07.04.2006
Björgunarsveitin hefur verið með þrjá bíla og voru tveir af þeim komnir nokkuð til ára sinna og hafa þurft töluvert viðhald. Eftir umræður á aðalfundi sveitarinnar var ákveðið að selja Unimog árg. 1981 og Chevrolet suburban árg. 1988 og kaupa Ford Econoline árg. 2000 sem björgunarsveitin í Varmahlíð hafði boðið sveitinni til kaups.
Meðal útbúnaðar bifreiðarinnar er low gear, 6 tonna spil, læst drif, sjúkrabörur og fleira, auk þess er bíllinn breyttur fyrir 44” dekk. Sæti í bílnum eru fyrir 12 manns. Björgunarsveitin á fyrir Toyota Landcruser 90 árg. 2004 breyttan fyrir 38”
Með þessum kaupum vonast menn til að minni tími fari í viðhald.
Vinnufundir eru á hverju þriðjudagskvöldi og er vel mætt,
þá er einnig tekið á móti einnota drykkjarumbúðum.
Alltaf heitt á könnunni og að sjálfsögðu eru allir velkomnir.
05.04.2006
>>>>>BM ráðgjöf
Vantar þig vinnu?
Viltu hafa góð laun?
Viltu eiga möguleika á sveigjanlegum vinnutíma?
Viltu vinna í þægilegu umhverfi?
Ef þú svarar einhverju hér að ofan játandi, átt þú sennilega samleið með okkur. Kynningarfundur um starfsemi BM ráðgjafar ehf verður haldinn fimmtudaginn 6 apríl á Hótel Dagsbrún kl 20 stundvíslega.
BM ráðgjöf ehf
05.04.2006
Aðalfundur U.M.F.Fram verður haldinn í Höfðaskóla
fimmtudaginn 6. apríl kl. 20:30.
Hefðbundin aðalfundarstörf
Mikilvægt að foreldrar mæti til að ræða málin
Vonumst til að sjá sem flesta
Stjórn U.M.F. Fram
30.03.2006
Það hefur ekki borið mikið á snjó frá áramótum. Síðustu daga hefur hann komið og jafnað landslagið eða myndað nýja hóla og hæðir. En snjórinn getur verið dulmagnaður og við ákveðin birtuskilyrði verður til skemmtilegt samspil sem gaman er að ljósmynda. Unnið er að því hörðum höndum að fjarlægja snjóinn af götum og greiða fyrir umferð eins og hægt er. Gera má ráð fyrir því að snjórinn stoppi ekki lengi við, þar sem það styttist óðfluga í sumarið en sumardaguinn fyrsti er eftir 3 vikur.
21.03.2006
Verkefnisstjórn Vaxtarsamnings Norðurlands vestra stendur fyrir opnum kynningarfundum í félagsheimilinu á Blönduósi fimmtudaginn 30. mars frá kl 12:00 - 13:00 og Hótel Dagsbrún á Skagaströnd föstudaginn 31. mars frá kl 12:00 - 13:00.
Boðið verður upp á súpu. Allir velkomnir.
Dagskrá:
12:00 Fundur settur
12:05 Klasar sem undirstöður vaxtarsamning - Elvar K. Valson, Impra
12:15 Störf verkefnisstjórnar - Jóna Fanney Friðriksdóttir/Steindór Haraldsson
12:25 Umræður og fyrirspurnir
Nánari upplýsingar veitir Elvar K. Valsson í síma 460 7973 og Jakob Magnússon í síma 455 2510.
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, atvinnuþróun
Impra nýsköpunarmiðstöð, Iðntæknistofnun
16.03.2006
Hópur stráka frá Umf. Fram tók þátt í Goðamótinu sem haldið var á Akureyri 10. - 12. mars sl. Þeir kepptu í D-riðli en mótið var haldið fyrir 5. flokk. Hópurinn sem mætti til leiks voru 10 ungir kappar þar sem 8 voru frá Skagaströnd og 2 frá Blönduósi. Skemmst er frá því að segja að liðið vann alla leiki sína nema úrslitaleikinn sem það tapaði gegn öflugu liði Breiðabliks. Lið Umf. Fram náði því öðru sæti í sínum riðli. Þarna var öflugt lið og góður liðsauki frá Blönduósi.
13.03.2006
Frá 1999 hefur fyrirtækið SERO ehf starfað á Skagaströnd. SERO hefur þróað ýmsar gerðir bragðkjarna fyrir matvælaiðnaðinn. Ensím eru notuð til að brjóta niður prótein við framleiðslu sjávarbragðefnanna, sem fyrirtækið framleiðir. AVS sjóðurinn styrkti fyrirtækið með forverkefnisstyrk til að þróa þangbragðefni.
SERO hefur þróað framleiðsluaðferðir til að einangra þá bragðkjarna sem eftirsóttir eru við gerð tiltekinna bragðlykla “ flavors keys”, sem eru svo notaðir til að útvega þann bragðprófil “ flavor profile”, sem markaðurinn biður um.
Steindór Haraldsson RC ( Reserch Chef ) hefur þróað og hannað verksmiðjuna og þær vörur sem SERO framleiðir, en afurðirnar eru fyrst og fremst seldar til Bandaríkjanna. Meðal annars eru framleiddir bragðkjarnar úr rækju. humri, þorski og öðrum bolfiski, skelfiski, saltfiski, síld og þangi. Bragðkjarnarnir eru í fljótandi formi og seldir sem kælivara.
SERO er í samvinnu við mörg skyld og sambærileg fyrirtæki bæði í Evrópu og Bandaríkjunum og taka þau virkan þátt í að meta afurðirnar, sem framleiddar eru á Skagaströnd.
(Frétt á www.avs.is)
09.03.2006
Listsýning barnanna á Barnabóli Skagaströnd
í Landsbanka Íslands.
Þema árlegrar listsýningar barnanna á Barnabóli í Landsbankanum er að þessu sinni helguð styttum bæjarins. Börnin á eldri deildinni byrjuðu á að skoða listaverkabók og styttuna póstdrenginn og björnin sem eru til á leikskólanum. Síðan var farið út í bæ að leita að og skoða styttur en það fundust engar styttur í bænum okkar. Aftur á móti fundu börnin fullt af alls konar minnismerkjum t.d. totem-indjánasúlu sem indjánar staðarins nota trúlega sem tilbeiðslutákn. Þau fundu minnismerki um drukknaða sjómenn og það varð uppspretta mikilla vangaveltna um lífið og tilveruna. Börnin fundu hestastein og einn drengurinn er viss um að þar sé grafinn hestur og að þetta sé hestalegsteinn, að lokum fóru þau í útbæinn og sáu Semingssteininn.
Það er því ljóst að það er fullt af listarverkum í umhverfi okkar þó rómverskar styttur finnist þar ekki. Og til að bæta úr þessu brugðu börnin yfir sig hvítu laki, settu sig í styttustellingar og síðan voru teknar myndir af þeim.
Yngri börnin stilltu sér upp sem prófílstyttur við spegill og síðan var tekinn „tvöföld mynd“ af þeim og nú er það ykkar, gestir góðir, að ráða í hvaða ungu Skagstrendingar þetta eru um leið og þið skoðið sýninguna.
Verði velkomin á styttusýningu leikskólabarna í Landsbankanum á Skagaströnd
Krakkarnir og starfsfólk leikskólans Barnabóls
27.02.2006
Laugardagskvöldið 25. febrúar sl. voru haldnir tónleikar til styrktar Dóru Sveinbjörnsdóttur í félagsheimilinu Fellsborg en Dóra hefur greinst með alvarlegan sjúkdóm. Á tónleikunum komu fram eftirtaldir tónlistamenn:
Guðmundur Jónsson
Hjörtur Guðbjartsson
Hafþór Gylfason
Þórarinn Grétarsson
Hans Birgir Högnason
Angela Basombrio
Birkir Rafn Gíslason
Jón Ólafur Sigurjónsson
Hugrún Sif Hallgrímsdóttir
Eygló Amelía Valdimarsdóttir
Þorvaldur Skaftason
Anna Skaftadóttir
Viggó Brynjólfsson
Hljómsveitin Spor
Kirkjukór Hólaneskirkju
Þessir tónlistamenn blönduðust á ýmsa vegu á tónleikunum og fluttu mismunandi gerð tónlistar, allt frá þungu rokki til kirkjutónlistar. Tónleikarnir tókust í alla staði vel og voru vel sóttir. Allir sem að tónleikunum komu gáfu vinnu sína og því rennur allur ágóði til málefnisins.
Tónleikarnir voru haldnir að frumkvæði tónlistarmanna á Skagaströnd en auk þess hefur Lionsklúbbur Skagastrandar staðið að söfnun fyrir sama málefni og hefur opnað söfnunarreikning nr. 0160-26-63000, kt. 700704-3270
22.02.2006
Hreppsnefnd Höfðahrepps og stjórn Rarik hafa samþykkt viljayfirlýsingu þess efnis að stefnt sé að því að leggja hitaveitu frá Reykjum til Skagastrandar. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist árið 2007 ef nægjanlegt vatn finnst á svæðinu sem nú þegar hefur að hluta til verið virkjað fyrir hitaveitu Blönduóss.
Á undanförnum árum hefur verið leitað að heitu vatni í nágrenni Skagastrandar án þess að viðunandi árangur næðist. Hreppsnefndin fór því þess á leit við Rarik að lögð yrði hitaveita til Skagastrandar.