27.11.2003
Það vill oft vefjast fyrir fólki að setjast niður og skrifa ritgerð,
nokkuð sem er stór hluti af öllu námi. Mörgum finnst þetta jafnvel
óyfirstíganleg hindrun, ekki síst eftir langt hlé frá námi. Í þessu
eins og öðru er ekki til nein töfralausn en það hjálpar að hafa í huga að
nauðsynlegt er að vinna ritgerðir í þrepum.
Þessi þrep eru að:
- Ákveða efnið (oftast í samráði við kennara).
- Ræða um efnið við alla sem nenna að hlusta og gefa góð ráð.
- Skrifa niður lykilorð fyrir hvern kafla ritgerðarinnar.
- Gera uppkast.
- Lesa yfir uppkastið og bera það undir einhvern sem er tilbúinn að
veita uppbyggilega gagnrýni.
- Skrifa textann í ritvinnslu/word
- Endurskoða inngangs-og lokaorð.
- Lesa vel yfir textann og nota stafsetningarleiðréttingarforrit, ef það er í
tölvunni eða fá einhvern til að lesa ritgerðina yfir.
- Muna eftir forsíðu og setja efnið í snyrtilega möppu.
Gangi ykkur vel.
27.11.2003
Fjarnámsnemar athugið..................
Innritun á vorönn 2004 í Fjölbrautaskólann við Ármúla verður í
byrjun janúar 2004. Nánar auglýst síðar á heimasíðu skólans
www.fa.is
Innritun á vorönn 2004 í Verkmenntaskólann á Akureyri verður
dagana 5.-8. janúar 2004 www.vma.is
Innritun á vorönn 2004, við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra,
stendur yfir þessa dagana og lýkur 10. desember nk.
www.fnv.is
Innritun á vorönn 2004 í Iðnskólann í Reykjavík hefst 1. desember
nk. Sendið tölvupóst á netfangið fjarnam@ir.is eða hafið samband
við Iðnskólann í síma: 5226500 www.ir.is
Einnig er hægt að fá upplýsingar og aðstoð við umsóknir á
Námsstofu Skagastrandar í síma:4522747 eða með því að senda
tölvupóst á netfangið namsstofa@skagastrond.is
Umsjónarmaður Námsstofu
Hjálmfríður Guðjónsdóttir
24.11.2003
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í Hreppsnefnd Höfðahrepps
þriðjudaginn 25. nóvember 2003 á skrifstofu hreppsins
kl 1600.
Dagskrá:
1. Byggðakvóti,
Erindi sjávarútvegsráðuneytis vegna reglna um úthlutun.
2. Héraðsnefnd A-Hún, fjárhagsáætlun.
3. Markaðsskrifstofa ferðamála á Norðurlandi.
4. Bréf:
a) Aðstandenda heimilismanna á Sæborgu,
dags. 17.11.2003
b) Nemendafélags FNV, dags. í nóv. 2003.
c) Norðurstrandar ehf. dags. 10. 11.2003.
d) Samgönguráðherra, dags. 6.11.2003.
e) Verkefnisstjórnar átaks í sameiningarmálum
sveitarfélaga, dags. 28.11.2003.
f) Ferðamálaráðs Íslands, dags. í nóv. 2003.
5. Fundargerðir:
a) Skólanefndar, 19.11.2003.
b) Byggingarnefndar, 12.11.2003.
c) Héraðsráðs, 21.10.2003.
d) Héraðsráðs, 18.11.2003.
e) Verkfundar um svæðisskipulag, 29.10.2003.
f) Heilbrigðisnefndar Nl.vestra 31.10.2003.
6. Önnur mál.
Sveitarstjóri
24.11.2003
Nú líður að lokum fjórða námskeiðsins í kvennaátakinu
Líkama og sál. Auk hefðbundinna tíma í þolfimi og
tækjasal var boðið upp á magadansnámskeið og
skemmtikvöld í Kántrýbæ. Í lok námskeiðsins var efnt
til jólagleði í Félagsheimilinu Fellsborg laugardaginn 22.
desember s.l.
Konurnar sáu sjálfar um skemmtiatriði, skreytingar og
hluta af eldamennskunni. Þetta kvöld var ákveðið að
leggja íþróttaskóna og lóðin á hilluna sem voru þó ekki
langt undan því íþróttadótið var uppistaðan í
borðskreytingum kvöldsins.
Skemmtinefndin stóð fyrir sínu og konurnar brugðu sér
m.a. í hlutverk jólasveinsins og hinnar óviðjafnanlegu
Leoncie (Icyspicy), við frábærar undirtektir.
Einkaþjálfari hópsins Angela Berthold greindi frá
stærðabreytingum á hópnum á námskeiðstímanum og
kom m.a. fram að konurnar höfðu samtals grennst um
56 cm um mjaðmir.
Jólakveðja frá konunum í Líkama og sál
13.11.2003
Nú nálgast prófin og í mörgum skólum er fjarnemum boðið upp á
þann möguleika að taka prófin í heimabyggð. Þeir sem vilja geta
sótt um það til síns skóla, að taka prófin á Námsstofu, sem
annast þá framkvæmd prófanna. Á það skal þó bent að það er
alltaf ákvörðun viðkomandi skóla, hvar próf eru haldin.
12.11.2003
Það var löggumaður og löggukona sem komu, sagði
einn. Já, þau komu á löggubílnum, sagði annar. Og
löggukonan sagði börnunum söguna af honum bangsa
sem tók af sér beltið meðan bíllinn var á ferð og flaug á
sætið og meiddi sig þegar kisan hljóp yfir veginn. Já, af
því hann þurfti að bremsa svo fast svo hann keyrði ekki
á hana.
Ég nota alltaf hjálm þegar ég hjóla, en hann pabbi minn
gerir það ekki,heyrðist út í horni.
Já og ég hjóla alltaf á gangstéttinni. Ég get hjólað með
engin hjálpardekk.
Löggan gaf okkur svona endurskinsmerki, já en það var
frá bankanum. Ég á svona merki heima á úlpunni
minni. Maður getur notað tvö. Það má fara út á
peysunni til að skoða löggubílinn. Ein stelpan var á
inniskónum, en það er svo hlýtt, bergmálar einn. Ég
fékk að ýta á takkann, það kom hávaði. Einhver var
hræddur við hávaðann, ein hélt fyrir eyrun. Maður
hringir bara í 112 þegar slysið kemur.
Og umræðurnar héldu áfram ...
10.11.2003
Fimmtudaginn 30. nóvember sl. var Alda HU 12 sjósett í
Hafnarfirði. Alda er 15 tonna plastbátur smíðaður hjá
Bátagerðinni Samtak í Hafnarfiriði. Alda HU 12 kom til
heimahafnar á Skagaströnd sunnudaginn 9. nóvember. Í
bátnum er vél af gerðinni Catepillar 3196 sem er 660 hestöfl.
Hann er einnig útbúinn með bógskrúfu sem er 8 hö. Mjög fullkominn
búnaður er í bátnum og má segja að nýjustu siglinga- og fiskileitartæki
séu til staðar. Auk þessa eru stafrænar myndavélar sitt
hvoru megin við vélinu og þannig er hægt að vakta hana á
tölvuskjá. Um borð í bátnum er 120 lítra vatnstankur og bæði
heitt og kalt vatn. Í lest Öldunnar komast 11 stk. 660 lítra
fiskikör og eitt 380 lítra. Aldan er útbúin til línuveiða og er
með línuspil frá Beiti. Í stefni er góð aðstaða fyrir áhöfn og
salerni er í vélarreisn. Aldan HU 12 er í eigu þeirra
Víkurbræðra Sigurjóns og Árna Guðbjartssona en þeir gera
einnig út hraðfiskibátinn Bjart í Vík.
10.11.2003
Það óhapp vildi til þegar skipverjar á Ólafi Magnússyni HU 54
voru á veiðum í morgun að þeir misstu netatrossu, sem þeir voru
nýbúnir að draga, fyrir borð.
Á sama tíma bakkaði skipið og netin flæktust í skrúfunni. Skipverjar á
Grímsey ST 2 frá Drangsnesi komu til hjálpar og drógu Ólaf að bryggju
á Skagaströnd og komu þeir til hafnar um hádegisbilið.
Blíðskaparveður er á miðunum og lítil hætta á ferðum.
10.11.2003
Togarinn Örvar HU 2 kom til hafnar miðvikudaginn 6.
nóvember sl. Afli togarans var rúm 200 tonn af unnum
afurðum aðallega grálúðu sem veiddist einkum fyrir vestan
land.
05.11.2003
Það skein kæti úr hverju andliti þegar börnin á Leikskólanum
Barnabóli fóru út á leikvöllinn í morgun. Loksins, loksins... var hægt að
taka fram rassaþotur og snjóþotur og fara að renna sér. Einhver hafði
nú reynt að renna sér á hólnum í snjóleysinu fyrr í haust, en ekki gekk
það nú vel. En núna var hann loksins kominn „þessi hvíti og kaldi“ sem
svo margir höfðu beðið eftir, og þá var bara að drífa sig í
snjókarlagerðina. Hann var heldur ekki lengi að rísa, með hatt og staf
og skóna sér við hlið, stendur hann nú svo fínn í garðinum okkar á
Barnabóli. En Adam var ekki lengi í paradís, síðdegis tók sólin að
skína og snjókarlinn tók að bráðna. „ En það kemur kannski meiri snjór
á morgun“ sagði einhver með vonarhreim í röddinni.