31.10.2004
Hljómsveitin Janus frá Skagaströnd hélt tónleika í
Kántrýbæ laugardagskvöldið 30. október. Í rauninni var
um einskonar endurkomu-tónleika að ræða því
hljómsveitin hafði ekki komið saman í um 20 ár. Janus
var á árum áður dansleikjahljómsveit ungra manna sem
voru að hefja tónlistarferilinn. Sumir héldu áfram í
hljómsveitum aðrir héldu tónlistargáfunni við með örðum
hætti. Sá eini úr Janus sem hefur náð því að lifa af
tónlistinni er Guðmundur Jónsson, vel þekktur sem
gítarleikari og lagahöfundur “Sálarinnar hans Jóns
míns”. Á tónleikunum í Kántrýbæ sáu þeir Guðmundur
Jónsson og Hjörtur Guðbjartsson um gítarleik auk þess
greip Hjörtur í banjóið eins og honum er einum lagið.
Þorvaldur Skaptason sá um söng, Kristján Blöndal
þandi húðirnar, Jón Sigurjónsson lék á bassa og
Þórarinn Grétarsson spilaði á flautur og munnhörpu.
Það má segja að þessi endurkomutónleikar hafi komið
verulega á óvart. Gamlir vinir og aðdáendur mættu til að
hlusta og taka undir í gömlum Janus-standördum eins
og “Ég læðist oft upp á háaloft...” og þeir fengu svo
sannarlega að heyra gömlu lögin og miklu meira en
það. Hlómsveitin sýndi ótrúlega breidd í lagavali og
tókst að skila tónlist allt frá mýkstu ballöðum upp í
harðast rokk með miklum ágætum og kom við á
leiðinni í írskri þjóðlagatónlist og hráum blús. Það má
segja að það hafi kannski ekki verð svo ótrúlegt með
Gumma Jóns við stjórnvölin og afbragðs tónlistamenn í
áhöfn en það var jú vitað í þröngu samfélagi
sjávarþorpsins að þeir höfðu ekki æft nema nokkra
tíma á föstudag og rifjað það helsta upp fyrr á
laugardeginum. Unga fólkið sem ekki þekkti Janus
nema í nostalgíusögum hinna eldri, kom þegar leið á
tónleikana og leit inn, margir með efablik í augum, þar
sem lesa mátti spurn um hvort hér væri nokkuð fyrir
fólk með síðari tíma tónlistarsmekk. Það sneri enginn
við í dyrunum á Kántrýbæ og áður en langt var liðið
höfðu endurkomutónleikarnir breyst í dúndrandi
dansleik. Þegar leið á gerði hljómsveitin hógværar
tilraunir til að segja þetta bara gott og hætta en
áheyrendaskarinn klappaði og stappaði þar til áfram var
haldið.
Endurkomutónleikar Janus urðu sem sagt að
frábærlega skemmtilegum og eftirminnilegum
tónlistarviðburði sem gjarnan mætti endurtaka.
28.10.2004
Síðastliðinn þriðjudag og miðvikudag dvöldu hér góðir
gestir frá Ringerike. Þetta voru aðstoðarskólastjóri Hov
Ungdomsskole í Hönefoss (Ringerike), mæður tveggja
nemenda í 10. bekk og tveir myndatökumenn.
Tilgangur heimsóknarinnar var að undirbúa
nemendasamskipti Hov Ungdomsskole og Höfðaskóla
næsta vor og kynnast aðstæðum hér á landi en einnig
eru Norðmennirnir að vinna að gerð myndbands um
allan undirbúning og framkvæmd
nemendasamskiptanna.
Nemendur 9. og 10. bekkjar Höfðaskóla hafa
undanfarið ár verið í samskiptum við nemendur 10.
bekkjar í Hov Ungdomsskole í Hönefoss, vinabæ
Skagastrandar í Noregi. Ástæða samskiptanna er
væntanleg utanlandsferð þessara nemenda Höfðaskóla
til Hönefoss í maí á næsta ári og heimsókn 10. bekkjar
frá Hönefoss í byrjun júní sama ár.
Þrátt fyrir að kennaraverkfall hindraði eðlilegt skólastarf
þá hittu Norðmennirnir nemendur 9. og 10. bekkjar utan
skólans, kynntust félagslífi og áhugamálum þeirra
ásamt því að skoða atvinnulífið í staðnum. Þá gistu þeir
á heimilum foreldra nemenda í 9. og 10. bekk.
13.10.2004
Nýtt björgunarskip
Björgunarsveitin Strönd og Björgunarbátasjóður
Húnaflóa eru nú komin með samkomulag við
Landsbjörgu um kaup á björgunarskipi frá Bretlandi.
Með góðum stuðning sveitarfélaga við Húnaflóa,
fyrirtækja og einstaklinga hefur tekist að fjármagna
skipið með þeim hætti að ljóst er að það mun koma til
landsins innan fárra vikna. Um er að ræða öflugt skip af
sömu gerð og sýnt var í Skagastrandarhöfn um síðustu
páska.
Starfsmaður óskast
Björgunarbátasjóður auglýsir eftir starfsmanni í 50%
starf til og hafa umsjón með björgunarskipinu, viðhaldi
þess og búnaði. Hann hafi einnig það hlutverk að
annast eftirlit með skipinu í höfn og bera ábyrgð á
leiðbeiningum og æfingum áhafnar skipsins.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Reynir Lýðs.
Umsóknarfrestur er til 25. október 2004.
Nafn á skipið
Björgunarbátasjóður leitar jafnframt eftir nafni á hið nýja
björgunarskip. Hugmyndakassi verður settur upp í
söluskálanum og björgunarsveitarmenn taka einnig við
hugmyndum.
Nýr björgunarsveitarbíll
Björgunarsveitin hefur fest kaup á nýrri Toyota Land
Cruiser 90 bifreið. Bíllinn er í breytingu fyrir 38” dekk og
jafnframt verður settur í hann allur sá búnaður sem
björgunarsveitir gera kröfur um í bíla sína. Sveitin mun
fá hann afhentan í byrjun nóvember. Við það tækifæri
verður bíllinn til sýnis og jafnframt mun Toyota hafa
bílasýningu á Skagaströnd.
Þökkum góðan stuðning við starf okkar,
stjórn Björgunarsveitarinnar Strandar.
09.10.2004
Fundur verður haldinn í Hreppsnefnd Höfðahrepps
þriðjudaginn 12. október 2004 á skrifstofu hreppsins kl
16.00.
Dagskrá:
1. Tillögur sameiningarnefndar um breytingar á
sveitarfélagaskipan.
2. Erindi hreppsnefndar til fjárlaganefndar.
3. Námsstofa – tenging FS nets.
4. Byggðakvóti – umsókn um byggðakvóta
5. Starfsleyfi fyrir sorpurðun Höfðahrepps í
landi Neðri Harrastaða
6. Gjaldskrá fyrir hundahald
7. Bréf
a) Lánasjóðs sveitarfélaga,
dags. 28. sept. 2004.
b) SSNV um aukaársþing,
dags. 24. sept. 2004.
c) Sambands íslenskra sveitarfélaga um
fjármálaráðstefnu, dags. 3. sept. 2004.
d) Sambands íslenskra sveitarfélaga um
landsþing, dags. 21. september
e) Stéttarfélagsins Samstöðu,
dags. í september 2004.
f) Norræna félagsins í Ringerike,
dags. 13. sept. 2004.
g) Svavars Sigurðssonar, dags. 3. sept. 2004.
h) Undirbúningshóps um stofnun textílseturs,
dags. 20. sept. 2004.
8. Fundargerðir:
a) Byggingarnefndar, 20. ágúst 2004.
b) Leikskólanefndar, 15. sept. 2004.
c) Skólanefndar, 16. sept. 2004.
d) Stjórnar SSNV, 27. ágúst 2004.
e) Stjórnar SSNV, 1. sept. 2004.
f) Framkvæmdaráðs um svæðisskipulag,
24. ágúst 2004.
g) Heilbrigðisnefndar Nl.v. 28. sept. 2004.
h) Launanefndar sveitarfélaga, 15. sept. 2004.
9. Önnur mál.