Fréttir

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar mánudaginn 29. janúar 2018 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 8.00. Dagskrá: Gjaldskrá sveitarfélagsins Grunnskólinn – skýrsla skólastjóra Starfsmannahald Uppbjör við Brú lífeyrissjóð Persónuvernd Byggðasamlag um menningu og atvinnumál Fundargerð stjórnar Fjárhagsáætlun 2018 Bréf Mannvirkjastofnunar, 3. janúar 2018 Sambands ísl. sveitarfélaga, 16. janúar 2018 Minnisblað Sambands ísl. sveitarfél. 16. janúar 2018 Sambands ísl. sveitafélaga, 22. janúar 2018 Kristjáns Jónassonar, KPMG, 24. janúar 2018 Fundargerðir: Sameiningarnefndar A-Hún, 10.01.2018 Stjórnar SSNV, 9.01.2018 Stjórnar Hafnasambands Íslands, 24.01.2018 Stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga 15.01.2017 Önnur mál Sveitarstjóri

Mynd vikunnar

Bíóauglýsing Þessi útstillingar - kassi/skápur var á stafni bragga sem stóð norðan við götuna beint á móti mjölskemmunni. Eigandi kassans/skápsins var Skagastrandarbíó sem notaði hann til að auglýsa kvikmyndasýningar sínar, sem voru, þegar best lét, þrisvar í viku. Að þessu sinni er auglýst "Heimsfræg stórmynd gerð eftir samnefndri metsölubók, sýnd kl 9 í kvöld, sunnudag". Myndin sem um ræðir hét "Carpetbaggers "samkvæmt auglýsingunni. Samkvæmt bókinni "Byggðin undir Borginni" var Skagastrandarbíó stofnað 1958 að frumkvæði Hallbjörns Hjartarsonar, sem var sýningarmaður bíósins, og fleiri. Sýningar voru í Tunnunni, sem þá þjónaði sem samkomuhús bæjarbúa. Snemma á áttunda áratugnum voru sýningarnar færðar í Fellsborg en þá var farið að draga verulega úr aðsókn, einkum vegna samkeppni við sjónvarpið. Skagastrandarbíó seldi síðan Höfðahreppi sýningarvélar sínar 1979 og hætti starfsemi. Félagsheimilið hélt uppi merkinu í nokkur ár en starfsemin fjaraði út hægt og hægt á nokkrum árum. Senda upplýsingar um myndina

Frístundakort

Foreldrar barna með lögheimili á Skagaströnd eiga rétt á 15 þúsund króna styrk, fyrir hvert barn á grunnskólaaldri, sem þátt tekur í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Frístundakortin taka gildi 1. janúar ár hvert og gilda í eitt ár. Skil á gögnum vegna frístundaþátttöku síðastliðins árs er í síðasta lagi 31. janúar næsta árs. Eftir það fellur réttur þess árs niður.

Opnun Salthús gistiheimilis

Í tilefni opnunar Salthúss gistiheimilis að Einbúastíg 3 á Skagaströnd verður opið hús í gistiheimilinu föstudaginn 26. janúar nk. kl 17-19. Allir velkomnir.

Opnun nýrrar líkamsræktarstöðvar á Skagaströnd

Nýr líkamsræktarsalur hefur verið opnaður í íþróttahúsinu á Skagaströnd. Salurinn er á miðhæð íþróttahússins þar sem hafa verið kennslustofur undanfarin ár. Við þá breytingu að öll almenn kennsla var flutt í grunnskólann eftir breytingar á því húsnæði á sl. ári opnaðist möguleiki til að nýta salinn í íþróttahúsinu fyrir líkamsrækt. Tækin í salnum eru fengin frá World Class og eru samtals 18 og er ætlað að gefa möguleika á að þjálfa sem flesta vöðva líkamans en auk þess eru þrjú öflug hlaupabretti. Við opnunina 17. janúar sl. voru tækin kynnt og Ólafur Jóhannesson stöðvarstjóra hjá World Class kenndi bæði starfsfólki og gestum hvernig best er að nota tækin. Með þessari breytingu verður mikil bylting á aðstöðu fyrir líkamsræktina sem hefur undanfarin 20 ár verið í kjallara íþróttahússins í frekar þrögnu rými og með misjöfnum tækjabúnaði. Þar verður reyndar áfram lyftingabúnaður, lóð og þess háttar þjálfunaraðstaða. Auk líkamsræktaraðstöðunnar er á efstu hæð ágætur salur fyrir júdó, karate og jóga. Í tilefni þessara tímamóta og breytinga lagði Ungmennafélagið Fram til dýnur á allt gólf salarins. Við opnun líkamsræktarinnar kynnti Þórey Fjóla Aradóttir hvaða þjónustu hún gæti boðið sem einkaþjálfari. ​Íþróttahúsið var tekið í notkun fyrir réttum 20 árum því það var formlega opnað 15 mars 1998. Í því er 16x32 metra parketlagður salur þar sem hægt er að stunda ýmsar íþróttir. Góð aðsókn var við opnun líkamsræktaraðstöðunnar og mikil ánægja með nýja aðstöðu og búnað og þau tækifæri sem opnast með þessari breytingu.

Mynd vikunnar

Mjólkurflutningar Gríðarlegur snjór var á Skagaströnd í janúar - maí 1995 með sífelldum illviðrum. Snjómokstur gekk erfiðlega því erfitt var að koma snjónum fyrir nema aka honum í sjóinn. Ófært var út á Skaga fyrir mjólkurbílinn og tóku bændur þá það til ráðs að þeir komu á dráttarvélum sínum með mjólkina í brúsum og tunnum til móts við mjólkurbílinn, sem komst hálfa leið út að Háagerði. Þar var mjólkinni dælt í mjólkurbílinn úr ílátum bændanna. Á þessari mynd er Sigfús Guðmundsson mjólkurbílstjóri að dæla upp úr brúsum frá Árna Sveinbjörnssyni frá Króksseli. Í baksýn eru að spjalla Baldvin Sveinsson frá Tjörn, Vilhjálmur Skaftason Skagaströnd, óþekktur og Jens Jónsson frá Brandaskarði. Senda upplýsingar um myndina

Opnun nýrrar líkamsræktarstöðvar

Að undanförnu hafa staðið yfir talsverðar breytingar á líkamsræktar aðstöðu í íþróttahúsinu og af því tilefni verður opið hús miðvikudaginn 17. janúar frá kl. 12:30-18:00. Tækin eru fengin frá World Class og verða kynnt af starfsfólki og einkaþjálfara samkvæmt leiðbeiningu og kennslu frá Ólafi Jóhannessyni stöðvarstjóra hjá World Class. Einni mun Þórey Fjóla Aradótti einkaþjálfari vera með til kynningar sína starfssemi. Sveitarfélagið býður þessa aðstöðu gjaldfrjálst til 31. Janúar að þeim tíma loknum tekur við ný gjaldskrá.

Mynd vikunnar

Breytt götumynd í útbænum Myndin er tekin af Höfðanum yfir útbæinn og höfnina. Mörg af húsunum á myndinni eru horfin eins og Efri Sólheimar sem sést ofan á fremst til vinstri og Valhöll sem stendur hinum megin við götuna. Höfðaberg hét húsið næst okkur til hægri á myndinni og Höfðakot hægra megin við það. Niður með Skagaveginum eru síðan horfin útihúsin og viðbyggingar við Bjarmaland vinstra megin og Þórsmörk, Héðinshöfði og Garður hægra megin við götuna. Kaupfélagshúsið, braggarnir og löndunarútbúnaður vegna síldarverksmiðjunnar á höfninni eru einnig horfin í dag. Ef grannt er skoðað sést hafís á sjónum þannig að myndin hefur líklega verið tekin 1965 eða 1968. Senda upplýsingar um myndina

Íbúafundur 18. janúar kl 17.30

Íbúafundur verður haldinn fimmtudaginn 18. janúar nk. kl. 17.30 í félagsheimilinu Fellsborg. Efni fundarins er að ræða almennt um málefni Skagastrandar bæði stöðu sveitarfélagsins, atvinnumál og sameiningu sveitarfélaga í A-Hún Sveitarstjóri

Umsóknir um byggðakvóta fiskveiðiárið 2017-2018

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2017/2018 Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. Ákvæðum reglugerðar nr. 604/2017 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2017/2018 Grundarfjörður Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 5/2018 í Stjórnartíðindum Snæfellsbær (Arnarstapi, Hellissandur, Rif og Ólafsvík) Sveitarfélagið Garður Sveitarfélagið Skagaströnd Húnaþing vestra (Hvammstangi) Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna hér. Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi. Umsóknarfrestur er til og með 22. janúar 2018. Fiskistofa 5. janúar 2018