu fyrir fjarnám og ráða starfsmann sem hefur það hlutverk að aðstoða nemendur og halda utan um starfsemina. Gert er ráð fyrir að “námsstofan” taki til starfa næsta haust. Tilgangurinn er að hvetja íbúa Skagastrandar til náms og athafna. Jafnframt er markmiðið að leitast við að styðja við bakið á þeim sem stunda nám og skapa þeim þægilegt “skólaumhverfi”. Fyrirhugað er að námsstofan verði í Gamla skólanum þegar fram líða stundir, en gert er ráð fyrir að til að byrja með verði aðstaðan til húsa að Mánabraut 3. Þar verður til staðar allur búnaður sem þarf til að stunda fjarnám. Sveitarstjóri.

Togarinn Örvar HU 2

Togarinn Örvar kom til hafnar á Skagaströnd föstudaginn 9. maí. Afli skipsins er um 323 tonn og áætlað verðmæti hans um 75 milljónir. Meginhluti aflans er grálúða.

Framkvæmdir við kirkjulóð

Undirbúningur hellulagnar á bílastæði austan kirkjunnar gengur vel. Jarðvegsskiptum er að mestu lokið og búið að taka stæði fyrir minnisvarðann syðst í planinu. Starfsmenn voru að taka hæðir, þjappa fyllingu og undirbúa uppsetningu fjögurra ljósastaura í blíðunni þriðjudaginn 6. maí.