01.03.2018
Aðalfundur Rauða kross Skagastrandar verður haldinn fimmtudaginn 8.mars kl. 19:30 í húsnæði Rauða krossins að Vallabraut 4.
Allir velkomnir, sjálfboðaliðar og aðrir áhugasamir. Léttar veitingar í boði.
Kveðja - stjórnin
01.03.2018
Árni Guðbjartsson.
Eftir snarpa baráttu við illvígan sjúkdóm hefur Árni nú lagt inn
árarnar og er kominn í skjól í þeirri höfn sem bíður okkar allra.
Þaðan mun hann væntanlega róa á ný og önnur mið en þau
sem hann sótti af svo mikilli elju hér á jörðinni.
Hann barst ekki mikið á en vann störf sín af dugnaði og trúmennsku,
léttur í skapi og fullviss um þann kúrs sem hann tók hverju sinni.
Vinsæll, ráðagóður og hjálpsamur eru fyrstu orðin sem koma upp í
hugann þegar Árna er minnst.
Hugur okkar og samúð er hjá aðstandendum hans sem nú sjá eftir
góðum dreng inn í heim ljóssins.
Árni Guðbjartsson lést 20. febrúar síðastliðinn en útför hans verður frá
Hólaneskirkju föstudaginn 2. mars klukkan 14:00
26.02.2018
Viltu finna þér áhugaverðan starfsvettvang?
Hjúkrunarheimilið Sæborg á Skagaströnd auglýsir eftir sjúkraliðum og starfsfólki við umönnun til starfa sem fyrst..
Á Sæborg búa að jafnaði níu aldraðir einstaklingar.
Helstu verkefni:
Veita íbúum stuðning og umönnun við athafnir daglegs lífs.
Hæfniskröfur:
Þjónustulund, sveigjanleiki og jákvætt viðmót.
Samskipta- og samstarfshæfni.
Framtakssemi og samviskusemi.
Að tala og skrifa íslensku
Hreint sakavottorð.
Í boði er:
Gefandi og lærdómsríkt starf.
Aðstoð við að finna hentugt húsnæði
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Vaktafyrirkomulag og starfshlutfall samkvæmt samkomulagi
Umsókn:
Upplýsingar um starfið gefur hjúkrunarforstjóri, Jökulrós Grímsdóttir eða staðgengill, í síma 452 2810 / póstfang saeborg@simnet.is
Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið.
Í Sveitarfélaginu Skagaströnd búa tæplega 500 manns. Þar er auðugt mannlíf, góður grunnskóli og leikskóli sem starfar í anda Hjallastefnunnar.
23.02.2018
Kynningarfundur
um smábátahöfn
verður haldinn þriðjudaginn 27. febrúar nk.
kl. 17.30 í Bjarmanesi.
Efni fundarins er að kynna hugmyndir um smábátahöfn og skýra fyrirhugað skipulags og byggingarferli hennar.
Sveitarstjóri
23.02.2018
Fimmtudaginn 1. mars næstkomandi, klukkan 17:00, munu Lee Ann Maginnis umsjónarmaður Dreifnáms í A-Hún, Þorkell V. Þorsteinsson aðstoðarskólameistari FNV, Þórdís Hauksdóttir, fræðslustjóri og fulltrúar frá nemendafélagi FNV kynna námsframboð, félagslíf og aðstöðu Dreifnáms í A- Hún og FNV.
Allir nemendur í 9. og 10. bekk í grunnskólum A-Hún eru sérstaklega boðaðir til fundarins.
Dreifnám í A-Hún er samvinnuverkefni Félags- og skólaþjónustu A-Hún og Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Markmið Dreifnáms er að bjóða upp á 1-2 fyrstu námsár framhaldsskóla í heimabyggð. Fundurinn fer fram í húsnæði Dreifnámsins, Húnabraut 4, Blönduósi. Á fundinum verður farið yfir námsframboðið, starfsemi Dreifnámsins og foreldrum/forráðamönnum og nemendum gefið tækifæri til spyrja spurninga.
23.02.2018
Ingibjörg Björgvinsdóttir
Enn er höggvið skarð í hóp samborgara okkar á Skagaströnd.
Hæglát og ljúf kona, sem ekki barst mikið á, hefur nú stigið inn í
heim ljóssins, sem hún trúði svo einlæglega á.
Við sem fengum að vera Ingu samferða í lífinu kveðjum hana með söknuði
og þökkum góð kynni. Sérstaklega minnumst við hennar góða starfs í
kirkjukórnum þar sem hún var ein af undirstöðunum sem kórinn byggir á
allt þar til sjúkdómar gerðu henni ókleift að starfa þar lengur.
Nú er hugur okkar hjá aðstandendum hennar sem eiga góðar minningar
um konuna sem var akkerið í lífi þeirra.
Ingibjörg Björgvinsdóttir lést á heimili sínu 14. febrúar síðastliðinn en hún
verður jarðsungin frá Hólaneskirkju laugardaginn 24. febrúar klukkan 14:00.
16.02.2018
Í símaafgreiðslunni
Þórunn Bernódusdóttir á vinnustað sínum sem símaafgreiðslustúlka
á Gamla pósthúsinu. Fyrir tíma sjálfvirkninnar þurfti símastúlkan að
gefa samband milli númera í kerfinu og "gefa línu" eins og kallað var
gegnum tengiborðið sem sést til hægri.
Á þessari mynd, sem líklega var tekin einhverntíma kringum 1975,
hefur Pálína Freyja Harðardóttir komið í heimsókn af efri hæðinni þar
sem hún átti heima á þessum tíma.
Senda upplýsingar um myndina
09.02.2018
Kvenfélagskonur á þorrablóti
Konur úr kvenfélaginu Einingin á þorrablóti í Tunnunni einhverntíma
á sjöunda áratugnum. Maturinn er kominn á borðið og allt er tilbúið
fyrir gestina. Stólarnir hafa verið fengnir að láni í skólanum og fólk þurfti
sjálft að koma með diska og hnífapör með sér að heiman.
Frá vinstri eru: Gestheiður Jónsdóttir, Helga Berndsen, Sigríður Ásgeirsdóttir,
Elísabet Árnadóttir (Bebbý), Karla Helgadóttir, Jóhanna Gunnlaugsdóttir
og Anna Halldórsdóttir Aspar.
Matinn unnu konurnar að mestu sjálfar, gerðu slátur, lifrapylsu og lundabagga
og súrsuðu, sviðu svið og gerðu sviðasultu, bökuðu brauð og og flatkökur og sáu
til þess að einhver heimamaður framleiddi harðfisk fyrir þær.
Skemmtiatriði voru ofast í formi upplesturs og fjöldasöngs en síðan var dansað
að borðhaldi loknu eins og nú er gert við undirleik hljómsveitar þar sem
harmónikan var í aðalhlutverki.
Senda upplýsingar um myndina
05.02.2018
Foreldrar barna með lögheimili á Skagaströnd eiga rétt á 15 þúsund króna styrk, fyrir hvert barn á grunnskólaaldri, sem þátt tekur í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Skil á gögnum vegna frístundaþátttöku síðastliðins árs er í síðasta lagi 31. janúar næsta árs. Eftir það fellur réttur þess árs niður.
Þar sem útgáfa reikninga vegna íþróttastarfs á vegum Umf Fram á haustönn 2017 barst nokkuð seinna en venjulega er veittur frestur til 28. febrúar til að leggja fram umsókn og gögn vegna frístundastarfsins.
Reglur um frístundakort
Sveitarstjóri