Fréttir

Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi auglýsir

Árleg inflúensubólusetning haustið 2018 Bólusett verður á Heilsugæslustöðinni á Blönduósi Þriðjudaginn 25/9 kl: 13:00-15:00 Miðvikudaginn 26/9 kl: 10:00-12:00 Þriðjudaginn 2/10 kl: 10:00-12:00 Bólusett verður á Heilsugæslustöðinni á Skagaströnd Fimmtudaginn 27/9 kl: 9:00-11:00 Sérstaklega er mælt með að einstaklingar 60 ára og eldri, einstaklingar með langvinna sjúkdóma, heilbrigðisstarfsfólk og þungaðar konur láti bólusetja sig. Þessir hópar fá bóluefnið frítt en þurfa að greiða komugjald.

Mynd vikunnar

Landburður af fiski vorið 1969 Landburður af fiski var hjá Arnari HU 1 hafísvorið 1969. Gripið var til þess ráðs að koma í land með aflann óslægðan og landa honum þannig á bryggjuna þar sem slægingagengi tók við og slægði fiskinn sem síðan var fluttur upp í frystihús. Arnar hélt aftur á móti strax aftur á miðin. Slægingarmennirnir á myndinni eru óþekktir en Arnar HU 1 er í baksýn á leið út úr höfninni aftur. Einnig sjást nokkrir ísjakar á reki. Myndin var tekin löngu fyrir alla kvótasetningu á fiski á Íslandsmiðum.

Fréttatilkynning

Skagaströnd 13.09.18 Sveitarfélagið Skagaströnd hefur ráðið Alexöndru Jóhannesdóttur lögfræðing sem sveitarstjóra. Ráðningin var staðfest á fundi sveitarstjórnar í gær miðvikudaginn 12. september með öllum greiddum atkvæðum. Alexandra lauk grunnprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2012 en meistaraprófi innan sömu greinar og frá sama skóla árið 2016. Alexandra hefur frá námi starfað m.a. sem lögfræðingur á Fisksistofu ásamt því að hafa yfirumsjón með samningaferlum og sinnt verkefnastjórnun hjá Listahátíð í Reykjavík. Í dag sinnir Alexandra störfum fyrir IP eignarhaldi og er framkvæmdastjóri tveggja félaga undir þeirri samsteypu ásamt því að sitja í stjórnum sjö mismunandi fyrirtækja. Í störfum sínum hefur Alexandra því komið að fyrirtækjarekstri, sinnt almennum lögfræðistörfum m.a. á sviði ráðgjafar, samningagerðar og gerð viðskiptaáætlana. Jafnframt hefur Alexandra sinnt tengslum við samstarfsaðila og viðskiptavini víðsvegar um heiminn. Alexandra hefur unnið að ýmsum félagsstörfum og starfaði lengi sem sjálfboðaliði fyrir Rauða Krossinn. Einnig sinnti hún kennslu og umönnun barna og ungmenna hjá Osaberima Educational Center í Ghana í Vestur Afríku árið 2008. Gert er ráð fyrir að hún hefji störf fyrir Sveitarfélagið Skagaströnd í desember. Nánari upplýsingar gefur Halldór Gunnar Ólafsson Oddviti í síma 896-7977

Húsnæðisstuðningur vegna 15-17 ára námsmanna .

Foreldrar eða forsjáraðilar námsmanna yngri en 18 ára, sem leigja húsnæði vegna náms fjarri lögheimili, eiga rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi vegna barna sinna samkvæmt reglum um sérstakar húsnæðisbætur sem sveitarstjórn hefur samþykkt. Sækja þarf um á skrifstofu Sveitarfélagsins fyrir 20. sept. 2018 Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna nemenda skal vera óháðurtekjum og eignum foreldra eða forsjáraðila og nemur 50% af leigufjárhæð. Húsnæðisstuðningur vegna nemenda getur þó aldrei numið hærri fjárhæð en 45.000 kr./mánuði. Með umsókn um slíkan stuðning skal leggja fram húsaleigusamning og staðfestingu á námi barns. Reglurnar í heild má finna á heimasíðunni undir "Samþykktir"

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar miðvikudaginn 12. september 2018 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 8.00. Dagskrá: Staða framkvæmda Viðauki við fjárhagsáætlun 2018 Ráðning sveitarstjóra Ársreikningur Hólaness ehf Sameining sveitarfélaga Tilnefning í starfshóp SSNV Bréf Þjóðskrár Íslands, dags. 27. ágúst 2018 Náttúruhamfaratrygginga, dags. 21. ágúst 2018 Hestamannafélagsins Snarfara, dags. 21. ágúst 2018 Fundargerðir Hafnar og skipulagsnefndar, 29.08.2018 Atvinnumálanefndar, 21.08.2018 Stjórnar Félags og skólaþjónustu A-Hún, 25.06.2018 Stjórnar SSNV, 4.08.2018 Aukaársþings SSNV, 22.08.2018 Stjórnar Hafnasambands Íslands, 27.08.2018 Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 29.06.2018 Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 31.08.2018 Önnur mál Sveitarstjóri

Umsækjendur um stöðu sveitarstjóra á Skagaströnd

Starf sveitarstjóra var auglýst öðru sinni í byrjun síðasta mánaðar en umsóknarfrestur rann út 27. ágúst síðastliðinn. Þegar staðan var auglýst í fyrra skiptið sóttu sjö um en eftir seinni auglýsinguna bættust níu umsækjendur við. Þeir eru: Alexandra Jóhannesdóttir Arnar Kristinsson Gerður Ólína Steinþórsdóttir Guðbrandur Jóhann Stefánsson Heimir Eyvindsson Kristinn Óðinsson Jón Sigurðsson Snorri S. Vidal Sveinbjörn Freyr Arnaldsson Umsækjendur sem sótt höfðu áður um stöðuna og ekki dregið umsókn til baka eru: Gunnólfur Lárusson Hjörleifur H. Herbertsson Ingimar Oddsson Kristín Á. Blöndal Linda B. Hávarðardóttir Ragnar Jónsson Sigurbrandur Jakobsson Ráðið verður í stöðuna fljótlega.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi auglýsir

Örn Sveinsson augnlæknir verður með móttöku á Heilbrigðsstofnun Norðurlands á Blönduósi dagana 12., 13. og 14. september 2018 Tímapantanir í síma 4554100 virka daga milli kl 9-15.

Malbikun er hafin á Skagaströnd

Malbikun á Skagaströnd hófst í gær þegar malbikunarflokkurinn lagði fyrstu fermetrana á útsýnsistaðinn á Spákonufellshöfða. Næstu daga verður lagt malbik víða um bæinn bæði á plön og götur. Alls er gert ráð fyrir að malbika 15.700 fermetra. Þar af verða 8.500 fm nýlagnir á plön og götur og 7.200 fm yfirlagnir á gamalt og lélegt slitlag gatna. Reiknað er með að malbikunarframkvæmdir standi yfir fram til 15. september en getur þó farið eftir veðri hvernig gengur. Íbúar eru beðnir að virða athafnasvæði malbikunarflokksins og þær lokanir sem nauðsynlegt er að setja bæði í öryggisskyni og til að malbikið skemmist ekki á meðan það er að kólna. Sömuleiðis er fólk beðið að leggja ekki bílum í þær götur og á þau svæði sem malbikun er að hefjas á. Sveitarstjóri

Vatnstruflanir í Bankastræti og á Skagavegi

Eitthvað verður um vatnstruflanir í Bankastræti og á Skagavegi í dag 04. sept 2018. Sveitrstjóri

Mynd vikunnar

Adolf J. Berndsen Adolf Jakob Berndsen verður jarðsunginn frá Hólaneskirkju föstudaginn 7. september næstkomandi klukkan 14:00 Með Adolf er fallinn frá öflugur forystumaður í málefnum samfélagsins á Skagaströnd. Maður sem tróð slóðina til að auðvelda okkur hinum leiðina til aukinnar hagsældar og velferðar. Hann þjónaði í hreppsnefnd um árabil og var oddviti nefndarinnar í 12 ár. Adolf var eindreginn baráttumaður fyrir því sem hann taldi rétt og sanngjarnt og lét þá ekki hlut sinn fyrir neinum hvort sem um var að ræða ráðherra í ríkisstjórn eða gagnrýnendur sína hér heima. Fyrst og fremst var hann þó fjölskyldumaður sem setti velferð barna sinna og barnabarna ávallt í fyrsta sæti. Aðstandendum er vottuð samúð nú þegar Adolf hverfur inn í ljósið eftir erfið veikindi í nokkur ár.