08.06.2018
Síldarbræðsla
Síldarbræðsla í fullum gangi í verksmiðjunni á Skagaströnd.
Myndin var líklega tekin kringum 1950.
Gufuketill verksmiðjunnar var kyntur með svartolíu en ketillinn var í
rými lengst til hægri í húsinu til vinstri og svartur reykurinn fór út í
andrúmsloftið gegnum stóra skorsteininn. Þaðan var gufan leidd í næsta
rými hússins og látin knýja túrbínu til rafmagnsframleiðslu fyrir
verksmiðjuna. Síðan var gufan leidd áfram neðanjarðar yfir í verksmiðjuhúsið
þar sem hún var notuð til að sjóða síldina.
Úr síldinni var svo unnið mjöl og lýsi. Mjölinu var blásið yfir í stóru skemmuna
gegnum rörið sem sést á myndinni milli veksmiðjuhússins og skemmunar.
Lýsinu var aftur á móti dælt í tank sem stóð upp við Höfðann rétt norður
af frystihúsi Hólaness hf. Næst okkur á myndinni eru leyfar gömlu bryggjunnar
sem var rétt austan við Hólsnefið.
Bryggjuna byggðu sjómenn á Skagaströnd 1922 með styrk frá Verslunarfélagi Vindhælinga.
Senda upplýsingar um myndina
06.06.2018
Tveir kennarar af Norðurlandi vestra hlutu í dag viðurkenningu fyrir framúrskarandi störf en þeir eru Sara Diljá Hjálmarsdóttir, kennari í Höfðaskóla á Skagaströnd og Ingvi Hrannar Ómarsson, kennsluráðgjafi í tækni, nýsköpun og skólaþróun hjá Sveitarfélaginu Skagafirði.
Samkvæmt fréttatilkynningu tóku fimm kennarar í dag við viðurkenningum fyrir framúrskarandi störf við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands að viðstöddum mennta- og menningarmálaráðherra. Viðurkenningarnar voru veittar í framhaldi af átakinu „Hafðu áhrif“ sem Menntavísindasvið Háskóla Íslands stóð fyrir á vormánuðum en þar gafst almenningi kostur á að tilnefna eftirminnilega kennara á vefsíðunni hafduahrif.is
Viðtökurnar voru afar góðar en hátt í þúsund tilnefningar bárust. Valnefnd skipuð fulltrúum Háskóla Íslands, Kennarasambands Íslands og kennaranema fór yfir tilnefningarnar samkvæmt ákveðnum viðmiðum. Niðurstaðan var sú að veita fjórum framúrskarandi kennurum á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi viðurkenningar fyrir framlag þeirra til kennslu. Í fyrsta sinn voru veitt sérstök hvatningarverðlaun til ungs kennara fyrir framsækin störf í þágu menntamála sem hafa vakið athygli á alþjóðavettvangi.
(frétt af www.feykir.is )
05.06.2018
Við Höfðaskóla er laus staða stuðningsfulltrúa á elsta stigi. Umsækjandi þarf að geta sýnt sjálfstæð vinnubrögð, vera úrræðagóður, þolinmóður og hugmyndaríkur.
Nánari upplýsingar veitir Vera Ósk Valgarðsdóttir í síma 8624950.
Skólastjóri
05.06.2018
Sveitarstjórn Skagastrandar hefur mótmælt harðlega niðurskurði í útibúi Landsbankans á Skagaströnd við bankastjóra Landsbankans.
Í ályktuninni segir að með uppsögn á einu og hálfu starfi í eina bankaútibúi Landsbankans í Austur - Húnavatnssýslu sem telur um 1.800 íbúa, sé höggvið í sama knérunn og í öðrum byggðum þar sem Landsbankinn segir upp starfsfólki í 11 útibúum víðsvegar um landið.
Í nafni hagræðingar sé störfum í litlum byggðum fórnað á forsendum þess að tæknivæðingin hafi leyst fólkið af hólmi. Það mótmæli því hins vegar enginn að þróun og framfarir breyti störfum og verkefnum en með sömu tæknivæðingu og þróun væri hægt að nýta starfsfólk þvert á alla búsetu þar sem þekking og reynsla starfsmanna er notuð á nýjum forsendum, á nýjan hátt. Í þessu hlutverki hafi Landsbankinn alfarið brugðist og virðist ætla að stefna sem flestu starfsfólki sínu saman í musteri sem stjórnendur bankans eru að reisa í miðborg Reykjavíkur, sjálfum sér til dýrðar. Kostnaðurinn við það musteri, sem hlaupi sennilega á tug milljarða, geri hagræðingu með uppsögn nokkurra starfsmanna á taxtalaunum næsta hjákátlega.
Sveitarstjórn Skagastrandar skori því á ríkisstjórn Íslands sem aðaleiganda bankans að taka stjórnarhætti og hugmyndafræði stjórnenda bankans til alvarlegrar skoðunar.
04.06.2018
Vinnustofa með málm og gler
Lærðu að búa til fjölbreytta hluti á 8 kvölda námskeiði í silfur- og gullsmíði. Hannaðu og búðu til þinn eigin silfurhring og aðra skartgripi eða skrautmuni. Hentar byrjendum jafnt sem öðrum.
Leiðbeinandi: Tosca Teran (Kanada)
Þátttökugjald: Aðeins efniskostnaður 9,500kr
Hámarksfjöldi: 5-8 manns,
Dagsetningar: 5. – 7. – 12. – 14. – 19. – 21. – 26. og 28. júní nk.
Staður: Nes Listamiðstöð, Fjörubraut 8, Skagaströnd
Skráning: Kerryn 6915554 eða nes@neslist.is
Um leiðbeinandann
Tosca Teran er fjöllistamaður frá Toronto, Kanada, Hann hefur unnið með málma, tölvur og hreyfimyndir síðan á níunda áratugnum. Sjá heimasíðu hennar https://toscateran.com/
Olía, sandur og pappír – Gerð hreyfimynda
Í þessari tveggja daga vinnustofu verða gerðar tilraunir með
mismunandi aðferðir til að búa til stutt tónlistarmyndband.
Við munum nota pappír, olíu á gleri og fleiri aðferðir sem til samans
munu breyta teikningum í hreyfimyndir.
Þátttakendur þurfa að koma með myndavél (við þurfum 3 vélar fyrir
hvert hópverkefni), ýmiss konar efnivið (litaðan pappír, pensla, skæri, olíumálningu, vatnsliti og fleira) og frjótt ímyndunarafl.
Leiðbeinandi: Jérémy Pailler (Frakkland)
Þátttökugjald: Ókeypis
Hámarksfjöldi: 10 manns
Dagsetning: 9. og 10. júní 2018, kl. 10:00-17:00, báða dagana
Staður: Gúttó, Sauðárkróki
Skráning: Erla Einarsdóttir 6987937 eða nes@neslist.is
Um leiðbeinandann
Jeremy Pailler er myndlistarmaður með áherslu á sjónræna list. Hann hefur skrifað ritgerð um hreyfimyndir og er virkur á fjölmörgum sviðum kvikmyndagerðar. Sjá vefsíðu hans og dæmi um hreyfimyndir. http://www.jeremypailler.com/films/
Námskeið í teikningu (umhverfi okkar)
Í þessari vinnustofu er áherslan lögð á náttúruna í kringum okkur, m.a. með gönguferðum og söfnun sýnishorna til að teikna. Við teiknunina verður tekið tillit til áhugasviðs þátttakenda, s.s. með notkun vatnslita, prentunar, fjölþættra efna og textagerðar.
Leiðbeinandi: Pam Posey (Bandaríkin)
Þátttökugjald: Ókeypis
Hámarksfjöldi: 6-8 manns, (fullorðnir)
Dagsetning: 10 júní 2018, kl. 13.00-17.00
Staður: Skagaströnd – Kaffi Bjarmanes – kjallari
Skráning: Kerryn 6915554 eða nes@neslist.is
Námskeið í teikningu (litlir hlutir)
Hér er áherslan lögð á náttúrulega smáhluti í umhverfinu. Þátttakendur munu læra margvíslegar teikniaðferðir, notkun vatnslita, prentun, margmiðlunartækni og fleira.
Leiðbeinandi: Pam Posey (Bandaríkin)
Þátttökugjald: Ókeypis
Hámarksfjöldi: 6-8 manns, (fullorðnir)
Dagsetning: 20 júní 2018, kl. 18.30-22.30
Staður: Skagaströnd – Kaffi Bjarmanes – kjallari
Skráning: Kerryn 6915554 eða nes@neslist.is
Um leiðbeinandann
Pam Posey býr í Los Angeles og vinnur fyrst og fremst með náttúruna í sinni myndlist. Þetta er í fjórða sinn sem Pam dvelur í Nes listamiðstöð. Vefsíða: https://www.pamposey.org/
Bókagerð
Í þessari vinnustofu listamannsins Ron Linn munu þátttakendur nota náttúru og umhverfi Skagastrandar sem innblástur og efnivið til að búa til eigin myndlistarbók. Fyrri daginn verður efniviður úr náttúrunni nýttur til að búa til fallega og þrykkimyndir sem verður svo nýttur til bókagerðar. Seinni daginn verður unnið einfalt bókband þar sem stuðst er við brot og skurð. Áherslan er á verkferlum sem eru öllum aðgengilegir án þess að krefjast tækja til bókbands og prentunar.
Leiðbeinandi: Ron Linn (Bandaríkin)
Þátttökugjald: Ókeypis
Hámarksfjöldi: 12-15 manns,
Dagsetning: 9. og 16. júní, kl. 10.00-13.00
Staður: Nes Listamiðstöð, Fjörubraut 8, Skagaströnd
Skráning: Kerryn 6915554 eða nes@neslist.is
Um leiðbeinandann
Ron Linn er fjöllistamaður frá Oregon í Bandaríkjunum, með áherslu á teikningu. Hann vinnur með tengsl á milli manngerðar og mannlausrar náttúru með því að kanna minningar, dulúð og sögur. Hann kennir nú við Brigham Young háskólann í Utah, USA. Vefsíða: http://ronlinnportfolio.com/
Blau-hvítar myndir
Á þessu námskeiði vinnur þú međ sólarljósiđ, til ađ prenta bláhvítar ljósmyndir.
Þátttakendur búa til ljósmyndir með því að nota hluti eins og blóm, fjaðrir, hnappa o.s.frv. sem framkallast beint á pappír í fallegum bláum og hvítum ljósmyndum. Þetta er frekar auðveld tækni og hentar öllum 12 ára og eldri.
Leiðbeinandi: Danielle Rante (Bandaríkin)
Þátttökugjald: Aðeins efniskostnaður – 1,000kr
Hámarksfjöldi: 15-20 manns, 12 ára og eldri
Dagsetning: 17. júní 2018, kl. 13.00-16.00
Staður: Menningarfélag Húnaþings vestra
Eyrarland 1, 530 Hvammstangi
Skráning: Greta Clough 611 4694 eða nes@neslist.is
Um leiðbeinandann
Danielle Rante er myndlistarkona sem býr í Dayton, Ohio í USA. Hún starfar nú við Wright State háskólann í Ohio. Sjá heimasíðu hennar https://www.daniellerante.com/
01.06.2018
Nemendur fimm elstu bekkja Höfðaskóla fóru út úr skólanum þriðjudaginn 29. maí og eyddu skóladeginum í að tína rusl í fjörunum í nágrenni Skagastrandar, með kennurum og starfsfólki frá BioPol. Tíundu bekkingar fóru þó lengra því þeir hreinsuðu rusl í Kálfhamarsvík og víkinni norðan við hana. Sjötti og sjöundi bekkur byrjuðu sinn leiðangur í Bæjarvíkinni á Finnstaðanesinu og gengu svo alla leið heim að Salthúsinu með pokana sína. Krakkarnir í áttund og níunda bekk gengu síðan leiðina frá Vinhælisstapanum og heim að Bjarmnesi.
Á svæðinu við Kálshamarsvík safnaðist um 150 kg af rusli en ca 95% af því var alls konar plastefni. Þar voru áberandi stuttir grænir nælonspottar eins og eru í trollum togara og snurvoðarbáta. Greinilega var um að ræða afskurð sem til fellur þegar verið er að gera við trollið og er hér með farið fram á það við sjómenn að þeir passi betur upp á þessa litlu spotta þannig að þeir fari ekki í sjóinn.
Á leiðinni frá Finnstöðum og heim tíndust upp 220 kg af alls kyns rusli meðal annars nokkur gömul dekk og netadræsur auk alls plast- og járnaruslsins. Frá Vinhælisstapanum og heim voru dekk mest áberandi. Krakkarnir tíndu þau saman í stóran haug en síðan voru þau sótt á kerru og með dráttarvél. Giska má á að hér hafi verið um 60 – 70 dekk og dekkjarifrildi. Auk þess var tínt mikið af plasti eins og á hinum stöðunum.
Í þessu hreinsunarátaki, sem er hluti af umhverfismennt skólans, var nemendunum uppálagt að skipta sér ekki af spýtum né fuglshræum sem telja má að séu “eðlilegir‘‘ hlutir í fjörum landsins enda eyðast þeir með tímanum öfugt við plastið sem sagt er að endist a.m.k 500 ár í náttúrunni. Nemendur voru sammála um að það kom þeim á óvart hve mikið af plastrusli þau fundu og áttu erfitt með að ímynda sér hve mikið af því væri þá í hafinu við strendur landsins fyrst svo mikið rekur í fjörurnar.
Myndirnar tók James Kennedy
01.06.2018
Skemmtisigling á sjómannadegi er ómissandi hluti
hátíðahaldanna á Skagaströnd og nýtur alltaf mikilla vinsælda.
Hér kemur Ólafur Magnússon Hu 54 úr einni slíkri siglingu í renniblíðu
með fullan bát af glöðu fólki.
Myndina tók Ingibergur Guðmundsson á sjómannadaginn árið 2000.
Senda upplýsingar um myndina