30.10.2009
Eins og fram kom í auglýsingu um skráningu katta 18. september sl. er reglulega ráðist í að eyða villiköttum sem annars fjölga sér margfalt. Nú stendur yfir handsömun og eyðing villikatta og því eru kattaeigendur áminntir um að skrá ketti sína og hafa þá merkta til að þeir verði ekki teknir sem villikettir.
Sveitarstjóri
30.10.2009
Margir velta því fyrir sér hvort það sé mikill vandi að stofna og reka fyrirtæki í ferðaþjónustu. Þessari spurningu og öðrum er ætlunin að svara á fundi sem haldinn verður í Fellsborg á Skagaströnd fimmtudaginn 5. nóvember næstkomandi og hefst hann klukkan 18.
Fundurinn er ætlaður þeim sem áhuga hafa á ferðaþjónustu eða eru að velta fyrir sér góðri hugmynd.
Á fundinn koma nokkrir reynsluboltar sem eitt sinn áttu sér góða hugmynd og ákváðu að framkvæma hana. Þeir segja frá reynslu sinni, hindrunum og lausnum. Af þeim má margt læra enda var gott fyrirtækja einu sinni aðeins hugmynd.
Fundarboðendur eru Sveitarfélagið Skagströnd, SSNV, Markaðsstofa ferðamála á Norðurlandi og Ferðamálasamtök Norðurlands vestra.
tilgangurinn er að hvetja fólk til að kanna möguleika á aukinni ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra enda getur hún verið grundvöllur góðra atvinnutækifæra rétt eins og í Þingeyjarsýslum sem hugsanlega má taka til fyrirmyndar.
Fundurinn er öllum opinn. Boðið verður upp á lítilsháttar hressingu, súpu, brauð og kaffi og er allt án endurgjalds.
Fundarstjóri verður Jón Óskar Péursson, framkvæmdastjóri SSNV.
Dagskrá fundarinns er sem hér segir:
Setning, Adolf Berndsen oddviti Sveitarfélagsins Skagastrandar
Getur skipulag ferðaþjónustunnar í Þingeyjarsýslum verið módel fyrir Norðurland vestra? Edward H. Huijbens forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála við Háskólann á Akureyri
Afþreying, Sigurður Sigurðarson, markaðsráðgjafi á Skagaströnd
Hvalaskoðunarferðir, Ásbjörn Björgvinsson
Sjóstangveiði, Árni Halldórsson, Hauganesi, Árskógsströnd
Gisting; hótel, gistihús og heimagisting, Stefán Haraldsson, atvinnuráðgjafi SSNV og formaður Farfugla
Akstur, gönguferðir, skoðunarferðir, Kristján Eldjárn, Svarfaðardal
Menningartengd ferðaþjónusta, Örlygur Kristfinnsson, Síldarminjasafninu á Siglufirði
Umræður, fyrirspurnir og vangaveltur, Jón Óskar Pétursson stjórnar
Fólk er hvatt til þess að láta ekki fundinn framhjá sér fara. Gera má ráð fyrir að hann standi til klukkan 21.
28.10.2009
Náttúrufræðikennarar Húnavatnssýslna voru boðaðir á fund þriðjudaginn 27. október í Húnavallaskóla. Markmið fundarins var að ræða saman, skiptast á verkefnum, hugmyndum og kennsluaðferðum í náttúrufræði.
Kennurunum var gert að koma með kennsluáætlanir, verkefni, bækur og önnur gögn sem tengjast greininni og reynst hafa vel í kennslunni. Allir höfðu eitthvað fram að færa og jókst því hugmyndabanki kennaranna mikið. Þátttakendur ákváðu að hefja reglubundið samstarf með aðstoð netsins.
Leiðbeinandi á námskeiðinu var Jóhanna Stella Jóhannsdóttir, kennari Húnavöllum.
Námskeiðið var haldið á vegum Fræðsluskrifstofu A- Hún.
Mynd: Þátttakendur og Leiðbeinandi.
28.10.2009
Allan október hefur Hólaneskirkja verið lýst með bleikum ljósum. Þetta er gert til að sýna á táknrænan hátt stuðning við baráttuna við brjóstakrabbamein. Fjöldi bygginga á landinu er á sama hátt orðinn bleikur þegar skyggja tekjur.
Óhætt er að segja að kirkjan líti ákaflega vel út svona upplýst. Signý Ó. Richter tók meðfylgjandi myndir sem sýna ákaflega vel hversu falleg kirkjan er.
27.10.2009
Í köldu Norður-Atlantshafinu marar hvítur klakinn. Ísland er réttnefni, bundið í viðjar frosts, ekki vottar fyrir funa. Báran blá er hins vegar ekki svo ýkja köld er hún gælir blíðlega við bláan ísinn. Atlotin eru banvæn og auðvitað missir hann smám saman tök sín á sjálfum sér og umhverfinu. Landið lætur strax á sjá og allir vita sem vilja að innan skamms muni hafið umbreyta því og allt verður sem fyrr. Kalt Norður-Atlantshafið heldur áfram iðju sinni, hin óútreiknanlega bláa bára líður áfram sem örlagavaldur lands og íss. Klakinn hverfur.
Sunnan úr höfum kom brasilíska listakonan Renata Pavdovan að strönd Skagans. Hún fékk starfsmenn tveggja fyrirtækja, Vélaverkstæðis Skagastrandar og Rafamagnsverkstæðisins Neistans til að útbúa mót með útlínum Íslands. Hún frysti vatnið og í síðla dags í gær var hvítur klakinn, íslandið, flutt niður í Vík og sjósett. Fjöldi manns var vitni að því er báran bláa, sem þó var frekar grá, tók á móti ísnum, slípaði hann til, lagfærði hann, gerði straumlínulagaðra, ef svo má að orði komast. Og svo hvarf hann, varð ósýnileg viðbót fyrir Atlantshafið.
Og hver er svo hin dulda merking í uppákomunni, innsetningunni svo gripið sé til orðfæris listamanna?
Birting listarinnar á að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn. Um leið skiptir tilgangur listamannsins minna máli.
Var þarna verið að lýsa stöðu þjóðarinnar um þessar mundir? Ísland bundið í klafa skulda og efnahagurinn harðfrosinn. Framtíðin er líklega sú að skuldirnar greiðast upp og þíða kemst í efnahaginn en um leið verður landið að engu.
Eða er harðfrosið landið í miskunarlausum sjó Evrópusambandsins þar sem sérkennin verða að engu og með tímanum hverfur þjóðin í haf mannfjöldans.
Nöturlegar framtíðarhorfur en hver veit nema brasilíska listakonan á Skagaströnd hafi aðra, bjartsýnni og háleitari sýn með listaverkinu Ísland.
Það er nú það ...
23.10.2009
Fjórir aðilar á Skagaströnd fengu styrki hjá Menningarráði Norðurlands vestra en ráðið stóð fyrir úthlutun í Kántrýbæ miðvikudaginn 21. október.
Lárus Ægir Guðmundsson fékk styrk til að skrifa bók um skip og báta á Skagaströnd 1908-2008, Sveitarfélagið Skagaströnd fékk styrk til stofnunar ljósmyndasafns og söfnunar eldri og yngri ljósmynda, Nes listamiðstöð fékk dvalar- og verkfnastyrki fyrir listamenn og loks fékk Guðmundur Ólafsson styrk til heimildarmyndagerðar.
Síðari umsóknarfrestur ársins 2009 um verkefnastyrki Menningarráðs Norðurlands vestra rann út 15. september sl. Alls bárust 65 umsóknir þar sem óskað var eftir tæpum 47 milljónum króna.
Á fundi sínum, 7. október sl., ákvað menningarráðið að úthluta verkefnastyrkjum til 52 aðila alls að upphæð 18.300.000 kr.
Af þessum átján milljónum er um fjórðungi upphæðarinnar varið til tónlistarverkefna og rúm 20% renna til varðveislu menningararfsins og safnamála.
Eftirtaldir aðilar hlutu styrki:
1.750.000 kr.
Skotta ehf. kvikmyndafjelag - Tvö verkefni: Bjarni Har. og Dansað á fáksspori
1.500.000 kr.
Söngskóli Alexöndru, Tónlistarskóli A-Hún.
Tónlistarskóli V-Hún. – Draumaraddir norðursins
1.000.000 kr.
Byggðasaga Skagafjarðar - Byggðasaga Skagafjarðar
Sögusetur íslenska hestsins - Tvö verkefni: Íslenski hesturinn, yfirlitssýning til 1950 og Söfnun, skráning og skönnun heimilda um íslenska hestinn.
850.000 kr.
Helga Rós Indriðadóttir - Tvö verkefni: Klassík 2010 – Óperutónleikar í Skagafirði og Sönglög Jórunnar Viðar - útgáfutónleikar.
750.000 kr.
Nes listamiðstöð - Dvalar- og verkefnisstyrkir fyrir listamenn í Nes listamiðstöð 2010
500.000 kr.
Héraðsskjalasafn Skagfirðinga - Stafrænn ljósmyndagrunnur
Sigríður Tryggvadóttir - Sumardagurinn fyrsti, heimildarmynd.
400.000 kr.
Landnám Ingimundar gamla - Hljóðleiðsögn um slóðir Vatnsdælasögu
Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna og Jenný Karlsdóttir - Altarisdúkar í íslenskum kirkjum.
Jón Þorsteinn Reynisson - Tvö verkefni: Útgáfa geisladisks og Gömlu slagararnir
Karlakórinn Heimir - Upp skaltu á kjöl klífa.
Fluga hf. - Hrossaræktandinn Sveinn Guðmundsson. Ævi og störf. Reiðhallarleiksýning
Nemendafélag FNV - Söngleikurinn Sódóma
Kvæðamannafélagið Vatnsnesingur - Minnisvarði um Guðmund Bergþórsson
Vesturfarasetrið - Minningarstofa um vestur-íslenska rithöfundinn Bill Holm.
350.000 kr.
Karlakórinn Lóuþrælar - Tvö verkefni: Í vesturveg og Haust- og jólatónleikar
300.000 kr.
Elinborg Sigurgeirsdóttir - Lauf, útgáfa geisladisks
Bróðir Svartúlfs - Útgáfa geisladisks
250.000 kr.
Sögufélagið Húnvetningur og Ingi Heiðmar Jónsson - Húnvetnskir ættstuðlar
Héraðsskjalasafn V-Hún. - Ljóð húnvetnskra skáldkvenna dregin fram í dagsljósið
Lárus Ægir Guðmundsson - Skip og bátar á Skagaströnd 1908-2008
Lafleur ehf. - Hinn svali blær / Glíman við Glám
Háskólinn á Hólum – Hólarannsóknin - Björgunarrannsókn við Kolkuós í Skagafirði
Sveitarfélagið Skagaströnd - Stofnun ljósmyndasafns og söfnun eldri og yngri ljósmynda
Guðmundur Ólafsson - Heimildarmyndagerð
Fornleifadeild Byggðasafns Skagfirðinga - Skagfirska kirkjurannsóknin
Guðný Káradóttir, Valgeir Kárason o.fl. - Raddir fólksins
Skagabyggð - Örnefnaskráning í Skagabyggð
Fornverkaskólinn - Uppbygging á aðbúnaði og aðstöðu Fornverkaskólans
Rósmundur Ingvarsson - Fornleifaskráning í Skagafirði
Jón Hilmarsson - Skín við sólu Skagafjörður – ljósmyndabók
Róbert Óttarsson - Æskudraumar – útgáfa geisladisks
Verslunarminjasafn Bardúsa, Grettistak og Ferðamálafélag V-Hún. - Forn handbrögð – handverksnámskeið
Hólmfríður Bjarnadóttir - Hvalrekinn á Ánastöðum – einleikur
Leikfélag Sauðárkróks - Barnaleikritið Rúi og Stúi
Guðrún Brynleifsdóttir - Skotta – einleikur
200.000 kr.
Kirkjukór Glaumbæjarprestakalls - Þýsk messa eftir Franz Schubert
Skagfirski kammerkórinn - Á vetrarbraut
150.000 kr.
Heimilisiðnaðarsafnið Blönduósi - Kynningar og markaðssetning Vefnaðarbókar Halldóru Bjarnad.
Minningarsjóður Aðalheiðar E. Gunnarsdóttur – Styrktartónleikar
100.000 kr.
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík og Sauðárkróksbíó - Kvikmyndalestin RIFF um land allt
Háskólinn á Hólum - Fornleifar í landi Keldudals – heimasíða
Héraðsskjalasafn A-Hún. - Horfnir tímar – hver er maðurinn/staðurinn?
Málmblásarakvintett Norðurlands og Karlakórinn Heimir - Kórbrass á aðventu
Rökkurkórinn - Jólatónleikar
Sönghópur Félags eldri borgara í Skagafirði - Skagfirskir tónar
Kammerkór Norðurlands - Tónleikahald – íslensk kórtónlist
Kirkjukór Sauðárkrókskirkju - Kirkjukvöld í Sæluviku
Samkórinn Björk - Lúsíuhátíð
Hestamannafélagið Neisti - Börn og unglingar á hestasýningum
Matarkistan Skagafjörður - Málþing um íslenskan mat á MATUR-INN 2009
22.10.2009
Landaður afli í Skagastrandarhöfn var 37,5% meiri á síðasta aflaári en árið áður. Engu að síður er aflinn enn um 11,5% lakari en aflaárið 2006-7.
Alls komu 8.227.828 tonn á land frá september 2007 til loka ágúst 2008. Þar áður var landað 5.984.077 tonnum og enn áður 9.273.396 tonnum.
Nýbyrjað aflaár lofar góðu en í september var landað 883.425 tonnum sem er miklu meira en undanfarin þrjú ár.
22.10.2009
Frystitogarinn Arnar kom til heimahafnar á Skagaströnd síðasta sunnudag og fór aftur úr í gærkvöldi. Aflaverðmæti hans var um 150 milljónir króna sem miklu minna en í síðasta túr en þá var verðmætið um 240 milljónir. Kemur margt til, t.d. var aflinn minni en síðast og samsetning hans önnur, „bölvað skrap“ eins og sagt er.
22.10.2009
Þann 24.október, á fyrsta vetrardag og kvennafrídaginn, verða haldnir tónleikar í Menningarhúsinu Miðgarði í Skagafirði kl. 20.30. Þar mun 10 manna hljómsveit stíga á svið og fara með áhorfendur í einskonar heimsreisu. Þannig verða flutt 12 lög frá jafnmörgum löndum, lög sem eru samin af konum eða hafa verið sungin af konum.
Löndin sem um ræðir eru Spánn, Ísrael, Rúmenía, Grænhöfðaeyjar, Kúba, Mexíkó, Chile, Argentína, Brasilía, Indland, Suður-Afríka og Kenía.
Multi Musica eru:
Ásdís Guðmundsdóttir, söngur og ásláttur
Sorin Lazar, gítar og flauta
Jóhann Friðriksson, trommur
Rögnvaldur Valbergsson, hljómborð,gítar og harmonikka
Sigurður Björnsson, bassi
Sveinn Sigurbjörnsson, bongó og trompet
Íris Baldvinsdóttir, bakraddir og ásláttur
Jóhanna Marín Óskarsdóttir, bakraddir, strengir og ásláttur
Ólöf Ólafsdóttir, bakraddir og ásláttur
Þórunn Rögnvaldsdóttir, bakraddir og ásláttur
Tónlistarstjóri er Sorin Lazar en hópurinn hefur útsett lögin í sameiningu.
Kynnir á tónleikunum er Bryndís Ásmundsdóttir, leikkona.
Á milli laga verður ýmiskonar fróðleikur um viðkomandi lönd.
Samstarfsaðilar í verkefninu eru Skagafjarðardeild RKÍ en í hléinu verða gestum boðnar veitingar sem eru útbúnar og framreiddar af fólki sem er af erlendu bergi brotið og býr í Skagafirði.
Sviðið verður skreytt munum frá Afríku og S- Ameríku og því sannkölluð alþjóðastemning í salnum. Borð verða dekkuð í sal þannig að fólk getur fengið sér kaffi eða drykki á meðan á tónleikunum stendur en vínveitingar verða á tónleikunum.
UNIFEM og Félag kvenna af erlendum uppruna munu kynna samtök sín í hléinu.
Tónlistarskóli Skagafjarðar styrkir einnig verkefnið en hljómsveitin hefur haft þar æfingaaðstöðu.
Menningarráð Norðurlands vestra, Sparisjóður Skagafjarðar og Ólafshús hafa styrkt verkefnið myndarlega.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og er miðaverð kr. 2.000. Ef pantaðir eru 10 miðar eða fleiri þá kostar miðinn 1.800 kr og því tilvalið fyrir hópa og vinnustaði að drífa sig.
Miðapantanir og nánari upplýsingar eru í síma 899-9845
Við lofum ykkur hlýlegri og skemmtilegri tónlistarveislu í lok sumars og byrjun vetrar!!
21.10.2009
Listamenn hjá Nes listamiðstöð opna vinnustofur sínarí lok hvers mánaðar þar sem þeir sýna þau verk sem þeir hafa verið að vinna að frá komu sinni.
Á morgun, fimmtudaginn 22. október, klukkan 20-22 viljum við öllum sem áhuga hafa að koma í heimsókn, skoða listaverk í vinnslu og spjalla við listamennina um verkin og dvölina á Skagatrönd.