28.10.2006
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í hreppsnefnd Höfðahrepps mánudaginn 30. október 2006 á skrifstofu hreppsins kl 1100.
Dagskrá:
1. Daggæslumál.
2. Tillaga um afslátt af gatnagerðagjöldum.
3. Bréf:
a) Eignarhaldsfélags BÍ, dags. 26. okt. 2006.
b) Stígamóta, dags. 19. okt 2006.
c) Foreldra grunnskólabarna, dags. í okt 2006.
d) Styrktarsjóðs EBÍ, dags. 18. okt. 2006.
e) Samráðshóps um nýtt álagningakerfi fasteignagjalda, dags. 13. okt. 2006.
4. Fundargerðir:
a) Fræðslunefndar, 23. okt. 2006.
b) Atvinnu- og ferðamálanefndar, dags. 25. okt. 2006.
c) Skipulags- og byggingarnefndar, dags. 16. okt. 2006.
d) Stjórnar SSNV, dags. 24. ágúst 2006.
e) Stjórnar SSNV, dags. 10. ágúst 2006.
f) 14. ársþings SSNV, dags. 25.-26. ágúst 2006.
5. Önnur mál
Sveitarstjóri
18.10.2006
Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi
Verður að þessu sinni haldin í Austur Húnavatnssýlsu. Síðasta ár var uppskeruhátíðin við Mývatn og nú er komið að Húnvetningum að bjóða til sín ferðaþjónustuaðilum af öllu Norðurlandi. Hátíðin verður haldin fimmtudaginn 9. nóvember. Gestir mæta við Upplýsingamiðstöð ferðamála í Brautarhvammi á Blönduósi kl. 11:00. Þar verða rútur sem fara með hópinn í sýnisferð um héraðið. Fróðir heimamenn kynna áhugaverða ferðamannastaði fyrir þátttakendum. Austur Húnavatnssýsla hefur margt að bjóða gestum sínum, bæði í náttúru og menningu. Vonast er til að ferðaþjónustuaðilar af öllu Norðurlandi mæti til leiks og ekki síst að heimamenn taki þátt. Það er mjög gagnlegt og skemmtilegt fyrir fólk í greininni að bera saman bækur sínar og eyða deginum saman. Hádegisverður verður snæddur í nýju hóteli á landnámsbænum Hofi í Vatnsdal. Þór Hjaltalín minjavörður mun kynna verkefnið “Á slóð vatnsdælasögu”. Komið verður við í Blöndustöð, Þingeyrakirkju og á Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi þar sem Jóna Fanney Friðriksdóttir bæjarstýra á Blönduósi og Elín Sigurðardóttir safnstýra taka á móti gestum. Eftir skemmtilega skoðunarferð verða gestir boðnir velkomnir til Skagastrandar í hinu glæsilega kaffihúsi, Kaffi Viðvík. Matarveisla og skemmtun verður í Kántrýbæ, þar sem Magnús B. Jónsson sveitastjóri sér um veislustjórn í Villta vestrinu. Skoðunarferð og veitingar eru gestum að kostnaðarlausu, en gistingu verður hver að sjá um fyrir sig. Gist verður á Blönduósi . Gistimöguleikar eru á Hóteli, Gistihúsi og í sumarhúsum. Bókanir í gistingu: Glaðheimar s. 898 1832 og Gistiheimilið Blönduból s. 892 3455. Sértilboð verður á gistingu í tilefni uppskeruhátíðarinnar.
Markaðsskrifstofa ferðamála á Norðurlandi tekur við skráningum og veitir upplýsingar á heimasíðunni www.nordurland.is eða í netfangingu nordurland@nordurland.is , einnig Haukur Suska-Garðarsson starfsmaður SSNV Atvinnuþróunar í síma 455 4300 eða haukur@ssnv.is . Helst þarf að skrá þátttöku fyrir 2. nóvember.
Hátíðin í fyrra heppnaðist mjög vel og verður þessi ekki síðri. Ferðaþjónustuaðilar eru hvattir til að taka þátt. Mætum hress í Húnvatnssýsluna og njótum skemmtunar og fróðleiks með öðrum ferðaþjónustuaðilum á Norðurlandi.
10.10.2006
Þann 9. okt. s.l. var haldin á vegum Fræðsluskrifstofunnar málstofa um íslenskukennslu fyrir kennara grunnskólanna í Húnavatnssýslum. Farið var yfir nýjustu áherslur, aðferðir, námsefni og verkefni tengt kennslu greinarinnar. Málstofan byggðist á fyrirlestrum, verkefnaskiptum og umræðum um mismunandi leiðir í kennslu námsefnisins. Umsjónarmaður málstofunnar var Gunnþóra Önundardóttir, kennari. Málstofan var haldin í Húnavallaskóla.
02.10.2006
Ný eldhúsálma og fleira
Í vor kom Magnús sveitarstjóri ásamt Braga tæknimanni frá Stoð ehf í heimsókn á leikskólann Barnaból. Erindið var að mæla upp eldhús leikskólans í því augnarmiði að stækka það út undir þakið sem fyrir var yfir pallinum. Magnús og Bragi fóru strax á fullt að mæla og finna hornrétta fleti á meðan Þórunn leikskólastjóri reyndi að sjá fyrir sér hvaða skápa og skúffur best væri að velja inn í nýtt eldhús.
Eftir mælingar og umræður var ákveðið að fara í framkvæmdir og stækka eldhúsið sem verið hefur óbreytt frá 1977 og orðið of lítið og óhentugt fyrir starfsemi í dag. Á s.l. ári var eldað fyrir um 44 börn og 7 starfsmenn í eldhúsinu sem í upphafi var eingöngu ætlað til að framreiða nesti úr og ekki gert ráð fyrir rekstri stórs mötuneytis.
Framkvæmdir hófust í júní og fyrir sumarfrí leikskólans var búið að steypa nýja gólfplötu, smíða glugga og veggeiningar og panta innréttingu frá Ikea. Í ágúst var hafist handa við að byggja nýju „álmuna“ við þá gömlu og fram í september einkenndist miðjuálma leikskólans af umgangi iðnaðarmanna, miklu ryki, límlykt, hamarshöggum og vélsagarhljóði.
Föstudaginn 22. september var verkinu lokið og nýja eldhúsið var síðan opnað með formlegum hætti 25. september. Elsta og og yngsta barn leikskólans, drengur og telpa, þau Auðunn Árni Þrastarson 5,8 ára og Halldóra Eiríksdóttir 2,1 árs klipptu á borða og þar með var eldhúsið tekið í notkun við fagnaðarlæti viðstaddra. Leikskólabörnum (en þau hafa fylgst með framkvæmdum frá upphafi af miklum áhuga), starfsmönnum leikskólans og hreppsnefnd Höfðahrepps var boðið að þiggja léttar veitingar að athöfn lokinni.
Almenn ánægja er með hvernig til hefur tekist með fyrirkomulag, nýtingu og útlit á nýja eldhúsinu og þó stækkunin sé kannski ekki mikil í fermetrum talið (um 12-13 fermetrar) er þetta góð stækkun og mikil breyting, mun rýmra og innréttinging stærri og hentugri.
Trésmiðja Helga Gunnarssonar á Skagaströnd sá um verkið og aðalsmiðir á staðnum voru Einar Gunnarsson og Sigurður F. Björnsson. Stoð ehf á Sauðárkrók sá um að teikna nýbygginguna og Björn Hallbjörnsson frá Neistanum ehf sá um raflagnir. Og þökkum við öllum sem komu að verkinu kærlega fyrir gott starf.
Vetrarstarf Barnabóls 2006-2007 er fjölbreytt að vanda og ýmsar nýjungar í gangi. T.d. verða sérstakir listgreinadagar einu sinni í mánuði sem viðbót við annað listrænt starf. Á þessum dögum verður glímt við listræna sköpun af ýmsu tagi t.d. flutt leikrit, söngleikir, málaralist og hönnun svo eitthvað sé nefnt. Í vetur verður ekki leikfimikennari með okkur í íþróttahúsinu á þriðjudögum en starfsmenn sjá um skipulag tímanna. Börnum á leikskólaaldri úr Skagabyggð, sem ekki eru á leikskólanum, er boðin þátttaka í leikfiminni eins og undanfarin ár. Þar sem aðeins 3 börn koma í leikskólanum kl. 13-17 og ekki er skynsamlegt að vera með leikfimi fyrir þetta fá börn koma þau líka á milli kl. 11-12 í þriðjudagsleikfimina.
Með kveðju frá Barnabóli
Þórunn Bernódusdóttir
Leikskólastjóri