26.05.2004
"Samtal við fortíð"
Guðrún Gunnarsdóttir opnar sína 17 einkasýningu í
Heimilisiðnaðarsafninu á Blöndósi fimmtudaginn 27.maí
2004 kl. 17:00.
Á sýningunni leitast Guðrún við að tengja saman fortíð
og nútíð út frá hugmyndum hins gamla handverks sem
er að finna í Heimilisiðnaðarsafninu auk annara safna á
Íslandi. Ekki er verið að vinna með handverkið sem slíkt
aðeins verið nota fornar hefðir sem kveikju að nýrri
nálgun. Í stað gamalla ljósadúka, prjónless og útsaums
eru verkin þrívíddar veggskúlptúrar, úr fíngerðum vír og
silkiþræði. Líkt og áður fyrr í útsaumsverkum tengjast
verkin hinu smæsta og fíngerðasta úr náttúrunni, en eru
þó meira eins og þrívíddarteikniningar á vegg. Guðrún
hefur hlotið starfslaun myndlistarmanna, styrki, kennt
og sýnt víða hér á landi sem erlendis og er hinn
helmingurinn af TÓ-TÓ sem er einn af aðstandendum
Kirsuberjatrésins, Vesturgötu í Reykjavík.
Þeir sem eiga leið um á fimmtudaginn þá endilega lítið
inn. Sýningin verður síðan opin á opnunartíma safnsins
alla daga kl. 10-17 frá 1. júní til 31. ágúst.
24.05.2004
KSÍ ákvað 17. maí að úthluta 60 sparkvöllum víðs vegar
um landið eftir að hafa fengið tilboð í gervigras á vellina,
en það verður hlutverk KSÍ að leggja og útvega fyrsta
flokks gervigras á vellina sveitarfélögunum að
kostnaðarlausu. Miðað er við vellir þessir verði helst
staðsettir á skólalóðum viðkomandi sveitarfélaga. Alls
bárust umsóknir um 105 velli frá 59 sveitarfélögum.
Höfðahreppur sótti um völl og fékk úthlutun.
Vellir þessir eru ca. 18x33 m. af stærð, þeir eru
upplýstir og með gervigrasi eins og áður segir. Verkefni
þetta er samstarfsverkefni KSÍ, Knattspyrnusambands
Evrópu, stjórnvalda og síðan sveitarfélaganna.
Sambærilegur sparkvöllur kom á Sauðárkrókur fyrir
nokkru og hefur notið mikilla vinsælda.
Hreppsnefnd Höfðahrepps mun á næstunni ræða við
forráðamenn KSÍ um málið í framhaldi af því verða
frekari ákvarðanir teknar. Verði af þessari framkvæmd
er ljóst að hún mun kosta sveitarfélagið fjármuni en
ekki liggur fyrir á þessu stigi hvaða upphæðir er um að
ræða.
19.05.2004
Á fundi Hreppsnefndar Höfðahrepps, 17. maí sl., var
samþykkt að veita 2 námsstyrki, að upphæð 250
þúsund kr. hvorn á ári, til einstaklinga sem hyggjast
stunda kennara- eða leikskólakennaranám. Styrkirnir
eru veittir með því skilyrði að viðkomandi einstaklingur
starfi, að loknu námi, jafn mörg ár við grunnskólann eða
leikskólann á Skagaströnd og styrktíma nemur.
Hér með er auglýst eftir umsóknum um þessa styrki.
Umsóknarfrestur er til 10. júní nk. Umsóknum skal
skilað á skrifstofu Höfðahrepps.
Allar nánari upplýsingar veita Birna Sveinsdóttir,
Ingibergur Guðmundsson og Magnús B. Jónsson.
18.05.2004
Að loknum samræmdum prófum 10. bekkinga, nánar
tiltekið síðastliðinn þriðjudag var haldið af stað í
skólaferðlag. Birkir Sigurhjartarson umsjónarkennari og
foreldrarnir; Guðjón Guðjónsson og Helga Bergsdóttir
voru með í för. Farið var yfir Þverárfjall með rútu, en
fyrsti áningarstaður var Fjölbrautaskóli Norðurlands-
vestra á Sauðárkróki. Skoðaðar voru verk- og
bóknámsdeildir og heimavist, undir leiðsögn
heimamanna en heimsókninni lauk með veitingum í
mötuneyti skólans. Áfram var haldið til Akureyrar, en
þar skelltu allir sér á skauta. Kvöldmaturinn, flatbaka
mikil, var tekinn nánast á svellinu, en skautað var stíft í
tvo tíma. Þá lá fyrir að finna náttstað, en hafði sá verið
pantaður með fyrirvara. Um kvöldið var farið í bíó en að
því loknu var sest við spjall og spil. Flestir voru sofnaðir
um þrjúleitið en einhverjir höfðu með sér vökustaura og
sváfu lítið fyrir vikið. Allir voru samt vaknaðir upp úr níu
og flestir stungu sér í sundlaug þeirra Akureyringa sem
mun vera ögn lengri en flestir Skagstrendingar eiga að
venjast.
En ekki dugar að næra andann, maginn vill fá sitt og
var því sest við hamborgaraát á Glerártorgi. Nú, þá var
komið að Verkmenntaskólanum, þar var arkað um
langa ganga og verknámsdeildir skoðaðar. Vélfræði,
rafiðn, listabrautir margskonar, kokka- og
sjúkraliðarbrautir svo nokkuð sé nefnt. Þar sem margir
voru farnir að verða þreytulegir eftir andvökunótt var
ákveðið að labba út í Menntaskóla til að safna orku fyrir
næsta þátt. Þegar þangað kom hittum við þar fyrir
Húnavallaskóla nemendur í sömu erindagjörðum.
Þar voru aftur gengnir gangar, arkað út og suður um
gömul hús og ný. Mestur áhugi virtist þó vera á Fjósinu
en svo er leikfimisalur þeirra Menntskælinga kallaður
enda upprunalega smíðað sem fjós. Í einni
skólastofunni í Gamla skólanum var öllum boðið upp á
veitingar sem féllu í góðan jarðveg. Að lokum var
hlaupið upp á nýju nemendagarðana í heimsókn til
Skagstrendinganna sem þar hafa búið í vetur. Eftir
Brynjuís var haldið af stað heim og rennt var upp að
Höfðaskóla um kvöldmatarleytið á miðvikudegi.
Þetta var fínt ferðalag, þar sem allir stóðu við sitt enda
fengu krakkarni hrós frá bílstjóranum fyrir prúðmennsku.
Helga Bergsdóttir
18.05.2004
Á fundi hreppnefndar Höfðahrepps sem haldinn var 17.
maí 2004 var samþykkt að óska eftir viðræðum við
fulltrúa ríkisstjórnarinnar um samstarf við ríkisvaldið um
uppbyggingu og rekstur sædýrasafns á Skagaströnd.
Sjá fundargerð hreppsnefndar dags. 17.maí 2004
14.05.2004
Tónlistarskóli A-Hún, Skagastrandardeild, hélt
árlega vortónleika sína í Hólaneskirkju miðvikudaginn 5.
maí sl, þar sem fram komu allflestir af þeim 33
nemendum sem stundað hafa nám við skólann í vetur.