29.10.2003
Arnar HU-1 kom til heimahafnar í dag eftir 40 daga slipp í
Póllandi þar sem umtalsverðar endurbætur voru gerðar á
skipinu. Endurbæturnar miða fyrst og fremst að því að auka
sjóhæfni skipsins svo að það standist ýtrustu kröfur
Siglingarmálastofnunar um stöðuleika. Verkið fólst í því að
skutur skipsins var sleginn út og andveltitankur settur fyrir
framan brú þess. Við breytingarnar jókst tankarými fyrir olíu
um fimmtung þannig að ekki er lengur þörf á því að sigla í
land til olíutöku þegar líður tekur á veiðiferð eins og áður
þurfti. Í slippnum í Póllandi var skipið jafnframt sandblásið og
heilmálað. Arnar hreppti leiðinda veður í um sólarhring á
leiðinni heim og er það samdóma álit skipstjórnarmanna að
vel hafi tekist til með breytingarnar, sjóhæfni skipsins hafi
aukist verulega og að það muni örugglega verða betri
vinnustaður en áður með minni veltingi. Verktakinn í Póllandi
skilaði verkinu á skemmri tíma en ráð var fyrir gert og var
tilboð pólska fyrirtækisins aðeins um 32% af upphæð lægsta
tilboðs hér heima. Kristinn Halldórsson hjá Skipasýn H/F í
Reykjavík sá um hönnun og teikningar á endurbótunum
Arnars.
J.K.
24.10.2003
Möguleikhúsið sýndi leikritið Prumpuhól fyrir ungu kynslóðina
á Skagaströnd í morgun. Fékk leikritið góðar viðtökur og lifðu
börnin sig inn í sýninguna. Var bæði grátið og hlegið en allt
endaði vel að lokum. Leikritið fjallar um 9 ára gamla
borgarstelpu sem villtist út í náttúruna og hitti 90 ára gamlan
tröllastrák. Pabbi hans var orðin að steini sem prumpaði
alltof mikið, bæði hátt og lengi af því að hann borðaði of
mikið. Með tröllastráknum og borgarstelpunni tókst einstök
vinátta sem endaði farsællega.
22.10.2003
Undanfarnar 2 vikur hafa sjómenn af Arnari HU1 og Örvari
HU2 setið 36 stunda tölvunámskeið í Höfðaskóla. Þetta
námskeið var sniðið fyrir byrjendur og var farið í grunnþætti í
Windows, Word, Excel og Internetinu. Þótti námskeiðið
takast vel og þátttakendur voru ánægðir með hvernig til
tókst. Þetta námskeið var haldið í samvinnu Farskóla
Norðurlands vestra og Brims. Kennari var Dagný Rósa
Úlfarsdóttir
20.10.2003
Hraðfiskibáturinn Hafgeir HU 21 kom að landi í dag
mánudaginn 20. október með 7,5 tonn af þorski. Hafgeir sem
er 6 brúttótonn var einungis um 12 klst. í róðrinum og fékk
aflann á 15 bala af línu. Aflinn var nær eingöngu boltaþorskur
og sem dæmi má nefna að einungis um 150 kg fór í undirmál.
Eigandi Hafgeirs HU 21 er Sævar R. Hallgrímsson. Ekki fékkst upp
hvar í Húnaflóanum hann hafði lagt línuna þegar þessi afli fékkst.
Línubátar sem gerðir eru út frá Skagaströnd eru nú um 10 og hafa aflað
ágætlega þegar gæftir hafa verið.
14.10.2003
Undanfarna daga hefur verið unnið af kappi við að endurbyggja
sjóvörn framan við Fjörubrautina. Gamla sjóvörnin var orðin
sigin og hætt að verja kantinn eins og þurfti. Sjóvörnin var því
endurgerð og styrkt á um 200 metra kafla. Hún var einnig
færð framar á um helmingi svæðisins og þannig skapað
svigrúm til að koma fyrir holræsalögnum í bakkanum.
Verktakar eru Skagfirðingarnir Jón og Sveinn Árnasynir sem
samhliða eru að vinna að lagningu Þverárfjallsvegar en auk
sjóvarnarinnar hefur verið samið við þá um uppfyllingu undir
upptökubraut fyrir báta ásamt sjóvörnum í tengslum við það á
hafnarsvæðinu. Gert er ráð fyrir að verkinu ljúki á næstu
dögum. Fyrr í sumar var skipt um jarðveg í Fjörubrautinni að
hluta og sett á hana klæðning og götulýsing. Einnig hafa
húsráðendur við Fjörubraut unnið við að mála og klæða
húsin. Þannig hafa mörg atriði haft jákvæð áhrif á breyta
ásýnd Fjörubrautar.
05.10.2003
Á Skagastrandarhöfn hefur verið komið upp
veðurathugunarstöð sem mælir bæði veður og sjólag.
Upplýsingar frá stöðinni birtast á vefsíðu Siglingastofnunar
www.sigling.is og þar er hægt að sjá upplýsingar um vindátt,
vindhraða, hitastig, loftþrýsting og ölduhæð. Veðurstöðin
mælir í raun líka sjávarföll en þeim upplýsingum hefur ekki
verið komið fyrir á vefnum enn. Í athugun er hvort mögulegt er
að birta upplýsingarnar beint á skagastrond.is en það hefur
ekki verið leyst enn.
Veðurstöðin var hönnuð og sett upp af M&T ehf. í samstarfi
við Siglingastofnun og Skagastrandarhöfn.
02.10.2003
Nú er starfsemi Námsstofunnar komin í fullan gang. Búið er að
bæta við tveim tölvum og útbúa aðstöðu fyrir minni hópa, þar sem
þeir geta unnið saman að verkefnum. Einnig er möguleiki á því að
nýta húsnæðið til margskonar námskeiðshalda.
Viðtökur bæjarbúa hafa verið mjög jákvæðar eins og sjá má af því
að átjan einstaklingar hafa nú þegar gert samning um nýtingu á
þeirri aðstöðu sem er á Námsstofu. Áhugi á endurmenntun er því
auðsjáanlega mikill meðal íbúa á Skagaströnd.