19.04.2011
Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir eftir flokksstjórum til starfa í Vinnuskóla sveitarfélagsins í sumar. Skilyrði er að umsækjendur séu 20 ára eða eldri og reynsla af sambærilegum störfum kostur.
Jafnframt eru auglýst laus til umsókna sumarstörf námsmanna og atvinnuleitenda í samstarfi við Vinnumálastofnun. Sveitarfélagið fékk úthlutað 5 störfum fyrir námsmenn í tvo mánuði sumarið 2011. Störfin eru við ýmis verkefni á vegum sveitarfélagsins m.a. við skógrækt, umhverfismál og umsjón með golfvelli.
Rafrænt umsóknarform er að finna hér en umsóknareyðblöð má einnig fá á skrifstofu sveitarfélagsins. Umsóknarfrestur er til 12. maí n.k.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofunni í síma 455 2700.
18.04.2011
Ragnheiður Gröndal verður með tónleika í Hólaneskirkju á skírdagskvöld, fimmtudagnn 21. apríl kl. 20:30. Þar flytur hún ljúf og falleg lög við undirleik Hauks Gröndals.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Tónleikarnir eru í boði Minningarsjóðsins um hjónin frá Garði og Vindhæli.
15.04.2011
Þær Ósk Richter og Sigríður Sveinsdóttir verða hæstráðendur til sjós og lands í spurningaleiknum Drekktu betur sem verður í kvöld í Kántrýbæ kl. 21:30.
Þegar kátar konur fá að stjórna er pottþétt að allir munu skemmta sér af hjartans lyst.
Þær ætla að spyrja um samfélagið, eitthvað héðan af Skagströnd, um hitt og þetta sem allir eiga að vita.
15.04.2011
Í gærkvöldi hélt Karlakórinn Heimir tónleika í Hólaneskirkju. Þeir heppnuðust afar vel og áheyrendur voru afskaplega ánægðir að þeim loknum. Hins vegar hefði aðsóknin mátt vera betri.
Á heimasíðu Karlakórsins er eftirfarandi frétt um tónleikanna:
Tónleikar í Hólaneskirkju á Skagaströnd eru afstaðnir. Húnvetningar tóku okkur merkilega vel og viljum við þakka þeim kærlega fyrir góðar viðtökur. Þar sem "æfingaferðin" suður á land heppnaðist vonum framar treystum við okkur til að bjóða þeim upp á svipaða dagskrá. Því miður átti Jón Þorsteinn ekki heimangengt til að spila með okkur en hróður hans fer víða því að ágætlega seldust diskarnir hans í hléi.
Það er gott að syngja í Hólaneskirkju og kunnugir höfðu orð á því að kórinn fyllti vel upp í rýmið. Lög eins og Ár vas alda og karlakórslögin; Þér Landnemar og Úr útsæ skiluðu sér af fullum þunga. Einnig naut fólkið þess vel þegar við hvísluðum okkur gegnum Linditréð og Í Fögrum Dal. Ari Jóhann fékk þó bestu viðtökurnar í einsöngslögunum, enda er karlinn í fantaformi þessa dagana, eftir að hann rakaði af sér skeggið ...
Gunnar kynnir var óvenju hógvær fyrir hlé, enda kom það í ljós að hann hafði gleymt að hafa með sér gleraugum á svið. Eftir hlé sótti hann heldur í sig veðrið og skemmti fólki með vísum og sögum tengdum dagskránni. Sem betur fer eru raddfélagar hans í 2. bassa komnir með eftirlitskerfi á karlinn og er Árni á Uppsölum ábyrgur fyrir því að halda aftur af honum. Hirting kvöldsins var eftirfarandi vísa:
Gunnar malar og malar
magnaður lopann að spinna
Endalaust talar og talar
ég trúi honum minna og minna
Lokalagið var Pílagrímakór Wagners. Nokkur aukalög áttum við í handraðanum, sem öll féllu í góðan jarðveg.
Heimferðin var stutt, örugg og án pissustoppa!
Kórinn kemur næst fram á Sæluvikutónleikum í Miðgarði með Karlakórnum Stefni frá Mosfellsbæ.
15.04.2011
Þróunarsjóður framhaldsfræðslu auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna nýsköpunar- og þróunarverkefna í framhaldsfræðslu, sbr. lög um framhalds- fræðslu nr. 27/2010.
Forgangssvið við úthlutun árið 2011 eru:
Námsefnisgerð í framhaldsfræðslu
Nýsköpunarverkefni í framhaldsfræðslu
Undirbúningur/grunnvinna fyrir rannsóknir
Viðmiðin sem Þróunarsjóðurinn gengur út frá við val á verkefnum eru að þau:
Nái til þeirra sem falla undir ramma laganna um framhaldsfræðslu
Mæti sýnilegri þörf fyrir menntunarúrræði í framhaldsfræðslu
Áhersla er lögð á að öll verkefni sem sótt er um styrk til séu vel undirbúin og umsóknir vandaðar. Kostur er að verkefni sé samstarfsverkefni. Verkefni sem styrkt eru mega ná yfir tvö ár frá úthlutun.
Eingöngu er tekið við umsóknum á rafrænu formi. Umsóknareyðublað má nálgast á vef Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins www.frae.is sem jafnframt er umsjónaraðili verkefna sjóðsins.
Umsóknarfrestur er til 6. maí 2011
Umsækjendum er bent á að kynna sér lög um framhaldsfræðslu nr. 27/2010 og úthlutunarreglur sjóðsins sem má nálgast á www.frae.is.
15.04.2011
Síðasta þriðjudag var hin árlega íþróttakeppni milli grunnskólanna í Húnavatnsþingi haldin hér á Skagaströnd. Að þessu sinni var keppt fótbolta, skotbolta, boðhlaupi, reiptogi og klifri í klifurveggnum. Keppnin var mjög spennandi en að lokum fór svo að Höfðaskóli bar sigur úr býtum.
Að lokinni íþróttakeppni var nemendum boðið upp á pizzur í Kántrýbæ og síðan var dansað fram eftir kvöldi í Fellsborg undir stjórn Dj. Söndru.
Þessi dagur var hinn skemmtilegasti og gaman að fylgjast með þessum 190 nemendum skemmta sér saman í keppni og leik.
14.04.2011
Virki þekkingarsetur býður til málþings á Gauksmýri, 28. Apríl 2011 kl. 13-17. Dagskrá þingsins verður sem hér segir:
13:00 - 13:10 Setning Sigurbjörg Jóhannesdóttir, formaður Byggðarráðs Húnaþings vestra
13:10 - 13:40 Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, Háskólinn á Hólum: Ferðaþjónusta sem bragð er að - straumar og stefnur í matarferðaþjónustu
13:40 - 14:10 Dominique Plédel. Jónsson, Slow Food: góður, hreinn og sanngjarn matur
14:10 - 14:40 Matís Guðmundur J. Guðmundsson, Beint frá Býli: Staða og framtíð í sölu Beint frá býli
14:40 - 15:10 Þóra Valsdóttir, Matís: Vöruþróun og smáframleiðsla matvæla
Kaffihlé í 20 mínútur
15:30 - 15:45 Svanhildur Pálsdóttir, Hótel Varmahlíð: Skagfirska Matarkistan og ég.
15:45 - 16:00 Stella J. A. Leví og Sæunn V. Sigvaldadóttir, Sæluostur úr sveitinni 16:00 - 16:15 Gudrun Kloes og Kristín Jóhannesdóttir, Fjöruhlaðborð og Sviðamessa
16:15 - 16:30 Svava Lilja Magnúsdóttir, Brauð og Kökugerðin: Smábakarí á landsbyggðinni
16:30 - 16:45 Guðmundur Helgason, Matarvirki og Kjöthornið:
Matvælavinnsla - þekking í héraði
16:45- 17:00 Pálína Fanney Skúladóttir, Spes Sveitamarkaður
Grillhlaðborð
Eftir málþingið ætlar Sveitasetrið Gauksmýri að taka forskot á sæluna og bjóða upp á grillhlaðborð eins og það hefur verið með undanfarin sumur við miklar vinsældir.
Óskað er eftir því að fólk panti á hlaðborðið í síðasta lagi 19. apríl í síma 451 2927, eða hjá Virki þekkingarsetri í síma 455 2525. Hlaðborðið hefst kl. 18:00.
Verð á mann kr. 4000,-
13.04.2011
Vinnumálastofnun á Skagaströnd leitar eftir starfsfólki í sumarafleysingar. Umsækjendur þurfa að hafa góða leikni í mannlegum samskiptum, lipurð í tölvunotkun og áhuga á að skila góðu starfi.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum SFR. Framhalds- eða háskólamenntun er kostur sem og reynsla af skrifstofustörfum.
Helstu verkefni Greiðslustofu Vinnumálastofnunar eru afgreiðsla umsókna um atvinnuleysisbætur og upplýsingagjöf.
Hlutverk Greiðslustofu er að sjá um greiðslur atvinnuleysistrygginga fyrir allt landið. Á skrifstofunni á Skagaströnd starfa um 25 manna liðsheild.
Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband og eða kynna sér starfsemi Vinnumálastofnunar á www.vinnumalastofnun.is
Líney Árnadóttir forstöðumaður veitir upplýsingar í síma 860 2053 og tekur við umsóknum ásamt ferilskrá á netfangið liney.arnadottir@vmst.is.
Umsóknarfrestur er til 19. apríl.
12.04.2011
Vegna bilunar í raflínu að vatnsveitu á Hrafndal má búast við að vatnslaust verði þegar kemur fram á daginn. Viðgerð er hafin en skorað er á fólk að spara vatn þar viðgerð er lokið.
Sveitarstjóri
11.04.2011
Ferðamálastofa boðar til málþings fimmtudaginn 14. apríl næstkomandi á Grandhóteli í Reykjavík um uppbyggingu og skipulag ferðamannastaða. Meðal fyrirlesara verður Audun Pettersen frá Innovasjon Norge og einnig hópur innlendra fyrirlesara með þekkingu á málaflokknum.
Málþingið hefst kl. 08:30 og því lýkur kl. 11:30. Síðasta klukkutímann mun Sævar Kristinsson ráðgjafi hjá Netspori stjórna umræðuhópum (Heimskaffi).
Dagskrá málþingsins má sjá á heimasíðu Ferðamálastofu, www.ferdamalastofa.is og skráning fer í gegnum netfangið: skraning@ferdamalastofa.is fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 13. apríl næstkomandi.