30.04.2009
Vortónleikar Tónlistarskólans á Skagaströnd voru 28. apríl í Hólaneskirkju. Gestir fylltu kirkjuna og skemmtu sér afar vel enda allir nemendurnir að sjálfsögðu hæfileikamiklir og áhugasamir um tónlist.
Meðfylgjandi myndir tók Ingibergur Guðmundsson.
29.04.2009
María Magnúsdóttir Bogabraut 24 á Skagaströnd verður 90 ára föstudaginn 1. maí
Af því tilefni mun hún taka á móti gestum í félagsheimilinu Fellsborg á Skagaströnd á afmælisdaginn kl 15.00-19.00
Afmælisbarnið hefur ekki áhuga á öðrum gjöfum í tilefni dagsins en glaðlegum brosum og hlýjum handtökum.
28.04.2009
Rauða krossdeild Skagastrandar verður með fatamarkað í húsi deildarinnar að Vallarbraut 4, föstudaginn 1. maí frá kl. 13:00 til 17:00.
Seld verða föt á vægu verði. Á staðnum verður líka vöfflusala og eru allir velkomnir.
16.04.2009
Myndlistarkonan Kate Dambach verður spyrill í spurningakeppninni DREKKTU BETUR á föstudagskvöldið þann 17. apríl..
Hún kemur frá Bandaríkjunum en er hér á vegum Nes listamiðstöðvar og kann bara ágætlega við sig á Skagaströnd.
Kata lofar að vera með skemmtilegar og fræðandi spurningar. Hún spyr á ensku en Ólafía Lárusdóttir þýðir spurningarnar jafnóðum.
Allir sem vettlingi geta valdið eru hvattir til að fjölmenna og njóta flottrar skemmtunar.
16.04.2009
Í kvöld verður kynningarfundur í kvöld kl.20 í Félagsheimilinu Fellsborgá vegum Sparnaðar ehf.
Fyrirtækið er ráðgjafafyrirtæki sem hefur sett sér það markmið að auka samkeppni á fjármálamarkaði með nýjungum í ráðgjöf, vörum og hugsun.
Hagkerfi Sparnaðar vinnur út frá hugmyndafræðum Ingólfs H. Ingólfssonar sem snýst m.a. um að greiða hratt niður skuldir, hafa gaman af því að nota peningana, spara og byggja upp eignir.
Með Hagkerfi Sparnaðar fá viðskiptavinir aðgang að hugbúnaði til þess að ná stjórn á fjárstreymi heimilisins.
Öllum eru velkomnir.
14.04.2009
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar
miðvikudaginn 15. apríl 2009 í Bjarmanesi kl 800.
Dagskrá:
1. Kjörskrá vegna Alþingiskosninga 25. apríl 2009.
2. Verkefni og framkvæmdir 2009.
3. Umsókn til Menningarráðs Nl. vestra.
4. Skýrsla atvinnuráðgjafa um hótel.
5. Bréf:
a) Björgunarsveitarinnar Strandar, dags. 26. apríl 2009.
b) Þórs Magnússonar, fyrrv. þjóðminjavarðar, dags. 24. mars 2009.
6. Fundargerðir:
a) Færðslunefndar, 5.03.2009.
b) Stjórnar Félags- og skólaþjónustu A-Hún. 24.03.2009.
c) Heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra, 6.03.2009.
d) Stjórnar SSNV, 17.03.2009.
e) Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 27.02.2009
f) Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 26.03.2009
7. Önnur mál
Sveitarstjóri
08.04.2009
Á skírdagskvöld býður Hólaneskirkja til tónleika með hinni frábæru söngkonu Guðrúnu Gunnarsdóttur. Hún mun syngja sín ljúfu lög við undirleik Valgeirs Skagfjörð.
Enginn aðgangseyrir. Fjölmennum í kirkjuna og eigum saman notalega stund.
08.04.2009
Framsagnarkeppni grunnskólanna í Húnavatnsþingi var haldin á Laugabakka 26. mars.
Þau Heba Líf Jónsdóttir, Sigurlaug Máney Hafliðadóttir og Ívan Árni Róbertsson kepptu fyrir hönd Höfðaskóla og stóðu sig öll glæsilega.
Keppendur auk þeirra voru frá grunnskólunum á Blönduósi, Húnavöllum og Laugabakka/Hvammstanga.
Ívan Árni sigraði í keppninni. Í 2. sæti varð Rakel Ósk Ólafsdóttir frá Grunnskóla Húnaþings vestra og í 3. sæti varð Atli Einarsson frá Grunnskólanum Blönduósi.
07.04.2009
Stúlknakór Norðurlands vestra syngur í dag í Hólaneskirkju og hefjast tónleikarnir klukkan 17. Kórinn hefur þegar komið tvisvar fram , á blönduósi og Hvammstanga, og hefur honum verið ákaflega vel tekið.
Aðgangurinn kostar 1.500 krónur og 800 fyrir grunnskólanemendur. Selt er við innganginn.
Ástæða er til að hvetja Skagstrendinga til að fjölmenna á tónleikanna.
Myndir:
Alexandra Chernyshova, listrænn stjórnandi
Elínborg Sigurgeirsdóttir, undirleikari
Margrét Petra Ragnarsdóttir, einsöngur í Katjusha
Sara Rut Fannarsdóttir, Ástrós Kristjánsdóttir og Margrét Petra Ragnarsdóttir, einsöngur í Dont cry for me Argentina
Stúlknakórinn á tónleikum í Blönduóskirkju
06.04.2009
Hvinur stormsins eða blíður andblær, lágvært öldugjálfur eða öskrandi öldurót, hjal ástarinnar eða tregi ástarsorgarinnar.
Allt þetta og margt fleira mátti heyra og skilja þegar hin frábæra færeyska söngkona Eivör Pálsdóttir hélt tónleika í Hólaneskirkju á Skagaströnd sunnudagskvöldið 5. apríl fyrir troðfullu húsi áheyrenda.
Með Eivöru var þriggja manna hljómsveit, tveir samlandar hennar sem léku á ýmis hljóðfæri og finnskur trommuleikari.
Sú tónlist sem Eivör flutti er að mestu leyti frumsamin og þar mátti greina töluverð áhrif frá færeyskri tónlist og umhverfinu þar, fólkinu, fuglunum, veðurfarinu og landslaginu á heimaslóðum.
Sérstæð túlkun hennar í söng og breitt raddsvið gerði þessa tónleika líka frábrugðna öðrum og myndaði sérstaka stemningu og hugblæ sem þakklátir áheyrendur nutu til fulls