22.10.2018
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar fimmtudaginn 25. október 2018 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 8.00.
Dagskrá:
Forsendur fjárhagsáætlunar 2019
Lögreglusamþykkt í umdæmi lögreglunnar á Norðurlandi vestra
Ársreikningur Snorrabergs ehf 2017
Greinargerð um gamla húsið á Litla Felli
Málefni fatlaðra
Slit Róta bs
Rekstraryfirlit jan – ágúst 2018 ásamt skýringum
Starfsmannahald
Bréf
Persónuverndar, dags. 10. október 2018
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, dags. 2. október 2018
Slysavarnafélagsins Landsbjargar, dags. 10. október 2018
Fundargerðir
Stjórnar Tónlistarskóla A-Hún, 29.08.2018
Ársreikningur Tónlistarskólans 2017
Stjórnar Byggðasamlags um menningu og atvinnumál, 31.08.2018
Stjórnar Norðurár bs, 4.07.2018
Aðalfundar Norðurár bs. 10.09.2018
Ársreikningur Norðurár bs 2017
Stjórnar SSNV, 2.10.2018
Stjórnar HNV, 9.10.2018
Skólanefndar FNV, 9.10.2018
Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 10.10.2018
Önnur mál
Sveitarstjóri
19.10.2018
Við Brautarholt
Brautarholt stóð utan í hólnum sem er á milli Fellsbrautar 9 og 13.
Á þessari mynd er Ólafur Guðmundsson (d. 6.10.1985), íbúi þar til hægri.
Konan er líklega Aðalbjörg Hafsteinsdóttir frá Reykholti.
Ólafur eða Óli í Braut eins og hann var oft kallaður, bjó þarna alla tíð
barnlaus ásamt konu sinni Þuríði Jakobsdóttur (d.19.7.1965) og móður
Elísabetu Ferdinantsdóttur (d.11.12.1958).
Ólafur var fróðleiksfús og hneigðari til bókar og skriftar en erfiðisvinnu.
Varð læs bæði á ensku og dönsku, sem ekki var algengt með fátæka
verkamenn á hans tíð og las mikið. Honum var einnig létt um mál og tók
gjarnan til máls á mál- og framboðsfundum.
Ólafur var blindur síðustu æviár sín og naut þá aðstoðar Aðalbjargar
meðal annarra. Húsið sem sér í lengst til hægri er Röðulfell.
Þegar Ólafur dó var Brautarholt eina torfhúsið á Skagaströnd
og hafði þá staðið af sér allar nýsköpun.
Senda upplýsingar um myndina
17.10.2018
Óhapp í dráttarbrautinni
Óhapp varð í dráttarbrautinni haustið 1989 þegar búkki undir síðunni á
Arnarborginni Hu 11 gaf sig þegar verið var að sjósetja bátinn.
Nokkur sjór komst í bátinn við óhappið og á myndinni er verið að dæla
úr lestinni.
Enginn slasaðist við óhappið og vel gekk að koma bátnum á flot aftur - á réttum kili.
Arnarborgin endaði svo ævi sína á áramótabrennu á Skagaströnd 1993.
Myndina tók Ingibergur Guðmundsson.
16.10.2018
Smávirkjanasjóður SSNV
Tilgangur sjóðsins er að styrkja fyrstu skrefin í rannsóknum á mögulegum rennslisvirkjunum á Norðurlandi vestra sem eru undir 10 MW að stærð. Miðað er við fyrirliggjandi yfirlit á mögulegum rennslisvirkjunum sem upp eru taldir í skýrslu Mannvits 2018: Frumúttekt á smávirkjanakostum á Norðurlandi vestra. Þó er heimilt að bæta við fleiri virkjunarkostum með samþykki SSNV.
Sjóðurinn veitir styrki til annars vegar: Skref 1: Frummat smávirkjana og hins vegar: Skref 2: Mat á virkjanlegu rennsli, frummati hönnunar og byggingarkostnaðar.
Öll gögn varðandi umsóknarferlið og skýrsla Mannvits er að finna á heimasíðu SSNV: www.ssnv.is
Að þessu sinni er auglýst eftir umsóknum í Skref 1: Frummat smávirkjana. Umsóknarfrestur er til og með 5. nóvember 2018. Verkefninu verður lokið fyrir 31. maí 2019. Hámarksfjöldi verkefna sem styrkt verða er 8.
Auglýst verður eftir umsóknum í Skref 2 í júní 2019.
Samið hefur verið við Verkfræðistofuna Mannvit um úttekt á þeim virkjunarkostum sem styrktir verða og sér SSNV um samningsgerð við fyrirtækið.
Mótframlag umsækjanda er 100.000 kr. en SSNV greiðir annan kostnað við úttektina.
Umsóknir skulu sendar á netfangið: ssnv@ssnv.is.
Nánari upplýsingar veitir Ingibergur Guðmundsson, ingibergur@ssnv.is, s. 892 3080.
10.10.2018
Af óviðráðanlegum ástæðum verður skrifstofa
Sveitarfélagsins Skagastrandar lokuð
fimmtudaginn 11. okt. og föstudaginn 12. okt. 2018
Sveitarstjóri
05.10.2018
Í Landsendarétt.
Landsendarétt var skilarétt á Skagaströnd áður en
Spákonfellsrétt var byggð. Landsendarétt var byggð úr
öflugum grjóthleðslum en grjótið var tekið úr fjörunni
fyrir neðan hana.
Hún stóð á sjávarbakkanum á flatlendinu austan við
Landsenda (nyrsta enda Höfðans) og norðan við Réttarholt.
Nú eru ummerki um réttina nánast öll horfin vegna sjávarrofs.
Torfhúsin uppi í brekkunni í baksýn voru skepnuhús.
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hana tók Evald Hemmert
(1886 - 1943) verslunarmaður á Skagaströnd og Blönduósi
þannig að líklega hefur það verið kringum 1930.
Senda upplýsingar um myndina
03.10.2018
Boston, USA 40 piece Jazz band
Live recording: ’Apartment sessions’
Today only, Drew Krasner (Nes Alumni 2014) continues an amazing musical journey, and brings his collaborators of 40 to Skagaströnd, for live recordings in Hólaneskirkja
kl 1400 - 1800 // mið 3 okt
All welcome to listen and enjoy, and please enter & exit quietly for recording purposes.
From 1800 all locals are welcome to come and jam, play with the big band before they leave at 1900.
If you love music, jazz and a great atmosphere of ’big band’ culture, today is your day to "get yourself to church!"
02.10.2018
Rafmagnstruflanir verða í milli Skagastrandar og Syðra Hóls 02.10.2018 frá kl 14:30 til kl 14:45 vegna bilunar í kerfi RARIK, .
Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Norðurlandi í síma 528 9690.
01.10.2018
Erlingur Hugi Kristvinsson háls,- nef og eyrnalæknir verður með móttöku á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi miðvikudaginn 10/10 2018. Tímapantanir í síma 455-4100 milli kl 08:00 og 16:00.
28.09.2018
Ardís Ólöf Arelíusdóttir
Ardís Ólöf Arelíusdóttir verður jarðsungin frá Hólaneskirkju
föstudaginn 5. október klukkan 14:00
Ardís Ólöf var stolt átta barna móðir sem tekið var eftir hvar sem
hún kom. Hún var smekkvís og hafði unun af að hafa fallegt í
kringum sig eins og blómagarðar hennar báru glöggt vitni um.
Óla var ávallt hrein og bein í samskiptum við aðra og fór sínar
eigin leiðir ef henni sýndist svo. Um árabil starfaði hún baksviðs
með Leikklúbbi Skagastrandar á blómaskeiði klúbbsins sem
hvíslari og sminka.
Eftir margra ára baráttu við illvígan sjúkdóm hefur þessi sómakona
nú kvatt og haldið inn í ljósið þar sem veikindi og verkir þekkjast ekki.
Stórri fjölskyldu Ardísar Ólafar er vottuð samúð nú þegar þau ganga
gegnum erfiðan tíma.