18.03.2016
Við hjá Dimension of sound bjóðum öllum bæjarbúum og nærsveitamönnum sem hafa áhuga á að skoða vöruúrval okkar, að koma í heimsókn á Einbúastíg 1, mánudaginn 21. mars nk. frá kl. 12:00-18:00.
Vonum að sjá sem flesta :)
Kveðja
Ævar og Kristján
17.03.2016
Lisa Hälterlein
Löggiltur sjúkraþjálfari B.Sc.
B.Sc. í sjúkraþjálfun University College Lillebælt 2013
Námskeið í sjúkraþjálfun:
2015 Nálastungu „AcuNova“
2013 Sjúkraþjálfun á hestbaki
2013 Kinesiotape I
Tímapantanir og fyrirspurnir í síma 778-3837 eða lisasjukrat@hotmail.com
Flúðabakka 2, 540 Blönduósi og Ægisgrund 14, 545 Skagaströnd
15.03.2016
Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2016 tók sveitarstjórn Skagastrandar ákvörðun um að veita styrki til nemenda á framhalds- og háskólastigi sem nemur 20 þús. kr. skólaárið 2015-2016 en styrkirnir eru veittir til jöfnunar á námskostnaði fjarri heimabyggð.
Umsóknum um styrki skal skilað til skrifstofu sveitarfélagsins fyrir 10. apríl 2016.
Umsóknir sem berast eftir umsóknarfrest verða ekki teknar til greina.
Nemendur á framhalds- og háskólastigi sem eiga lögheimili á Skagaströnd og fullnægja skilyrðum í reglum um styrkina eiga rétt á umræddum námsstyrk frá Sveitarfélaginu Skagaströnd.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu sveitarfélagsins og á heimasíðunni http://www.skagastrond.is/samthykktir.asp og þar má einnig fá/finna umsóknareyðublöð.
Reglur um styrkina má finna hér.
Umsókn um styrk má finna hér.
Sveitarstjóri
14.03.2016
Framsagnarkeppni grunnskólanna í Húnavatnsþingi var haldin 8. mars sl. og sá Húnavallaskóli um lokahátíðina að þessu sinni. Keppnin er tileinkuð Grími heitnum Gíslasyni, fréttaritara og fyrrum bónda frá Saurbæ í Vatnsdal. Markmið keppninnar er að glæða tilfinningu og metnað húnvetnskra grunnskólanema fyrir íslensku máli og framsögn.
Magdalena Margrét Einarsdóttir íslenskukennari í Húnavallaskóla flutti ávarp og tveir nemendur úr Tónlistarskóla Austur Húnavatnssýslu komu fram. Guðbjörg Anna Pétursdóttir lék á saxafón og Hugrún Lilja Pétursdóttir á píanó.
Þrír keppendur komu frá hverjum skóla þ.e. Blönduskóla, Húnavallskóla, Höfðaskóla, og Grunnskóla Húnaþings vestra. Forkeppni er haldin í hverjum skóla fyrir sig og mæta því þrír bestu úr hverjum skóla í lokakeppnina. Óhætt er að segja að allir keppendur hafi staðið sig vel og settu dómnefndina í talsverðan vanda, því erfitt var að velja úr.
Dómarar voru að þessu sinni Baldur Sigurðsson, Benedikt Blöndal, Kolbrún Zophoníasdóttir og rithöfundarnir Gunnar Helgason og Arndís Þórarinsdóttir.
Keppendur lásu brot úr skáldverki eftir Bryndísi Björgvinsdóttur, ljóð eftir Guðmund Böðvarsson og ljóð að eigin vali.
Úrslit urðu þessi:
Ólafur Halldórsson Höfðaskóla
Hugrún Lilja Pétursdóttir Húnavallaskóla
Víkingur Leon Þórðarson Blönduskóla
Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn veittu peningaverðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin. Allir keppendurnir fengu síðan tvenn bókaverðlaun. Skólarnir gáfu Ljóðasafn eftir Stein Steinarr og Félag íslenskra bókaútgefenda gaf úrval úr ljóðum Guðmundar Böðvarssonar.
Að lokum var farandskjöldur afhentur en skjöldurinn var gefinn af sjóði sem stofnaður var til heiðurs Grími Gíslasyni. Sá skóli sem hlýtur fyrsta sætið varðveitir skjöldinn fram að næstu keppni og kom það í hlut Höfðaskóla að þessu sinni.
14.03.2016
99. ársþing USAH fór fram sunnudaginn 13. mars á Húnavöllum, á þingið mættu 32 fulltrúar frá aðildarfélögunum. Auk þeirra mættu tveir gestir, Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ og Þórey Edda Elísdóttir, fulltrúi ÍSÍ. Fjórar tillögur lágu fyrir á þinginu sem allar voru samþykktar eftir breytingar í nefndum, var þingið nokkuð starfssamt og umræður þónokkrar.
Mál sem meðal annars komu upp á þinginu voru Húnavökuritið og Stefnumótun USAH.
Húnavökuritið, ákveðið hefur verið að gera tilraun með dreifingu og sölu ritsins, verður hún send á öll heimili í sýslunni auk þeirra sem voru áskrifendur fyrir og í Húnvetningafélagið í Reykjavík. Mun hún með þessu móti lækka í verði en dreifast á fleiri heimili og vonumst við til að þessi tilraun takist vel og auki áhuga ungs fólks að skoða ritið.
Á 98. ársþingi USAH var ákveðið að nú skyldi farið að vinna í stefnumótun USAH og voru Auðunn Sigurðsson, Sigríður Gestsdóttir og Steinunn Hulda Magnúsdóttir skipuð í stefnumótunarnefnd, núna á þinginu kynntu þau fyrir okkur stefnumótun USAH, eftir þing og fram í október mun svo stjórn USAH og aðildarfélög fara yfir hana og skila inn athugasemdum sem áfram skipuð stefnumótunarnefnd mun vinna í fyrir næsta þing, þá mun vonandi liggja fyrir tillaga að stefnumótun USAH.
Þórey Edda Elísdóttir, fulltrúi ÍSÍ, ávarpaði þingið og minnti á ýmis góð málefni sem gott væri að íhuga, svosem meira samstarf milli USAH og USVH, verkefni sem eru í gangi, t.d. hjólað í vinnuna og lífshlaupið sem henni finnst endilega að við þurfum að reyna að virkja bæði hér og hjá þeim í USVH og reyna að koma upp einhverri keppni á milli og reyna að virkja bæði börn sem fullorðna í að hreyfa sig og lifa heilbrigðu lífi. Að ávarpi loknu veitti hún Aðalbjörgu Valdimarsdóttir gullmerki ÍSÍ og Hafdísi Vilhjálmsdóttur silfurmerki ÍSÍ, einnig fékk Valgerður Hilmarsdóttir silfurmerki ÍSÍ en var hún ekki á staðnum.
Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ, ávarpaði þingið og ræddi einnig um mörg verkefni sem eru í gangi í samfélaginu, svo sem Hreyfivikuna sem verður núna í maí. Þakkaði fyrir starf USAH við Landsmót 50+ og vildi ekki síður þakka sveitarfélögunum sem stóðu að mótinu fyrir sinn stuðning, hann væri ómetanlegur og án þeirra væri ekki hægt að halda svona mót. Minnti hann á Unglingalandsmótið sem haldið verður í Borgarnesi í sumar, Landsmót 50+ sem haldið verður á Ísafirði í byrjun sumars og Landsmótið, sem ákveðið hefur verið að halda á Sauðárkróki árið 2018. Að ávarpi loknu veitti hann Hafdísi Vilhjálmsdóttur og Pétri Péturssyni starfsmerki UMFÍ og Aðalbjörgu Valdimarsdóttur gullmerki UMFÍ.
Íþróttamaður ársins 2015 hjá USAH var Snjólaug María Jónsdóttir, úr Skotfélaginu Markviss. Hún hefur staðið sig afskaplega vel á síðastliðnu ári í haglagreininni Ólympískt Skeet. Snjólaug keppti á sínu fyrsta móti erlendis á árinu og setti þar glæsilegt Íslandsmet, sem er aðeins 5 stigum frá Ólympíulámarkinu, fór hún upp um tvo flokka í sinni grein á tímabilinu og er fyrst kvenna hérlendis frá upphafi til að ná fyrsta flokks skori í þessari skotgrein.
Hvatningarverðlaun USAH, sem fyrrum formenn USAH gáfu á 100 ára afmæli sambandsins og á að veita árlega, voru veitt í fjórða sinn og var það ungmennafélagið Fram sem hlaut bikarinn. Fram hefur ávallt staðið sig vel í barna og unglingastarfi, þau reyna að hafa fjölbreytni til staðar og að börn geti notið sín og haft gaman í þeirri íþrótt sem þau ákveða að iðka.
Ungmennafélagið Fram fagnar á þessu ári sínu 90 ára afmæli og fengu platta og blóm í tilefni afmælisins.
Breyting var á stjórn USAH, Aðalbjörg Valdimarsdóttir, formaður, og Hafdís Vilhjálmsdóttir, varaformaður, gáfu ekki kost á sér áfram og Valgerður Hilmarsdóttir, gjaldkeri, hætti í stjórn. Guðrún Sigurjónsdóttir gaf kost á sér áfram sem meðstjórnandi og Sigrún Líndal situr sitt annað ár sem ritari.
Stjórn USAH skipa nú þau:
Rúnar Pétursson, formaður.
Steinunn Hulda Magnúsdóttir, varaformaður.
Guðrún Sigurjónsdóttir, meðstjórnandi.
Sigrún Líndal, ritari.
Katrín Hallgrímsdóttir, gjaldkeri.
11.03.2016
Þessi mynd var tekin 1947 af horfnu húsi, Viðvík.
Húsið stóð ca þar sem er Strandgata 8 er í dag.
Húsið var reist á sjöunda áratug 19. aldar en í því var um árabil
rekið veitinga- og gistihús undir lok 19. aldarinnar.
Það var Ólafur Jósson "vert" frá Helgavatni í Vatnsdal sem rak
veitingahúsið ásamt konu sinni Valgerði Narfadóttur.
Sagt er að Ólafur hafi verið vel af manni og ekki vílað margt fyrir
sér m.a. við að halda uppi lögum og reglu hjá gestum Viðvíkur.
Þau hjón áttu sex börn sem mörg hver urðu nafnkunn á Íslandi.
Má þar nefna Pétur A. Ólafsson sem var um tíma allt í öllu á
Patreksfirði og Láru Ólafsdóttur sem þekkt er úr bók
Þórbergs Þórðarsonar: Bréf til Láru.
Eftir að Ólafur vert hafði rekið gistihúsið Viðvík í allnokkur ár
flutti hann til Akureyrar og gerðist veitingamaður
á Oddeyrinni þar.
Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Gefandi: Jóhann Pétursson Lækjarbakka á Skagaströnd.
07.03.2016
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar
miðvikudaginn 9. mars 2016 kl 800 á skrifstofu sveitarfélagsins.
Dagskrá:
1. Viðaukar við fjárhagsáætlun
2. Reglur um leiguhúsnæði
3. Gjaldskrár sveitarfélagsins
a. Gjaldskrá frístundar
b. Gjaldskrá vatnsveitu
c. Samþykkt og gjaldskrá byggingarleyfisgjalda
4. Hlutabréf í Tækifæri hf
5. Hólanes ehf, staða verkefnis
6. Bréf:
a. Farskóla Norðurlands vestra, dags. 1. febrúar 2016
b. Sigurlaugar I Gísladóttur, dags. 22. janúar 2016
c. USAH, dags í mars 2016
d. Júdófélagsins Pardus, dags. 9. febrúar 2016
e. Styrktarsjóður EBÍ, dags. 22. febrúar 2016
f. Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 1. mars 2016
7. Fundargerðir:
a. Skólanefndar FNV, 22.02.2016
b. Hafnasambands Íslands, 24.02.2016
c. Stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga, 29.01.2016
d. Stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga, 26.02.2016
8. Önnur mál
Sveitarstjóri
07.03.2016
Komdu þá á fund í Fellsborg um námstækifæri þín hjá nokkrum af skólastofnunum landsins.
Fundurinn verður haldinn í Fellsborg miðvikudaginn 9. mars klukkan 17:30. Á fundinn mæta fulltrúar frá: Fjölbraut á Sauðárkróki, Farskólanum, Háskólanum á Bifröst, Háskólanum á Akureyri, Háskólanum að Hólum og menntafyrirtækinu Keili í Reykjanesbæ.
Fulltrúarnir munu kynna fjarnám og staðarnám hjá sínum skólum og einnig hver inntökuskilyrði eru, námsgjöld og annað sem skiptir máli. Eftir stuttar framsögur munu fulltrúarnir sitja fyrir svörum og svo verður hægt að fá að hitta fulltrúana einslega ef þess er þörf.
Einnig mætir á fundinn fulltrúi frá verkalýðsfélaginu Samstöðu sem mun kynna möguleika á námsstyrkjum frá hinum ýmsu stéttarfélögunum.
Áætlað er að fundurinn standi í rúman einn og hálfan klukkutíma.
Endilega notaðu tækifærið og mættu á fundinn til að kynna þér möguleikana sem þú átt til aukinnar menntunar.
Til fundarins er boðað af hópi áhugafólks um menntun og framfarir í samstarfi við sveitarfélagið Skagaströnd og Farskóla Norðurlands vestra.
04.03.2016
Í eldhúsinu í Skátaskálanum
.
Þessar konur sáu um kaffiveitingar í veislu sem haldin var
í Skátaskálanum af óþekktu tilefni sem tengdist Skagstrendingi hf.
Veislan fór fram í Skátaskálanum en þar var um þær mundir rekið
mötuneyti fyrir menn sem voru að vinna að breytingum á
síldarverksmiðjunni.
Frá vinstri á myndinni: Anna Sjöfn Jónasdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir,
Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), sem sá um mötuneytið,
og Lilja Bernódusdóttir.
Myndina tók Jón Jónsson einhverntíma kringum 1980.
02.03.2016
Andrea Weber listakona og kennari í listgreinum við skóla í París, hefur gefið út tímarit „Skagaströnd Review“ þar sem hún lætur fortíð og nútíð mætast í myndum og texta. Tilgangur með útgáfunni er að gera listrænt verkefni á tímaritsformi sem er aðgengilegt á alþjóðlegu tungumáli. Að skapa nýjan skapandi vettvang fyrir ljósmyndasafnið og finna nálgun sem hentað komandi kynslóðum. Að gera Skagaströnd betur sýnilega og kynnta sem menningarlegt samfélag, bæði innan lands og utan.
Tímaritið „Skagaströnd Review“ er rannsóknar og þróunarverkefni sem Andrea skilar til samfélagsins með fyrstu útgáfu þess.
Andrea hefur dvalið nokkrum sinnum í Nes listamiðstöð og komið í reglulegar heimsóknir og tekið ákveðnu ástfóstri við byggðina stofnað til vináttu við marga íbúa á Skagaströnd.
Verkefnið hefur verið unnið í samstarfi við sveitarfélagið, Nes listamiðsöð, Rannsóknarsetur Háskóla Íslands og með styrk frá Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra.
Andrea býður til útgáfuteitis kl 20.00 fimmtudaginn 3. mars í bókasafninu á efstu hæð Gamla Kaupfélagsins.