22.10.2010
Starfskonur Vinnumálastofnunar ætla að ganga út af vinnustað sínum kl. 14:25 á mánudaginn 25. október og efna til göngu frá Stjórnsýsluhúsi.
Þær bjóða allar konur á Skagaströnd velkomnar í gönguna og hvetja þær til að taka þátt í þessum degi með þeim.
Þema dagsins er rauður og hvetjum þær allar konur að mæta í einhverju rauðu!
Gengið verður út Strandgötuna og til baka að Bjarmanesi þar sem starfskonur Vinnumálastofnunar bjóða upp á kaffi og meðlæti. Auður Herdís Sigurðardóttir, félagsmálastjóri talar gegn ofbeldi.
Áfram stelpur!
Konur gegn kynferðisofbeldi!
21.10.2010
Gæðagreinar
Fræðsluskrifstofa Austur-Húnavatnssýslu stóð fyrir námskeiði í fundarsal Samstöðu á Blönduósi, miðvikudaginn 20. október 2010.
Fyrirlesarar að þessu sinni voru: Helga Harðardóttir, kennsluráðgjafi og Ragnheiður Matthíasdóttir, deildarstjóri Ársskóla á Sauðárkróki.
Markmið fræðslunnar var að aðstoða skóla Húnavatnssýslna við innleiðingu á Gæðagreinunum sem er íslensk útgáfa af viðurkenndri skoskri aðferð við að meta starfsemi skóla.
Þrjátíu og tveir starfsmenn grunnskólanna geta nú nýtt sér þessar ágætu upplýsingar í starfi.
Mynd
Þátttakendur og leiðbeinandi að störfum
20.10.2010
Nes listamiðstöð á Skagaströnd verður með opið hús í dag, miðvikudaginn 20.október, frá klukkan 18 til 20.
Listamenn septembermánaðar bjóða Skagstrendingum og öðrum þeim sem áhuga hafa í heimsókn í vinnustofur sínar þar sem þeir munu sýna það sem þau hafa verið að vinna að undan farnar vikur.
Sjö listamenn hafa dvalið hjá Nesi í september og koma þeir frá Frakklandi, Írlandi, Englandi, Bandaríkjunum, Kanada og Ástralíu.
Listamenn mánaðarins eru:
Brandon Vickerd, myndhöggvari - Kanada
Orla Barry, listmálari - Írlandi
Michaela Gleave, innsetningar - Ástralía
Rebecca Partridge, listmálari - England
Heidi Schwegler, blönduð tækni - Bandaríkin
Laure Vigna, myndhöggvari - Frakklandi
Andrea Weber, innsetningar - Frakklandi
19.10.2010
Sunna og Jeppe verða með tónleika í Kántrýbæ á fimmtudagskvöldið klukkan 20:30. Á dagskránni verða fjölmörg lög, bæði þekkt sem og þeirra eigin.
Laufey Sunna Guðlaugsdóttir ólst upp á Skagaströnd og Jeppe er danskur. Hún syngur og leikur á hljómborð en hann á gítar.
Frítt er inn á tónleikana.
19.10.2010
Kirkjukór Hólaneskirkju á Skagaströnd hefur fengið Gospelkóng Íslands, Óskar Einarsson, ásamt hljómsveit og gestasöngvurum, í lið með sér til þess að halda gospeltónleika 23. og 24. október næstkomandi.
Tónleikarnir verða haldnir á þessum stöðum um næstu helgi:
Hólaneskirkju Skagaströnd, laugardaginn 23. október kl: 17:00
Miðgarði Skagafirði sunnudaginn 24. október kl: 15:00
Hvammstangakirkju sunnudaginn 24. október kl: 20:00
Stjórnandi er Óskar Einarsson
Söngvarar: Kirkjukór Hólaneskirkju ásamt gestum
Hljómsveit: Brynjólfur Snorrason og Jóhann Ásmundsson
Kynnir: Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson fyrrverandi sóknarprestur á Skagaströnd
Miðaverðið er 1.500 kr fyrir fullorðna og 500kr fyrir börn á grunnskólaaldri (ath. ekki er posi á staðnum).
Styrktaraðilar tónleikanna eru Menningarráð Norðurlands vestra og Minningarsjóður um hjónin frá Vindhæli og Garði
13.10.2010
Þjóðleikur er stórt leiklistarverkefni sem haldið er á öllu Norðurlandi í samstarfi við Þjóðleikhúsið og fjölmarga áhugasama aðila. Verkefnið nær til alls Norðurlands, allt frá Bakkafirði til Húnavatnssýslna. Mjög góð þátttaka er á Norðurlandi en nú hafa 14 hópar sótt um þátttöku í verkefninu. En það eru: Gjörningahópurinn Orkidea frá Akureyri, Leikhópurinn list, Grunnskóli Húnaþings vestra, Grunnskóli Fjallabyggðar, Yggdrasil – Leikfélag VMA, DADDAVARTA frá Skagaströnd, Blönduskóli, Árskóli á Sauðárkróki, Öxarfjarðarskóli, Píramus og Þispa – leikfélag Framhaldsskólans á Húsavík, Borgarhólsskóli á Húsavík, tveir hópar frá grunnskólum Akureyrar og síðan einn hópur frá Þórshöfn.
Þrjú glæný leikrit hafa verið skrifuð fyrir Þjóðleik, höfundarnir eru: Jón Atli Jónasson, Kristín Ómarsdóttir, Brynhildur Guðjónsdóttir og Ólafur Egill Egilsson sem skrifa verk í sameiningu. Næstu helgi verður námskeið haldið í Þjóðleikhúsinu fyrir leiðbeinendur hvers hóps, þar sem listrænir stjórnendur í fremstu röð verða til leiðsagnar. Leiðbeinendur munu fá kynningu á leikverkunum sem eru í boði og þeim gefst tækifæri á að hitta og ræða við höfunda leikverkana.
Stefnt er á að halda tækninámskeið fyrir hópana og verður það haldið á Norðurlandi helgina 7.-9. janúar 2011.
Hver hópur setur upp leiksýningu í sinni heimabyggð og frumsýnir þegar honum hentar. Helgina 1-3.apríl 2011 verður haldin lokahátíð þar sem hóparnir koma saman með sýningar sínar.
Nánari upplýsingar um verkefnið veita Vigdís Jakobsdóttir vigdis@leikhusid.is sími: 899 0272, Guðrún Brynleifsdóttir gudrunb@skagafjordur.is sími: 898 9820 og Alfa Aradóttir alfaa@akureyri.is sími: 460 1237 en þær í framkvæmdaráði Þjóðleiks.
12.10.2010
Þjóð til þings 12. október 2010
Borgarafundur á Sauðárkrók í dag um endurskoðun stjórnarskrárinnar
Stjórnlaganefnd og Samtök sveitarfélaga í Norðurlandskjördæmi vestra halda borgarafund í Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra, bóknámshúsi í dag 12. október frá klukkan 17:00-19.00
Fundurinn er kynningafundur um stjórnlagaþing og Þjóðfund 2010 auk þess sem kallað er
eftir sjónarmiðum íbúa.
Stjórnlaganefnd var kosin af Alþingi í sumar til þess að undirbúa endurskoðun
stjórnarskrárinnar. Nefndinni er ætlað að finna og leggja fram gögn fyrir stjórnlagaþing,
standa fyrir Þjóðfundi um endurskoðun á stjórnarskrá, vinna úr upplýsingum frá fundinum og
afhenda stjórnlagaþingi og loks að leggja fram hugmyndir að breytingum á stjórnarskránni.
Guðrún Pétursdóttir formaður stjórnlaganefndar:
,,Við viljum kynna Vestfirðingum þau áform sem eru uppi um endurskoðun á stjórnarskrá
lýðveldisins. Við sem stöndum að undirbúningum óskum einnig eftir því að fá að heyra
sjónarmið fólks um hvernig samfélag það vill byggja. Við hvetjum Vestfirðinga til að koma á
fundinn og láta rödd sína heyrast.“
Nánari upplýsingar gefur:
Berghildur Erla Bernharðsdóttir, upplýsingafulltrúi,
GSM: 694-5149
berghildur@stjornlagathing.is
11.10.2010
Vegna fyrirliggjandi tillagna um niðurskurð fjárframlaga til Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2011 hafa sveitarfélögin í Austur-Húnvatnssýslu í samvinnu við Stéttarfélagið Samstöðu, ákveðið að halda íbúafund um framtíð Heilbrigðisstofnuarinnar, þriðjudaginn 12. október n.k. kl. 17:00 í Félagsheimilinu á Blönduósi.
Kröfuganga verður farin frá Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi að
Félagsheimilinu á Blönduósi. Lagt verður af stað frá Heilbrigðisstofnuninni kl. 16:45.
Á fundinn verður heilbrigðisráðherra boðaður ásamt öðrum þingmönnum kjördæmisins.
Framsögu á fundinum halda m.a. fulltrúi sveitarfélaganna, Samstöðu, starfsmanna Heilbrigðisstofnunarinnar og fleiri.
Sýnum samstöðu og fjölmennum á fundinn.
07.10.2010
Boðið er til opins borgarafundar um endurskoðun stjórnarskrárinnar. Fundurinn verður haldinn á Fjölbrautarskólanum bóknámshúsi, Sauðárkróki 12. október og hefst kl. 17:00.
Til fundarins er boðið af Stjórnlaganefnd og Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Nefndarmenn greina frá áformum um endurskoðun stjórnarskrárinnar, frá þjóðfundi til þjóðarinnar.
Fundurinn hefur það að markmiði að sjónarmið íbúa um inntak stjórnarskrárinnar og hvernig samfélag þeir vilja byggja fái hljómgrunn. Allir eru hvattir til að mæta og láta rödd sína heyrast.
Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðunni: www.thjodfundur2010.is
Stjórnlaganefnd og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.
07.10.2010
Dagsbirtan minnkar nú með hverjum deginum sem líður. Líklega þýðir það að nú er komið haust. Veðrið leikur þó við Skagstrendinga. Hlýtt er í lofti og sólin skín nær því upp á hvern einasta dag. Egu að síður sölna laufin á trjánum, lyngið í Borginni verður rauðleitt og skuggar leika um hlíðar.
Hásjávað er þessa dagana, að minnsta kosti í Skagastrandarhöfn. Mikill sjór þýðir væntanlega meiri fiskur ... og minna land.
Meðfylgjandi myndir voru teknar sólríkan fimmtudagsmorgun þegar hús og bátar brostu við upprennandi sól.
Ekki er lengur spáð miðsumarshita á laugardaginn, þar brást Veðurstofa Íslands Skagstrendingum. Suðlægar áttir munu þó gæla við heimamenn og færa okkur áframhaldandi hlýindi yfir helgina og fram í næstu viku.