21.01.2011
Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði sem starfar samkvæmt lögum nr. 70/2007 og reglum nr. 60/2008.
Við úthlutun úr Æskulýðssjóði fyrir árið 2011 verður lögð áhersla á umsóknir frá æskulýðsfélögum og æskulýðssamtökum um verkefni er fjalla um mannréttindafræðslu og lýðræðislega þátttöku ungmenna í samfélaginu svo og samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.
Hlutverk Æskulýðssjóðs er að styrkja eftirtalin verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka:
Sérstök verkefni sem unnin eru fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra.
Þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða.
Nýjungar og þróunarverkefni.
Samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.
Hvorki er heimilt að styrkja árvissa né fasta viðburði í félagsstarfi svo sem þing, mót eða þess háttar viðburði né ferðir hópa.
Mennta- og menningarmálaráðherra úthlutar styrkjum úr Æskulýðssjóði að fengnum tillögum stjórnar Æskulýðssjóðs.
Umsóknarfrestur í Æskulýðssjóð er fjórum sinnum á ári, 1. febrúar, 1. apríl, 1. september og 1. nóvember og er umsóknarfrestur auglýstur hverju sinni.
Í umsókn til Æskulýðssjóðs skulu koma fram upplýsingar um:
nafn æskulýðsfélags eða æskulýðssamtaka
nafn og heimilisfang umsækjanda
heiti, lýsing og markmið verkefnis, ásamt kostnaðar- og tímaáætlun
áætlaðan fjölda þátttakenda
samstarfsaðila eftir því sem við á
kennitölu og númer bankareiknings þess er styrkurinn á að leggjast inn á ef viðkomandi hefur fengið úthlutað styrk.
Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á umsóknavef Stjórnarráðsins á vefslóðinni https://umsokn.stjr.is/.
Nánari upplýsingar um Æskulýðssjóð veitir Valgerður Þórunn Bjarnadóttir í síma 545 9500 eða í tölvupósti á valgerdur.thorunn.bjarnadottir@mrn.is.
Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2011.
20.01.2011
Markaðsskrifstofa ferðamála hefur boðað til ráðstefnu til að ræða ímynd Norðurlands. Hún verður haldin þann 28. febrúar og stendur frá kl. 9 til 16:30. Allir eru velkomnir.
Megintilgangur og markmið ráðstefnunnar er ræða, skoða og skilgreina ímynd Norðurlands, kalla eftir nýjum hugmyndum og áherslum í markaðssetningu svæðisins með þátttöku ráðstefnugesta.
Á ráðstefnunni verður einnig fjallað um möguleika á beinu millilandaflugi inn á Norðurland utan háannar og áhrif þess á atvinnulífið, ferðaþjónustuna og samfélagið.
Nýjar áherslur í markaðssetningu svæðisins
Beint millilandaflug til Akureyrar
Markaðssetning utan háannar
Markaðssetning í Bretlandi
Reynslan frá Lapplandi
Erum við tilbúin?
Starfsfólk ferðaþjónustufyrirtækja, fulltrúar frá sveitarfélögunum, bæjar- og sveitarstjórar á Norðurlandi, fulltrúar Ferðamálastofu, Íslandsstofu, Iðnaðar- og ferðamálaráðuneyti, Ferðamálaráð, Samtök Ferðaþjónustunnar, flugfélögin, rannsóknarstofnanir, háskólafólk, fulltrúar frá atvinnulífinu, verslunarfólk, bændur, matvælaframleiðendur, og allir þeir sem áhuga hafa á málefninu og vilja leggja sitt að mörkum til eflingar íslenskri ferðaþjónustu.
Þátttökugjald er 3.000 kr. Innifalið: morgunkaffi - hádegisverður- síðdegiskaffi.
Samstarfsfyrirtæki MFN og háskólanemar greiða hálft þáttökugjald.
Skráning á ráðstefnuna er hjá Maríu Axfjörð á skrifstofu MFN: maria@nordurland.is
20.01.2011
Vinnumálastofnun og Velferðarráðuneyti hafa auglýst styrki til atvinnumála kvenna lausa til umsókna. Skilyrði er að verkefnið eða hugmyndin falli að eftirfarandi skilyrðum:
Sé í eigu konu og stjórnað af konu
Feli í sér nýnæmi eða nýsköpun
Feli í sér atvinnusköpun til frambúðar
Hugmyndin sé vel útfærð
Veittir eru styrkir til að gera viðskiptaáætlun, til markaðssetningar og gerðar markaðsáætlunar, þróunar vöru eða þjónustu, hönnunar og efniskostnaðar.
Ennfremur geta konur, sem hafa fullmótaða viðskiptaáætlun og ætla að stofna fyrirtæki eða hafa stofnað það, sótt um styrk.
Heildarfjárhæð styrkja nema 30 milljónum króna og er hámarksstyrkur til eins verkefnis tvær milljónir króna. Ekki eru veittir lægri styrkir en 300 þúsund krónur.
Umsóknarfrestur er til og með 7. febrúar nk. og á að sækja um styrk á heimasíðu verkefnisins, www.atvinnumalkvenna.is.
17.01.2011
Íbúar á Skagaströnd hafa fengið senda heim til sín skoðanakönnun sem sveitarfélagið stendur fyrir. Ástæðan fyrir henni er að ADSL stöð Símans á Skagaströnd ræður ekki við nægan gagnaflutning svo hægt sé að bjóða upp á aðgang að Sjónvarpi Símans og hraðara Internet.
Fulltrúar sveitarstjórnar hafa rætt við forstjóra Símans og óskað eftir breytingum. Niðurstaðan var sú að kanna hversu margir bæjarbúar myndu nýta sér aukna þjónustu.
Ástæða þykir að kanna áhuga bæjarbúa fyrir aukinni þjónustu áður en rætt verður frekar við forráðamenn Símans.
Bæjarbúar eru nú hvattir til að taka þátt í könnuninni og segja hug sinn, hvort þeir myndu nýta sér þá þjónustu sem lýst er í skoðanakönnuninni og á heimasíðu Símans eða ekki.
Nemendur í 10. bekk Höfðaskóla munu ganga í hús miðvikudaginn 19. og fimmudaginn 20. janúar og safna saman seðlunum.
Einnig er hægt að skila seðlum á skrifstofu sveitarfélagsins til kl. 16. föstudaginn 21. janúar næst komandi.
Sýni niðurstöður könnunarinnar mikinn áhuga verða þær notaðar til að knýja á um að Skagstrendingar fái notið sömu þjónustu og flestir aðrir landsmenn.
Miðað er við að hvert heimili eða fjölskylda skili aðeins einum seðli.
17.01.2011
Meðalfjarlægð tungls og jarðar er 384.403 km og skiptir litlu hvort staðið er við fjöruborð á Skagaströnd eða efst á Spákonufelli, sem þó er 639 m hærra. Engu mætti ætla að sá sem hefði á laugardaginn verið á þessum slóðum væri í seilingarfjarlægð frá tunglinu. Það er nú í fjórða kvartil. Gott er að tvísmella á myndina, hún nýtur sín ekki nema í góðri stærð.
Tunglið fer einn hring umhverfis jörðina á u.þ.b. einum mánuði og á hverri klukkustund færist það miðað við fastastjörnunar, um 0,5° á himinhvelfingunni, eða um fjarlægð sem er u.þ.b. jöfn sýndarþvermáli þess. Tunglmyrkvi verður þegar tunglið fer inn í alskugga jarðar, þ.a jörðin skyggir á sólu frá tunglinu séð.
Sólin skín ávallt á helming tunglsins (nema í tunglmyrkvum) og þess vegna sjáum við aðeins þann hluta tunglsins. Þegar talað er um fullt tungl þýðir það að sólin skín akkúrat á þann helming tunglsins sem við sjáum frá jörðinni. Þegar sólin skín á hina hliðina er talað um nýtt tungl.
Fyrsta kvartil er þegar tunglið er að vaxa, en er ekki orðið hálft. Á öðru kvartili er það einnig vaxandi, en þá er það meira en hálft. Ef tunglið er á þriðja kvartili þýðir það að það er byrjað að minnka, en komið niður í að verða hálft tungl og loks þegar tunglið er á fjórða kvartili er það orðið minna, en helmingurinn sem lýsir og minnkar.
Sjá nánar á vefsíðunni http://is.wikipedia.org./wiki/Tunglið.
17.01.2011
Ertu með góða ferðasögu, smásögu, fróðleik, kveðskap …….? Við viljum minna á að almennt efni í næstu Húnavöku þarf að berast til ritnefndar sem fyrst og eigi síðar en 10. febrúar. Fréttir og fréttatengt efni um liðið ár komi fyrir 15. febrúar.
Ritnefnd Húnavökurits
Einar Kolbeinsson, ek@emax.is
Ingibergur Guðmundsson, ig@simnet.is
Jóhann Guðmundsson, holtsvinadal@emax.is
Magnús B. Jónsson, magnus@skagastrond.is
Páll Ingþór Kristinsson, pallingthor@simnet.is
Unnar Agnarsson, unnara@visir.is
17.01.2011
Nú er frumkvöðlakeppni Innovit, gulleggið 2011, að hefjast en markmiðið er að gera hugmyndir þátttakenda að veruleika. Allir sem luma á viðskiptahugmynd eru hvattir til að senda hana inn í keppnina og fá í kjöldfarið aðstoð við að breyta þeimí viðskiptaáætlanir.
14.01.2011
Stúlknakór Norðurlands vestra er að taka til starfa aftur núna í janúar 2011.
Allar stúlkur sem tekið hafa þátt í verkefnum Draumaraddana eru velkomnar, einnig bjóðum við nýjar stúlkur 12-16 ára boðnar velkomnar.
Áhugasömum stúlkum er bent á að hafa samband við viðkomandi á sínu svæði:
Hvammstanga, uppl. og skráning hjá Elínborgu, sími 864-2137. Æfingar verða eftir skóla á þriðjudögum.
Blönduós og Skagaströnd, uppl. og skráning hjá Skarphéðni/Kristínu, sími 452-4180. Æfingaplan kemur síðar.
Sauðárkróki, uppl. og skráning hjá Alexöndru, sími 894-5254. Æfingar á fimmtudögum kl. 16:00.
Stúlkur sem hafa verið í kórnum þurfa að staðfesta þátttöku.
Fyrirhugað er að setja upp óperuna og söngleikinn “Phantom of the opera / Óperudraugurinn” og koma Draumaraddirnar til með að taka þátt í því verkefni. Frumsýning verður 1. maí.
Frekari upplýsingar um verkefnið er að finna á www.dreamvoices.is og hjá Alexöndru í síma 894-5254.
13.01.2011
Skíðaferðin í Tindastól sem vera átti í dag (13.01.2011) er frestað vegna veðurs..
Kveðja
Fram
13.01.2011
Gleðibankinn græddi á tá og fingri á tónleikum Svavars Knúts og Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar í Kántrýbæ í gærkvöldi. Skemmtunin var ósvikin, mikið hlegið enda stutt í grínið hjá þessum gleðipinnum en engu að síður var slegið á alvarlegri strengi.
Meðfylgjandi myndir voru teknar á tónleikunum.
Svavar Knútur er góður gítarleikari. Hann semur lög og texta á ensku og íslensku. Þau eru oftar en ekki rómantísk og eiga uppruna sinn í reynslu höfundarins. Þetta eru lög eins og Clementine, Yfir hóla og yfir hæðir og fleiri. Og salurinn tók undir þegar höfundurinn bað um það.
Ekki tókst Svavari síður upp þegar hann spilaði og söng af nýju plötu sinni Amma, en á henni eru gömul og klassísk lög. Eftirminnilegur var flutningur hans á laginu Næturljóð úr Fjörðum eftir Böðvar Guðmundsson.
Yfir í Fjörðum allt er hljótt
Eyddur hver bær hver þekja fallin
Kroppar þar gras í grænni tótt
gimbill um ljósa sumarnótt
Háreistum fjöllum yfirskyggð
ein er þar huldufólksbyggð
En Svavar gleymir sér ekki í rómantíkinni, hann er óforbetranlegur sögumaður, óð um víðan völl og dagði frá reynslu sinni og tilfinningum á þann hátt að salurinn grét af hlátri.
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson er rithöfundur, skáld og tónlistarmaður. Hann á sér langan feril, gefið út bækur, ort ljóð, þýtt ljóð, þýtt söngljóð sænska vísnaskáldsins Cornelis Vreeswijk.
Aðalsteinn söng fjölda laga og las upp ljóð sín og meðal annars úr þýðingum sínum á tveimur ljóðabókum bandaríska ljóðskáldsins Hal Sirowitz, sem eru uppfull af skopi sem skáldið hermir upp á föður sinn og móður.
Þó Aðalsteinn sé yfirvegaður maður og alvarlegur var alltaf stutt í grín og gleði hjá honum. Hann söng eftirminnilegt lag eftir Cornelis Vreeswijk um ofbeldismanninn Óttar Óttarlega og hnykkti áheyrendum við enda hafa fæstir heyrt sungið um ofbeldi á þennan hátt. Fábært var að hlusta á Aðalstein flytja ljóðaþýðingar sínar eftir Hal Sirowitz um móður sína. Hún hélt því fram að ungi sonurinn mætti ekki setja fingurinn ofan í tómatsósuflöskuna því þá, myndi hann festast. Faðirinn myndi svo með erfiðismunum ná honum upp úr henni en við það afmyndst fingurinn og loks myndi engin kona vilja eiga mann með þannig fingur ...!
Eftir tveggja tíma tónleika var ljóst að Gleðibankinn græddi rosalega, bros og hlátrar streymdu inn á innlánsreikningana.