24.08.2015
Bæjarhátíðin Skagginn var haldin dagana 14.-16. ágúst 2015. Markmið hátíðarinnar var að skapa skemmtilega stemningu á Skagaströnd þar sem íbúar og félagasamtök tækju höndum saman um að eiga góðar stundir og gleðidaga. Tómstunda- og menningarmálanefnd sem stóð fyrir hátíðinni og sá um skipulag hennar hefur farið yfir hvernig til tókst og telur að með góðum stuðningi allra þátttakenda, íbúa, félagasamtaka, fyrirtækja og stuðningsaðila hafi hátíðin tekist vel og staðið undir væntingum.
Nefndin kaus að kalla alla þessa aðila „vini Skaggans“ og færir þeim öllum bestu þakkir fyrir þeirra framlag. Nefndin þakkar sömuleiðis öllum þeim jákvæðu og góðu gestum sem sóttu hátíðina heim og lögðu einnig sitt af mörkum til að gera Skaggann að þeirri notalegu og skemmtilegu hátíð sem raun bar vitni.
Tómstunda- og menningarmálanefnd Skagastrandar
21.08.2015
Siðareglur fyrir kjörna fulltrúa í sveitarstjórn Skagastrandar sem undirritaðar voru 13. ágúst 2014 hafa verið staðfestar af innanríkisráðuneytinu. Í 10. gr. reglnanna kemur m.a. fram að kjörnir fulltrúar undirgangist siðareglurnar og með undirskrift sinni og muni hafa þær að leiðarljósi. Siðareglurnar skuli vera aðgengilegar starfsfólki sveitarfélagsins, almenningi og fjölmiðlum á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagastrandar og á annan hátt sem sveitarstjórn ákveður, til að þessir aðilar geti gert sér grein fyrir meginreglum þeirra.
Siðareglurnar hafa verið settar á heimasíðuna undir "samþykktir" og má nálgast þær hér.
21.08.2015
Skagastrandarhöfn 1936 -1938.
Mikil umferð er um Skagastrandarhöfn allt árið en einkum þó
á sumrin meðan á strandveiðunum stendur.
Þetta er ekkert nýtt eins og þessi mynd frá 1936 - 1938 sýnir en
þá var síld um allan Húnaflóa á sumrin og fjöldi báta, sem
stundaði síldveiðar. Þá lá Skagastrandarhöfn vel við því stutt var
þaðan á miðin. Í framhaldinu var svo tekin ákvörðun um að
byggja síldarverksmiðju á Skagaströnd því mönnum datt ekki í
hug að síldin mundi allt í einu breyta hegðunarmunstri sínu og
hætta að ganga inn í Húnaflóann eins og hún hafði gert um
áratugi.
Á myndinni eru síldarskip í Skagastrandarhöfn kringum 1936. Húsið til
hægri með skúrþakinu hét Kárastaðir, Dvergasteinn var húsið næst
okkur fyrir miðri mynd með áfastri dökkri hlöðu.
Þórshamar er nýlega húsið með kvistinum og neðar með götunni,
sömu megin, er Garður.
Til vinstri á myndinni eru Brúarland og Móar ásamt fleiri húsum
sem einhver voru skepnuhús.
Stóra þriggja hæða húsið nær sjónum er Gamla kaupfélagshúsið
og á reitnum hjá því hægra megin er Kaupfélagshúsið og enn lengra
til hægri grillir í frysthúsið.
Húsið næst okkur á myndinni, ljóst með dökku þaki er óþekkt
(stendur ca þar sem Skálholt stendur í dag).
Ef þú kannt skil á hvað hús þetta er vinsamlega sendu okkur
þá athugasemd á: myndasafn@skagastrond.is
19.08.2015
Skólasetning Höfðaskóla verður í Hólaneskirkju, mánudaginn 24. ágúst og hefst kl. 10. Vonumst til að sjá sem flesta nemendur og forráðamenn þeirra. Að lokinni skólasetningu fylgja nemendur sínum umsjónarkennara í stofur til skrafs og ráðagerða.
Kennsla hefst skv. stundaskrá þriðjudaginn 25. ágúst.
Skólastjóri
18.08.2015
Gróðursetning bakkaplantna á vegum Skógræktarfélags Skagastrandar verður fimmtudaginn 20.08. 2015 kl. 17:30
Allir velkomnir , mæting við áhaldahúsið
Stjórnin
14.08.2015
Neðan við Einbúann.
Þessi mynd var tekin neðan við Einbúann á þeim tíma sem sjór
féll upp að honum. Hvenær myndin var tekin er ekki vitað fyrir
víst en Neðri-Jaðar sem byggður er um 1941 og Lundur,
byggður 1942 eru á myndinni, en ekki Lækjarbakki sem
var byggður um 1946.
Árið 1934 var hafist handa við hafnargerð á þessu svæði.
Þá var stutt bryggja, byggð um 1922, rétt austan við Hólsnefið,
sem er systi oddi Höfðans.
Húsin á myndinni eru frá vinstri: Litli/efri Lækur, Jaðar,
geymsluskúr (gamla sjoppan), Karlsskáli, Lækur, Lundur,
Lækjarbakki (gamli bærinn) og Karlsminni.
Bátarnir eru óþekktir en Spákonufellið er í baksýn.
12.08.2015
Skagginn 2015
Útisvið á Hólanesi laugardaginn 15. ágúst
Söngvaborg kl 13.00
Barna- og fjölskylduskemmtunin Söngvaborg verður á útisviði þar sem Sigga Beinteins og María Björk mæta með Söngvaborg ásamt Subba sjóræningja og leynigesti.
Söngvaborg er þekkt fyrir skemmtilegt efni í leik, tali og tónum þar sem alls konar persónur koma við sögu.
Dagskráin er studd af Minningarsjóði um hjónin frá Garði og Vindhæli
Tónlistardagskrá kl. 21:00-23:00
Á útisviðinu koma fram nokkur ungmenni á Skagaströnd ásamt eldri og reyndari tónlistarmönnum.
Unglistamennirnir; Eymundur, Laufey Lind, Snæfríður, Guðný Eva, Arna Rún, Kristmundur og Jón Árni munu syngja og leika á ýmis hljóðfæri og standa fyrir tónlistarveislu undir stjórn Guðmundar Egils.
Nes listamennirnir; Cristina og Beate munu sýna dans við undirleik kontrabassa.
Trúbadorinn; Gunnar S. Björnsson mun taka nokkur lög og hita upp fyrir ball með Trukkunum sem verður á Borginni seinna um kvöldið.
Gítarsnillingurinn; Gummi Jóns mun taka góða syrpu af lögum sínum eins og honum einum er lagið.
Varðeldur verður kveiktur kl 23.00 og þá mun Guðmundur Egill ásamt fleiri góðum stýra varðeldasöngvum.
07.08.2015
Dagskrá bæjarhátíðarinnar Skaggans 2015 liggur nú fyrir og verður borin í hús um helgina. Nánari útfærsla einstakra atriða verður kynnt á næstu dögum. Tómstunda- og menningarmálanefnd stendur fyrir dagskránni og óskar eftir samstarfi íbúa en einkum þó gleði þeirra og jákvæðu viðhorfi til að gera sér dagamun og eiga góðar stundir saman.
Skagginn 2015
Föstudagur 14. ágúst
10:30 - 24:00 Bjarmanes Café
Myndlistarsýningin „Eitt og annað“ – Herdís Þ. Jakobsdóttir.
Ljósmyndasýningin „Skepna“ – Vigdís H. Viggósdóttir.
13:00 - 17:00 Árnes, elsta húsið á Skagaströnd
Sýningin „Alþýðuheimili 1900-1920“.
13:00 - 18:00 Spákonuhof
Sýning- Þórdís spákona. Spáð í spil, bolla, rúnir og lófalestur.
18:00 Skagganum skotið af stað með fallbyssu við Bjarmanes Café
18:30 - 21:00 Útigrill á Borginni og hlaðborð inni
Tilboð á grillveislu í tilefni dagsins.
21:00 - 22:00 Ljóðaganga um Höfðann
Gengið um Höfðann og stansað á nokkrum stöðum til að lesa ljóð.
Lagt af stað frá Tjaldklaufinni.
21:00 - 24:00 Kósýkvöld í sundlauginni
Boðið upp á kaffi – sumarsvala og stemningu,
Frá kl. 22 verður 16 ára aldurstakmark.
23:00 - 01.00 Lifandi tónlist á Borginni (opið til kl. 03)
Gummi Jóns og Hjörtur Guðbjarts leika og syngja (frítt inn).
Laugardagur 15. ágúst
10:30 - 23:00 Bjarmanes Café
Myndlistarsýningin „Eitt og annað“ – Herdís Þ. Jakobsdóttir.
Ljósmyndasýningin „Skepna“ – Vigdís H. Viggósdóttir.
10:30 - 11:30 Froðudiskó á Kaupfélagstúni
10:30 - 12:00 Björgunarsveitin Strönd sýnir bíla og búnað
Við Björgunarsveitarhúsið Bjarnabúð.
10:00 - 11:00 Sjósund við Höfðann, mæting við sundlaug
Sundlaugin er opin kl 10:00 – 12:00. Lokað eftir hádegi.
12:00 – 13.00 Víðavangshlaup Umf. Fram við Höfðaskóla
Skráning á staðnum.
12:00 - 12:30 Björk
Skógræktarfélagið gróðursetur bjarkir í skjóli Spákonuhofs.
12:00 – 14:00 Samkaup Úrval býður upp á grillaðar pylsur
13:00 - 18:00 Sveitamarkaður í tjaldi við Árnes
Skráning söluaðila; gudlaug.gretars@gmail.com, 893 2645.
13:30 – 14:30 Opið listaverk í Bjarmanesi
Linda - listamaður í Nes byrjar á mynd sem gestir geta tekið þátt í.
14:00 – 17:00 Kaffihlaðborð í Bjarmanes Café, með gamaldags ívafi
Verð 1.800 kr; 6-11 ára 750 kr.; 0-5 ára frítt.
Flaututónlist Sibylle frá Nes listamiðstöð.
14:00 - 16:00 Grímugerð og andlitsmálun (Bjarmanes Café, neðri hæð)
13:00 - 17:00 Árnes, elsta húsið á Skagaströnd
Sýningin „Alþýðuheimili 1900-1920“.
13:00 - 18:00 Spákonuhof
Spáð í spil, bolla, rúnir og lófalestur.
14:00 – 14:30 Spákonugjörningurinn „Rúnakast – spáð í framtíðina“
Við Spákonuhofið.
14:00 - 15:00 Snarfari – hópreið hestamanna og teymt undir börnum
Teymt á Hnappstaðatúni.
13:00 – 15:00 Minigolfmót á svæðinu fyrir ofan Bjarmanes Café
Spilaðar sex holur, verðlaun fyrir 1. sæti – frítt.
„Hola í höggi“ á Hólanesi
Slegið á haf út til að hitta í fljótandi „holu“ (1.000 kr./3 boltar).
13:30 – 17:00 Hoppukastali á Hólanesi
14:00 – 17:00 Loftbolti á sparkvellinum (500 kr. / skipti).
13:00 - 13:30 Söngvaborg – barna og fjölskylduskemmtun
Skemmtunin verður á útisviði á Hólanesi.
15:00 - 18:00 Opin vinnustofa í Nes listamiðstöð
Kennsla í gerð heimatilbúinna myndavéla (12 ára og eldri).
21:00 - 23:00 Tónleikar á útisviði á Hólanesi
Ungir tónlistarmenn hefja skemmtunina og nokkrir eldri og reyndari taka einnig lagið. Guðmundur Egill, Gummi Jóns og fl. Dansatriði frá Nes – Cristine og Beate.
23:00 - 24.00 Varðeldur á Hólanesi
Varðeldasöngvar og kvöldstemning.
23:00 - 03:00 Ball á Borginni
Hljómsveitin Trukkarnir leikur fyrir dansi (2.000 kr).
Sunnudagur 16. ágúst
11:30 – 14:00 Brunch á Borginni
13:00 – 16:00 Gengið á Spákonufell
Lagt af stað frá golfvelli – leiðsögn.
13:00 - 21:00 Bjarmanes Café
Myndlistarsýningin „Eitt og annað“ – Herdís Þ. Jakobsdóttir.
Ljósmyndasýningin „Skepna“ – Vigdís H. Viggósdóttir.
13:00 - 17:00 Lummukaffi í Árnesi, elsta húsinu á Skagaströnd
Sýningin „Alþýðuheimili 1900-1920“.
13:00 - 18:00 Spákonuhof
Spáð í spil, bolla, rúnir og lófalestur.
07.08.2015
Slysavarnaæfing.
Að lokinni slysavarnaæfingu hjá Björgunarsveitinni í
nóvember 1987.
Hér hafa félagar í sveitinni stillt sér upp til myndatöku utan
við Bjarnaborg, sem þá var hús sveitarinnar.
Á myndinni eru frá vinstri: Davíð Reynisson, Sigurjón Ástmarsson,
Árni Geir Ingvarsson, Gísli Snorrason, Ástmar Kári Ásmarsson,
Frits Hendrik Berndsen, Helgi Gunnarsson, Margrét Ólafsdóttir,
Birna Sveinsdóttir, Gunnlaugur Sigmarsson, Magnús Sigurðsson
og Jóhannes Sveinsson.
Helgi, Margrét, Birna og Magnús klæðast "Hannes original" sem
var appelsínugulur anorak með góðum vasa framan á
nefndur eftir Hannesi Þ. Hafstein sem lengi var framkvæmdastjóri
og forstjóri Slysavarnafélags Íslands.
Árni Geir, Gísli, Kári og Hendrik eru í þurr-björgunarbúningum
sem notaðir voru af þeim sem voru um borð í Þórdísi, sem
var björgunarbátur sveitarinnar.
31.07.2015
Innbæingar.
Á árum áður skiptist Skagaströnd í útbæ og innbæ.
Svo var að minnsta kosti í hugum barna og unglinga og
stundum laust saman fylkingum út- og innbæinga.
Í dag eru mörkin milli bæjarhlutana ekki eins klár þannig að
slíkir bardagar eiga sér ekki stað lengur.
Á þessari mynd, af nokkrum innbæingum, sem var tekin á lóðinni
við Grund sennilega upp úr 1960, eru frá vinstri:
Kristinn Ágústsson Blálandi, Kristófer Einarsson Dagsbrún,
Guðbjörg Viggósdóttir (nær), Gunnlaugur Sigmarsson (fjær),
Díana Kristjánsdóttir Grund (næst), Gísli Bergsson Hólanesi (fjær),
Fritz Bjarnason Bjargi, Linda Kristjánsdóttir Grund (næst),
Hallbjörn Ágústsson Blálandi (í miðið), Hjörtur Guðbjartsson (fjærst),
Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001) (nær), Bogi Ingvar Traustason,
Heiðar Elvan Friðriksson (nær) og Ómar Jakobsson Grund (fjær) með heimilisköttinn Klóa.